Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Blaðsíða 62
70 Qfmæli LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 JUV Lára Helgadóttir Lára Helgadóttir skrifstofumað- ur og annar varaforseti Slysavama- félags Islands, búsett að Urðarvegi 22, ísafirði, er sextug í dag. Starfsferill Lára er fædd í Unaðsdal á Snæfjallaströnd og ólst þar upp til þrettán ára aldurs en hefur siðan búið á ísafirði. Lára lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á ísafirði árið 1954 og stundaði nám við Hús- mæðraskólann Ósk haustið 1958. Að námi loknu starfaði Lára um skeið hjá Kaupfélagi ísfirðinga og á Bæjarskrifstofunni, en hóf fyrir tæpum þrjátíu árum störf hjá Olíu- samlagi útvegsmanna, nú Olíufélagi útvegsmanna hf., og hefur unnið þar síðan sem skrifstofumaður og staðgengill framkvæmdastjóra. Hún situr nú einnig í stjóm fyrirtækis- ins. Lára hefur starfað ötul- lega að félagsmálum fyrir Slysavarnafélag íslands. Árið 1972 var hún fyrst kosin í stjórn kvenna- deildar SVFÍ á ísafirði og var síðan formaður deild- arinnar 1983 -89. Árið 1990 var hún kosin annar varaforseti landssamtak- anna og hefur gegnt því emhætti síðan. Fjölskylda Lára giftist 26.9. 1959 Vigni Jóns- syni, f. 31.8.1935, skipstjóra og síðar framkvæmdastjóra Olíufélags út- vegsmanna á ísafirði. Foreldrar hans eru Jón B. Jónsson skipstjóri, nú látinn, og Helga Engilbertsdóttir. Börn Lára og Vignis era Rúnar Helgi, f. 2.6. 1959, rithöfundur, kvæntur Guðrúnu Guðmundsdótt- ur, myndlistarmanni og fram- leiðslustjóra hjá auglýs- ingastofunni Góðu fólki í Reykjavík og eiga þau tvo syni, ísak Einar, f. 20.4. 1992, og Þorra Geir, f. 24.4. 1995; Arna, f. 12.6. 1960, kennari við Kópa- vogsskóla, gift Rúnari Þórissyni, gítarleikara og kennara, og eiga þau þrjú börn, Láru, f. 4.10. 1982, Margréti, f. 6.10. 1987, og Þóri Rafnar, f. 29.1. 1989; Jón Páll, f. 21.8.1963, hug- búnaðarráðgjafi hjá Nýherja í Reykjavik, kvæntur Ásdísi Geirs- dóttur þroskaþjáifa og eiga þau tvö börn, Vigni, f. 26.1. 1988, og Ástu, f. 21.7. 1990. Systkini Láru: Guðmundur, tré- smiður á Selfossi, nú látinn; Guð- björn, verkamaður, nú látinn; Ólaf- ur, blómakaupmaður í Reykjavík; Steingrímur, stórkaupmaður í Reykjavík; Guðríöur, húsmóðir í Reykjavík; Kjartan fyrrv. bóndi í Unaðsdal, nú búsettur í Mosfellsbæ; Guðbjörg, vistmaður í Arnarholti; Jón, fyrrv. formaður Einingar á Ak- ureyri; Sigurborg, hjúkrunarfræð- ingur í Reykjavík; Hannibal, járn- smiður í Kópavogi; Matthías, kaup- maður í Reykjavík; Sigurlina, skrif- stofumaður í Reykjavík; Haukur, skrifstofumaður í Reykjavík; Lilja, röntgentæknir í Noregi; Auðunn Ófeigur, afgreiðslumaður í Reykja- vík. Foreldrar Láru vora Helgi Guð- mundsson, f. 18.9. 1891, d. 8.10. 1945, bóndi í Unaðsdal, og k. h. Guðrún Ólafsdóttir, f. 3.7.1897, d. 24.11.1987, húsfreyja. Lára og fjölskylda hennar taka á móti gestum í Sunnusal Hótels Sögu í Reykjavík milli kl. 15 og 18 í dag. Lára Helgadóttir. Jónína Jónsdóttir, saumakona og verkakona, Flatahrauni 16, Hafnar- firði, er áttræð í dag. Starfsferill Jónína fæddist að Meiðavöllum í Kelduhverfi og ólst upp í Keldu- hverfinu. Hún var í barnaskóla Keldhverfinga og sótti síðar sauma- námskeið hjá Kristjönu Haralds- dóttur saumakonu. Jónína hefur auk heimilisstarf- anna stundað ýmis almenn verka- kvennastörf s.s. fiskvinnslu og ræst- ingar. Þá hefur hún saumað mikið um ævina fyrir fjölskyldu sína en einnig fyrir utanaðkomandi. Jónína Jónsdóttir Jónína söng með kirkjukór Djúpavogskirkju í rúm fjörutíu ár. Fjölskylda Jónína giftist 4.6. 1939 Jóni Sig- urðssyni, f. 1.9. 1915, bifreiðastjóra og ökukennara. Hann er sonur Sig- urðar Brynjúlfssonar bónda og Kristínar Jónsdóttur húsfreyju. Börn Jónínu og Jóns eru Helgi Þór, f. 29.8. 1938, bóndi á Urðarteigi í Berufirði, kvæntur Elsu Skúladótt- ur og eru synir þeirra Tumi Hafþór, f. 8.4. 1967, og Sverrir Hafliði, f. 7.10. 1971, d. 30.10. 1978; Halldóra Kristín Jónsdóttir, f. 6.6. 1941, verkakona á Djúpavogi, gift Ásgeiri Hjálmars- syni og eru böm þeirra Jónína Dagmar, f. 19.10. 1958, Hjörtur, f. 25.2.1960, Harpa, f. 10.9.1963, Ásgeir Ævar, f. 2.6. 1973, og Hall- ur Kristján, f. 23.12. 1977; Sigurrós, f. 11.7. 1943, húsmóðir í Hafnarfirði en börn hennar era Guð- mundur Jón, f. 8.5. 1963, d. 19.4. 1966, Svanur, f. 2.5. 1965, og Jón Davíð, f. 30.8. 1977. Hálfbróðir Jónínu, samfeðra, var Guðmund- ur Jónsson, f. 4.8. 1905, d. 13.3. 1977. Alsystkini Jóninu: Kristbjörg, f. 31.12. 1907, d. 30.10. 1982; Sigríður, f. 26.7. 1909; Óskar Jón, f. 15.10. 1911, d. 14.7. 1916; Sveinungi, f. 29.1. 1915; Sigurður, f. 24.12. 1919; Adam, f. 14.9. 1921; Rósa Elísabet, f. 1.1. 1926; Hólmfríður, f. 26.4. 1927, d. 14.9. 1991. Foreldrar Jónínu vora Jón Sigurgeirsson, f. 11.12. 1884, d. 19.5. 1954, bóndi á Tóvegg í Keldu- hverfi, og Halldóra Jóns- dóttir, f. 24.2.1886, d. 18.4. 1967, húsfreyja. Jónína Jónsdóttir. Sölvi Páll Jónsson Sölvi Páll Jóhannes Jónsson sjó- maður, Réttarholtsvegi 67, Reykja- vík, verður níræður á morgun. Starfsferill Sölvi fæddist að Látrum í Aðal- vík og ólst upp í Aðalvík. Hann fór ungur til sjós og stundaði sjó- " mennsku fyrir vestan. Sölvi festi kaup á jörðinni Stakka- dal í Sléttuhreppi og stundaði þar búskap 1940-43. Hann flutti þá að Látrum en árið eftir i Hnífsdal og síðan til Reykjavíkur. Sölvi var kyndari á kolatoguram 1943-52, lengst af á Helgafellinu. Hann kom þá í land og hóf störf sem vélstjóri í Áburöarverksmiðjunni er hún tók til starfa 1952. Þar starfaði Sölvi til 1980 er hann lét af störfum af heilsufarsástæðum. Sölvi er við góða heilsu og fer á hverju ári til Að- alvíkur þar sem hann er að byggja sér og fjöl- skyldu sinni sumarhús í Stakkadal. Fjölskylda Sölvi kvæntist 7.10. 1939, Laufeyju Jakobínu Guðmundsdóttur, f. 27.5. 1914, húsfreyju. Foreldrar hennar vora Guðmundur Halldórsson, bóndi í Neðri-Miðvík og k.h., Margrét Bjamadóttir hús- freyja. Börn Sölva og Laufeyju eru Hall- dóra Jóna Guðmunda, f. 26.7. 1940, gift Sveinbirni Guðjónssyni, bifvéla- virkja í Reykjavík; Her- mann Theódór, f. 18.3. 1941, pípulagningamaður í Reykjavík, kvæntur Að- alfríði Stefánsdóttur; Margrét Sigríður, f. 5.2. 1945, stórkaupmaður í Reykjavík; Axel Halldór, f. 30.4. 1951, bygginga- tæknifræðingur í Reykja- vík, kvæntur Björk Geir- dal. Systkini Sölva: Guð- mundur Þórarinn, f. 7.1. 1903; Sigurður Hermann Agnar, f. 2.11.1905, smiður og innheimtumað- ur í Kópavogi; Hannes Jónmundur, f. 7.4.1912, bryti í Reykjavík; Snorri Ragnar, f. 27.1. 1915, verkamaður í Reykjavík. Fósturbróðir Sölva var Hermann Hjálmarsson, vélstjóri úr Stakkadal. Foreldrar Sölva voru Jón Þorkels- son, bóndi að Látrum í Sléttuhreppi, og k.h., Halldóra Vigdís Guðnadótt- ir bóndakona. Ætt Jón var sonur Þorkels Isleifsson- ar, b. í Neðri-Miðvík og f.k.h., Mar- íu Gísladóttur húsfreyju. Halldóra Vigdís var dóttir Guðna, b. í Tungu, Jósteinssonar og k.h., Matthildar Amórsdóttur húsfi'eyju. Sölvi tekur á móti gestum í Þórs- höll, 4. hæð, laugardaginn 4.4. milli kl. 15.00 og 18.00. Sölvi Páll Jónsson. Séra Augustinus George Séra Augustinus Geor- ge, prestur og skólastjóri Landakotsskóla, til heim- ilis að Hávallagötu 16, Reykjavík, verður sjötug- ur á morgun. Starfsferill Séra George fæddist í Wylré i Hollandi. Hann vígðist til prests í Oirschot í Hollandi 11.3. 1956. Séra George kom til ís- lands 21.11. 1956. Hann hóf kennslu við Landakotsskóla haustið 1958 og hefur verið skólastjóri Landakots- skóla frá 2.2. 1962. Fjölskylda Séra George átti sex systkini, tvo bræður og fjórar systur. Hann á nú einn bróður á lífi og tvær systur. Foreldrar séra George voru Leó George, f. 1890, d. 1964, verkstjóri við kolanámur, búsettur í Wylré, og k.h., Gertrud George Bertrand, f. 1887, d. 1983, húsmóðir. í tilefni afmælisins verður opið hús í Landakotsskóla á afmælisdaginn, sunnudaginn 5.4. n.k. milli kl. 16.00 og 18.00. Séra Augustinus George. Sigríður Rut Hjaltadéttir Sigríður Rut Hjalta- dóttir, starfsmaður í kertagerð og við garð- yrkju, Undirhlíð 3, að Sólheimum í Grímsnesi, verður sextug á morgim. Starfsferill Rut fæddist í Reykja- vík, ólst þar upp og á Kópavogshælinu frá 1960, en hefur átt heima á Sól- heimum frá 1982. Rut er mikill listamað- ur. Myndir eftir hana prýða hinar ýmsu vistarverar á Sól- heimum og ein slík er á jólakorti sem Sólheimar gáfu út 1996 og sem borgarstjórinn í Reykjavík sendi út í nafni Reykjavikurborgar. Rut hefur tekið þátt i ýmsum samsýningum. Hún syngur í kór Sól- heima og starfar í skáta- félaginu þar. Fjölskylda Systur Rutar eru Eva Ólöf, f. 1943; Ásta Benný, f. 1951. Foreldrar Rutar eru Hjalti Benediktsson, aðal- varðstjóri í Slökkviliðinu í Reykjavík, og Gróa Pét- ursdóttir húsmóðir. Sólheimar verða með kaffi fyrir Rut 6.4. kl. 15.00 og 10.4. tekur Rut á móti gestum á heimili Ástu Bennýjar, Háaleitisbraut 34, milli kl. 17.00 og 19.00. Sigríður Rut Hjaltadóttir. Upplýsingar fyrir afmælisgreinar í páskablað DV þurfa að berast ættfræðideild eigi síðar en mánudaginn 6. apríl. 111 hamingju með afmælið 4. apríl 85 ára Rósa Guðnadóttir, Ugluhólum 4, Reykjavík. 80 ára_______________ Dagmar Árnadóttir, Víðihlíð, Grindavík. 75 ára Þóarinn Ingi Sigurðsson, fyrrv. skipstjóri, Melabraut 28, Seltjamarnesi. Kona hans er Sjöfn Guðmundsdóttir. Þau era á Kanaríeyjum um þessar mundir. Gunnar I. Sigurðsson, Hlíðarbraut 4, Hafnarfirði. Hallfríður Ásmundsdóttir, Háaleitisbraut 151, Reykjavík. Sigrún Hansdóttir, dvalarheimilinu Sauðá, Sauðárkróki. 70 ára Sigurður Þórðai'son, fyrrv. stöðvarstjóri Laxeldisstöðvar ríkisins í Kollaftrði, Vallholti 21, Selfossi. Hann verður heima og tekur á móti gestum að Vallholti 21, Selfossi, eftir kl. 16.00 i dag. Borghildur A. Jónsdóttir, Álftamýri 30, Reykjavík. Jón Meyvantsson, Álftamýri 28, Reykjavík. Hann er að heiman. Sigurður Jónsson, Hellisgötu 3, Hafnaífirði. Unnur Lúthersdóttir, Fannborg 1, Kópavogi. 60 ára Anna Klara Guðlaugsdóttir, Hrísmóum 6, Garðabæ. Erla Gisladóttir, Egilsgötu 18, Reykjavík. Erla Svanhildur Ingólfsdóttir, Aflagranda 40, Reykjavík. Guðlaugur Sveinsson, Stakkholti 3, Reykjavík. Lilja Hallgrímsdóttir, Miðgarði 2, Egilsstöðum. 50 ára Jón Bjöm Jónsson, Engjaseli 33, Reykjavík. Jóna Gunnarsdóttir, Giljaseli 9, Reykjavík. Jónína Hjaltadóttir, Munkaþverárstræti 19, Akureyri. Víðir Benediktsson, Völusteinsstræti 12, Bolungarvík. 40 ára Aðalheiður H. Steinarsdóttir, Austurtúni 7, Hólmavík. Annika María Frid, Urðarstekk 9, Reykjavík. Bjarnheiður Jóna ívarsdóttir, Unnarstíg 1, Flateyri. Björn Einarsson, Móasíðu 6f, Akureyri. Bogi Jónsson, Skógarlundi 3, Garðabæ. Finnbogi Guðmundsson, Breiðvangi 17, Hafnarfirði. Guðrún Dýrleif Kristjánsdóttir, ÁsvaÚagötu 29, Reykjavík. Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir, Móabarði 37, Hafnarfirði. Oddný Bára Birgisdóttir, Urðarvegi 66, ísafirði. Ragnar Sævar Erlingsson, Barónstíg 41, Reykjavík. Sigrún Guðmundsdóttir, Bólstaðarhlið 58, Reykjavík. Valgerður Ásgeirsdóttir, Kópavogsbraut 83, Kópavogi. t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.