Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998 Fréttir Dreifbýliskvóta skipt upp milli útvalinna: Vinum og kunningjum úthlutað milljónum - hneyksli, segir haröfiskverkandi á VestQörðum „Þessu er úthlutað af Seljavallabónd- anum og Byggðastofnun. Þetta er að sjálfsögðu reginhneyksli og virðist vera ansi blár litur á þessari úthlutun. Þeir sem fóru með lista fyrir síðustu al- þingiskosningar í nafni smábátaeig- enda fá stærstu dúsumar og þetta virð- ist eingöngu fyrir þá,“ segir Finnbogi Jónasson, harðfiskverkandi á Isafirði, um kvóta sem Byggðastofnun hefúr ráðið og hugsaður var til úthlutunar til byggðarlaga sem áttu undir högg að sækja í atvinnulegu tilliti. Kvóti þessi hefur gengið undir ýms- um nöfnum manna á meðal, svo sem byggðakvóti, aumingjakvóti og Selja- vallakvóti. Síðastnefnda nafnið er dreg- ið af því að Egill Jónsson, alþingismað- ur frá Seljavöllum, er formaður Byggðastofnunar. Samkvæmt upplýs- ingum Sigurðar Guðmundssonar, for- stöðumanns þróunarsviðs Byggðastofn- unar, var „Seljavallakvótinn" upphaf- lega 500 tonn. Úthlutað var úr honum árlega til báta sem geröir voru út frá stöðum þar sem atvinnuástand var slæmt. Þær forsendur sem í upphafi voru fyrir því að þetta magn var tekið til hliðar til sérstakrar árlegrar úthlut- unar hafa að sögn Sigurðar breyst mjög síðan þá, bæði vegna breytts efhahags- ástands, vegna þess að sveitarfélög hafa sameinast og ekki síst vegna þess að kvótabátar sem áður fengu úthlutað árlega af þessum kvóta hafa verið að bæta gríðarlega við sig veiðiheimildum með kvótakaupum, t.d. með því að kaupa úreldingarbáta. Jafnframt hafa veiðiheimildir verið að aukast vegna þess að leyfð heildarveiði hefur verið aukin. „Neyðin sem var röksemdin fyrir þessum úthlutunum hefur verið að hverfa jafnt og þétt, jafnframt því sem praktískir erfiðleikar við að úthluta þessum heimildum hafa vaxið. Stöðugt hefur þannig orðið erfiðara að finna staði til að úthluta til sem almenn sátt ríkir um að þurfi á kvótanum að halda,“ sagði Sigurður í samtali við DV. Af þessum ástæöum sagði hann að ákveðið hefði verið að færa þessar út- hlutanir í varanlegan farveg og ákvörð- un um það tekin á Alþingi um síðustu áramót. Þessu er úthlutaö af Seljavallabónd- anum og Byggöastofnun. Þetta er reginhneyksli, segir Finnbogi Jónas- son. I framhaldinu var síðan útgerðum þeirra báta sem árlega höföu fengið af Seljavallakvótanum gefmn hann til varanlegrar eignar. 500 tonnunum var með þessum hætti skipt í tvennt: 320 tonnum var úthlutað til smábáta um allt land sem áður höfðu verið á sókn- armarki en afganginum, 180 tonnum, úthlutað varanlega á þá þorskaflahá- marksbáta sem áður höfðu fengið ár- lega úthlutun. Það skilyrði var sett að hver þessara báta sem fengju gefms „Seljavallakvóta“ hefðu ekki meiri kvóta fyrir en 80 tonn. „Sörli ÍS, sem er að mestu í eigu for- seta Farmanna- og fiskimannasam- bandsins, fær 8 tonna eignarkvóta. Það jafngildir því að hafa fengið gefnar 4 milljónir króna. Tveir bátar á Súganda- firði fá líka góða úthlutun og það vill svo skemmtilega til að annar þeirra er í eigu fyrrverandi formanns smábáta- eigenda á staðnum," segir Finnbogi. Hann segir það ólíðandi að þessu skuli úthlutað til vina og kunningja og flokksfélaga stjómarformanns Byggða- stofnunar. Með réttu hefði átt að skipta þess jafnt á alla smábáta sem róa á þorskaflahámarki. „Menn eru foxillir og þessi ráðstöfun Byggðastofnunar er ekki til að styrkja byggðina heldur til að splundra henni," segir Finnbogi Jónasson. -SÁ Dagfarí Hver segir af sér næst? Jóhann Ársælsson hefur sagt af sér í bankaráði Landsbankans. Ekki það að hann hafi gert neitt af sér frekar en bankastjórarnir sem sögðu af sér. En Jóhann segir samt af sér. Hann vill ekki vera minni maður heldur en bankastjóramir. Pijónakonan úr Kvennalist- anum hugsaði mjög alvar- lega um það aö segja af sér en er hætt við að segja af sér. Hún finnur kannski til einhverrar ábyrgöar á því sem gerst hefur í bankanum og vill þess vegna ekki segja af sér á þeirri forsendu að hún hafl ekki boriö neina ábyrgð. Það hafa bankastjór- amir gert og Jóhann. Þeir segja af sér vegna þess að þeir bám enga ábyrgð. Kvennalistakonan segir ekki af sér af því að hún tel- ur sig bera ábyrgð. Þannig að þeir sem sitja eftir í bankastjórn Landsbankans eru þeir sem bera ábyrgð á hneykslinu og laxamálinu. Þeir vilja ekki hlaupa frá vandanum. Bankamálaráðherra er í þeim hópi. Hann segir að Jó- hann sé að hlaupa frá vand- anum. Sem er náttúrlega al- gjört ábyrgðarleysi hjá Jó- hanni, ofan í þaö ábyrgðar- leysi sem hann telur sig hafa í málinu frá upphafi, með því að segja af sér í krafti þess. Kjartani Gunn- arssyni hefur ekki hug- kvæmst að segja af sér, enda hafa hann og bankaráðið sem hann stýrði haft nasa- þef af risnukostnaðinum og laxveiðunum sem hafa skað- að bankann, og Kjartan er ábyrgur maður og hleypur ekki frá þeim vanda sem hann hefur átt þátt í að skapa. Hann situr sem fast- ast. Þeir Kjartan og Finnur eru staöráðnir í að axla vandann og ábyrgðina og í sjálfu sér er það gott að það fólk sem ekki ber neina ábyrgð segi af sér og hætti í bankanum meðan þeir hin- ir, sem ábyrgðina bera, sitji í sínum valdastólum til að einhver beri ábyrgð á ábyrgðinni sem hinir ábyrgðarlausu eru að hlaupa frá. Sverrir Hermannsson hef- ur tekið að sér að skrifa reglulega i Moggann til að gefa upplýsingar um þá að- ila í þjóðfélaginu sem bera ábyrgð á svínaríinu og þannig getur Sverrir gefið haldgóðar upplýsingar um þá sem bera ábyrgð á sið- leysinu í bankakerfmu og laxveiðunum svo þeir hinir sömu þurfi ekki að segja af sér út af einhverjum mis- skilningi sem kann að skap- ast um að þeir beri enga ábyrgð. Sverrir Hermanns- son gerir mönnum mikinn greiða með því að upplýsa allt um siðferði þeirra og ábyrgð til að þessir menn geti haldið áfram að gegna ábyrgðarstörfum í samræmi við þá ábyrgð sem þeir bera með því að vera meðsekir í svínaríinu. Helst þyrfti að svipta nafnleyndinni af öll- um þeim sem hafa þegið lax- veiðiboð hjá bankanum og Eimskip og Sementsverk- smiðjunni og öðrrnn mikil- vægum stofnunum í þjóðfé- laginu til að fólk geti greint í sundur sauðina frá höfrun- um. Þeir sem ekki eru á þessum listum geta síðan sagt upp eða sagt af sér vegna þess ábyrgðarleysis sem þeir hafa gerst sekir um. Þeir einir geta þá hlaupið frá vandanum sem sitja uppi með þann vanda að bera enga ábyrgð á því að bankinn hafi lent í hremm- ingum vegna ábyrgðarleysis þeirra sem bera ábyrgð á skandalnum. Þeirra er skömmin, enda var þeim nær, bankastjórunum og Jó- hanni, að firra sig ábyrgð. Annars hefðu þeir ekki þurft að hætta. Dagfari Stuttar fréttiri>v Leifur látinn Leifm Þórarinsson tónskáld er látinn, 63 ára að aldri. Leifur var eitt þekkt- asta tónskáld okkar og voru verk hans þekkt víða erlendis. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin böm. Listi nýs bæjar Sjálfstæðismenn og óháðir í sameinuðu sveitarfélagi Dal- víkm, Árskógshrepps og Svarfaðardalshrepps hafa til- kynnt um framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosning- amar í vor. Fimm efstu menn eru Svanhildm Ámadóttir, Kristján Snorrason, Jónas Pét- msson, Friðrik Gígja og Sig- fríð Valdimarsdóttir. Konur á jökul Fjórar islenskar konm stefha að því að hefja í dag göngu sína yfir Grænlandsjök- ul og er áætlað að hún taki um fjórar vikur. Konur þessar heita Anna María Geirsdóttir, Dagný Indriðadóttir, María Dögg Hjörleifsdóttir og Þórey Gylfadóttir. Leiðangmsstjóri er Einar Torfi Finnsson. Enn dregur sundur Enn dregm sundm með R- lista og D-lista í fylgi til borgar- stjómarkosn- inga. Sam- kvæmt nýrri könnun Félags- vísindastofnun- ar fær R-listinn níu fúlltrúa kjörna en D-listinn 6. Tvö minnismerki Ríkisstjómin hefm ákveðið að setja 2,5 milljónir í minnis- merki um íslenska sjómenn á Hnjóti. Sams konar minnis- varði verðm eftir sem áðm reistm á Patreksfirði. Lóni mótmælt Fuglaverndunarfélag ís- lands mótmælir fyrirhug- uðu miðlunarlóni Lands- virkjunnar í Þjórsárverum. I tilkynningu frá félaginu segir að það mimi valda óbætanlegum spjöllum á einstæðu og heimsþekktu náttúrufriðlandi. Nýr formaður Aðalsteinn Ásberg Sig- urösson var kjörinn nýr formaður Rit- höfundasam- bands íslands á aðalfundi þess á dögun- um. Hann tekur við því starfi af Ingibjörgu Har- aldsdóttur. Framsókn tilbúin B-listi Framsóknarfélags Sandgerðis og óháðra er til- búinn. Heimir Sigursveins- son, Rakel Óskarsdóttir og Heiðar Ásgeirsson eru efstu menn á listanum. Ljóð kvenna I kvöld, klukkan 20.30, hefst í Listaklúbbi Leikhús- kjallarans dagskrá um ljóð kvenna. Helga Kress prófess- or velur ljóðin og fjallar um skáldkonumar. -HI/JHÞ Q 2 cc o. tddufelli Funðlind Grensdsveqi MostelUbd’ Noróurbrún Rofabð’ Skúlaqötu - Pvorbrokku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.