Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998 31 Sólarrafhlöðubílar Miklar framfarir hafa orðið í að nota sólarorkuna til að knýja áfram bíla með aðstoð vatns. Vísindamenn hafa verið að vinna í þessu um nokkurt skeið og segjast nú hafa komist skrefi nær þvi að geta framleitt slíka bíla. Þar eiga þeir við einfalt tæki sem notar sólarorkuna til að breyta vatninu í elds- neyti úr vetni. Þetta mun draga verulega úr orkunotk- un og þar með kostnaði við notkun bílsins. Stefnt er að því að sólarorkubílar verðir komnir á götuna á viðráðan- legu verði fyrir árið 2004. Gerviauga Bandaríski herinn hefur styrkt háskólann í Michigan svo að vísindamenn þar geti búið til gerviauga á örkubbi. Þetta yrði í fyrsta sinn sem slíkt yrði búið til í heimin- um. í þessu auga verða linsur, litlir leisigeislar og stillanlegir ljósaskynjarar. Tekið skal fram að þetta er ekki til þess að setja í þá sem hafa misst augað heldur er þetta til þess að hermenn geti skynjað hreyfmgu í meiri fjarlægð en þeir geta núna. Styrkurinn er veittur til þriggja ára og framlengist hugsanlega um tvö ár í við- bót. Hreinna eldhús Nú er svo komið að farið er að nota tækni sem upp- runnin er í geimrannsóknum til að gera eldhúsið að hreinni stað. Lengi hefur verið forðast að nota fægilög til að fægja málm í eldhús- inu því með honum missir málmurinn gljáann með tim- anum. Nú er hins vegar kominn nýr málmur sem stenst álag allra slíkra efna þannig að eldhúsið geti alltaf orðið skínandi hreint og gljá- andi. Þar sem hann hefur verið prófaður í geimnum er gert ráð fyrir að hann endist mjög vel og lengi á jörðu niðri eins og hann hefur gert utan hennar. Slæmar hliðar rafbíla ímyndið ykkur að þið sitjið fyrir framan tölvuna að vinna að mikil- vægu verkefni. Allt í einu slökkna öll Ijós, það slökknar líka á tölvunni og stóra verkefnið sem var verið að vinna að en gleymdist að vista hverfur út í buskann. Fyrst er at- hugað hvort þvottavélin eða eldavél- in hafi slegið út rafmagninu. Síðan kemur í ljós að nágranninn var að tengja rafbílinn sinn með fyrr- greindum afleiðingum. Sérfræðingar ætla að slik saga gæti vel verið sönn og að þeir sem séu helstu talsmenn þess að nota rafbíla hafi ekki alveg hugsað málið til enda. Ef rafbílar fara á götuna þurfi nefnilega að endurbæta raf- kerfið á ansi mörgum stöðum. Þetta segir a.m.k. bandaríski raf- magnsverkfræðingurinn Alexander Domijan en hann hefur rannsakað fyrsta rafbílinn sem fer í fjöldafram- leiðslu, EVl frá General Motors. Hann athugaði sérstaklega áhrif bílsins á rafkerfið í Florida. Hann uppgötvaði að þegar rafbill er hlað- inn getur það truflað rafmagnsflutn- ing frá staðbundnum flutningakerf- um til heimilanna. Þó að aðeins 10 manns ættu slíkan bíl í nágrenninu gætu ljós dofnað, tölvur drepið á sér og annað misgæfulegt komið í ljós. Til að fólk geri sér í hugarlund hversu mikla orku þarf til að hlaða tóman rafbíl skal þess getið að hleðslan krefst jafnmikils rafmagns og loftkæling í 1000 fermetra húsi. Slæmt fyrir marga Þessar niðurstöður koma á sama tíma og rikin í Bandaríkjunum eru að taka höndum saman til að meng- unin verði undir þeim mörkum sem hún verður að vera árið 2007. Kali- fornía og New York hafa þegar skyldað bílaframleiðendur til að framleiða rafbíla. Margir hafa þegar lýst áhyggjum vegna þessarar nið- urstöðu þar sem menn sáu fram á að Florida væri stór markaður fyrir rafbíla. Gríðarlega mörg fyrirtæki ætla að hefja framleiðslu á bílum. Auk General Motors hafa japönsku bíla- framleiðendumir Honda og Toyota framleitt eða þróað bíla sem ganga bæði fyrir rafmagni og bensíni. Þessi fyrirtæki eyða gríðarlegum íjármunum 1 rannsóknir og þróun á slíkum tækjum. Talsmenn rafveitufyrirtækja segja að finna þurfl varanlega lausn á þessu vandamáli með sem minnst- um tiikostnaði. Ein lausn gæti verið sú að bæta við rafstöðvum en hætt er við að slík framkvæmd myndi fljótlega koma í ljós á rafmagns- reikningum notendanna. Önnur lausn er hreinlega að hvetja eigendur rafbílanna til að hlaða á réttan hátt á réttum tíma. Ekki eigi t.d. að láta bílinn tæmast að fullu og best sé að hlaða hann á tlmum þar sem rafmagnsnotkun er lítil, t.d. mjög seint á kvöldin. Eldri hús í meiri hættu Sérfræðingar segja að gömul hús með gömlum rafstöðvum séu í sér- staklega mikilli hættu að verða fyr- ir rafmagnstruflunum þegar rafbíl- ar eru í hleðslu. Vandamálið verði jafnvel ennþá meira þegar bílar koma á markað sem hægt er að hlaða á ennþá styttri tíma en þeir rafbílar sem nú þekkjast. Talsmenn General Motors segjast hins vegar bjartsýnir og að þetta séu ekki endalokin á þeirra mark- aðssetningu. Þeir búast við að lausn verði fundin á vandanum áður en fyrirtækið hefur fyrir alvöru fram- leiðslu á rafbílum. Hvort þeir reyn- ist sannspáir verður tíminn að leiða í ljós en eins og staðan er núna virð- ast vandamálin vegna rafbílanna mjög stór. -HI/ScienceDaily Ferskari ávextir Svona ferskir verða ávextirnir alltaf í nýja geymslukerfinu. Nýtt kerfi verður bráðum innleitt í stórmarkaði Bandaríkjanna sem gæti gert það að verkum að ávextir haldi ferskleika sínum mun lengur en þeir gera í hefðbundinni kæligeymslu. Það eru vísindamenn í tækniháskólanum í Madison í Wisconsin sem hafa þróað þessa tækni. Kerfið virkar þannig að það hreinsar úr loftinu allt eþílen en það er náttúrulegt efni sem orsakar að grænmeti og ávextir skemmast. Þetta er sams konar tækni og var notuð til að gera tilraun til að rækta plöntur um borð í geimfari. Nú verður hún sem sagt notuð til að unnendur þessa hollustufæðis geti loksins sigrast á gulu rósakáli, brúnum og morknum eplum og skítugu salati. Til að hreinsa eþílenið er notað efni sem kallast títanum díoxíð. Það brýtur eþílenið niður í litlar meinlausar karbondíoxíð- og vatnssameindir. Útfjólublátt ljós er notað til að virkja efnið. Það er fyrirtækið KES Irrigation Systems sem hefur fengið einkaleyfi til að markaðssetja tæknina og reikna talsmenn fyrirtækisins með því að þetta verði komið í einhverja stórmarkaði strax á komandi sumari. Þeir sjá mikla möguleika í að markaðssetja þetta víða en þeir ætla að byrja á búðum sem þurfa að selja slíka vöru og þar af leiðandi geyma í einhvern tíma. Reyndar er í notkun tækni sem á að halda eþíleninu í skefjum. Hún síar hins vegar aðeins efnið burt en eyðir því ekki strax. Þessi aðferð leiðir það líka af sér að mjög lítill viðhaldskostnaður fylgir þessu tæki. Útfjólubláa ljósið dregur einnig úr bakteríumyndun í geymsluherberginu sjálfu þannig að fleiri kostir eru við tækið en að það komi í veg fyrir að ávextimir og grænmetið skemmist. -HI/ScienceDaily rW Vento GL1600 árg. '97, 4 d., ssk., ek. 32 þús. km, fjólublár, álfelgur. < Verð 1.390 þús. Cadillac de Ville árg. '64, 2 d., ssk., rauður/hvítur. Verð 690 þús. Ford Escort station árg. '94, 5 d„ 5 g., ek. 59 þús. km, blár. Verð 890 þús. Hyundai Pony LSi árg. '94, 4 d., 5 g., ek. 62 þús. km, grár. Verð 570 þús. Toyota Landcruiser árg, '94,4 d„ 5 g„ rk. 60 þús. km, rauður/grár. Verð 3.700 þús. M. Benz Sprinter 312D árg. >96,5 d„ 5 g„ ek. 99 þús. km, hvítur. Verð 2.690 þús. VW LT 35 árg. '97,4 d„ 5 g„ ek. 33 þús. km, hvítur. Verð 2.680 þús. Borgartúni 26, símar 561 7510 & 561 7511 K e' * K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.