Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Page 13
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998 13 Fréttir Kosningabaráttan á Akranesi: um menn en ekki málefni Snýst Það er eins á Akranesi og í mörg- um öðrum sveitarfelögum að við bæj- arstjórnarkosningarnar 23. maí hefur framboðum fækkað. Við síðustu bæj- arstjórnarkosningar buðu fjórir flokkar fram, A-listi Alþýðuflokks, G- listi Alþýðubandalags, B-listi Fram- sóknarflokks og D-listi Sjálfstæðis- flokks. Framsókn fékk tvo fufltrúa, Al- þýðuflokkur einn, Sjálfstæðisflokkur þrjá og Alþýðubandalag þrjá og var ótvíræður sigurvegari kosninganna. Sjálfstæðismenn og alþýðubandalags- menn mynduðu meirihluta. Á fyrstu 3 árum kjörtímabilsins jukust tekjur bæjarsjóðs um 114 milljónir króna en skuldir um 279 milljónir. Rétt er að geta þess að bæjarsjóður keypti húsnæði fyrir Landmælingar á 90 milljónir króna. Auk þess var Andakilsárvirkjun keypt. Lagðir voru peningar í sam- einingu orkufyrirtækja og miklar framkvæmdir voru við íþrótta- og skólamannvirki. Þrír flokkar nú í kosningunum nú bjóða aðeins þrír flokkar fram. B-listi Framsókn- arflokks, D-listi Sjáifstæðisflokks og E-listi Akraneslistans. Þann lista Innlent fréttaljós Daníef V. Ólafsson skipar fólk úr Alþýðubandalagi, Al- þýðuflokki, Kvennalista og óháðum. Fyrstu þrjú sætin hjá Sjálfstæðis- flokki og Framsóknarflokki eru óbreytt, Guðmundur Páll Jónsson leiðir lista Framsóknarflokks, Gunn- ar Sigurðsson lista Sjálfstæðisflokks. Strandamaöurinn sterki Akraneslistann leiðir hins vegar Sveinn Kristinsson sem var fulltrúi Alþýðubandalags- ins á síðasta kjör- tímabili. Sveinn er kallaður Stranda- maðurinn sterki á Skaganum enda af Ströndum. Hann stefnir á hreinan meirihiuta með sinn lista sem er taiin mikil bjart- sýni. Væntanlega munu þrfr nýir bæjar- fulltrúar taka sæti í bæjarstjóm. Guð- bjartur Hannesson og Ingunn Anna Jónasdóttir hjá Alþýðubandalagi eru hætt. Ingvar Ingvarsson, bæjarfulltrúi Alþýðuflokks, fékk ekki inni á Akra- neslistanum. Margir telja líklegt að B- listinn endurheimti aftur þriðja mann- inn sem hann tapaði við síðustu bæj- arstjórnarkosningar. Baráttan muni standa milli hans, þriðja manns D-list- ans og fjórða manns vinstri manna. Óháöur Akraneslisti Við síðustu kosningar varð fylgis- hrun hjá bæði Alþýðuflokki og Framsóknarflokki sem varð til þess að þáverandi meirihluti féll. Missti tvo fulltrúa, fór niður í þrjá. Sjálf- stæðismenn og alþýðubandalags- menn mynduðu þá nýjan meirihluta. Næstur að koma inn manni 1994 var B- listi en sá sem tæpast stóð var al- þýðubandalagsmaður. Þegar Akra- neslistinn var myndaður var rætt um að hann yrði með óháð yfir- bragð. Það er mat margra að það hafi ekki tekist nema að litlu leyti. Akra- neslistinn samanstendur af fólki frá bæði meiri- og minnihluta sem und- irstrikar að ekki hafi verið mikil átakamál í bæjarstjóm. Menn verið sammála um flest. Ástæður samhug- arins eru væntanlega þær að ytri að- stæður eru jákvæðar og kosningar munu ekki snúast um málefni, held- ur um það fólk sem skipar listana. Verulegar skuldir Bærinn er tiltölulega skuldsettur og ef miðað er við efnahagsreikning bæjarsjóðs 31. desember 1996 voru skuldir bæjarsjóðs 667 milljónir eða 128.000 kr. á íbúa. Á sama tima voru tekjur bæjarsjóðs 612,5 milljónir sem þýðir að al- varlega þarf að huga að skulda- málunum. Öll framboðin gera sér grein fyrir þessari stöðu og að ekki þýðir að gylla framboðin með dýrum loforðalista. Sameiningar- og orkumál Þó viðurkennt sé að húshitunar- kostnaður er allt of hár er eins og menn forðist eins og heitan eld að tala um það. Líklegt er að ef einhver kosningamál koma upp þá verði það orkumálin og sameiningarmálin. Þar er um að ræða sameiningu sveitarfé- laganna sunnan Skarðsheiðar. Sá vandi er til staðar að bærinn á orðið lítið land og til stendur að byggja á mjög dýrum lóðum. Til að auka land- rými er væntanlega hagkvæmast fyr- ir bæinn að koma á sameiningu við sveitarfélögin sunnan Skarðsheiðar. Gangi slíkt eftir fæst ódýrara land- rými til byggingar. Sú krafa íbúa er hávær að hver og einn flokkur svari hvernig hann ætlar að lækka orku- verð. Allir flokkar lofuðu því við síð- ustu kosningar að lækka orkuverð og margir eru langeygir eftir þeirri lækkun. Gísli Gíslason bæjarstjóri lét hafa eftir sér fyrir skömmu að það hefði verið mótuð stefna til framtíðar í orkumálum með sameiningu orku- fyrirtækjanna. Hvort það skilaði ein- hverju verða flokkamir spurðir að í kosningabaráttunni. D og B saman? Talið er nokkuð öruggt að fram- sóknarmenn og sjálfstæðismenn myndi meirihluta eftir kosningamar á Akranesi. Menn telja að Gunnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, hafi metnað til að vera áfram i meiri- hluta. Talið er að hann uni því illa að vera 1 minnihluta. Sjálfstæðismenn vilji allt til vinna að halda meirihlut- anum og þá með Framsókn. Að mati margra innan þeirra raða er útilokað að taka upp samstarf við vinstri öflin. Stjórnarmynstur á landsvísu er Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis- flokkur og talið er farsælla að halda slíku á Skaganum. Talið er að Gunn- ar Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, og Sveinn Kristinsson hjá Akraneslist- anum séu komnir á biðilsbuxumar gagnvart Guðmundi Páli Jónssyni, oddvita framsóknarmanna. Þá er einnig talið nær öraggt að Gísli Gíslason, núverandi bæjarstjóri, verði áfram bæjarstjóri. Hann er tal- inn traustur í sessi og ætlar sér vafa- lítið að sitja áfram. -DVÓ Stytta sjómannsins í miöbæ Akraness. DV-mynd PÖK TONLISTARSKOLI NJARÐVIKUR lim istakskóu Tónlistarkennarar « JAMVÍKM Eftirtalin störf eru laus til umsóknar fyrir næsta skólaár: Starf sellókennara. Um er að ræða stundakennslu. Staða þverflautukennara. Um er að ræða hlutastarf. Staða blokkflautukennara. Um er að ræða hlutastarf. Umsóknir sem tilgreina aldur, menntun og fyrri störf skal senda Tónlistarskóla Njarðvíkur, Þórustíg 7, 260 Njarðvík, fyrir 10. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Árni Haraldsson skólastjóri í síma 421-3995 á skólatíma. í hvaða ri ðli er Brasilía á HM?“ www.fjolnet.is/svarid /ýD Smelltu þér á netið ^/islandia internet Einstaklingsþjónusta Guömundur Páll Jónsson, B-lista. Gunnar Sigurðs- son, D-lista. BALENO WAGON GLX OG GLX 4X4 Baleno Wagon GLX 4X4: 1*595.000 kr. SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Simi 568 51 00. Góður í ferðcalagið Baleno Wagon er einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri, hagkvæmur í rekstri og hefur allt að 1.377 lítra farangursrými. Baleno Wagon gerir ferðalagið enn ánægjulegra. 'suzuki' AI L OG ^ÖRYGGL SUZUKISÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, stmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf, Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf, Miðási 19, sími 471 2011. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf, Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5. simi 482 37 00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.