Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998 Ólétta Geysilega fróðleg síða með ráðleggingum fyrir ófrískar konur er á slóðinni http://www.noah.cuny.edu/ pregnancy/pregnancy.html Heilsusíða Á slóðinni http://www. onhealth.com/ er geysilega öflugur heilsuvefur þar sem hægt er að frnna ýmislegt fyr- ir þá sem eru að hugsa á þeim nótum. Biblíufálagið Elsta starfandi félag lands- ins, Hið íslenska biblíufélag, er með heimasíðu á http://www.biblian.is/ Víetnam-stríðið Nokkrar sláandi fréttaljós- myndir sem teknar voru í Ví- etnam þegar stríðið geisaði þar er að finna á http://icar- us. shu.edu/gallery/V_Port- folio/ Slæmar vefsíður Það er oft hægt að læra að gera góðar vefsíður með því að líta á slæmar síður. Nokkrum slíkum hefur verið safnað saman á http:// www.webpagesthatsuck. com/ Netsambönd Á Netinu er hægt að fá ráð um hvernig hægt er að halda rafrænu sambandi góðu. Slóðin er http://www.pan- arts.com/era/ en tekið skal fram að engin ábyrgð er tekin á hvort ráðin virka. Andre Agassi Kvenna- gullið og tennishetjan Andre Agassi á sér marga aðdá- endur og einn þeirra hefur komið upp prýði- legri heimasíðu um kappann. Slóðin er http://users.ids.net/agassi/ Flugdrekar Leiðbeiningar um hvemig maður getur smlðað sér flugdreka er á http://www.ndirect.co.uk/- clem I Fyrirtækið Spyrnir hefur sett upp sárstaka vefsíðu um Austurland: Vefurinn er ekki töfralausn Fyrirtækið Spyrnir, sem starf- rækt er á Egilsstöðum, er lítið fyrir- tæki sem hefur heimasíðugerð að aðalmarkmiði. Fyrirtækið var stofnað í nóvember sl. og nú starfa tveir þar í fullu starfi. Fyrirtækið ætlar sé stóra hluti í tölvuþjónustu fyrir austan og er m.a. nýbúið að kaupa stærstu tölvuverslun fjórð- ungsins. Spymir hefur sett upp sérstakan upplýsingavef sem kallast Vefheim- ur Austurlands. Þarna er ætlunin að hafa upplýsingar um alls konar þjónustu sem býðst í fjórðungnum, svo sem ferðaþjónusta, samgöngur og önnur fyrirtæki. Eini eigandi fyrirtækisins er Hilmar Guðlaugs- son, dómari við Héraðsdóm Austur- lands. Hann kom reyndar ekki ná- lægt heimasíðugerðinni sjálfri held- ur sáu starfsmennimir um hana. Þægileg tenglasíða Hilmar segir að fyrst eftir að fyr- irtækið var stofnað hafi menn verið að hugsa um hvaða afurð það ætti að hafa á Netinu hjá sér. „Við vild- um þá reyna að búa til þægilega tenglasíðu inn á þá Austflrðinga sem væm með heimasíðu, einkum fyrirtækin," sagði hann. Síðan hefur aðeins verið á vefn- um í um einn og hálfan mánuð og Hilmar segir að henni hafi lítið ver- ið fylgt eftir ennþá. „Það hafa marg- ir hugsað um að Austurland þyrfti einhvers konar hlið á vefnum því menn óttast oft að síðan þeirra týn- Lagarfljót, einn þekktasti staöur Austurlands. Upplýsingar verða væntaniega um þetta fljót á síðunni. ist þar. Við höfum þvi fengið já- kvæð viðbrögð," segir Hilmar. Hann segir að vilji sé fyrir því að vera með einhverjar hagnýtar upp- lýsingar sem em reglulega uppfærð- ar en jafnframt staðbundnar við Austfirði. Þetta yrði jafnvel nokk- urs konar fréttamiðill fyrir lands- Qórðunginn. „Við teljum að þetta geti orðið góður upphafspunktur fyrir einhvern slíkan miðil. Við er- um reyndar tengdir við ýmsa hag- Táningar gerast tæknivæddir nýta vefmiðla á borð við leitarvefi, fréttavefi, Vegagerðina, Veðurstof- una o.fl.“ Verðum samkeppnisfær Hann bendir þó á að það að fara inn á vefinn sé aldrei nein töfra- lausn eins og mönnum hætti oft til að halda. Það sé þó vissulega ein af leiðunum sem hægt sé að fara til að koma einstökum fjórðungum á framfæri. „Bráðum verða hlutimir samt þannig að maður verður að vera á vefnum líka. Það er bara spurning um hvenær það verður. Þetta verður eitt af tækjunum sem DV-mynd ÞOK verður notað til að koma því til skila sem þarf,“ segir Hilmar. Hann segir að þó að menn í hans fyrirtæki séu að mestu sjálfmennt- aðir þá sé reynt að fá þá á námskeið í vefsíðugerð. „Við emm bara að reyna að mennta menn upp í þess- ari grein og viljum ekki dragast aft- ur úr. Það er alltaf einhver remb- ingur um að við séum að missa af lestinni hér í sveitinni." Hann segir að lokum að hans fólk horfi björtum augum til framtíðarinnar og ætli sér að vera samkeppnisfært. Slóðin á heimsíður Vefheim: Austurlands er http://www austurland.is -H Mikið hefur færst í vöxt að táning- ar hafi gert usla í tölvukerfum með því að nota tölvukunnáttu sína til að hrella fólk eða skemma kerfin. Áður hefur verið sagt hér frá ísra- elsmanninum Ehud Tenebaum sem braust inn í tölvukerfi bandaríska vamarmálaráöuneytisins. Stuttu áð- ur var 14 ára drengur handtekinn í Massachusetts og játaði hann við yf- irheyrslur að hafa brotist inn í síma- kerfi og lokað þar mikilvægum fjar- skiptaleiðum á flugvellmum í Worchester. Að auki var lítill bær í nágrenni flugvallarins símasam- bandslaus í sex tíma vegna hans. Fólk gat hvorki hringt í vini sína né í lögreglu eða sjúkrabíl. Af þessu að dæma þykir mörgum unglingum það svo freistandi að bijótast inn í tölvukerfi að þeir geta ekki staðist hana. Sumir segja að þetta sé að koma í staðinn fyrir gömlu góðu prakkarastrikin á borð við að setja teiknibólur í stól kennar- ans. Innbrotin séu þó þess eðlis að þama séu krakkamir að sýna ákveðna yfirburði og þeir fá sérstak- lega mikið út úr því. Krakkamir hafa alist um við tæknina og því era þeir sennilega betri í henni en hinn venju- legi fiillorðni maður dagsins í dag. Þessi athöfn er nú orðin það há- þróuð að starfrækt eru sérstök tölvu- net þar sem tölvuþijótar skiptast á ábendingum um hvemig megi brjót- ast í hin og þessi tölvukerfi. Þetta sé í raun leikur sem sé miklu betri en þeir sem fást í búðum. Þetta er lífið. Sérfræðingar era þó á því að þetta ástand sé ekki eingöngu tölvuþijót- unum sjálfum að kenna. Mörg tölvu- kerfi séu hreinlega galopin fyrir inn- brotum. í raun geti fyrirtækin sjálf gert ráðstafanir til að takmarka óviðkomandi aðgang að kerfinu. Engin ástæða er hins vegar til að ætla að þetta séu glæpamenn fram- tíðarinnar. Þessir ungu tölvusnill- ingar munu í framtíðinni gera tölvu- kerfin öruggari heldur en þau era í dag. Þannig verði þau öraggari fyrir næstu kynslóð af tölvuþijótum. -HI Indverjar orðnir 100 þúsund Sífellt fleiri þjóðir eru að gerast netvæddar. Nú hefur það fengist staöfest frá Indlandi að áskrifendur að netþjónustu þar urðu yfir 100 þúsund í síðasta mánuði. Þeim fjölg- ar reyndar það hratt að þeir era nú komnir yfir 105 þúsund. Talsmenn netþjónustu á Indlandi eru alls ekki hættir þrátt fyrir þenn- an árangur og stefna að því aö áskrifendur verði orðnir 250 þúsund í lok þessa árs. Þessi þróun er mjög merkileg, sérstaklega fyrir þær sakir að einkaaðilar mega ekki reka net- þjónustu í Indlandi. Reynt hefur verið að fá þessu breytt og lagði fjarskiptaráðuneyti Indlands fram reglugerð þess efnis í janúar. Þess- ar reglur komust hins vegar ekki lengra þar sem lagalegar hindranir voru í veginum. Sérfræðingar hafa haldið því fram um nokkurt skeið að ef áætl- anir um að leyfa slíkt ná fram að ganga verði netáskrifendur í Ind- landi orðnir um 1,5 milljónir. -HI/Reuter © © / Hvítir plmennari Ný rannsókn sem Vanderbildt háskólinn hefur birt sýnir aö bæöi netnotkun og almennt tölvunotkun er mun algengari meöal hvítra í Banda- ríkjunum heldur en svartra. Sam- kvæmt könnuninni hafa 41 milljón hvítra manna einhvern tíman notaö Netiö en samsvarandi tala hjá svörtum er aöeins 5 milljónir. Einnig kom I Ijós aö minna en þriðjungur svartra gagnfræöa- og menntaskóla- nema á tölvur á meöan 75% hvítra nema á slíkt tæki. Skýringin þessu er líklega ekki aö finna í kynja- muninum sjálfum heldur eru svartir hreinlega ekki með jafn tekjuháir og þeir hvítu. Tæknin bregst Gates Bill Gates forstjóri Microsoft lenti í óvæntum hremmingum þegar hann opnaði tölvusýningu T Chicago. Hann ætlaði þar aö kynna Windows 98 og sýna öllum hversu notendavænt það væri. Þaö tókst ekki betur til en svo aö hugbúnaöurinn hrundi meöan á kynningunni stóö. Eiginleikinn sem hann var aö sýna var aö nota vafra til að leita bæöi aö vefsíöum og skjölum í tölvunni. „Viö treystum mikiö á tæknina en hún virkar ekki alltaf sem skyldi," sagöi Bill Gates í léttum dúr þegar þetta vandræöalega atvik átti sér staö. HM æði á Netinu Mikið æði viröist vera aö grípa um sig á Netinu vegna heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu sem fram fer í Frakklandi í sumar. Þó enn séu rúmar sex vikur þangaö til mótiö hefst hefur vefur mótsins þegar fengiö um 2,5 milljónir heimsókna frá 160 löndum. Allt útlit er því fyrir þaö aö þessi síöa veröi sú mest sótta í heiminum þetta áriö. Auk þessarar síöu eru um 60 óopinberar heima- síöur til um keppnina og tveir hafa meira að segja gengiö svo langt aö gera opinbera heimasíöu um heims- meistarakeppnina áriö 2002. Net- heimur vill því greinilega fylgjast vel meö HM í knattspyrnu. Hæm' netsímgjöld? Taliö er mögulegt aö þeir sem hafa hringt langlínusímtöl um Netiö veröi gert aö borga hærri gjöld. Netsíma- fyrirtækjum veröi þá gert aö borga Mawiskpnar þóknun og öörum síma- i’PtTír °S ÞvI gia|di veröi veit yfir IrtéjtMGur. Fjarskiptaráö Banda- ríkjanna mun mæla með þessari hækkun þar sem veriö sé aö jafna samkeppnisaðstööu netsímafýrirtkja og heföbundinna símafyrirtækja. Netsímtöl eru reyndar nú aðeins 1- 3% af heildarsímstölum í Banda-rikjunum en búist er viö aö sú tala muni hækka töluvert á næstu árum. Keypti nöfn og seldi aftur Ýmis stórfyrirtæki hafa lent í vand- ræöum meö mann sem hefur keypt upp netslóðir sem nöfnum þeirra og boöiö fyrirtækjunum þær sTöan til sölu. Fyrirtæki eins og Panavision, Lufthansa og Delta Airlines lentu í vandræöum vegna mannsins. Hann hefur nú fengiö skipun um aö hætta þessu á þeim forsendum að þetta brjóti T bága viö lög um skrásett vörumerki. Maöurinn keypti t.d. slóöina panavision.com og bauö fyrirtækinu Panavision hana til sölu fyrirjafnviröi einnar milljónar króna. Þetta mátti hann ekki þar sem Panavision er skrásett vörumerki. DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.