Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Side 34
42
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998
Afmæli
Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri ferðaþjónustu Kaupfélags Ár-
nesinga, Suðurlandi, til heimilis að
Heiðmörk la, Selfossi, er fimmtugur
í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Selfossi. Hann lauk kenn-
araprófí frá KÍ 1971, stúdentsprófi
þaðan 1972 og stundaði nám í upp-
eldisfræði við Háskólann í Lundi í
Svíþjóð 1972-73.
Sigurður kenndi við Gagnfræða-
skólann á Selfossi, síðar Sólvalla-
skóla, 1973-96, að einu ári undan-
skildu er hann kenndi við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Hann og
fjölskylda hans hafa verið búsett á
Selfossi frá 1973.
Sigurður hefur sinnt félags- og
leiðbeinendastörfum í Ungmennafé-
lagi Selfoss. Þá hefur hann setið i
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Cf-Fax 562 26 16-
tfang: 1sr@rvk.is
UTBOÐ
F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboöum í byggingu og frágang bryggju
vegna nýrrar olíuhafnar í Örfirisey. Verkiö nefnist: „Eyjargarður, bygging
bryggju".
Helstu verkþættir eru:
Niðurrekstur á stálþili m.t.h. stögun 300 m,
Steypumót 1,500m2
Steinsteypa 850 m3
Fyllingar 25.000 m3
Malbik 3.500 m2
Verklok eru 1. september 1999.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun
tilboða: miövikudaginn 20. maf 1998, kl. 14.00, á sama stað.
rvh 44/8
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: „Dælustöð á
Reykjum-breytingar á pípukerfi."
Um dælustöðina liggja tvær af helstu stofnæðum veitunnar. Breyta þarf
tengingum, setja upp nýja loka, skipta um eldri loka, mála og einangra pípur.
Pípuþvermál í eru frá DN100-DN700 mm. Setja þarf upp stálgrindargólf, u.þ.b.
51 m2.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá miðvikudeginum 29. apríl 1998, gegn
15.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 13. maí 1998, kl. 14.00, á sama stað
gat 45/8
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: „Dælustöð á
Reykjum - breytingar á raflögnum".
Verkið felst í uppsetningu og breytingu á rafbúnaði fyrir fjóra 450 kW dælumóto-
ra ásamt strengjalögnum og tengingum.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá miðvikudeginum 29. apríl 1998 gegn
15.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 13. maí 1998, kl. 11.00, á sama stað.
hvr 46/8
F.h. Byggingadeildar borgarverkfr. er óskað eftir tilboðum í endurgerð lóðar
leikskólans Sunnuborgar.
Helstu magntölur:
Hellulagnir:
Gróðurbeð:
Malbik:
Grasþakning:
650 m2
220 m2
408 m2
520 m2
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboöa: fimmtudaginn 14. maf 1998, kl. 14.00, á sama staö.
bgd 47/8
F.h. Gatnamálastjórans i Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Grafarholt n Aðalræsi, 3. áfangi.
Helstu magntölur eru:
Gröftur:
Sprengingar:
Fyllingar:
Holræsi, 500 mm pípur:
Vatnslögn, 600 mm pípur:
u.þ.b. 5.500 m3
u.þ.b. 1.000 m3
u.þ.b. 1.800 m3
u.þ.b. 1.200 m
u.þ.b. 580 m
Skiladagur verksins er 15. nóvember 1998.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá þriðjudeginum 28. apríi 1998 gegn
10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 7. maí 1998, kl. 15.00, á sama staö.
gat 48/8
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboöum í gerö 30 km hver-
fastíga í Hlíðum og Þingholtum ásamt úrbótum við göngu- og hjólaleiðir víðs
vegar um borgina. Verkið nefnist: „Ýmsar framkvæmdir -1,1998“.
Helstu magntölur eru:
Stein-og hellulagðir fletir:
Steyptir fletir:
Malbikaðir fletir:
Grásteinskantur:
2.400 m2
600 m2
600 m2
265 m
Síðasti skilad. verksins er 1. okt. 1998.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá þriðjudeginum 28. apríl 1998, gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboöa: fimmtudaginn 7. maí 1998, kl 14.00, á sama stað.
gat 49/8
aðalstjóm félagsins og ver-
ið formaður þess. Hann
var ritstjóri hérðaðsblaðs-
ins Suðurlands í tíu ár, frá
1981, hefur verið fréttarit-
ari Morgunblaðsins á Sel-
fossi frá 1985 og formaður
Okkar manna, félags
fréttaritara Morgunblaðs-
ins 1987-97.
Sigurður situr í bæjar-
stjóm Selfoss fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn frá 1990,
var formaður bæjarráðs
1994-95 og 1996-97, forseti
bæjarstjórnar 1995-96 og 1997-98.
Hann hefur setið í héraðsnefnd Ár-
nesinga 1994-98 og í stjórn SASS,
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
1990-98.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 3.7. 1971
Esther Óskarsdóttur, f. 12.12. 1949,
skrifstofustjóra Sjúkrahúss Suður-
lands. Hún er dóttir Óskars Guð-
mundssonar frá Blesastöðum á
Skeiðum, jámsmiðs á Eyrarbakka,
og Helgu Kristjánsdóttur, frá Merki
í Vopnafirði sem nú er látin, hús-
móður.
Börn Sigurðar og Estherar em
Óskar Sigurðsson, f. 11.6. 1972, lög-
fræðingur hjá A&P lögmönnum í
Reykjavík, búsettur á Selfossi,
kvæntur Elísabetu Kristjánsdóttur
íþróttakennara og er dóttir þeirra
Esther Ýr Óskarsdóttir, f. 28.6. 1997;
Helgi Sigurðsson, f. 11.6. 1972, nemi
I tannlækningum við háskólann í
Bergen í Noregi, kvæntur Auði
Völu Gunnarsdóttur íþróttakenn-
ara; Sigríður Rós Sigurðardóttir, f.
2.6. 1979, nemi við Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi; Daði Már Sig-
urðsson, f. 14.5. 1985, nemi við Sól-
vallaskóla á Selfossi.
Systkini Sigurðar eru Guðmund-
ur K. Jónsson, f. 14.9.1946, trésmíða-
meistari og fyrrv. bæjarfulltrúi á
Selfossi, búsettur á Selfossi, kvænt-
ur Kristínu Lára Ólafsdóttur; Þurið-
ur Jónsdóttir, f. 15.1. 1951, skrif-
stofumaður, búsett að Hamratungu
í Gnúpverjahreppi: Gísli Á. Jóns-
son, f. 17.6. 1954, trésmíðameistari á
Selfossi, kvæntur Emmu Granz; Sig-
ríður Jónsdóttir, f. 21.1. 1956, þjón-
ustustjóri íslandsbanka á Selfossi,
búsett á Selfossi, gift Svani Gísla
Þorleifssyni; Kári Jónsson, f. 21.2.
1960, íþróttakennari á Selfossi,
kvæntur Kristjönu Kjartansdóttur;
Gunnar Jónsson, f. 16.7.1961, hljóm-
listarmaður á Selfossi, kvæntur
Önnu Fríðu Bjarnadóttur; Ásmund-
ur Jónsson, f. 3.12. 1967, íþrótta-
Sigurður Jónsson.
kennari og nuddari, bú-
settur í Hafnarfirði, en
sambýliskona hans er
Margrét Á. Birgisdóttir.
Foreldrar Sigurðar eru
Jón Sigurðsson frá Selja-
tungu í Flóa, f. 12.3.1916,
fyrrv. bifreiðaeftirlits-
maður á Selfossi, búsett-
ur á Selfossi, og k.h.,
Sigríður Guðmundsdótt-
ir, frá Hurðabaki í Flóa,
f. 12.2. 1916, húsmóðir.
Ætt
Jón Arnar Magnússon frjáls-
Iþróttakappi er systursonur Sigurð-
ar. Jón, faðir afmælisbamsins, er
sonur Sigurðar, b. i Seljatungu í
Flóa, Einarssonar, b. í Holtahólum,
bróður Jóns, fóður Vilmundar land-
læknis. Annar bróðir Einars var
Magnús, faðir Guðbrands, ritstjóra
Tímans og forstjóra ÁTVR. Einar
var sonur Sigurðar í Þykkvabæjar-
klausti Bjarnasonar Jónssonar.
Móðir Einars var Gróa Einarsdótt-
ir. Móðir Sigurðar í Seljatungu var
Guðrún, systir Auðbjargar í Holta-
hólum, ömmu Rafns Eiríkssonar
skólastjóra. Önnur systir Guðrúnar
var Jóhanna á Seyðisfirði,
langamma Hannesar Hlífars Stef-
ánssonar skákmeistara. Guðrún var
dóttir Eiríks í Flatey Einarssonar,
b. í Bnmnum, Eiríkssonar. Móðir
Eiríks Einarssonar var Auðbjörg,
langamma meistara Þórbergs Þórð-
arsonar og Svavars Guðnasonar
listmálara. Auðbjörg var dóttir Sig-
urðar, b. á Reynivöllum, Arasonar
og Guðnýjar Þorsteinsdóttur, b. á
Felli, Vigfússonar.
Móðir Jóns var Sigríður Jónsdótt-
ir, b. á Kalastöðum á Hvalijarðar-
strönd, Þorsteinssonar og Sesselju
Jónsdóttur, hreppstjóra í Kalastaða-
koti, Sigurðssonar.
Sigríður er systir glímukappanna
Gísla og Rúnars, föður Hrefnu sund-
kappa. Sigríður er einnig systir
Helgu, móður Svans og Trausta
Ingvarssona sundkappa. Sigríður er
dóttir Guðmundar, b. að Hurðar-
baki í Flóa, bróður Kristgerðcir,
ömmu Jóns Unndórssonar, fyrrv.
glímukóngs Islands, og ömmu Gerð-
ar, móður Einars Vilhjálmssonar
spjótkastara. Guðmundur var sonur
Gísla, b. að Urriðafossi, Guðmunds-
sonar og Guðrúnar Einarsdóttur frá
Urriðafossi.
Móðir Sigríðar var Þuríður Árna-
dóttir, b. að Hurðabaki, Pálssonar.
Sigurður er að heiman á afmælis-
daginn
Flókadalsá
Til leigu er Flókadalsá framan Flókadalsvatns
í Fljótum, silungasvæði. Tilboðum skal skila
til Georgs Hermamissonar, Ysta-Mói, 570 Fljót-
um, fyrir 10. maí nk.
Nánari upplýsingar veita
Georg Hermannsson í síma 467-1035
og Þórarinn Guðvarðarson í síma 467-1052.
Tll hamingju
með afmælið
27. apríl
85 ára
Ragnheiður
Sigurgeirsdóttir,
Öxará, Ljósavatnshreppi.
75 ára
Guðrún Björnsdóttir,
Skúlagötu 40, Reykjavík.
Magnús Bjami Ragnarsson,
Miðstræti 15, Bolungarvik.
Sigurborg Gísladóttir,
Norðurbraut 11, Hafharfirði.
70 ára
Hulda Halldórsdóttir,
Sunnuhlíð,
Svalbarðsstrandarhreppi.
Jón Bjarnason,
Aragerði 6, Vogum.
Sigrún Bmun,
Kjarrhólma 17, Hafnarfirði.
60 ára
Jón S. Karlsdóttir,
Hólavegi 11, Dalvík.
Sóley Sigurjónsdóttir,
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði.
50 ára
Anna S. Ásgeirsdóttir,
Lönguhlíð 4, Akureyri.
Guðmunda Brynjólfsdóttir,
Engjavegi 9, ísafirði.
Guðmundur Gíslason,
Hárlaugsstöðum II,
Ásahreppi.
Guðrún Kristín Jónsdóttir,
Fellsmúla 15, Reykjavik.
Sturlaugur Stefánsson,
Bleiksárhlíð 55, Eskifirði.
40 ára
Ásgeir Ámason,
Lágholti 20, Stykkishólmi.
Bjarni Magnús
Jóhannesson,
Eyjavöllum 9, Keflavík.
Elin Eygló Sigurjónsdóttir,
Víkurflöt 8, Stykkishólmi.
Gestur Hálfdánarson,
Skúlagötu 62, Reykjavík.
Guðmundur Jón
Kjartansson,
Skólavörðustíg 26, Reykjavík.
Guðrún Helgadóttir,
Týsvöllum 8, Keflavík.
Gunnar Ólafsson,
Gilsbakka 8, Neskaupstaö.
Hróbjartur Jónatansson,
Ljárskógum 6, Reykjavík.
Jón Högni ísleifsson,
Æsufelli 6, Reykjavík.
Selma L.D. Sigurjónsson,
Kambaseli 30, Reykjavík.
Sigrún Anna Jónsdóttir,
Fljótaseli 4, Reykjavík.
Valdís Leifsdóttir,
Njálsgerði 6, Hvolsvelli.
Þeir íiska sem róa... Þelr íiska sem róa... Þeir íiska sem róa... Þeir
www visir is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR