Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
7
Fréttir
Fimm tima flug
Halldór Blöndal sat fyrir
nokkru fund samgönguráðherra
Evrópulanda og var svo hljóður
og fyrirferðarlítill að athygli
vakti, að þvi er sagan segir. Ein-
hverjir hinna evr-
ópsku starfsfélaga
ráðherrans munu
hafa undrast
nokkuð þá þraut-
seigju Halldórs
að leggja á sig
langt og erfitt
ferðalag yfir
Atlantshafiö
fyrir jafnlítil erindi
og höfðu orð á þvi við hann. Nær-
staddir segja að hann hafl gert
litið úr fyrirhöfn sinni, flugsam-
göngur við ísland væru öflugar
og vélar Flugleiða fljótar í forum
til og frá landinu: „That is no
problem," á ráðherrann að hafa
sagt, „the flight takes only five
times ...“ Sandkorn selur þessa
sögu þó ekki dýrar en hún var
keypt...
Óráðið
Bankaráð Landsbankans er
óráðið í því hvort það segir af sér
eður ei. Fyrir
nokkrum dögum
var það ráðið í
því að ráðið hefði
engu ráðið og
ætti því að sitja
sem fastast. Nú
er Jóhann Ár-
) sælsson búinn
að segja af sér
og Anna Mar-
grét Guðmundsdóttir, sem ekki
var ráðin i því hvort hún segði af
sér hefur afráðið að sitja áfram.
Nú er bara spurningin hvort
ákvörðun Jóhanns hrekur á end-
anum aðra í ráðinu til að segja af
sér. Þá er spumingin hvort Finn-
ur Ingólfsson verður bankaráðs-
laus sem þykir óráð hið mesta
þótt hann sé ráðavandur ...
Klofningur úr R-lista
)
\
>
i
Flest bendir til að Húmanista-
framboðið verði ekki eina nýja
framboðið sem
sækir að Reykja-
víkurlistanum og
Sjálfstæðisflokkn-
um í borgar-
stjórnarkosning-
um. Meðal borg-
arstarfsmanna
eru uppi um-
ræður um
nauösyn þess að
þriðja alvöruaflið komi fram,
einkum til aö veita R-listanum
aöhald frá vinstri. Talsvert er
lagt að Maríasi Sveinssyni, trún-
aðarmanni hjá SVR, að hafa for-
göngu um slíkan lista. Megin-
markmið hans yrði að knýja í
gegn 80 þúsund króna lágmarks-
laun á mánuöi. Málið mun skýr-
ast fyrir helgi en framboðsfrestur
rennur út 2. mai...
Saumaklúbbatíska
í saumaklúbbum landsins
grasserar „alþýðumenning“ af
ýmsu tagi. Lengi hefúr tíðkast að
einstökum sauma-
i klúbbum sé kynnt
„Tupperware" þar
sem sölumaður
dásamar alls kyns
dollur hverjar
nauðsynlegar
eru taldar
hverju heimili.
Þá voru til
skamms tíma vinsælar tusku-
kynningar. Þetta tilheyrir nú for-
tíðinni samkvæmt heimildum
sandkoma. í staðinn er komið
| svokallað „typpaver". Sú kynn-
ing saman stendur af alls kyns
raftnagnstækjum og tólum til aö
- bregða lit og birtu á ástarlífið eða
gera konur sjálfstæðar i þeim
efnum. Ekki geta þó heimildir
um það hversu ítarleg kynningin
er en hún mun valda nokkrum
titringi...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. Is
Læknafélag íslands um gagnagrunnsfrumvarpið:
Meingallað ógæfumál
- þýðir glötun mannréttinda, Qármagns og vísindaumhverfis
í ályktun Læknafélagsins kemur fram að mikil ásókn er af alþjóðlegum erfðarannsóknafyrirtækjum í rannsóknir á smáþjóðum
og þjóðabrotum.
Læknafélag íslands
hélt blaðamannafund í
gær þar sem það fór
ómjúkum höndum um
gagnagrunnsfrumvarp
Ingibjargar Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra.
Telur félagið frumvarp-
ið meingallað og mikið
ógæfumál ef það næði
fram að ganga. Afleið-
ingar þess yrðu að mik-
il verðmæti mundu glat-
ast, jafnt mannréttindi,
vísindaumhverfi sem
fjánnagn. Þá séu mark-
mið þessa frumvarps
mjög gagnsæ. því sé ætl-
að að gefa íslenskri
erfðagreiningu, einni
aðila, allar sjúkdóms-
upplýsingar, án þess að
hagsmuna heilbrigðis-
þjónustu, sjúklinga eöa
landsmanna allra sé
gætt. Miði frumvarpið
að einokun þessa fyrir-
tækis á sviði mann-
erfðafræðirannsókna á
íslandi og til að tryggja
þessi markmið enn frek-
ar sé boðað nýtt frum-
varp mn lífsýni á Al-
þingi í haust.
Ásókn í smáþjóðir
í ályktun Læknafé-
lagsins kemur fram að
mikil ásókn er af alþjóð-
legum erfðarannsókna-
fyrirtækjum i rannsókn-
ir á smáþjóðum og þjóðabrotum.
Hérlendis líti þetta betur út af því
að íslensk erfðagreining sé íslensk-
ur lögaðili með marga ágæta ís-
lenska starfsmenn. Læknafélagið
heldur því hins vegar fram að fjár-
mögnun félagsins sé erlend og að
fyrirtækið virðist, a.m.k. að hluta
til, vera í eigu erlendra aðila, eins
og lyfjarisans Hoffmann-La Roche.
Gefið gler fyrir gull
Þá kom fram að erlendir fagaðilar
og tímarit, sem um málið hafi fjall-
að, geri það á öðrum nótum en gert
hafl verið hérlendis. Þar telji menn
samninginn mjög góðan fyrir La
Roche-fyrirtækið og að hugmyndir
um að verðlauna þjóðina fyrir þátt-
tökuna með ókeypis lyfjum, sem úr
rannsóknum kunna að koma, minni
á þegar indíánum voru gefnar gler-
perlur fyrir gull. Tímaritið Sci-
entific American orðar það svo að
með þátttöku sinni geri íslendingar
sig að „eðlislægum tilraunadýrum".
Af hverju notum við ekki
ágóðann?
Þá gerir Læknafélagið kröfu til að
verðmæti gagnagrunnsins sé metið
til fjár og telur að fyrsta mat á þeim
verðmætum sem úr honum megi
skapa nemi nokkrum tugum millj-
arða króna. Telur Læknafélagið
óráðlegt að gefa frá sér slík verð-
mæti þegar endalaust sé verið aö
skera niður og spara í heilbrigði-
skerfmu og þó séu upphæðir þar
taldar í tugum eða hundruðum
milljóna, ekki milljörðum.
Læknafélagið lýsir áhyggjum af
því að sjálfstæðar vísindarannsókn-
ir muni leggjast af verði ÍE veitt
einkaleyfi á gagnagrunninum og
slíkt sé ekki í þágu þjóðarinnar. Þá
efast Læknafélagið mjög um að mik-
ið liggi á að samþykkja frumvarpið
og dregur í efa röksemdir tals-
manna íslenskrar erfðagreiningar
þar að lútandi. Það séu ekki lengra
en þrjár vikur síðan fulltrúi La
Roche hafi haldið erindi á Ítalíu þar
sem því var velt upp hvort erfða-
fræði væri ekki framtíð lyfjaiðnað-
arins. Hafi fyrirlesari útlistað skil-
merkilega hvemig Roche ætli að
stunda erfðamengisrannsóknir til
að finna erfðaþætti sem hafi áhrif á
svömn sjúklinga við lyfjum, meðal
annars með hjálp ÍE, samstarfsaöila
þeirra sem hefði eignað sér erfða-
efni íslendinga. Snögg afgreiðsla
frumvarpsins muni ekki verða til
að setja niður deilur, þvert á móti sé
slík afgreiðsla líkleg til að auka
þær.
-phh