Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Side 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
Iþróttir unglinga
___ Unglingaflokkur karla í körfuknattleik:
Tveir leikir nóg
- þegar Tindastóll varð meistari í fyrsta sinn
Tindastóll þurfti aðeins
tvo leiki til þess að landa
íslandsmeistaratitlinum í
unglingaflokki karla í
fyrsta sinn í sögu
félagsins.
Tindastóll var eini full-
trúi Norðurlands á ís-
landsmótinu í ár en eitt
lið á ávallt öruggt sæti
þaðan í undanúrslitun-
um.
í undanúrslitaleiknum
lentu Tindastólsmenn
gegn Valsmönnum og
unnu 90-74 eftir að hafa
haft 41-36 yfír í leikhléi.
Tinadstóll komst í 9-0,
gáfu strax tóninn í byrjun
og slepptu aldrei takinu á
leiknum það sem eftir
var.
í hinum undanúrslita-
leiknum áttust við Kefla-
vík og Haukar i miklum
baráttuleik. Keflavik byrj-
aði vel og hafði yfir 46-32
í hálfleik en Haukar náðu
að minnka muninn í 4
stig þegar 4 mínútur voru
eftir. Keflavík átti síðan
frábæran endasprett, liðið
skoraði 10 stig í röð og
tryggði sér sæti í úrslita-
leiknum.
Úrslitaleikurinn var
mjög skemmtilegur á að
horfa og þar fór Arnar
Kárason úr Tindastól á
kostum og skoraði 37 stig
þar af 5 þriggja stiga körf-
ur. Tindastólsliðið er
skipað mörgum öflugum
strákum sem hafa verið í
sviðsljósinu með meist-
araflokki í vetur en það
verður að teljast mjög
óvenjulegt að 2 leikir á
vetri nægi til þess að
verða íslandsmeistarar í
unglingaflokki sem og í
öðrum flokkum.
Tindastólslíðiö sem varö íslandsmeistari í unglingaflokki á dögunum. Þeim
nægöi aö spila aöeins tvo leiki í vetur til aö veröa íslandsmeistarar. Ómar
Sigmarsson stjórnaöi liöinu í þessum tveimur leikjum. DV-mynd RG
Unglingafiokkur IR í körfuknattleik kvenna. Þær skipa einnig meistaraflokksliö ÍR og eiga allar allavega eitt ár eftir í unglingaflokki. Liðiö skipa eftirtaldar:
Neöri röö frá vinstri: Erna Þórðardóttir, Stella Rún Kristjánsdóttir, Gréta M. Grétarsdóttir, Jófrföur Halldórsdóttir, Tinna Sigmundsdóttir og Þórhildur
Eyþórsdóttir. Efri röð frá vinstri: Karl Jónsson þjálfari, Gunnur Bjarnadóttir, Kristín Halldórsdóttir, Helga Mogensen, Þórunn Bjarnadóttir, Halla Erlendsdóttir
og ónafngreindur stuöningsmaöur. DV-mund ÓÓJ
Unglingaflokkur kvenna í körfuknattleik:
Framtíðarlid
ÍR tryggði sér bæði
íslandsmeistaratitilinn og
bikarmeistaratitilinn í ung-
lingaflokki kvenna á dögunum j
og rauf ÍR þar með einokun
Keflavíkur á þessum titlum
en Keflavík hafði unnið tvö-
falt, líkt og ÍR nú, þijú ár í
röð þar á undan.
Framtak ÍR til fyrir-
myndar fyrir önnur liö
Framtak ÍR hvað varðar
kvennalið sitt er til fyrir-
myndar en þar hefur verið
byggt á þessum stelpum allt
frá því að þær voru í
stúlknaflokki. Fyrir
nokknnn árum var tekin sú
ákvörðun að meistaraflokk-
ur félagsins yrði skipaður
aðeins ungum stelpum sem
myndu fá mikla reynslu
við að kljást við önnur i
meistaraflokkslið þó svo a
að sigramir yrðu ekki \
inga
sem rauf einokun Keflavíkur eftir 3 ár
Greta M. Gretarsdottir
fyrirliði ÍR með
Islandsbikarinn.
margir til að byrja með.
ÍR-liðið býr nú að góðri reynslu
úr meistaraflokknum á síðustu
árum en enginn leikmaður er í raun
genginn upp í meistaraflokk enn og
það verður einnig svo á næsta tíma-
bili. Það háir þeim einna helst hæð-
in en það er ekki hægt að sjá annað
en ÍR verði orðið sterkt lið eftir 1 til
2 ár og byrji strax að hirða stig af
liðunum á næsta ári.
ÍR vann Grindavík, 36-32, í úr-
slitaleik um íslandsmeistaratitilinn
í spennandi leik en Grindavikurlið-
ið stóð sig mjög vel í leiknum og
þurfti ÍR að hafa mikið fyrir sigrin-
um.
Stig ÍR í úrslitaleiknum skoruðu
Gunnur Bjamadóttir 13, Tinna
Sigmundsdóttir 6, Þórunn Bjama-
dóttir 6, auk 4 stoðsendinga og 7
stolna bolta, Guðrún Sigurðar-
dóttir 4, Jófríður Halldórsdóttir
2 og Gréta M. Grétarsdóttir 2,
auk 4 stoðsendinga.
Fyrir Grindavik skomðu Sól-
veig Gunnlaugsdóttir 13, Sigríður
Ólafsdóttir 12, Rósa Ragnarsdótir 2,
Bryndís Gunnlaugsdóttir 2, Bára
Vignisdóttir 2 og Ólöf Pétursdóttir
1.
Stelpurnar þurfa stuöning
Körfuknattleikssambandið þarf
vissulega að hugsa sinn gang hvað
varðar kvennakörfuboltann. Áhuga-
leysi og lítill stuðningur sambands-
ins við kvennakörfubolta á síðustu
árum er að skila sér í fækkim liða í
körfubolta en sem dæmi em félögin
orðin aðeins 5 í efstu deild.
Það er von allra sem að kvenna-
körfúboltanum koma að sambandið
takisigá enda er tækifærið nú þar
sem Tindastóil, Njarðvík, ÍR og
Breiðablik era að koma upp með öfl-
ugar stelpur sem þurfa stuðning ef
þær eiga ekki að missa áhugann og
snúa sér að einhverju öðm. Án
þessa stuðnings er hætt við að þró-
unin verði engin og kvennakarfan
lognist að mestu út á næstu árum ef
ekki verður gripið í taumana. -ÓÓJ
Úrslit
Unglingaflokkur karla
Undanúrslit
Valur-Tindastóll . . .74-90 (36-41)
Guðmundur Björnsson 30, Hjörtur
Þór Hjartarson 16 - Stefán Guð-
mundsson 20, Amar Kárason 19
Keflavík-Haukar . . . 75-64 (46-32)
Gunnar Einarsson 20, Halldór Karls-
son 17 - Daníel Ámason 24, Ingvar
Guðjónsson 14
Úrslitaleikur
Keflvik-TindastóII . 85-100 (42-48)
Halldór Karlsson 20, Fannar Ólafs-
son 16, Gunnar Einarsson 12, Jón
Norðdal Hafsteinsson 12, Gunnar
Stefánsson 11, Sæmundur Oddsson
10, Magnús Gunnarsson 2, ÓIi Á.
Hermannsson 2 - Amar Kárason 37,
Stefán Guðmundsson 19, Svavar
Birgisson 14, ísak Einarsson 13,
Skarphéðinn Ingason 9, Jón
Brynjarsson 4, Guðjón Gunnarsson
2, Óli Barðdal Reynisson 2
13. sinn á
5 árum
ÍR fékk í þriðja sinn á fimm
ámm útnefningu úr sínum röð-
um þegar Guðrún Ama Sigurð-
ardóttir var kosin besti nýliði 1.
deildar kvenna um síðustu helgi.
Áður höfðu Þórunn Bjamadótt-
ir, árið 1997, og Gréta M. Grét-
arsdóttir, árið 1994, fengið þessa
útnefningu.
Þórunn. Guörún.
Tinna Dögg Guölaugsdóttir var
valinn íþróttamaöur ársins 1997
á Djúpavogi á dögunum. Hún
keppir fyrir Ungmennafélagiö
Neista og fékk viöurkenninguna
fyrlr góöan árangur f frjálsum
fþróttum og í knattspyrnu.
Umsjón
Óskar Ó. Jónsson
Á döfínni
Körfuknattleikur:
Bikarkeppni yngri flokka í
Austurbergi fimmtudaginn 30.
apríi næstkomandi.
18:00 11 flokkur .. Njarðvík-Keflavík
19:30 10. flokkur..KR-Njarðvík
21:30 Stúlknafl. . Keflavík-Tindastóll
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(