Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
25
I>V
Fréttir
Hafliði og Valiant bestir
í Skautahöllinni
Hestavöruverslunin Reiðsport
stóð fyrir nýstárlegu hestamóti í
skautahöllinni nýju í Laugardal síð-
astliðið laugardagskvöld.
Þrjátíu og tveimur knöpum af
suðvesturhomi landsins var boðið
til keppni með sína glæsilegu tölt-
hesta.
Einungis var keppt i tölti og voru
þrír knapar inni á vellinum í fyrstu
umferð. Sýnt var hægt tölt, tölt með
hraðabreytingum og frjáls reið.
Dómarar vora þrír, Einar Ragn-
arsson, Eysteinn Leifsson og Halldór
Victorsson, og völdu þeir átta knapa
í úrslit.
Eftir það var keppt með útsláttar-
formi og hefur það sennilega aldrei
sést fyrr í keppni á hestamóti.
í átta liða úrslitum sigraði Hafliði
Halldórsson á Valiant frá Heggsstöð-
um Atla Guðmundsson á Kötlu frá
Dallandi. Vignir Siggeirsson á Ofsa
frá Viðborðsseli sigraði Halldór
Svansson á Ábóta frá Bólstað. Auö-
unn Kristjánsson á Óði frá Brún
sigraði Fríðu H. Steinarsdóttur á
Hirti frá Hjarðarhaga og Ragnar
Hinriksson á Blikari sigraði Sigur-
björn Bárðarson á Húna frá Torfu-
nesi.
Áhorfendur tóku töluverðan þátt i
framkvæmd mótsins því þeir
ákváðu með klappstyrk sínum hver
keppti við hvem í fjögurra knapa
úrslitum.
Hafliði Halldórsson sigraði Auðun
Kristjánsson í fjögurra liða úrslitum
og Ragnar Hinriksson Vigni Sig-
Hafliöi Halldórsson og Ragnar Hlnrlksson hóöu elnvlgl um fyrsta sætlö f töltkeppnl Relösports f Skautahölllnnl og
sigraöi Hafllöl.
geirsson.
í keppni um 3ja sætið sigraöi
Auðunn Kristjánsson Vigni Sig-
geirsson og Hafliöi Halldórsson sigr-
aöi Ragnar Hinriksson 1 einviginu
um fyrsta sætið.
Röð keppenda var þessi:
1. Hafliði Halldórsson á Valiant
DV-mynd E.J.
2. Ragnar Hinriksson á Biika
3. Auðunn Krisfjánsson á Óði
4. Vignir Siggeirsson á Ofsa
5. Sigurbjörn Bárðarson á Húna.
Skautahöllin er kjörinn vettvang-
ur fyrir uppákomur hjá hestamönn-
um. Svellið er hálla en venjulegt
svell úti. Þess vegna var ákveðið að
hafa ekki greitt tölt í keppninni.
Einungis einn hestur rann til á
svellinu er Bliki fór á hliðina með
Ragnar Hinriksson í einvíginu um
fyrsta sætið en hvorugum kappanna
varð meint af.
Þó að kuldi sé töluverður má
treysta því að ekki er hávaðarok í
höúinni og ekki snjóar þar né rignir.
Með hljóðkerfi hússins má magna
upp mikla stemningu og eins er
hljóðbært í húsinu svo tölttakturinn
magnaðist upp er hófamir snertu ís-
inn svo drundi í.
Líklega verður þetta árlegur við-
burður hjá Reiðsporti að halda slíka
tölthátíð og má búast við að hug-
myndin þróist og auk hljóðs verði
ljós notað meira í framtíðinni. -E.J.
Beðist vel-
virðingar
Að gefnu tilefni skal tekið
fram að ekki var ætlunin að
særa trúarkenud eins né neins
með myndbirtingu á vislndaslðu
DV á mánudag. Hafi siíkt hins
vegar gerst er beðist velvirðing-
ar á því.
Vilja færast nær gæðingakeppninni
- segir Einar Ragnarsson
íslenskir dómarar fóru nýlega á
árlega dómararáðstefnu FEIF, Fé-
lags eigenda og vina íslenska hests-
ins í Hannover í Þýskalandi.
í FEIF er 21 þáttökuþjóð og var
ráðstefnan hin fjölmennasta til
þessa og mættu 54 fulltrúar frá flest-
um aðildarþjóðunum.
Frá íslandi fóru tveir dómarar
með alþjóðleg réttindi, Einar Ragn-
arsson og Pjetur N. Pjetursson, þrír
dómarar fóru til að fá alþjóðleg
réttindi, Elvar Einarsson, Páll
Briem og Skjöldur Ó. Skjaldarson
og frá Þýskalandi kom Haraldur
Briem.
íslenskir knapar og dómarar
hafa haft áhyggjur af því að íþrótta-
keppnin sé sífellt að færast nær
gæðingakeppninni og nú voru lagð-
ar fram tillögur sem valda því að
gengið er stórt skref í þá átt að
sameina íþróttakeppni og gæðinga-
keppni.
„íslensku dómaramir voru ekki
ánægðir með þær tillögur sem voru
lagðar fram sem drög að nýjum regl-
um á vegum FEIF,“ segir Einar
Ragnarsson.
„Þessar reglur gilda einungis á
FIBO-mótum, ekki á mótum á ís-
landi, en verða notaðar á heims-
meistaramótum ef þær verða sam-
þykktar. Það verður þó ekki fyrr en
eftir heimsmeistaramótið í Þýska-
landi 1999.
Okkur finnst kröfúr til faglegrar
reiðmennsku minnka með þessum
drögum og reglurnar séu að nálgast
gæðingakeppni sífellt meir.
Sem dæmi má nefha að ef þessi
drög ná fram að ganga þurfa knapar
ekki að sýna
skeið nema á
um 30% annarr-
ar langhliðar til
að fá 7,00 í ein-
kunn.
Ráðstefnu-
gestir fara með
þessi drög heim
og ræða þau þar
og svo senda
þeir tillögur sín- Einar Ragnars-
ar til baka og son'
þær verða ræddar síðar.
Það liggur ljóst fyrir að mikil
starf hefur verið lagt í vinnu að
þessum drögum en okkar sjónarmið
fara ekki saman við það sem þar er
kynnt,“ segir Einar Ragnarsson.
-E.J.
Björn Stefán Guömundsson, kennari frá Reynikeldu, las upp Passíusálma Hallgrfms Péturssonar í Hjarðarholtskirkju
í Dölum á föstudaginn langa. Björn geröi þetta til að minnast móður sinnar, Helgu Björnsdóttur, húsfreyju á Reynikeldu
f Skarðshlíð. Um síöustu áramót var öld liöin frá fæðingu hennar. Hún fæddist 27. desember 1897 en lést 6. september
1949. Alls tók lesturinn 5 klukkustundir. Lilja Sveinsdóttir og Michael A. Jones léku á orgel kirkjunnar í hléum. Um 50
manns lögöu leið sfna í Hjarðarholtskirkju þennan dag til að hlýða á lestur Björns. DV-mynd Melkorka
Ingunn Hávarðardóttir
hárgrciöslumeistari
V.
Ágœtu viöskiptavini.
Gleöilegt sumar
Af því tilefni er ykkur
boðiö upp á eftirfarandi
út maímánuð;
1. 2 fyrir 1 klipping.
2. Hárþvott +
höfuðnudd
með klippingu.
Hársnyrtistofa
Njálsgötu 1,
simiSól 2391^
LQgerútsQlan
Bíldshöfðci 16 (Rofbúðarhúsinu)
Borðlompor - Gólflompor - Loftljós
Vegglompor - Ljóskostoror - Hológenljós ýmsor gerðir
flúrlompor mikið úrvol. Fjöltengi o.fl. smóvörur.
fillt ó oð seljost - ótrúlegt verð - lokum eftir helgino
Opið ollo dogo, s. 567 39 54
BFGoodricH
mmmmmmmmmmmmmmmm^^mmmmmtmmmmmmmi dekk
SUÐURSTRÖND 4
S: 561 4110
AII-TenralnT/A Verð stgr.
225/75R-16 11.679,-
30x9,5-15 12.191,-
245/75R-16 13.392,-
31x/10,50-15 13.627,-
33x/12,50-15 14.984,-
35x/12,50-15 17.834,-
Jeppadekk
G<2i~i<5 gϚci-
og verösamanburð