Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 27 A- Fréttir 360 gestir í veislu islenska sendiráösins og Flugleiða: Beint flug milli íslands og Helsinki - sendiráðiö i Helsinki opnar heimasíðu um ísland Um 360 gestir komu til móttöku sendiráðs Islands í Helsinki og skrifstofu Flugleiða þann 15. apríl síðastliðinn á Sokoshótelinu í mið- borg Helsinki. Tilefni móttökunnar var kynning á beinu flugi á milli Reykjavíkur og Helsinki sem hefst 15. maí næstkomandi. Meðal gesta voru Ole Norrback, utanríkisviðskiptaráðherra Finn- lands og ráðherra Evrópumála, fimm þingmenn, blaða- og frétta- menn, forystumenn í viðskiptalífi og ferðaþjónustu, fulltrúar norrænu félaganna, Norræna fjárfestingar- bankans, Félags íslendinga í Finn- landi og, síðast en ekki sist, ýmis þekkt andlit úr finnsku skemmtana- lífi. Bar þar hæst vinsælustu söng- konu Finnlands um þessar mundir, Mariku Krook, sem nýverið skemmti á íslandi. Mcirika tekur þátt í Evrópu- söngvakeppninni í Birmingham í næsta mánuði. Þáttaka hennar í ís- lenska fagnaðinum vakti ekki síst athygli fjölmiðla. Hafði Huvudstads- bladet það eftir Mariku að hún ætti „Mér lofað íslenskum hesti að gjöf sigraði ég í Evrópusöngvakeppninni," sagði söngkonan Marika Krook sem var meðal gesta í veislu íslenska sendiráðsins og Flugleiða í Helsinki. góðar minningar frá íslandi og að henni hefði verið lofað íslenskum hesti að gjöf sigraði hún í Evrópu- söngvakeppninni. Tveir starfsmenn eru í sendiráði íslands í Finnlandi sem formlega var sett á laggimar í ágúst í fyrra, Hannes Heimisson sendifulltrúi og Páivi Kumpulainen ritari. Að því er Hannes greinir frá var það nánast ógerningur fyrir finnsk- an almenning að fá upplýsingar um íslensk málefni og ferðamöguleika á íslandi fyrir stofnun sendiráðsins. Skrifstofa Flugleiða í Helsinki var ekki sett á laggirnar fyrr en um síð- ustu áramót. Sendiráðið hefur lagt áherslu á aö sinna tíðum og margvíslegum fyrirspurnum og þýtt upplýsingaefni á finnsku. í næsta mánuði ráðgerir sendiráðið að opna eigin heimasíðu með ítarlegum upplýsingum um ísland. Finnar eru mjög netvæddir og kunna vel að nýta sér kosti vefsins. Starfsmenn sendiráðsins hafa orðið varir við aukinn áhuga Rússa á íslenskum málefnum, einkum fólks frá St. Pétursborg sem áhuga hefur á að koma við á íslandi á leið sinni vestur um haf. Á hverju ári kemur fjöldi ferðamanna til Helsinki frá St. Pétursborg Hannes segir sendiráðið binda miklar vonir við að efnahagsleg tengsl íslands og Finnlands styrkist með beinu flugi sem verður tvisvar í viku. Á síðasta ári heimsóttu 4320 Finnar ísland heim. Vegna beina flugsins er búist við að talsvert fleiri Finnar komi til íslands á þessu ári. Breiðfylking í Borgarfirði DV, Borgarfirði: Framboðslisti undir nafninu Breiðfylking í Borgarfirði hefur ver- ið lagður fram í sameinuðu sveitar- félagi fjögurra hreppa í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar. Að sögn Sveinbjarnar Eyjólfsson- ar, formanns undirbúningsnefhdar- innar, stendur að framboðinu hópur fólks með það að markmiði að leggja fram lista sem byggir á breið- um grunni fólks úr sveitarfélaginu öllu. Listinn er þannig skipaður: 1. Ríkarð Brynjólfsson, kennari á Hvanneyri. 2. Ágústa Þorvaldsdótt- ir, bóndi í Skarði. 3. Bergþór Krist- leifsson, ferðaþjónustubóndi í Húsa- felli. 4. Þórir Jónsson, smiður í Reykholti. 5. Sigurður Jakobsson, bóndi á Varmalæk. 6. Vaka Krist- jánsdóttir hjúkrunarfræðingur, Nesi. 7. Ingibjörg Konráðsdóttir kennari, Hýrumel. 8. Jónína Heið- arsdóttir, húsmóðir í Múlakoti, 9. Unnsteinn Snorrason nemi, Syðstu- Fossum. 10. Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi á Skálpastöðum. GE Rusl á Skipaskaga DV, Akranesi: Þótt Akranes sé að mörgu leyti snyrtilegur bær eru þar þó nokkrir staðir sem ekki eru til fyrirmyndar. Einkum við iðnaðar- og þjónustu- hverfið við Kalmannsvelli og Smiðjuvelli. Götur á svæðinu á að malbika í sumar svo og í miðbæn- um. Þetta kom fram á fundi bæjar- stjórnar Akraness. Sigríður Gróa Kristjánsdóttir, annar fulltrúi Framsóknarflokksins, sagði að á iðnaðar- og þjónustusvæðinu væru mörg fyrirtæki sem væru til mikils sóma. Á öðrum stöðum væru gaml- ir skúrar, timbur, járn og alls konar rusl á götum. Hún bað um að bygg- ingarfulltrúi yrði fenginn til að skoða þetta mál og ástand húsanna á svæðinu. Gunnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs, tók undir orð Sigríðar Gróu og sagði að því miður væri slíkt ástand víðar í bænum. Til dæmis væri miðbærinn víða skelfi- legur. Gunnar benti á að brýnt væri að bygginga- og skipulagsnefnd skoðaði bæinn í heild. Gott ef þetta Rusl á Smiðjuvelli. yrði lagað áður en Hvalfjarðargöng verða opnuð. „Það eru hús í bænum sem fyrir löngu hefði átt að rífa. Við höfum verið að kaupa hús við gamla þjóð- veginn. Það þarf að gera miklu meira til að fegra bæinn,“ sagði Gunnar. DV-mynd Daníel Samkvæmt heimildum DV hafa fyrirtæki á iðnaðar- og þjónustu- svæðinu ekki viljað hreinsa rusl fyrr en malbikað hefur verið á svæðinu en bæjarstjórn Akraness frestaði því á síðasta ári. -DVÓ Pekka Mákinen, Guörún Margrét Sólonsdóttir og Hannes Heimisson sendif ulltrúi í Helsinki. Hannes segir Finna hafa mikinn áhuga á íslandi. AÐALFUNDUR MÁLARAFÉLAGS REYKJAVÍKUR Aðalfundur Málarafélags Reykjavíkur- verður haldinn þriðjudaginn 5. maí 1998 að Lágmúla 5, 4. hæð, kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Mætið stundvíslega. Stjórnin IVU=R vy Aðalfundur fDAGSBRONj Verkamannafélagsins Dagsbrúnar Miðvikudaginn 29. apríl 1998 Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar (eldra félagsins) verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 1998. Fundurinn er haldinn í Kiwanis- húsinu að Engjateigi 11 og hefst kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Stjórn Vmf. Dagsbrúnar á Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama ■ *- dag er afsláttur af annarri auglýsingunni. afttmillihirn/ty °&/ Smáauglýsingar ’ ' ■ ' . \æææææÆl isrra 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.