Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Page 4
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998
Fréttir
Friðrik Þór og Ari Kristinsson:
Eru að búa til eró-
tíska stuttmynd
- tveir íslenskir leikarar í myndinni
Friðrik Þór Friðriksson og Ari
Kristinsson kvikmyndagerðarmenn
vinna nú að því að búa til erótíska
sjónvarpsmynd fyrir þýskt kvik-
myndafýrirtæki.
Mjmdin, sem nefhist On top down
under, er tekin bæöi í Ástralíu og á
íslandi. Tveir íslenskir leikarar
leika í myndinni sem er um hálftími
að lengd. Friðrik Þór leikstýrir
myndinni og Ari Kristinsson er
kvikmyndatökumaður. Ekkert er
talað í myndinni.
„Við Ari vorum í Ástralíu í 10
daga við tökur á myndinni. Við
erum ekki búnir að klára þessa
mynd. Það er enn eftir að taka atriði
hér á landi. Myndin verður væntan-
lega fhunsýnd á kvikmyndahátíö í
Feneyjum í haust. Þetta er erótísk
stuttmynd og hún er mjög fln. Við
erum ánægðir með það sem komið
er,“ segir Friörik Þór í spjalli við
DV.
Hann vildi ekki tjá sig nánar um
innihald myndarinnar eða hverjir
íslensku leikaramir væru.
Kæran alger della
Aðspurður um kæru vegna mynd-
arinnar Myrkrahöfðingjans segir
Friðrik Þór:
„Ég ætla að bara að vona að lög-
reglan hreinsi okkur af þessari kæru.
Ég hef ekki kynnt mér þetta mál til
hlítar en mér sýnist þetta vera alger
della. Við reistum smákofa við klett í
Þrengslunum án þess að sækja um
byggingarleyfi. Þetta var lítill kofi og
við héldum að við þyrftum þess
Maður féll af vélsleða í Hornvík
á Homströndum síðdegis á laugar-
dag. Hann var ásamt tveimur félög-
um sínum í vélsleöaferð á Horn-
ströndum. Þegar þeir komu vestur
fyrir Breiðaskarðshjúk lentu þeir í
ógöngum vegna óslétts undirlendis
með fyrrgreindum afleiðingum.
Maöurinn hlaut höfuðáverka og
einhver beinbrot þar sem hann
lenti utan í sleðanum á flugi.
Þar sem slæmt símasamband er
á þessum slóðum varð annar félagi
mannsins að fara upp á fjall til að
ná símasambandi. Gekk þaö vel og
var maðurinn fluttur með þyrlu til
ísafjarðar þar sem sjúkraflugvél
tók við honum og flutti hann til
Reykjavíkur. Hann er ekki talinn í
lífshættu.
Um svipað leyti varð annað vél-
sleðaslys á Langjökli. Þar féll mað-
ur af vélsleða þegar sleöinn ofreis
vegna ekki á leyfi að halda. Við höf-
um byggt stærri leikmyndir, eins og
kirkju, og þá höfum við alltaf sótt um
byggingarleyfi. Það er líka verið að
kæra okkur fyrir að hafa farið inn í
og maðurinn fékk hann í sig. Þar
sem þetta var á miðjum jökli
þurftu félagar hans að aka til
byggða og tilkynna um slysið.
einhveijar fomminjar undir þessum
kletti. Náttúruverndarráð hefur sett
út á einhvem utanvegaakstm-. Við
könnumst ekkert við þetta,“ segir
Friðrik. -RR
Þyrla vamarliðsins flutti manninn
til Reykjavíkur. Hann var enn á
gjörgæslu þegar síðast fréttist.
-HI
Tvö vélsleðaslys um helgina
Þyrla varnarliðsins flutti manninn sem slasaðist á Langjökli til Reykjavík-
ur. DV-mynd S
Bergljót, líttu þér nær
Dagfarí
Björgvinjarbúar tárast og
taka ekki á heilum sér. Öll
norska þjóöin hneykslast og
þess er krafist að þing og ríkis-
sijórn grípi í taumana. Annað
eins stórmál hefur ekki komið
upp í langan tírna. Og það er
ung, íslensk kona sem valdið
hefur öllum þessum óskunda.
Bergljót Jónsdóttir tók að sér
að peppa upp listahátíð í Björg-
vin í Noregi fyrir nokkrum
árum. Hátiðin þótti nokkuð
lúin og leiðinleg. Bergljótu
tókst ætlunarverkið. Listahá-
tíðin náði vinsældum á ný.
í ár ákvað hinn djarfi lista-
hátíðarstjóri að stíga skrefið til
fulls. Burt með það sem eftir
stóð af leiðindunum. Það lang-
leiðinlegasta á listahátíðinni
var þjóðsöngur Björgvinj-
arbúa. Hann var ekki bara
leiöinlegur heldur beinlínis
hallærislegur. Samt þótti Björvinjarbúum söngur
þessi merkilegur og bentu á að meira að segja
kóngurinn sjálfur syngi með í árlegri heimsókn.
Það þótti því ganga guölasti næst að henda út
þjóðsöngnum.
Nú liggja ekki fyrir opinberar rannsóknir á því
hvort íbúar Björvinjar séu laglausari en gengur
og gerist eða hvort þetta einstaka lag sé bara
svona leiðinlegt. Miðað við þau tóndæmi sem gef-
in hafa veriö í fréttum má ljóst vera að Bergljót
listahátíðarstjóri er í fullum rétti. Lag þetta er
alls ekki boðlegt á listahátíð.
Sú staðreynd breytir samt engu um hug okkar
norsku frænda. Þeir leggja fæð á konuna og viija
senda hana til síns heima. Smugudeilan er hreint
smámál miöað við þetta mikla tilfinningamál. ís-
lendingurinn hefur ekkert minna á samviskunni
en að hafa sært þjóðarstolt í hinum norska
frændgarði. Oft má satt kyrrt
liggja, eins og þar stendur.
Bergljót var of hreinskilin og
sýpur nú seyðið af því. Bæjar-
búar, sem áður sungu sinn
söng á götum úti, ganga nú um
grátbólgnir. Lífið er ekki samt
og áður.
Annars má segja að andskot-
inn hitti ömmu sína þegar ís-
lendingar fara að segja Norð-
mönnum til í músíkinni. Þessar
tvær þjóðir eru hvað frægastar
fyrir það í tónlistarlífinu að
skiptast á um að fá 0 stig í ár-
legri Evrópusöngvakeppni. Það
reyndi að vísu ekki á okkur í ár
því lagvissir Evrópubúar komu
í veg fyrir þátttöku okkar í
þetta sinn.
Svo enn sé vikið að kjark-
konunni Bergljótu má segja að
hálfnað verk sé þá hafið er.
Hún hefur skotið i kaf norsk-
an héraðssöng með miklum stæl en gæti náð
lengra. Þegar Norðmenn vísa henni úr landi bíð-
ur hennar mikið verkefni. Þótt lágt fari er vitað
aö íslendingar geta ekki sungið eigin þjóðsöng,
sálm sem fetar hæstu hæðir tónstigans.
Kannski Bergljót taki næst fyrir sjálfan þjóð-
söng íslendinga og leggi niöur meö einu penna-
striki.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Finnbjörn formaður
Finnbjörn Aðalvíkingur Her-
mannsson var einróma kjörinn
nýr formaður
Samiðnar á
þingi sam-
bandsins á
laugardags-
morgun. Finn-
björn er for-
maður Tré-
smiðafélags
Reykjavíkur. Vignir Eyþórsson,
varaformaður Félags jámiðnað-
armanna, var kjörinn varafor-
maöur sambandsins.
Broslistinn klár
Tilkynnt hefur verið um Bros-
listann, framboðslista bjart-
sýnna í Vesturbyggð. Fimm
efstu menn listans eru Birna H.
Kristinsdóttir, Björn Jóhanns-
son, Bryndís Bjömsdóttir, Sím-
on Fr. Símonarson og Barði
Sveinsson.
Erlend heimsókn
Sjávarútvegsráðherra Sri
Lanka dvaldi hér á landi í vik-
unni í boði Þor-
steins Pálsson-
ar sjávarút-
vegsráðherra.
Með honum
vom átta emb-
ættismenn og
fulltrúar sjáv-
arútvegsins í
Sri Lanka. Sri Lanka-búar
kynntu sér starfsemi íslenskra
sjávarútvegsstofnana og sjávar-
útvegsfyrirtækja á höfuðborgar-
svæðinu og í Vestmanneyjum. Á
þriðjudag hitti ráðherrann for-
seta íslands.
Komnar á tindinn
Konurnar fjórar sem hafa ver-
ið að ganga yfir Grænlandsjökul
era nú komnar á hábunguna.
Þær höfðu á laugardag lagt aö
baki 215 kílómetra að því er
fram kemur á heimasíðu leiö-
angursins. Öllum leiðangurs-
mönnum heilsast vel.
Netverjar álykta
Stjórn Félags íslenskra net-
verja hefur skorað á Landssím-
ann að veita
magnafslátt I
almenna sím-
kerfinu svipað
og þeir gera í
GSM-símkerf-
inu. Þannig
verði komiö til
móts við net-
notendur. Einnig er skorað á
báða rekstraraðila GSM-kerfa að
bjóða upp á þjónustu með tölvu-
póst. Eyþór Arnalds er formaður
samtakanna
Flugskóli á Eiöum?
Hugmyndir eru uppi um að
byggja á Eiðum alþjóðlegan flug-
skóla. Þar séu aöstæður fyrir
hendi, þ. á m. alþjóðlegur flug-
völlur, umhverfíö henti vel og
staðurinn sé nálægt öðram flug-
völlum. Stöð 2 sagði frá.
KR-ingar í stuði
Mikiö var um aö vera í Vest-
urbæ Reykjavíkur i gær. KR-ing-
ar stóðu þar fyrir mikilli dag-
skrá í samvinnu við Neskirkju.
Dagurinn hófst í Sundlaug Vest-
urbæjar og síðan var snædddur
hádegisverður í safnaðarheimili
Neskirkju þar sem þjálfarar,
leikmenn og frammámenn í
þjóðfélaginu mættu til leiks.