Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 40
48 MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998 Iþróttir unglinga Keflvíkingar unnu tvöfalt í 11. flokki og þeir voru að vonum kátir eftir sigrana en í báðum úrslitaleikjum unnu þeir Njarðvík. Islandsmót 11. flokks: Sæmundur var ótrúlega góður Keflavík og Njarðvík áttust við í hörkuúrslitaleik í 11. flokki á dögunum. í liði Njarðvikur voru nýbakaðir íslandsmeistarar meistaraflokksliðsins, þeir Örlygur Sturluson og Logi Gunnarsson, en Keflavík var staðráðið í að sýna stjörnum Njarðvíkur að það er samvinna liðsins sem skilar oft betri árangri en framtak einstaklinga. Þaö sem öðrum fremur réði úrslitum í þessum leik, auk góðrar liðsheildar í Keflavíkurliðinu, var frábær frammistaða Sæmundar Oddssonar í leiknum. Sæmundur skoraði 34 stig, auk 5 stoðsendinga og 6 frákasta. Af þessum 34 stigum komu 23 í seinni hálfleik en Sæmundur skoraði 10 af síðustu 12 stigum Keflavíkur í leiknum. Logi og Örlygur voru eflaust enn að jafna sig eftir sigurdansinn með meistaraflokknum daginn áður en þeir réðu ekki við sterka liðsheild Keflavíkur í þessum leik. Æf Jt sp&k. 4jfpf 1 ■--vjjftro 3 ,.J«? tfjSáSS íl.3 f|r| Tvöfaldir meistarar KR-inga, 1998 í 9. flokki karla í körfubolta. Þeir voru yfirvegaðir í lok beggja úrslitaleikjanna en báðir voru þeir leikir hnífjafnir og æsispennandi. Þjálfari KR er Ósvaldur Knudsen. DV-myndir ÓÓJ Sæmundur Oddsson, Keflvíkingur, með íslandsbikarinn eftir sigurleikinn gegn Njarðvík. Umsjón Óskar Ó.Jónsson Úrslit í 9. flokki Undanúrslit KR-Leiknir ........50-40(25-17) Steinar Magnússon 15, Níels P. Dungal 13, Jón B. Jónsson 8, Gunnar Hjálmarsson 7 - Siguröur Gíslason 17, Hilmar Björn Harðarson 11, Helgi Pétur Jóhannesson 7. Grindavík-Keflavík 85-26 (45-15) Ásgeir Ásgeirsson 29, Jóhann Þ. Ólafsson 17, Tobias Sveinbjömsson 12 - Ólafur Viggó Thors 11, Guðmundur Eyjólfsson 7. Úrslitaleikur KR-Grindavik.......47-15 (31-32) Níels P. Dungal 27, Sigurður Fjeld- sted 11, Steinar Magnússon 6, Elfar Árnason 3 - Helgi Már Helgason 14, Jóhann F. Einarsson 13, Ásgeir Ás- geirsson 12, Reynir Hallgrímsson 2, Jóhann B. Ólafsson 2, Hermann Sverrisson 2. Úrslit í 11. flokki Undanúrslit KR-Njarðvík....... 80-85(28-42) Sveinn Blöndal 29, Magni Hafsteins- son 19, Ólafur Már Ægisson 13, Jón Arnór Stefánsson 8 - Örlygur Sturlu- son 25, Logi Gunnarsson 16, Ágúst Georgsson 12, Haukur Aðalsteinsson 8. Keflavík-ÍR........ 76-60 (48-25) Jón Hafsteinsson 15, Daviö Jónsson 15, Magnus Gunnarsson 12, Sæmund- ur Odddson 8, Hákon Magnússon 8 - Ásgeir Ástvaldsson 16, Davíð Jensson 9, Ari Guðmundsson 6, Snorri Fann- ar Guðlaugsson 6. Úrslitaleikur Keflavík-Njarðvík . . 94-85 (44-34) Sæmundur Oddsson 34, Jón Haf- steinsson 21, Davið Jónsson 12, Magn- 9. flokkur karla í körfuknattleik 1998: KR tók báöa titla í boði - eftir sigur á Grindavík og Haukum us Gunnarsson 12, Gísli Einarsson 8, Sævar Sævarsson 4, Marteinn Sig- urðsson 2 - Guðmundur Ásgeirsson 28, Logi Gunnarsson 21, Örlygur Stoluson 15, Ágúst Georgsson 6, Þorbergur Hreiðarsson 5, Sig- urður Einarsson 4. Sigur- koss KR vann tvöfalt í 9. flokki í ár og það eftir tvo sigra í æsispennandi og fjörugum úrslitaleikjum. KR setti allt sitt traust, í úrslita- leiknum í íslandsmótinu, á fyrirlið- ann, Níels P. Dungal, sem brást ekki sínum mönnum og vann að öðrum ólöstuðum þennan leik. Grindavík sem hafði gjörsigrað mótherja sína í undanúrslitunum daginn áður vantaði talsvert upp á að endurtaka leikinn daginn eftir. Þessir strákar hjá Grindavík eru mikil efni en kannski enn í sárum eftir að þjálfari þeirra í vetur, Bene- dikt Guðmundsson, stakk af eftir Níels P. Dungal, fyrirliöi 9. flokks KR, smellir hér sigurkossi á íslands- meistaratitilinn eftir aö hafa tryggt sínu liöi sigur- inn meö sigurkörfu á síö- ustu sekúndu og 14 af 16 stigum liðsins þegar mest á reyndi í seinni hálfleik. óvænt tap gegn Skagamönnum í meistaraflokki. Haukar komu á óvart Haukar tefldu fram mörgum strákum úr hinum geysisterka 8. flokki sínum í úrslitaleiknum gegn KR og voru næstum því búnir að vinna. Reynsla KR úr úrslitaleikn- um í íslandsmótinu hefur eflaust skilað sér á lokaminútunum í leiknum. Haukar, sem ekki gerðu stóra hluti í 9. flokknum í vetur, ættu því að geta leikið leikinn eftir KR- ingum næsta vetur. -ÓÓJ Bikarúrslit í 9. flokki KR-Haukar ........54-52 (30-21) Gunnar Hilmarsson 13, Elfar Árna- son 11, Steinar Magnússon 10, Níels P. Dungal 7, Jón B. Jónsson 5, Finn- ur Stefánsson 4, Sigurjón Fjeldsted 4 - Gunnar B. Sandholt 10, Sæv- ar Haraldsson 8, Sveinbjörn Þorkelsson 8, Teitur Áma- son 7, Gunnar Guðmunds son 7, Jóhannes Jóhann- esson 5, Ámi Brynjars- son 4, Vilhjálmur Steinarsson 3. Islandsmót 9. flokks í körfubolta: Sigurkarfa í blálokin Níels P. Dungal, fyrirliði KR-inga, fór fyrir sínum mönnum í úrslitaleik við Grindavík í 9. flokki og skoraði 27 ;tig, þar af 14 af 16 stigum liðsins i seinni hálfleik. Hann var að sjálfsögðu mjög sáttur meö sigurkörfuna og okakafla leiksins enda gall flautan skömmu eftir að hann hafði sett boltann í körfunetið. „Grindavík hefur unniö okkur i úrslitum síðustu þrjú árin og það var kominn tími til aö við myndum svara ieim og vinna. Oft hafa þessir leikir ráðist í blálokin og það var því virkilega gaman að þetta skyldi detta okkar negin í þetta skiptið. Ég fann mig betur og betur eftir því sem leið á leikinn og það var ljúft að horfa á eftir joltanum í körfuna rétt áður en flautan gall,“ sagði Níels eftir leik. Níels hefur æft körfubolta í 6 ár og ávallt með KR en hann hefur látið aðrar íþróttir eiga sig enda er karfan, ið hans mati, langskemmtilegasta íþróttin. Þar er langmesti hraðinn og spennan, sem sannaðist svo rækilega í lessum leik. Þegar því var skotið að honum hvort honum hefði verið ætlað sama hlutverk hjá KR og Michael Jordan hjá Dhicago Bulls, að fá boltann þegar allt er í jámum og einhvem þarf til að taka af skarið, sagði Níels að Jordan /æri fyrirmyndin og kannski gæti hann tileinkað honum þessa sigurkörfu í lok leiksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.