Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 28
m I Smashing Pumpkins Hin heimsfræga og frábæra hljómsveit Smashing Pump- kins er með mjög margar að- dáendasíður. Ein sú besta er á http://www.geocities.com/ SunsetStrip/Palms/2695/ Harry Heimasíðu nýjustu kvik- myndar Woodys Allens, Deconstructing Harry, er að finna á slóðinni http://www. flf.com/harry/index.html Guam Margir telja Suðurhafseyj- una Guan hreina paradís á *jörðu. Hægt er að kynna sér allt um þessa eyju á http://www.guam.net/ Monty Python Það muna senni- lega margir eftir hinu óborganlega Monty Python- gengi sem v naut mikilla vinsælda með sjón- varpþáttum sínum og kvik- myndum. Opinber síða þessara grínara er á http://www.pythonline.com Skólaskrifstofa Skólaskrifstofa Suðurlands opnaði nýlega heimasíðu og er það liður í að bæta þjón- ustu við foreldra og starfsfólk grunn- og leikskóla á Suður- landi. Slóðin er http://www. sudurland.is/skolasud Bannaðar bækur Ameríkanar eru alltaf sam- > ir við sig. Á http://www. cs.cmu.edu/People/spok/ most-banned.html er listi yf- ir bækur sem hafa oftast ver- ið bannaðar í Bandaríkjunum á þessum áratug. Meöal þeirra er Stikilsberja-Finnur. Álag í fríi Þetta kann að hljóma und- arlega en margir eru ekki síður undir álagi i fríinu en í vinnunni. En hvernig á að taka á því? Einhver svör við því fást á http://helping. apa.org/holiday.html Ölvunarakstur Ölvunarakstur er víða stórt vandamál og veldur bæði slysi á fólki og eignatjóni. Á http://www2.potsdam.edu/ soc/hansondj/DrinkDrive/ DrinkingDriving.html er fróðleikur um ölvunarakstur sem allir hafa gott af því að lesa. !■ I P | I I > MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998 yMvnpHfn' 1 J 1/J.J Jr1 Samstarfshópurinn Island án eiturlyfja setur upp heimasíðu: Ætlum að ná til allra ísland án eiturlyfja er átak sem ríkisstjórn tslands, Samtök ís- lenskra sveitarfélaga og Evrópu- samtökin European cities against drugs standa að. Vefsíða tengd þessu átaki var sett upp fyrir rúm- um mánuði og er tilgangurinn með þeirri síðu að koma á framfæri nýj- um upplýsingum um eiturlyfja- vandann jafnt hér heima sem er- lendis. Snjólaug Sigurðardóttir er verkefnisstjóri átaksins. Allt á einum stað Snjólaug segir að aðstandendur átaksins hafi viljað helstu upplýs- ingar um forvarnir aðgengilegar á einum stað. Hún bendir meðal ann- ars á tengingar við forvarnaraðila hér heima og erlendis. „Megintil- gangurinn er að koma upp öflugri og lifandi síðu þar sem hægt er að vera með skoðanaskipti líka,“ sagði Snjólaug. Hún bætti við að þetta væri ein tilraun af mörgum til að þjappa þeim saman sem starfa að þessum málum. Snjólaug segir að viðbrögðin hafi verið góð en síðan hefur þó ekki verið mikið kynnt enn þá. „Við höfum fengið þó nokkuð af bréfum og við finnum fyrir því að ásóknin fer vaxandi," segir Snjó- laug og bætir enn fremur við að fólki finnist síðan góð, skemmtileg og lífleg. Hún telur Netið eina af mörgum leiðum sem hægt er að nota til að ná til fólksins. „Við erum ekki að reyna að ná til sérstaks hóps. Það er ekki bara unga fólkið sem á að fá þessi skilaboð heldur líka kennarar og aðrir sem vinna að forvarnamál- um. Þetta getur líka verið fyrir nemendur og kennara sem vinna að verkefnum um þessi mál. Við erum í raun að reyna að ná til allra,“ sagði Snjólaug. Vettvangur skoðanaskipta Hún segir að litið sé á vefinn sem miðil framtíðarinnar. „Það þurfa sem flestir að nýta sér þennan mið- il. Það er ótrúlega mikið efni á ver- aldarvefnum um eiturlyf og þá jafn- vel meira um að það sé allt í lagi með þau. Við erum hins vegar að reyna að koma með vandaðri upp- lýsingar um staðreyndir málsins þannig að fólk viti um hvað málið snýst,“ segir Snjólaug. Eins og áður sagði er stefnt að því að þessi vefur verði sem mest lifandi. Nýjustu tíðindi um þessi mál verður í framtíðinni hægt að finna á þesum vef. „Við munum leggja okkar metnað í að gera vef- inn sem mest lifandi þannig að allt nýtt sem er að gerast verði auglýst þarna. Einnig er ætlunin að setja inn nýjar skýrslur, rann- sóknir og upplýsingar. Þannig verða allar upplýsingar aðgengi- legar á einum stað. Vefurinn verð- ur i stöðugri endurskoðun," segir Snjólaug. Hún vildi að lokum hvetja fólk til að láta skoðanir sínar á þessum málum í ljós. Hægt er að senda bréf frá þessum vef og þau verða birt á síðunni. Þetta getur því orðið góður vettvangur öflugra skoðanaskipta um þessi mál. Slóðin á heimasíðu átaksins ísland án eiturlyfia er http:// is- landaneiturlyQa.is -HI Síðan Island án eiturlyfja er tilieinkuð baráttunni gegn eiturlyfjum. Bolabrögð Microsoft? The Wall Street Journal greindi frá því nýlega að blaðið hefði heimildir fyrir því að í maí 1995 hefði Microsoft haldið fund með forsvarsmönnum Netscape. Sam- kvæmt fréttinni er ákæruvaldið að rannsaka hvort Microsoft hafi far- ið þess á leit á fundinum að fyrir- tækin tvö skiptu bróðurlega með sér vaframarkaðnum. Þessu hafi forsvarsmenn Netscape hafnað. Þremur mánuðum seinna fór fyrir- tækið af stað með nýja útgáfu af eigin vafra og Microsoft byrjaði með sinn eigin. Blaðið hefur eftir tæknistjóra hjá Netscape að það að mæta á þennan fund hafi verið eins og að mæta á fund hjá Don Corleone og að hann hefði búist við að finna blóðugan vélbúnað i rúminu við hliðina á sér daginn eftir. Talsmaður Microsoft neitar þessu. Hann segir að fundurinn hafi vissulega verið haldinn en að- eins hafi verið fjallað um hugsan- legt viðskiptasamstarf milli fyrir- tækjanna. Fréttaskýrendur telja að ef dómsmálaráðuneytið komist að þeirri niðurstöðu að ætlunin hafi verið að skipta svona markaðnum sé það mjög alvarlegt mál fyrir Microsoft og að þar sé komin enn ein ný hliðin á meintum einræð- istilburðum fyrirtækisins. Á meðan þetta stendur yfir hef- ur Netscape á prjónunum áætlun um að verða meira áberandi á fjöl- miðlamarkaðnum. Netscape mun bjóða fólki frítt netfang á vefsíðu sinni, Netcenter, auk þess sem end- urnýjaðir verða samningar við leitarvélar á borð við Yahoo!, Excite, Lycos og Infoseek. Allir þessi samningar eru runnir út en ekki er víst hversu margir verða endurnýjaðir. Jim Barksdale, forstjóri Net- scape, segir að hingað til hafi þeir verið í hlutverki heildsalans i þessum netviðskiptum en nú vilji þeir hins vegar fara meira í endursölu lika. Þannig vilji þeir gera annars konar samninga við þessar leitarvélar sem munu líkleg koma að enn þá meira gagni. Nú er að vita hvort þessar framkvæmdir gangi allar eftir á sama tíma og Microsoft er við það að ná forystu á Netscape með vafrann sinn. Spurningin er hvort þetta muni duga til að auka markaðshlutdeild Netscape á nýjan leik. Wozniak velur íslenskt Steve Wozniak, sem stofnaði Apple tölvufyrirtækiö á sínum tíma ásamt Steve Jobs, hefur keypt hugbúnaöarlausnir af islenska fyrirtækinu Mönnum og músum. Þarna er um aö ræöa QuickDNS Pro sem er Mac OS nafnamiölari fyrir Netiö. Þessi miðlari hefur selst í um 4.000 eintökum um allan heim og fengiö góða dóma í virtum tölvutímaritum. I fréttatilkynningu frá Mönnum og músum segir að þetta sé mikil viöurkenning fyrir fyrirtækiö og að hann hafi meira aö segja keypt fleiri lausnir en hann þurfi til eigin nota. Játaði morð á Netinu fyrir tæpum þremur árum geröist það aö skilaboð frá Larry Froistad komu á tölvupóstlista þar sem hann játaði aö hafa myrt dóttur sína. Hann hefur nú veriö formlega ákæröur fyrir morö. Lögfræðingar hans segja hins vegar aö hann muni segjast saklaus f réttarhöldunum sem hefjast T júlí. Þeir halda því fram aö ekki sé hægt aö telja skilaboð um Netiö sem sönnunargögn þar sem einhver annar hefði getað sent þau. Margir hafa velt fyrir sér í kjölfarið hversu gagnlegir stuðningshópar á Netinu séu, sérstaklega í Ijósi þess aö sá sem tilkynnti um skilaboöin fékk bágt fyrir frá öörum meðlimum hópsins vegna þess að trúnaður var ekki virtur. Express Suite 2000 Nýr hugbúnaður, Express Suite 2000 er kominn út, og samkvæmt fréttatilkynningu frá Boðeind á hann aö hjálpa til viö lausn 2000-vandans. Hugbúnaöur þessi fer sjálfur yfir vélbúnað og hugbúnaö sem tölvukerfi keyra á og hægt er aö biöja sérstaklega um skýrslu þess hugar sem ekki er tilbúinn fyrir áriö 2000. Einnig getur hann séö hvaöa forrit er mest notaö og þar meö hvaö er brýnast aö laga. Einnig er eftirlit meö þeim hugbúnaöi sem á aö þola aldamótin. Boöeind dreifir þessum búnaöi hér á landi. Górillan lítið fyrir Netið Górilluapynjan Kókó hefur getiö sér gott orð fyrir að læra táknmál og vera bara býsna góö í að nota það til tjáningar. Þegar hún kom hins vegar fram í netspjalli í síöustu viku virtist hún ekki hafa mikinn áhuga á þessu tækniundri. Þegar hún var spurö hvernig henni litist á Netiö svaraöi hún því til aö þaö væri ferlega ruglingslegt, eiginlega algjör frumskógur ef svo mætti aö orði komast. Það er kannski ekki aö undra því þaö dundu á henni spurningar um alls kyns hluti. Meðal annars var hún spurö álits á þróunarkenningu Darwins og einn gekk meira að segja svo langt aö spyrja út í nýjustu útgáfu kvikmyndarinnar King Kong. Hún hafði hins vegar meiri áhuga á aö spjalla um mat og leikföng. flmazon í sókn Hlutabréf í Amazon hækkuöu um ríflega 15% í síöustu viku þegar þau tíöindi bárust aö tap búðarinnar heföi veriö mun minna en áöur var reiknaö meö. Einnig var tilkynnt aö fyrirtækið hygöist víkka út starfsemi sína og ætlaöi sér að vera meö útibú í Evrópu. Tilgangurinn meö því er meöal annars að bjóöa myndbönd til sölu á vefnum og þá í samstarfi viö Internet Moovie Database, sem er stærsti kvikmyndagagnagrunnur á Netinu. Nýlega tilkynnti fyrirtækiö að þaö ætlaði aö fara aö selja tónlist þannig aö þaö eru aldeilis stór áform uppi hjá fyrirtækinu. Amazon hefur verið stærsta netbókaverslunin í nokkur ár en hefur alltaf veriö rekin meö tapi. Nú er sem sagt útlit fyrir aö þaö sé aö breytast. IPVl -HI/CNN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.