Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998
Utlönd
Stuttar fréttir i>v
Vifta verður
barni að bana
Loftvifta varð fimm mánaða
gömlu stúlkubami að aldurtila í
Nígeríu í síðustu viku. Náinn ætt-
ingi var að fagna fæðingu
stúlkunnar og sveiflaði henni upp
1 loft með þeim hræðilegu afleið-
ingum að höfuð hennar lenti í
viftunni og skarst af.
Stúlkan lést samstundis. Lög-
regla í bænum Akure, þai' sem at-
burðurinn átti sér staö, ihugar nú
að kæra ættingjann fyrir mann-
dráp. Stúlkan, sem hét Bolatito,
var fyrsta bam móður sinnar sem
hafði árangurslaust reynt að eign-
ast bam í flmm ár.
Aukin
onusta
Opið:
Mán.-fös. 8~21
Lau. 8-19
Sun. 10-19
Húsasmiðjan
Fossaleyni 2
Grafarvogi
S: 586 2000
HÚSASMIÐJAN
fellihýsi
• Miðstöð með hitastýringu
• Skráning og númeraplata
• Tveggja hellna gaseldavél
• 12 volta rafkerfi og rafgeymir
• Áfylltur gaskútur
• 50 mm kúlutengi
• Lokaður lyftubúnaður
• Ryðvarinn undirvagn Á
• og margt fleira
Hafðu samband -
ýmsir lánamöguleikar
staógreitt
Sportbúð - TÍtan • Seliavegi 2
SÍMI 551 6080 • Fax 562 6488
Danir vilja heQa viðræður við nýja landstjórn sem fyrst:
Færeyingar munu
krefjast fullveldis
Poul Nymp Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, segir að
gengið verði til viðræðna við nýja
landstjörn Færeyinga undireins og
færeyska lögþingið hefur samþykkt
hana.
„Það er stefna ríkisstjórnarinnar
að efna til viðræðna sem fyrst eftir
að landstjórnin hefur komið saman
og vinna aö lausn þeirra málefna
sem ber hæst á stefnuskrá henn-
ar,“ sagði Nyrap í viðtali við
danska dagblaðið Politiken í gær.
Danski forsætisráðherrann vildi
hins vegar ekki gefa út neinar yfir-
lýsingar hvað snertir þá áherslu
sem hin nýja landstjórn leggur á að
Færeyingar öðlist fullveldi sem
fyrst.
„Ég bið nú eftir frekari upplýs-
ingum frá landstjórninni," sagöi
Nyrap. „Það er ljóst að viðræðurn-
ar milli Danmerkur og Færeyja
muni snúast að miklu leyti um
þrjú málefni: Samband Danmerkur
og Færeyja í ljósi þeirra vanda-
mála sem risið hafa í kjölfar banka-
málsins; um samkomulag vegna
skuldar Færeyinga sem nema um
600 milijónum islenskra króna; og
mögulegar skaöabætur til Færey-
inga vegna taps þeirra í bankamál-
inu.“
Fólkaflokkurinn, Þjóðveldis-
flokkurinn og Sjálfstýriflokkurinn
náðu samkomulagi um stjórnar-
myndun á laugardag en flokkarnir
vilja allir efna til viðræðna við
Dani um að Færeyjar verði full-
valda ríki. í drögum að samkomu-
lagi flokkanna er tekið mið af lög-
um frá 1918 sem kváðu á um að ís-
land yrði fullvalda riki.
Flokkarnir leggja til að efnt
verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um
fullveldissamninginn i Færeyjum
eftir að þeir hafa náð samkomulagi
við stjórnvöld í Danmörku.
Jonathan Motzfeldt, leiðtogi
grænlensku stjórnarinnar, sagðist í
gær skilja vel að gremja Færeyinga
í garð Dana skuli endurspeglast í
óskum þeirra um fullveldi frá Dan-
mörku. Motzfeldt segir að vel geti
verið að Grænlendingar muni
einnig hugsa sinn gang ef viðun-
andi niðurstaða fæst á viðræðum
Færeyinga við Dani um að Færeyj-
ar verði fullvalda ríki.
Maður syrgir viö kistur þeirra sem fórust í aurskriðunum sem féllu í suöurhluta Ítalíu í síöustu viku. Kistum þeirra,
alls 95, var raöaö hliö við hliö á rauöan dregil á íþróttaleikvangi í bænum Sarno áöur en jaröarför þeirra fór fram í
gær. Bera varö fjölmarga aðstandendur hinna látnu í burtu á meöan á athöfninni stóö því tilfinningarnar báru þá
yfirliði. Þjóöarsorg er nú á Ítalíu og hefur forsætisráöherra skipað aö fánar skuli dregnir í hálfa stöng til aö minnast
hinna látnu. Símamynd Reuter
Alls óvíst um
friðarviðræður
Dennis Ross, sérlegur sendifull-
trúi Bandaríkjaforseta sem hefur
haft milligöngu um að koma frið-
arviðræðum aftur af stað í Mið-
austurlöndum,
hélt heimleiðis
í gær án þess
að hafa náð
samkomulagi
við Benjamín
Netayahú, for-
sætisráðherra
ísraels um
hvort nýr
fundur verði haldinn síðar í þess-
um mánuði.
Vonast hafði verið til að Net-
anyahú og Yassir Arafat myndu
báöir mæta til fundar í Lundún-
um í dag. Að sögn Ross hafnaði
Netanyahú aifarið að láta um 13%
af landssvæði af hendi við sjálf-
stjóm Palestínumanna, sem var
hluti af sáttatillögu Bandaríkja-
manna til að koma viðræðunum
aftur af stað.
Óvíst er hvort orðið geti af við-
ræðunum síðar í þessum mánuði.
Áfangasigur á Norður-írlandi:
Sinn Fein samþykkti
friðarsamkomulag
Sinn Fein, pólitískur armur írska
lýöveldishersins, samþykkti meö
miklum meirihluta á flokksþingi
sínu í gær að styðja samkomulag
um frið á Norður-írlandi, sem und-
irritað var á fostudaginn langa. Þar
með hafa félagar í Sinn Fein sýnt
vilja sinn í verki um að þeir vilji
heils hugar binda enda á skálmöld-
ina þar sem kaþólikkar og mótmæl-
endur hafa miskunnarlaust vegið
hvorir aðra í yfir 30 ár.
Niðurstaða flokksþingsins er
einnig mikill sigur fyrir Gerry Ad-
ams, leiðtoga Sinn Fein, sem hefur
haft forystu í viðræðunum um frið á
Norður-írlandi. Áöur höfðu aðrir
stjórnmálaflokkar sem tóku þátt í
friðarviðræðunum lýst yfir stuðn-
ingi við samkomulagið en samþykkt
Sinn Fein ræður úrslitum um hvort
friður eigi framtíð fyrir sér á Norð-
ur-írlandi.
Gerry Adams hrósar sigri í gær eftir
aö Sinn Fein samþykkti samkomu-
lag um frið á Noröur-írlandi.
Holbrook gefst upp
Sérstakur sendifúlltrúi
Bandaríkjanna í deilunni í
Kosovo, Ric-
hard Hol-
brook, lýsti
því yflr í gær
að viðræður
milli Serbíu,
Albaníu og
Kosovo-Al-
bana um
skálmöldina í
Kosovohéraði væru í hnút.
Serbneskur lögreglumaður var í
gær myrtur af leyniskyttu í
Kosovo sem geröi Holbrook sýnu
erfiðara fyrir.
Sósíalistar vinna sigur
Sósialistar unnu stórsigur í
kosningunum í Ungverjalandi, ef
marka má fyrstu tölur. Sósílista-
flokkurinn reyndist vera með
70% atkvæða.
Enn bíöur Louise
Breska barnfóstran Louise
Woodward, sem var fundin sek
um að hafa orðið bami að bana í
Massachussetts í Bandaríkjunum
þar sem hún var bamfóstra, bíður
enn eftir niðurstöðu í einkamáli
sem höfðað var gegn henni. Það
hefur nú tekið níu vikur.
Vilja aflétta viðskiptabanni
íraksstjóm hóf í gær nýja her-
ferð gegn viöskiptabanninu sem
sett var á landið eftir Persaflóa-
stríðið árið 1990 og krefjast þess
að því verði tafarlaust aflétt.
Hillary tekur afstöðu
Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, er sökuð um að
hafa tekið af-
stöðu með
Palestinu-
mönnum á
sjónvarpsfundi
í Genf þar sem
hún ávarpaöi
unga ísraels-
menn og Araba
í gegnum
gervihnött frá
Washington D.C. Hillary er sögð
hafa sagt að henni fyndist að sjálf-
stjómarlendur Palestínumanna
ættu með tíð og tíma að verða
fullvalda ríki.
Kissinger gefur einkunn
Henry Kissinger, fyrrverandi
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði í gær að erfitt væri að
sjá hvemig myntbandalag Evrópu
gæti orðið að vemleika en bætti
við að enn erfiðara væri að
ímynda sér að forkólfar þess
leyfðu því að falla um sjálft sig.
Þetta kom fram í grein sem Kiss-
inger skrifaði í sænska dagblaðið
Dagens Nyheter.
35 Alsírmenn myrtir
Þrjátíu og fimm Alsírmenn létu
lífið í átökum síðustu daga.
Stjórnarherinn felldi 30 uppreisn-
arhermenn og 5 óbreyttir borgar-
ar létu lífið í átökum.
Sjálfsvíg biskups
Þúsundir manna voru
viðstaddar jarðarför pakistansks
biskups sem ffamdi sjálfsvíg til
aö mótmæla landslögum um guð-
last. Með þessu vildu fylgjendur
hans sýna samstöðu með gerðum
hans.
Annan endar Afríkuferð
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hélt í gær á
brott frá Afr-
Iku eftir að
hafa heimsótt
þar 8 ríki.
Ferðin þótti
ekki takast
sem skyldi og
mátti fram-
kvæmdastjór-
inn sæta gagn-
rýni hvar sem
hann fór, nú síðast ffá forseta
Eritreu. Annan tókst heldur ekki
að ná samkomulagi viö Rúanda-
stjóm um að hætta aftökum á
Hútuum sem sakaðir eru um að
hafa átt þátt I þjóðarmorði Tútsa.