Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Qupperneq 20
20
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998
Spurt í Grindavík
Sveitarstj ór narkosningar 1998
Hver veröa úrslit sveitar-
stjórnarkosninga í
Grindavfk?
Roland Buchholz sjómaður:
Ég er mjög áhugalaus um kosn-
ingamar hér og mér finnst ekk-
ert spennandi í boði. Ég hef
ekki hugmynd um hver verður
sigurvegari.
Grétar Guðfinnsson sjómað-
ur: Ég get ekki spáð um hver
vinnur. Ég er ekki ánægður
með neinn af listunum og mun
ekki kjósa.
Guðmundur Pálsson tann-
læknir: Ég spái að D- og B-list-
amir haldi meirihluta.
Þórður Magnússon sjúkra-
þjálfari: Þetta verða jafnar og
tvísýnar kosningar. Ég treysti
mér ekki til að spá um úrslitin.
Steinunn Óskarsdóttir, aðstoð-
arkona tannlæknis: Ég er ekki
viss hver vinnur. Þetta verður
mjög jafnt.
Ingibjörg Áslaugsdóttir ritari:
Ég held að D- og B-listar vinni og
haldi meirihlutanum.
Sveitarstjórnarkosningar í Grindavík:
Innsiglingin og bygg-
ing nýs grunnskóla
Nýtt framboð Grindavíkurlistinn
hefur litið dagsins ljós fyrir sveitar-
stjómarkosningamar í Grindavík.
Hér er um að ræða sameiginlegt
framboð Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og óháðra.
Eftir síðustu sveitarstjómarkosn-
ingar mynduðu Framsóknarflokkur
og Sjálfstæðisflokkur meirihluta í
Grindavík. Þessir flokkar fengu tvo
menn hvor. Alþýðuflokkur fékk
einnig tvo menn og Alþýðubandalag
einn. Stóra spumingin fyrir þessar
kosningar er hvort minnihlutanum
takist með þessari sameiningu að
ná völdum í bænum.
í Grindavik em tvö stærstu kosn-
ingamálin framkvæmdir við inn-
siglinguna og bygging nýs grunn-
skóla. Atvinnumálin em líka ofar-
lega á dagskrá og fjölgun íbúa í
bænum samhliða því. í flestum at-
riðum em stefnumál listanna frekar
lík. Grindavíkurlistinn stefhir þó að
róttækustu breytingunni í leik-
skólamálum þar sem stefnt er á leik-
skóla fyrir 40 böm í heilsdagsvist-
un. Grindvíkingar horfa bjartsýnis-
augum til Bláa lónsins og einnig,
eins og fleiri Suðumesjamenn, til
Hafnarframkvæmdir eru ofariega á baugi í Grindavík.
DV-myndir ÞÖK
væntanlegra magnesíum- og alkó-
hólsverksmiðja á Suðumesjum.
Fjárhagsstaða bæjarins er mjög
góð. Grindavík er næst skuld-
minnsta bæjarfélag landsins á eftir
Akureyri. -RR
Ijúka hafnar-
framkvæmdum
„Okkar helsta mál er aö ljúka
hafnarframkvæmdum. Halldór Blön-
dal samgönguráðherra hefúr tekið
vel í þessi mál og
það er honum að
miklu leyti að
þakka að þessi
mál em komin í
þann farveg sem
þau era í dag. 1
framhaldi af fram-
kvæmdum við
innsiglinguna er
stefht á byggingu
skjólgarða. Þeir
verða utan við nú-
verandi garða,“
segir Ólafur Guðbjartsson, oddviti D-
lista.
„Við fóram í stækkun á grunn-
skólanum en urðum að fresta fram-
kvæmdum þar um eitt ár vegna
áhrifa á kennsluna að því er sagt
var. Það verður farið á fullu í það og
stefnt á að klára það á styttri tíma.
Það er mjög brýnt verk. Það virðist
bjart fram undan í atvinnumálum.
Við eram að horfa á nýjar fram-
kvæmdir viö Bláa lónið. Ef við fáum
þann veg hingað þá er kominn
möguleiki fyrir einstaklinga hér að
leggja sig í að sinna ferðaþjónustu. Á
sínum tíma lofuðu þingmenn þess-
um vegi. Við eram búnir að minna
þá á það loforð og þeir era eitthvað
að taka við sér í þeim efnum. Við
horfum líka fram á stóra ævintýrið á
Reykjanesi þar sem stefnt er að því
aö magnesíum- og alkóhólverksmiöj-
ur rísi. Við viljum standa jafnfætis
öðrum hér á Reykjanesi og leggjum
þimga á að fá nýjan veg. Það er ekki
langt að fara. Ef það verður af þess-
um verksmiðjum þá kemur stór
hluti vinnuafls hingað á Suðurnesin.
Það verður að dreifa því fólki um
Suðurnesin ef vel á að fara. Upp-
bygging hefur orðið nokkur á iðnaði
hér í bæ og er stefnt að því að hún
haldi áfram. Leikskólamálin eru
annað mikilvægt mál hér í bænum
og það eru komnir langir biðlistar.
Við verðum að taka það mál mjög al-
varlega og leysa það,“ segir Ólafur.
Aðspurður um úrslit kosninganna
segir Ólafur að sjálfstæðismenn
stefni að því að halda sínum tveimur
mönnum og vera áfram í meiri-
hluta."
Innsiglingin er
forgangsmál
„Stóra baráttumál okkar er að halda
áfram með framkvæmdir við innsigl-
inguna í Grindavík. Fyrsti áfanginn
var unninn sl. sumar og tókst vel. Ann-
ar áfangi er að innsiglingin verði gerð
bein út ásamt varnargörðum. Þetta er
mikil framkvæmd
sem okkur hefur
lengi dreymt um og
okkur sýnist nú
verða að veruleika.
Þetta er það for-
gangsmál sem
skiptir byggðarlag-
ið mestu máli. Af
öðrum málum er
ætlunin að klára
byggingu grunn-
skólans. Það er
mikil og dýr fram-
kvæmd. Þar hugsum við okkur að hafa
inni bæði tónlistarskólann og bóka-
safniö," segir Hallgrimur Bogason,
oddviti B-lista.
„Dagvistunarrýmum þarf að fjölga
en ekki er endanlega ákveðið hvaða
leið verður farin til að ná því mark-
miði. Það eru þrír kostir sem við sjá-
um í stöðunni. Einn er sá að byggja við
leikskólann og bæta við einni deild.
Annar kostur er sá að taka elsta ár-
ganginn og setja hann í húsnæði
grunnskólans. Þriðji möguleiki er að
koma á einkareknum leikskóla. Við
ætlum að halda áfram að vinna að at-
vinnumálum og umhverfismálum. Við
höfum gert mikið átak í þeim málum á
síðustu árum. Við ætlum að halda okk-
ur áfram við ábyrga og trausta fjár-
málastjóm. í dag er Grindavík næst
skuldminnsta sveitarfélag á íslandi,"
segir Hallgrímur. Hann segir að B-list-
inn stefni á að halda sínum tveimur
mönnum og vera áfram í meirihluta.
Ólafur Guð-
bjartsson, odd-
viti D-lista.
Hallgrímur
Bogason, odd-
viti B-lista.
Framboðslistar í Grindavík
D-listi
1. Ólafur Guðbjartsson
skrifstofustjóri.
2. Ómar Jónsson
verslunarstjóri.
3. Jóna Rut Jónsdóttir
leikskólakennari.
4. Guðmundur L. Pálsson
tannlæknir.
5. Hólmfríður B. Hildisdóttir
bréfberi.
6. Sigmar Edvardsson
umboðsmaður.
7. Klara Sigrún Halldórsdóttir.
B-listi
1. Hallgrímur Bogason
bæjarfulltrúi.
2. Sverrir Vilbergsson
bæjarfulltrúi.
3. Dagbjartxu' Willardsson
skrifstofumaður.
4. Kristrún Bragadóttir
kaupmaður.
5. Anna María Sigurðardóttir
fiskmatsmaður.
6. Jónas Þórhallsson
skrifstofumaður.
7. Sigríður Þórðardóttir
verslunarmaður.
J-listi
1. Hörður Guöbrandsson
verkstjóri.
2. Pálmi Ingólfsson
kennari.
3. Þónmn Jóhannsdóttir
húsmóðir.
4. Garðar Vignisson
kennari.
5. Ingibjörg Reynisdóttir
skrifstofumaður.
6. Magnús A. Hjaltason
sölumaður.
7. Jóna Herdís Sigurjónsdóttir
skrifstofumaður.
Atvinnu- og
skólamál að-
alatriðið
„Okkar aðalmál eru atvinnu- og
skólamál. Inni í því era leikskóla-
mál. Við stefnum að því að byggja
leikskóla fyrir 40
börn með heils-
dagspláss. Það
eru 80 böm á bið-
lista þannig að
þetta er mjög
brýnt verkefni. Ef
við ætlum að fá
fólk til að flytjast
hingað til bæjar-
ins þá er nauðsyn- H°röur Guð-
legt að geta boðið brandsson, odd-
því pláss á leik- v'*' J-Hsta.
skóla. Eins er
mikilvægt að geta boðið upp á fjöl-
breyttari vinnu hér í bænum. Ég tel
þetta tvennt lykilinn að fólksfjölgun
í bænum," segir Hörður Guðbrands-
son, oddviti J-listans.
„Það fækkaði um 39 íbúa i
Grindavík á síðasta ári. Við teljum
að það þurfi að fjölga íbúum um 50
til 100 manns á ári næstu 5 til 6
árin. Við höfum farið vel ofan í at-
vinnumálin. Við erum með tillögu
um að leita eftir því við hagsmuna-
aðila að byggja hótel við Festi. Við
leggjum áherslu á tengingu við at-
vinnusvæðiö við Bláa lónið þar sem
er framtíðaratvinnuuppbygging.
Við viljum fá veg þangað, sem okk-
ur var lofað á sínum tíma. Við vilj-
um líka fá góöan veg út á Reykjanes
þar sem stefnt er að því að reisa
magnesíum- og alkóhólverksmiðjur.
Við viljum leggja mikla áherslu á f.ð
tengjast Suðurlandi. Það er gífur-
lega mikilvægt fyrir sjávarútveginn
hér og eins ferðaþjónustuna. Við
viljum að hafnaiframkvæmdum
verði lokið því það er mikið eftir
enn. Það er mjög mikilvægt að klára
þetta verk. Viö ætlum að taka upp
hafnarstjórastöðu sem hefur verið
undir bæjarstjóra. Það er verið að
vinna í skólanum og ætlunin að ein-
setja hann. Við leggjum áherslu á
faglegra starf í skólamálum," segir
Hörður.
Aðspurður um úrslit kosning-
anna segir Hörður: „Við leggjum
upp með að ná meirihlutanum og ég
tel okkur eiga góða möguleika á
því.“ -RR