Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Page 24
24
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998
Spurt á Blönduósi
Hver veröa kosningaúr-
slitin á Blönduósi?
Lárus Jónsson deildarstjóri:
Á-listinn og D-listinn fá tvo
menn en H-listinn þrjá, þetta
getur ekki farið öðruvísi.
Stefán Berndsen smiður: Á-
listinn fær 3 menn en hinir tvo
hvor.
Valdimar Guðmannsson,
form. Samstöðu:
Á-listinn fær 3 menn en hinir
listarnir tvo menn. Ég ætla að
verða fyrsti varamaöur Á-list-
ans.
Þorvaldur G. Jónsson bóka-
vörður: Á-listinn fær þrjá menn
kjöma en hinir listarnir tvo
hvor.
Unnur Kristjánsdóttir kenn-
ari: Vonandi verða úrslitin góö
og við fáum gott fólk í bæjar-
stjóm, ekki síst konur.
Elva B. Harðardóttir nemi:
Á-listinn vinnur, hann er með
besta fólkið og mesta metnaðinn.
Sveitarstjórnarkosningar 1998
Kosningarnar á Blönduósi:
Atvinnu- og skóla-
málin I brennidepli
DV, Akureyri:
Atvinnu- og skólamál
virðast vera þau mál sem
helst verður tekist á um í
kosningunum til bæjar-
stjórnar Blönduóss 23. maí.
Reyndar virðist ekki mikill
meiningarmunur milli
framboðanna þriggja í þess-
um málum né öðrum, og á
framboðsfundum þar í bæ á
næstunni muni menn frek-
ar takast á um áherslur og
leiðir í hinum ýmsu málum
en beinar stefnur.
í kosningunum 1994
komu fram fjórir framboðs-
listar á Blönduósi, Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk þá 2
bæjarfulltrúa, H-listi
vinstri manna og óháðra
fékk þrjá bæjarfulltrúa, K-
listi og F-listi fengu einn
bæjarfulltrúa en þau fram-
boð voru kölluð „klofnings-
framboð". Sjálfstæðisflokk-
ur og H-listinn mynduðu
meirihluta að kosningum
loknum.
Eins og viða um land ber
skólamálin einna hæst á
Blönduósi, en nú er i fyrsta skipti kos-
iö til sveitarstjórna eftir yfirtöku
sveitarfélaganna á grunnskólunum. Á
Blönduósi munu menn einnig ræða
stöðuna í atvinnumálunum en þar er
staða bæjarfélagsins fremur slæm
þannig að fé til framkvæmda er af
skornum skammti. Það er því viðbú-
ið að tekist verði á um framkvæmda-
röð og áherslur fremur en annað, og
D: 26,3%
H: 14,8%
F: 36,2%
K: 22,7%
Gott samstarf
viö H-listann
„Skólamálin eru þau mál sem
við leggjum mesta áherslu á, við
viljum koma skólanum hér í
fremstu röð
skóla hér á svæð-
inu, bæði skóla-
starfinu sjálfu og
stefnunni, og efla
samstarf heimila
og skóla. Þetta er
mál sem brennur
á fólki í dag eftir
að sveitarfélagið . . _ „
tók við skóla- A9ust p;.Bra9f
son,
oddviti D-
listans.
DV-myndir gk
starfinu," segir
Ágúst Þ. Braga-
son sem skipar
efsta sæti á lista
Sjálfstæðisflokks-
ins.
„í atvinmnnálunum leggjum við
áherslu á að treysta þær forsendur
sem þurfa að vera fyrir hendi. Við
höfum unnið að því á yfirstand-
andi kjörtímabili að laga aðstæður
fyrir atvinnulífið. Við erum með
lægstu gjöld á atvinnulífið sem
gerist á Norðurlandi og viljum
hafa þær forsendur að fyrirtæki
sjái sér hag í því að hefja hér starf-
semi og starfa af krafti.
Atvinnuástandið hefur verið
betra hér allt kjörtímabilið en það
er nú en við sjáum jákvæða hluti
fram undan og erum að vinna að
því hörðum höndum að koma
fiskvinnslunni I gang aftur. Það
kann því svo að fara að hér vanti
fólk á næstunni frekar en hitt.
Það hefur ekki verið mikill
ágreiningur milli manna sem
starfa hér að bæjarmálum. Sam-
starf okkar við H-listann í bæjar-
stjóm hefur verið afar gott og ekki
ágreiningur. Minnihlutinn hefur
hins vegar verið máttlaus og ekk-
ert lagt til málanna. Hann hefur
setið hjá allt kjörtímabilið," segir
Ágúst.
Atvinnumálin
eru áfram
áherslumál
„Aðaláherslu-
mál H-listans á
komandi kjör-
tímabili eru
áfram atvinnumál
eins og verið hef-
ur, þau brenna
þyngst á fólki,“
segir Pétur A. Pét-
ursson en hann
skipar efsta sætið p®*ur Péturs-
á H-lista. son> oddviti H-
„í öðru lagi eru listans.
það skólamálin en
þeim málum þarf að koma i betra
horf en verið hefur og við munum
leggja okkur fram um að svo megi
verða. Hér er verið að skipta um
skólastjóra í annað skipti á tveimur
árum og það er óásættanlegt þar
sem ekki kemur festa í starfið ef svo
ört er skipt um æðsta stjórnanda.
I þriðja lagi eru það fráveitumál.
Við höfum látið vinna áætlun um
fráveitumál bæjarins og sú áætlun
hefur verið samþykkt af umhverfis-
ráðuneytinu. Áætluninni á að vera
lokið árið 2005 sem þýðir að þá
verða engar útrásir í bænum og allt
skólp fer í hreinsistöð og þaðan með
Blöndu til sjávar. Við leggjum
áherslu á að flýta þessum fram-
kvæmdum en þær kosta alls um 80
milljónir króna.
Samstarf okkar við Sjálfstæðis-
flokkinn í meirihluta hefur gengið
mjög vel á kjörtímabilinu og reynd-
ar allt samstarf innan bæjarstjóm-
ar. Það hefur ríkt hér einhugur og
vonandi verður svo áfram.“
Pétur segir að H-listinn, sem hef-
ur 3 bæjarfulltrúa, stefni að því að
halda sínum hlut. „Það verður þó
hart að okkur sótt og ljóst að við
þurfum á öllum okkar liðsstyrk að
halda,“ segir Pétur.
D-listinn: Á-listinn: H-listinn:
1. Ágúst Þór Bragason 1. Sturla Þórðarson 1. Pétur A. Pétursson
bæjarfulltrúi. tannlæknir. bæjarfulltrúi.
2. Vigdís E. Guðbrandsdóttir 2. Jóhanna G. Jónasdóttir 2. Hjördis Blöndal,
afgreiðslukona. leikskólastjóri. starfsmaður HAH.
3. Þorsteinn K. Jónsson 3. Þórdis Hjálmarsdóttir 3. Gestur Þórarinsson
bifreiðarstjóri. aöalbókari. bæjarfulltrúi.
4. Gróa M. Einarsdóttir 4. Valdimar Guðmannsson, 4. Helgi Árnason
verslunarmaöur. form. Samstööu. umboðsmaður.
5. Jón Sigurðsson 5. Björgvin Þórhallsson 5. Jórunn Sigurðardóttir
ráðunautur. kennari. skrifstofumaður.
6. Bjami Pálsson 6. Helga J. Andrésdóttir 6. Eva H. Pétursdóttir
vélamaður. bankamaður. húsmóöir.
7. Andrés I. Leifsson 7. Sigríður Þ. Sigurðardóttir 7. Hafsteinn Pétursson
bifvélavirki. nemi. rafverktaki.
að sjálfsögðu munu Blönduósingar
taka afstöðu til einstaklinga á fram-
boðslistunum eins og viða gerist. -
gk
Frekar spurn-
ing um fram-
kvæmdaröð
„Ég held að menn séu hér yfirleitt
sammála um flest helstu mál. Auðvitað
er alltaf kosið um flármagnsstjórnun-
ina, en staða bæjar-
ins er ekki góð þótt
ekki sé heldur hægt
að segja að hún sé
slæm. En það er lít-
ið um fram-
kvæmdafé," segir
Sturla Þórðarson,
en hann skipar
efsta sæti Á-listans,
lista Hnjúka. Sturla Þórðar-
„Fé bæjarins er son, oddviti Á-
mikið bundið í af- listans.
borgunum af lánum þannig að það er
ekki um mikið að rífast hér, þetta er
frekar spuming um framkvæmdaröð.
Draumamál hjá okkur er sundlaug,
okkur vantar góða sundlaug en hvenær
við höfum ráð á að fara í þá fram-
kvæmd verður að koma í ljós.
Það vilja allir tryggja atvinnu. Við
höfum oft heyrt frá Sjálfstæðisflokkn-
um að bærinn eigi ekki að leggja fjár-
magn beint í atvinnumál en svo gerir
hann það alltaf. Hér er ávallt uppi
vamarbarátta og menn standa frammi
fyrir vandamálum sem verður að
leysa.“
Sturla segist telja að Blönduósingar
vilji flestir sameiningu sveitarfélaga í
A-Húnavatnssýslu. „Ýmsir sveita-
hreppar vilja það ekki og það fer að
verða spuming hvernig við bregðumst
við því. Við störfum með hreppunum í
héraðsnefnd og það samstarf gengur
ekki hnökralaust. Það er spurning
hvenær við endurskoðum það sam-
starf.
Það fólk sem gefur kost á sér til að
starfa að bæjarmálunum vill allt vel.
Þar er þó áherslumunur, við viljum
breyta skipuriti bæjarins og okkar
áhersla mun meira tengjast skólamál-
um og uppbyggingu á þeim vettvangi.
Kosningamar eru líka spurning um
persónur og við bjóðum upp á góðan
lista þar sem eru 9 konur á móti 5 körl-
um,“ segir Sturla. -gk