Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Qupperneq 20
40 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 íþróttir DV Laurent Maschinot Sanchez Laurent Gutierrez Gutierrez Langiiler Langiller — F.Rosas Pinei Fýrsta mark HM fyrir 68 arum Franskur bílaverksmiöjuverkamaöur frá Sochaux í Frakklandi varð fyrstur allra til að skora í úrslitakeppni HM fyrir 24.809 dögum eða 13. júlí 1930 á kuldalegum og snævi þöktum Pocitosvelii í Montevideo í Urugvae. 1000 manns urðu vitni að markinu sem kom á 19. mínútu í leik Frakka við Mexíkó sem Frakkland vann, 4-1. Lucien Laurent, Frakkinn sem skoraði þetta fyrsta mark, er enn í fuilu fjöri, eins og sjá má á myndinni til vinstri, orðinn 91 árs og hefur hann lifað að sjá knattspyrnuna breytast í gegnum öll þessi ár. Markið er náttúrlega ekki til á filmu en vitni hafa komist að þeirri niðurstöðu að það hafi verið í líkingu við teikninguna hér að ofan. Á myndinni til vinstri má sjá einna mest áberandi breytinguna á fótboltanum á þessum 68 árum, nefnilega skiptin frá reimaða boltanum yfir í nútíma sérhannaða leðurknöttinn. -ÓOJ Brasiliumaðurinn Carlos, sem skoraði aukaspyrnumarkið ótrúlega gegn Frökkum í fyrra, er ekki nógu hress með keppnisboltana á HM. Carlos segir að ekki sé hægt að ná jafngóðum snúningi á þessa bolta og á þann sem hann skoraði með gegn Frökkum. Þá sendi hann boltann með gífurlegum snúningi utan við varnar- vegginn, boltinn stefndi langt fram hjá markinu en sveigði síðan i stöng- ina og inn. Framleiðendur boltans, Adidas, eru á öðru máli og segja að hann eigi aö gefa aukaspyrnusérfræðingum aukna möguleika. Fabrizio Ravanelli, ítalski sóknar- maðurinn, er rúmfastur með hita og hálsbólgu. Hann verður tæplega leik- fær gegn Chile á morgun. Frank de Boer, varnarmaður Hol- lendinga, tognaöi á ökkla á æfmgu og missir líklega af leik þeirra við Belga á laugardaginn. Dennis Bergkamp æfir með hol- lenska liðinu en óvíst er að hann geti spilað fyrr en eftir riðlakeppnina. Læknir liðsins sagði þó ekki útilokaö að hann yrði í hópi varamanna á laugardaginn. -VS Tricoýore j Ff?AIMCE 98 C O UPE D U M O /V D E Jiirgen Klinsmann, þýski sóknarmaðurinn, segir að Englendingar séu með eitt af sigurstranglegustu liöunum á HM. „Þeir eru meö marga leikmenn sem geta gert útslagið," sagði Klinsmann. Klinsmann, sem lék með Tottenham í vetur, hefur sterkar taugar til ensku knattspymunnar, og líka til þeirrar skosku. „Félagi minn hjá Tottenham, Colin Calderwood, þaíf líklega að gæta Ronaldos i opnunarleiknum og ég vona að hann standi sig,“ sagði Klinsmann. Nelson Mandela, forseti Suður- Afríku, hefur sent hverjum einasta leikmanni og þjálfara suður-afríska landsliðsins persónulegt bréf. Hver einstaklingur fékk sin sérstöku hvatningarorð frá forsetanum. Þó svo að þaó séu komnir 704 knattspyrnusnillingar til Frakklands urðu nokkrir af þeim bestu að sitja eftir heima vegna meiðsla. Leikmenn eins og Romario, Matthias Sammer, Paul Gascoigne, Alen Boksic, Ian Wright, Angelo Peruzzi, Juninho og Ciro Ferrara eru dæmi um leikmenn sem koma til með aö missa af veislunni. Nú eru allir leikmenn komnir með númer á bakið en þvi fylgir oft mikil hjátrú. Michael Owen hjá Englandi er eini leikmaður keppninar sem hefur númer sem er hærra en aldurinn. Hann er næstyngsti maður i keppninni, fæddur 14. desember 1979, en hefur aftur á móti númer 20 á bakinu. -VS/ÓÓJ Hver vinnur? - Brasilíumenn taldir sigurstranglegastir Uð aldarinnar var tilKynnt Brasilíumenn hefja HM í Frakklandi í dag sem heimsmeist- arar. Þeir hefja keppnina lika sem sigurstranglegasta liðið. Flestum veðbönkum ber saman um það. En efasemdir um styrk Brasil- íumanna hafa látið á sér kræla. Þeir hafa ekki verið of sann- færandi í undirbúnings- leikjum sínum og fjar- vera Romarios hefur sín áhrif. Undanfarna daga hefur því athyglin beinst í ríkari mæli að fleiri liðum. Þjóðverjar eru alræmdir fyrir að standa sig best þegar á reynir, frönsku gestgjafam- ir eru öflugir og gætu náð langt ef þeir fara að skora mörk, og ítalir tefla fram geysilega sterku liði. Þá má aldrei afskrifa Argentínu sem er með marga öfluga leik- menn og Hollendingar hafa verið i góðu formi að undanförnu. Eng- lendingar eru jafnan vinsælir þó flestir efist um að þeir komist alla leið í verðlaunasæti. Spánverjar hafa yfirleitt farið illa út úr stór- mótum en þeir eru með gletti- lega öflugt lið sem gæti náð langt ef það smellur saman. Þá eru ótalin lið sem eiga eftir að setja svip á keppnina þó þau fari kannski ekki lengra en í 8-liða úrslit, svo sem Rúmen- ía, Júgóslavía, Kólumbía, Króatía og Nígería. Chile teflir fram einum hættulegasta sóknardúett heims og svo mætti lengur telja. Fram undan er keppni sem gæti orðið sú magnað- asta frá upphafi. í Frakk- landi eru saman komin 32 öflug landslið og nú eru það þjálfarar þeirra og leikmenn sem bera ábyrgð á því að sýnd verði skemmtileg knattspyrna. Keppnisfyrir- komulagið býður upp á það, fyrst þarf að ná öðru sæti í riðli til að komast áfram og það næst ekki með jafnteflum. 1 Frá 16-liða úrslitum er síðan um hreina útsláttarkeppni að ræða með allri sinni dramatík. Það eina sem er öruggt er að margt óvænt á eftir að gerast fram til 12. júlí. „Lið aldarinnar-J taða úr könnun 3 cS”»“rto3Js“"talmdi FranzBeckenbauer^y. sssss*- gSSSfi-w- Sóknarmenn: **£&>»*■ GSrtt"£Æ». »25, marga s»m- _____ að SiallSOguu. -onV,hv Bobby fáeinir séu 4 Allt um HM á visir.is Knattspyrnuáhugamenn geta næstu vikurnar fylgst grannt með gangi mála á HM í Frakklandi á netmiðlinum Vísi, sem hefur slóðina visir.is. Á HM-vef Vísis verða allir leikir í beinni útsendingu og stöðugar fréttir og upplýsingar af liðum og leikmönnum, sem ganga má að allan sólarhringinn. Þar er jafnframt hægt að taka þátt í skemmtilegum leikjum, HM- draumaliðsleiknum, þar sem þátttakendur velja sitt eigið lið úr leikmönnum HM, og HM-leik Hugvits þar sem hægt er að spá fyrir um úrslit leikja. LHM98 '*l«r /a -3? fb§: xS' If ”V£rs,gr«h«? Wfesgyfc nCr;antarað^r^skas w,s Charlton, Zico og aö í Þaö vantaA hví aö um leið og að ná ’ ‘ m ‘ ^CuTafþviaitur. A-riðill: Brasilla-Skotland ...........15:30 Marokkó-Noregur..............19:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.