Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Side 28
48
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
'sjprikmyndir
Mennirnir sem vissu mismikið
Margar spennu- og gaman-
myndir hafa verið gerðar um
menn sem fyrir tilviljun flækjast
inn í samsæri án þess að hafa hug-
mynd um hvaðan á þá stendur
veðrið.
í klassískri spennumynd Alfreds
Hitchcocks blæs úr norð-norðvestri
(1959) þegar auglýsingamaðurinn
Roger Thornhill (Cary Grant) er fyr-
ir mistök talinn vera njósnari. Hann
er hundeltur af glæpamönnum úr
samtökum Phillip Vandamm (James
Mason) og lögreglan hefur lýst eftir
honum í tengslum við morð. Með
önnur hlutverk fara Eva Marie Saint
og Martin Landau. í þessari nánast
fullkomnu mynd má finna margar af
frægustu senum Hitchcocks.
Af öðrum frægum myndum um
gagnnjósnara sem gagnast fáum má
nefna hina frönsku Le Grand blond
avec une chaussure noire (Stóri ljós-
hærði maðurinn með svarta skóinn,
1972) í leikstjórn Yves Robert. í
henni leikur Pierre Richard mann
sem lendir í ýmsum hremmingum
vegna þess að hann er talinn vera
njósnari. Þessi mynd náði miklum
vinsældum og kom áframhald henn-
ar út árið 1974. Hún var endurgerð í
Bandaríkjunum sem The Man with
One Red Shoe (1985) og Tom Hanks
leikur aðalhlutverkið. Likt og í The
Man Who Knew too Little hefur
Hanks ekki
hugmynd
um hvað er
að gerast í
kringum
hann en all-
ir aðrir
telja hann
afburða-
njósnara.
Með önnur
hlutverk í
myndinni
fara: Dabn-
ey Cole-
man, Lori Singer, Charles Durning,
Carrie Fisher og James Belushi.
Ef ofangreindir „njósnarar“ vita
of lítið má segja að hetjurnar í mynd-
um Hitchcocks um The Man Who
Knew too Much viti meira en þeim
er hollt. Hitchcock var svo hriflnn af
hugmyndinni að hann gerði þessa
mynd tvisvar, fyrst árið 1934 og svo
1956. Aðdáendur meistarans rífast
stöðugt um það hvor útgáfan sé betri
en í þeim báðum er barni rænt til
þess að for-
eldrarnir
upplýsi
ekki yfir-
völd um
samsæri
sem þau
hafa komist
á snoðir
um. í 1934-
gerðinni
leika Leslie
Banks,
Edna Best
og Peter
Lorre aðalhlutverkin. Tuttugu og
tveimur árum síðar eru foreldrarnir
þau James Stewart og Doris Day, en
hún syngur óskarsverðlaunalagið
„Que Sera, Sera“ í myndinni við lít-
inn fögnuð fagurkera. Samsæris-
söguþráðurinn úr The Man Who
Knew too Little er kominn úr þess-
um tveimur myndum, sem reyndar
eru ekki með því besta sem
Hitchcock sendi frá sér.
-ge
1 OPP 2 0
í Bandaríkjunum
- a&sókn dagana 5.-7. júní. Tekjur í miiljónum dollara og heildartekjur -
Jim Carrey á
toppnum
The Truman Show, nýjasta kvikmynd
ástralska leikstjórans Peters Weirs,
sem fengið hefur mjög góöa dóma
hjá gagnrýnendum, sló svo sannar-
lega í gegn um síöustu helgi. Nokk-
ur taugatitringur var í kringum mynd-
ina þar sem Jim Carrey, sem leikur
aöalhlutverkiö, er aö reyna fyrir sér
í kvikmynd sem er meira í ætt viö drama en farsa. Myndin fjallar um Trum-
an Burbank sem er, án þess aö hann viti, frægasta andlitiö í sjónvarpinu.
Hann er stjarna The Truman Show sem sýnt er allan sólarhringinn. Allt hans
líf er myndaö og allir sem hann umgengst og hann telur fjölskyldu, vini eöa
kunningja eru leikarar. Segir síöan í myndinni frá því þegar Truman kemst
aö þessu og reynir aö losna úr sjónvarpsseríunni. Sakamálamyndin A Per-
fect Murder fékk einnig góöa aösókn. Er myndin lauslega byggð á kvikmynd
Alfreds Hitchcoks, Dial M for Murder. I aöalhlutverkum eru Michael Douglas
og Gwyneth Paltrow. Godzilla nær aö halda þriöja sætinu en er á niöurleiö.
Rómantíska gamanmyndin Hope Floats er síöan í fjóröa sæti og á þeim bæ
eru menn ánægöir. -HK
1. (-) The Truman Show Tekjur 31.542 Heildartekjur 31.542
2. (-) A Perfect Murder 16.615 16.615
3. (1) Godzllla 9.712 114.014
4. (2) Hope Floats 8.551 28.621
5. (3) Deep Impact 6.656 121.963
6. (4) The Horse Whisperer 5.248 51.823
7. (5) Bulworth 2.185 21.581
8. (9) Tltanlc 1.648 581.889
9. (6) 1 Got the Hook-Up 1.637 7.161
10. (8) Quest for Camelot 1.303 19.226
11. (7) Almost Heroes 0.956 4.964
12. (12) Everest 0.863 17.486
13. (11) Clty of Angels 0.742 74.228
14. (10) Fear and Loathing in Las Vegas 0.738 9.017
15. (13) Sliding Doors 0.476 110.012
16. (17) The Wedding Slnger 0.394 78.159
17. (16) Paulle 0.391 23.586
18. (15) The Spanish Prisoner 0.316 7.680
19. (19) Black Dog 0.309 12.176
20. (-) The Last Days of Disco 0.241 0.642
Clouseau-molar...
Franski lögregluforinginn
Clouseau er aðalhetja mynda-
seríunnar um Bleika pardusinn.
Líkt og Wallace Ritchie í The
Man Who Knew too Little slys-
ast Clouseau í gegnum hvert
glæpamálið á eftir öðru sem sig-
urvegari. Hér á eftir fylgja
helstu myndimar:
The Pink Panther (1964) ★★★
í þessari fyrstu mynd Blakes Ed-
wards um lögregluforingjann Clou-
seau (Peter Sellers) á hann í höggi
við skartgripaþjófínn vofuna. Með
helstu hlutverk í myndinni fara:
Peter Sellers, David Niven, Robert
Wagner og Claudia Cardinale.
A Shot in the Dark (1964)
★★★★
í þessu frábæra áframhaldi er
Clouseau (Peter Sellers) sannfærður
um sakleysi glæsikvendis sem grun-
að er um morð. í þessari mynd hefst
ekki svo farsælt samstarf Clouseaus
og yfirmanns hans (Herbert Lom).
Að mínu mati besta myndin um
Pardusinn. Helstu hlutverk: Peter
Sellers, Elke Sommer, George Sand-
ers, Herbert Lom, Burt Kwouk og
Graham Stark.
The Return of the Pink Panther
(1975) ★★★
Hér er Clouseau fenginn til þess
að finna „Bleika pardusinn", stóran
gimstein sem rænt var af safni. I
þessari mynd má finna frábæra
senu þar sem Clouseau leggur allt í
rúst vopnaður ryksugu. Helstu hlut-
verk: Peter Sellers, Christopher
Plummer, Catherine Schell, Herbert
Lom og Burt Kwouk.
The Pink Panther Strikes again
(1976) ★★★★
Yfirmaður Clouseaus missir end-
anlega vitið í þessari mynd og af
skiljanlegum ástæðum. Hann hótar
að eyða heiminum með geislavopni
komi hann ekki höndum yfir Clou-
seau. í tilraun til þess að milda
brjálæðinginn senda helstu þjóðir
heims sína færustu morðingja á eft-
ir lögregluforingjanum. Frábær
skemmtun. Helstu hlutverk: Peter
Sellers, Herbert Lom, Colin Blakely,
Leonard Rossiter, Lesley-Anne
Down og Burt Kwouk.
Revenge of the Pink Panther
(1978) ★★★
Frægðarsól Clouseaus tekin að
dala, enda fullstutt á milli mynda.
Hann á hér í höggi við eiturlyfja-
smyglara frá Hong Kong. í raun síð-
asta myndin með Sellers. Önnur
hlutverk: Herbert Lom, Dyan Cann-
on, Burt Kwouk og Robert Loggia.
Trail of the Pink Panther (1982) ★
Leikstjórinn, Blake Edwards, var
greinilega ekki sáttur við þá stað-
reynd að Peter Sellers skyldi vera
allur, því að í þessari mynd klippir
hann saman ónotaða búta úr fyrri
myndunum og gerir úr þeim eitt-
hvað sem vart getur kallast heild-
stæð kvikmynd. Drasl sem allir
ættu að forðast þrátt fyrir að marg-
ir bútanna séu skemmtilegir. Með:
David Niven, Herbert Lom, Richard
Mulligan, Robert Wagner, Robert
Loggia og Burt Kwouk. -ge
Bíóhöllin—The Man Who Knew too Little:
Ofurnjósnarinn 'k'k'k
Af titli myndarinnar mætti ætla að hér væri á ferð-
inni skrumskæling á þekktri mynd Alfreds
Hitchcocks, The Man Who Knew too Much, sem hann
kvikmyndaði reyndar tvisvar. Svo er reyndar ekki
því að Maðurinn sem vissi of lítið sækir í mun ríkari
mæli til gamalla og nýrra Bond-mynda. í myndinni
flýgur Wallace Ritchie (Bill Murray) til Lundúna að
heimsækja bróður sinn, James (Peter Gallagher).
Hann kemur á óheppilegum tíma því að bróðirinn á
von á mikilvægum viðskiptavinum sama kvöld.
James kaupir því miða handa Wallace í spunaleikhús
sem fer fram á götum úti. Wallace mætir of fljótt á
staðinn og er fyrir mistök sendur af bresku leyni-
þjónustunni í hættuför. Wallace heldur að hann sé í
hlutverki leigumorðingja og að allt sem fyrir augu
hans ber sé hluti af spunanum, á meðan allir aðrir
berjast upp á líf og dauða. Wallace kynnist hinni
fögru Lori (Joanne Whalley-Kilmer), en hún er hjá-
kona eins af ráðherrum bresku ríkisstjórnarinnar, og
með hjálp hennar reynir hann að fletta ofan af stór-
hættulegu samsæri þar sem á að myrða háttsetta
stjómarerindreka. Wallace þykir handritið auðvitað
stórskemmtilegt.
Hugmyndin að baki The Man Who Knew too Little
er einföld. Líkt og í kvikmyndunum um Bleika
pardusinn, liggur helsta gaman myndarinnar í því að
aðalhetjan er ekki gædd þeim hæfileikum sem allir
andstæðingar hennar vilja ljá henni. Velgengni
Wallace er ekki ólík þeirri sem Clouseau naut á sín-
um tíma en hún á sér rætur í blindri heppni fremur
en getu og aga. Wallace slysast í gegnum hverja
eldraunina á fætur annarri og alltaf með bros á vör.
Þótt ýmsa hnökra megi finna á fléttunni og fátt sé um
frumlega drætti, má hafa hið besta gaman af mynd-
inni. Murray, sem er einn skemmtilegasti gamanleik-
ari Bandaríkjamanna, stendur sig með prýði og er oft
ótrúlega fyndinn i hlutverki „ofurnjósnarans".
Leikstjóri: Jon Amiel. Aðalhlutverk: Bill Murray, Peter
Gallagher, Joanne Whalley-Kilmer, Alfred Molina og
Richard Wilson. Guðni Elísson