Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
22 Qtiðuriand
Sælureiturinn Sólheimar
„Sólheimar er samfélag, eða lítið
þorp, sem var stofnað 1930. Hér búa
100 manns og þar af eru 40 fatlaðir
heimilismenn," segir Óðinn Helgi
Jónsson, framkvæmdastjóri Sólheima
í Grímsnesi, Gistiþjónusta hefur verið
rekin í Sólheimum frá 1995 þegar
gistihúsið Brekkukot var stofnað. Það
er opið árið um kring og ferðamanna-
straumur til þessa merkilega samfé-
lags fatlaðra og heilbrigðra hefur far-
ið vaxandi ár frá ári.
„Sólheimar er opið, vistvænt samfé-
lag þar sem rekin er ýmis þjónusta
fyrir ferðamenn auk margvíslegrar
annarrar starfsemi. Við erum fyrsta
SKÁLHOLT
Veitingastofan í Skálholti er opin árið um kring. Þar er hægt að fá
venjulegan heimilismat, ýmsa smárétti af íslenskum og erlendum uppruna
en auk þess, ef pantað er með fyrirvara, sérstakan hátíðarkvöldverð að
hætti 17. aldar fyrir smærri og stærri hópa.
í kirkjunni er daglegt helgihald (tíðagjörð) kl. 9 og 18 virka daga en
messa á sunnudögum.
í júlí og fram í ágúst eru tónleikar alla laugardaga og sunnudaga.
Kirkjuverðir leysa gjarna úr spurningum um stað og kirkju.
Reynir Pétur Ingvarsson göngugarpur, sennilega þekktasti ibúi Sólheima, viö störf í einu af gróöurhúsunum
28" Black Line D myndlampi
100 Hz myndtækni
CTI litakerfi og Scan Velocity
2x12w Nicam Stereo hljóðkerfi
Valmyndakerfi
Textavarp með íslenskum stöfum
Tvö Scart tengi og RCA
Fjölkerfa móttaka
Fjarstýring
REYKJAVllt Heimskringlaa Kringlunni.VESTURLAND: HljimsÝn. Akranesi. Kaupfálag Borglirðinga, Borgamesi. Blómstuiveilir. Hellissandi. Guðni Hallgrimsson, GnindarfirðiVESTFIRBIR: Rafbúð Jónasar Þórs, Patreksliröi. Pðllinn, Isaiirði
NOROUflLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. tf Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð. Sauðárkróki. KEA, Dalvik. Bókval, Akureyri. Ljósgjalinn, Akureyri. Ki Þingeyinga. Húsavik. Urð, Raularhöln
AUSTURLAND: Kf Héraðsbúa. Egilsstöðum.VersluninVík. Neskaupsstað. Kauptún.Vopnafirði. KF Vepnfirðinga. Vopnafirði. Kf Héraðsfaúa. SeyðisfirðiTumbræður, Seyöisfirði.KF Fáskrúðsljaröar, Fáskrúðslirði. KASK. Djúpavogi. KASK, Höln Homafiröi
SUÐURLAND Halmagnsverkslæði KR.Hvolsvelli. Moslell. Hellu. Heimstækni. Sellossi. Ú,Sellossi. Rás. Mákshöin. Brimnes,Vestmannaeyjum. REYKJANfS:Ralborg. Grindavik.Raflagnavinnust. Sig Ingvarssonar. Garði. Rafmæni. Halnarfiröi
Umboðsmenn uni land aílt:
þorpið á íslandi sem er aðili að al-
þjóðahreyfingunni Global Eco-village
Network. í því felst að Sólheimar er
sjálfbært þorp, þ.e. við framleiðum
sjálf mest af því sem við þurfum til
eigin nota, t.d. af matvælum. Sá land-
búnaður, garðrækt og skógrækt, sem
við stundum hér er lífrænn og við
reynum að byggja starfið hér þannig
upp að við þurfum sem minnsta þjón-
ustu frá umhverfinu. Það hefur geng-
ið mjög vel og besta sönnun þess er
einmitt aðild okkar að þessari alþjóða-
hreyfingu en markmið hennar er að
búa til fyrirmyndir sem geta miðlað
kunnáttu og upplýsingum til almenn-
ings í landinu."
Fatlaðir og heilbrigðir
lifa saman
Sérstaða Sólheima felst aðallega i
því að þar lifa fatlaðir og heilbrigðir
saman i samfélagi. Sólheimar eru sem
sagt ekki stofnun þar sem fatlað fólk
er vistað og séð fyrir því, þvert á móti:
í Sólheimum er enginn vistmaður og
fólk, heilbrigt sem fatlað, vinnur í
sameiningu að því að reka þetta sjálf-
bæra þorp. En þarf fólk að uppfylla
einhverjar kröfur til þess að fá að
starfa og búa í Sólheimum?
„Nei, í rauninni ekki. Það þarf bara
að aðlagast okkar samfélagi eins og
það er. Þetta er fjölskylduvænt samfé-
lag og hérna er alltaf mikið af ferða-
mönnum, bæði íslendingum og útlend-
ingum, þannig að það eina sem við
ætlumst til er að íbúar Sólheima
kunni að umgangast annað fólk.“
„Þjónustan sem við rekum hérna er
af ýmsum toga. Hér er eina vottaða líf-
ræna skógræktin á íslandi, við erum
með lifræna garðyrkjustöð sem sum-
arbústaðaeigend-
ur sækja mikið í;
eins er hér sund-
laug og íþrótta-
hús, göngustígar
o.fl. Árið 2000
stefnum við að því
að opna hér högg-
myndagarð sem
við höfum verið
að byggja upp hin
siðustu ár og mun
hann endurspegla
íslenska högg-
myndalist frá ár-
inu 1900 til 1950.
Þarna verða tíu
verk eftir jafn-
marga listamenn og hafa sjö þegar ver-
ið afhjúpuð en þrjú eru eftir. Þama er
um að ræða verk eftir helstu mynd-
höggvara þjóðarinnar á þessum árum
og með hinum tveimur sem eftir eru
munum við loka hringnum, ef svo má
að orði komast. Þetta em allt verk sem
við og okkar ráðgjafar höfum óskað
eftir en hin ýmsu fyrirtæki og ein-
staklingar hafa síðan gefið okkur.“
Gagnrýnisraddirnar
þagnaðar
Að sögn Óðins var í upphafi mikið
gagnrýnt að Sólheimar skyldu fara út
í ferðamannaþjónustu og efast var um
að fólk hefði áhuga á að koma inn í
þessa gerð af samfélagi. Raunin hefur
orðið önnur og sambýli fatlaðra og
ferðamanna gengið geysivel: „Framar
öllum vonum," segir Óðinn. „Fólki
finnst merkilegt að koma inn í bæði
vistvænt og lífrænt samfélag, og tekur
því vel að kynnast samfélagi fatlaðra
og ófatlaðra."
Það er líka merkileg staðreynd að
Sólheimar voru fyrsta samfélagið í
heimi þar sem þessi skipan var höfð á
- að fatlaðir og ófatlaðir lifðu og störf-
uðu saman í opnu samfélagi. Sesselja
Sigmundssdóttir stofnaði Sólheima
árið 1930 en það var ekki fyrr en 1935
að svipuð samfélög fóru að komast á
laggimar úti í heimi. Sesselja var
fyrsti íslendingurinn sem menntaði
sig í umönnun fatlaðra. Að námi
loknu stofnaði hún Sólheima í Gríms-
nesi og lagði þar áherslu á mikilvægi
rétts mataræðis, lífrænnar ræktunar
og listrænnar tjáningar við meðferð
og umönnun fatlaðra. Síðan eru liðin
70 ár og enn svífur andi hennar yfir
vötnum í Sólheimum í Grímsnesi.
-fv
Solheimar í Grfmsnesi - elsta opna samfélag fatlaðra og
heilbrigðra í heiminum.