Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
Suðurland *>
Af fraukum og faktorum
- hús andanna nú og þá
„Húsið er bygging frá 1765 sem var
reist þegar kaupmenn fengu leyfl til
þess að sitja á verslunarstöðunum
vetrarlangt. Þannig að bygging húss-
ins var svona viðleitni stjórnvalda til
þess að efla verslun á þessu svæði. í
dag hýsir Húsið byggðasafn Árnes-
inga,“ segir Lýður Pálsson, safnvörð-
ur í Húsinu á Eyrarbakka, byggingu
sem kinnroðalaust má segja að beri
nafn með rentu.
„Húsið var svo heimili og aðsetur
stjórnenda Eyrarbakkaverslunar allar
götur fram til ársins 1919 eða 1929 -
það fer eftir því hvernig við lítum á
málin. Til 1919 var Húsið í eigu
danskra kaupmanna og á timabili bú-
staður Guðmundar Thorgrímssen
faktors og aíkomenda hans sem
bjuggu í Húsinu nokkru lengur en
verslun danskra lauk, eða til 1929. Á
þessum tíma var Húsið sannkallað
menningarsetur. Þaðan breiddust
margvíslegir menningarstraumar út
um héruð. Guðmundur stóð ásamt
fleiri t.d. að stofnun bamaskóla hér
árið 1852 og hann telst í dag elsti starf-
andi barnaskóh landsins."
Tónelsk kaupmannsfrú
- fagnaðarerindi
„Einnig má nefna konu Guðmund-
ar, Sylvíu Thorgrímssen. Hún var í
fararbroddi í tónlistinni á þessu
svæði. Sylvía kunni á píanó og fleiri
hljóðfæri, sem var mjög sjaldgæft á
þessum tíma, og hún og síðar dætur
hennar gerðu sér far um að kynna al-
múganum hér á Eyrarbakka og ná-
grenni framandi tónlist. Þetta var ís-
lenskt samfélag þar sem fólk kannað-
ist almennt ekki við hina klassísku
meistara, Mozart, Beethoven og alla
hina. Það var sem sagt Thorgrímssen-
Uölskyldunni metnaðarmál að upp-
fræða íslenskt sveitafólk um fma tón-
list eða bara tónlist yfirhöfuð."
Lýður segir það iðulega hafa gerst
að á síðkvöldum þegar Sylvía og
„hendes“ dætur settust niður í stás-
stofunni við slaghörpuna að fólk hafi
drifið að úr nágrenninu að garðinum
til þess að hlýða á hörpunnar tóna.
Það er auðvelt að sjá fyrir sér, sé Hús-
ið heimsótt, Sylvíu sitjandi teinrétta í
baki við píanóið, tifandi örlítið í takt
við tónlistina; dætur hennar sötrandi
kaffi úr fingerðum „damelige" bollum
með daufu pastelmunstri, syngjandi
lágt og settlega, kandís á borðum og
brak í stífuðum kjólum. Fyrir utan
gluggann situr sveitafólkið, blæs i
kaun og reynir að greina daufa tón-
ana gegnum tjörupappa og bikaðan
við. Sultardropar á rauðum nefbrodd-
um og augim lukt í andakt...
Heimsmet í kaup-
mennsku
Byggðasafn Árnesinga tók við Hús-
inu undir starfsemi sína fyrir þremur
árum: „Það var mikið vandaverk að
setja upp byggðasafn í þessari fornu
byggingu. Það skal reyndar tekið fram
að í raun er hér um tvær byggingar
að ræða, annars vegar Húsið sjálft og
hins vegar viðbygginguna Assistenta-
húsið sem byggt var 1881 og var aðset-
ur verslunarþjóna. I Assistentahúsinu
eru hinar eiginlegu sýningar Byggða-
safnsins, m.a. saga verslunar á Eyrar-
bakka og munir úr verslun Guðlaugs
Pálssonar sem hóf verslun 1918 og
varð með tímanum nánast þjóðsagna-
persóna. Hann starfrækti verslun sína
í 75 ár og komst í heimsmetabók
Guinness fyrir vikið. Guðlaugur er ef-
laust einn af fáum kaupmönnum sem
hafa fengið heilu rútonar af ferða-
mönnum í heimsókn sem allir komu
til að sjá kaupmann á tíræðisaldri."
„í Assistentahúsinu eru einnig
kirkjumunir safnsins, mjög smekk-
lega upp settir, svo og sýning á
nokkrum úrvalsgripum safnsins. Hér
eru auk alls þessa ljósmyndasýningar
um hin öölbreyttustu efni, t.d. Flóaá-
veituna, vefnað og tóvinnu og margt
fleira. Markmiðið er að hafa safnið
sem fjölbreyttast. Karlarnir geta séð
hérna eitthvað varðandi verklegar
framkvæmdir og svo er hér einnig
veröld kvenna, a.m.k. eins og hún var
í gamla daga.
Það hafa skipst á skin og skúrir í
sögu Eyrarbakka. Á síðustu öld og í
byrjun þessarar var staðurinn einn af
stærstu þéttbýliskjömum Suðurlands
þar sem verslun og iðnaður síðar
meir döfnuðu. Sú þróun náði hámarki
árið 1920 þegar íbúar voru rúmlega
þúsund og Eyrarbakki almennt talinn
höfuðstaður Suðurlands.
„Svo eiginlega varð Eyrarbakki út
undan," segbr Lýður „og þéttbýlis-
myndunin stöðvaðist hér á meðan
hún fór sífellt vaxandi annars staðar.
Ástæður þessa vora t.d. léleg hafnar-
skilyrði og breyttar áherslur í land-
búnaði þar sem bændur horfðu í
auknum mæli til Reykjavíkur. Eftir
miðja öldina hefur íbúafjöldi haldist
nokkuð stöðugur."
Og í gegnum súrt og sætt í sögu
Eyrarbakka stendur Húsið - veðraður
brimbrjótur stórsjóa sögunnar.
-fv
Húsið hefur marga fjöruna sopiö í aldanna rás - Lýður Pálsson safnstjóri á
flötinni þar sem foröum stóðu sveitamenn og hlýddu á fína tónlist.
Sól í stássstofunni. Par brökuðu forðum fjalir undan feitum og pattaralegum
faktorum en ískra núna undir feröamönnum.
RANGÁRVALLAHREPPUR
Skrifstofa Laufskálum 2,850 Hellu - Sími: 487 5834 - Fax: 487 5434
Afgreiðslutimi mánudaga - föstudaga kl. 10.00 ■ 12.00 og 13.00 -16.00
Netfang: rang@rang.is - Heimasíða: www.rang.is/rang
er kaupfún í Rangárvallahreppi. Fyrsta hús á Hellu var reist
1927.1 kauptúninu búa yfir 600 af íbúum hreppsins.
A Hellu er veitt margvísleg þjónusta við ferðamenn.
í hreppnum er fjöldi bújarða með ýmiskonar búskap.
Helstu náttúruvætti í hreppnum eru Hekla, Hrafntinnusker,
Laufafell, Markarfljót, Ytri- og Eystri-Rangár, Þverá, Tindfjalla-
jökull, Torfajökull, Reykjadalir og Krákatindur.
Helstu sögustaðir eru Oddi á Rangárvöllum, Keldur og
Þingskálar. A Keldum er forn bær sem varðveittur hefur verið í
umsjá Þjóðminjasafns Islands. Bærinn er sýndur ferðamönnum.
Verslun Hellu
v/Suðurlandsveg - sími 487 5429
< Íufuf/cufcjui f/ieffa
opnunartími:
virka daga opið frá kl. 14.00 - 21.00
um helgar opið frá kl. 13.00 - 19.00
hföóAasafíi
opnunartími:
fimmtudaga kl. 20.00 - 21.00
Þríhyrningur hf
stórgripasláturhús á Hellu,
sími 487 5162
Stærsti stórgripasláturleifishafi
landsins, með um fjórðung
afallri nautgripaslátrun í landinu.
Einnig svínasláturhús á Selfossi og
sauðfjársláturhús í Þykkvabæ.
Heildsala með heila skrokka
og grófbrytjað kjöt.
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
n487 5888 • Fax 487 5907
Fljót og góð
þjónusta
< í'e/u/tf/n /toet'f
á furtt/ .'ietri er*