Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Page 6
24
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 JjV
Suðurland
GOLF & GISTING JÚNÍ TILBOÐ
„Konan mín, Harpa Ólafsdóttir,
er ein af Þingborgarkonum sem
hafa myndað hóp um að vinna að
söluvöru fyrir Ullarvinnsluna í
Flóa. Við hjónin sjáum einnig um
að selja vörurnar sem þær fram-
leiða,“ sagði Ingi Heiðmar Jónsson,
annar sölustjóra Ullarvinnslunnar
Fyrir Bandaríkjamarkaö! - Þingborgarkonur bjóöa áhugasömum aö máta stærstu lopapeysu í heimi.
Þingborgar í Flóa.
„Þingborgarkonur hafa unnið
saman í átta ár. Þær vinna ein-
göngu úr íslenskri ull og hafa þróað
heilmikið og unnið ullarvörur. Ull-
in er þvegin hérna af þeim sjálfum
og svo er hér í húsinu sérsmíðuð
kembivél. Þaö er nýtilkomið að
verslunin og framleiðslan séu að-
skildar en fram að því sáu konum-
ar sjálfar um að selja vörurnar."
Þingborgarkonur, sem eru milli
þrjátíu og fjörutíu og koma víðs veg-
ar að af Suðurlandi, framleiða allt
frá peysum niður í litla minjagripi
og vinna hver á sínu heimili utan
þriggja sem vinna við kembivélina.
„Þær unnu meira saman í upphafi
þegar þróunarstarflð var í gangi en
núna þegar allt er komið í fastari
skorður þá vinna þær aðallega út af
fyrir sig.“
En hvemig hefur salan gengið?
„Hún hefur gengið vel. Hún hefur
verið nokkuð jöfn. Það sem hópur-
inn hefur framleitt hefur allt selst,
aðallega að sumrinu en sá tími sem
sótt er hingað að versla er að lengj-
ast þó að það sé ekki formlega opið
á vetuma. Eftir að við, sem sjáum
um verslunina, fluttum sjálf inn í
húsið hefur verslunin aukist því að
fólk kemur þá ekki að lokuðum dyr-
um yfir vetrarmánuðina."
Þingborgarkonur era flestar
bændur og hófst starfsemi Ullar-
vinnslunnar sem nokkurs konar
heimaiðnaður er hefur nú, svo not-
uð séu nærtæk orð - undið svona
lika upp á sig. Eitt helsta afrek
Þingborgarkvenna er á heimsmæli-
kvarða enda skráð í þar tO gerða
bók Guinness. Þær prjónuðu nefni-
lega um árið stærstu lopapeysu í
heimi sem geymd er á Þingborg og
er til sýnis fyrir forvitna.
-fv
Golf og gisting íyrir tvo: 2ja manna herbergi m/baði, uppbúnum
rúmum, morgunverður og dagur á Strandavelli kx. 3.900 pr.m.
Golf og gisting fyrir fjóra: Smáhýsi fyrir fjóra, morgunverður
og dagur á Strandavelli kr. 2.700 pr.m.
ÁSGARÐUR v/Hvolsvöll sími 487-8367
www.geysir.com/Asgard/
„í Grænu smiðjunni hjá mér er að
finna fjölbreytt úrval íslensks hand-
verks. Sjálf er ég textílhönnuður og
er að vefa daginn út og daginn inn
auk þess sem ég safna íslenskum
villijurtum og bý til te,“ segir Kristín
Ellen Bjarnadóttir sem hefur rekið
Grænu smiðjuna i Hveragerði i fjög-
ur ár.
Kristín vefur mottur úr baðmull
og íslenskri ull en einnig býr hún til
dúka og diskamottur úr dagblöðum.
„Ég ríf niður dagblöð, slæ þau
saman og lakka á eftir vegna þess að
þau eru svo
þurr. Ég reyni
iíka almennt í
búðinni hjá
mér að hossa
íslensku
handverki, er
með svolítið
gæðamat og
reyni að vera
vandlát á það
sem ég tek inn
og hef á
boðstólum. Ég
vil hafa vör-
umar vandað-
ar, vel gerðar
og náttúruleg-
ar.“
Kristín
framleiðir
einnig te: „Þá
skríður mað-
ur hér um
fjöllin og safn-
ar þessum
klassísku ís-
lensku jurt-
um. Maríu-
stakkur,
fjallagrös,
rjúpnalauf,
blóðberg og
ljónslappi
hafa, ásamt
öðrum jurt-
um, verið not-
aðar í te í
aldaraðir.
Lækninga-
máttur ís-
lensku jurtanna er vel þekktur og
kröftugur. Ég er með kvöldte og
morgunte, konute, kvefte og fjall-
konute en munurinn á þessum teg-
undum felst í ýmsum eiginleikum
jurtanna sem í þeim eru. Morgunte
er þannig frískandi og vatnslosandi
en kvöldte aftur slakandi og þægilegt
til að ná sér niður fyrir svefninn."
í Grænu smiðjunni er einnig að
Kristín vefur dúka og diskamottur úr dagblööum.
fmna lyf og snyrtivörur úr íslenskum
jurtum, olíur og smyrsl, nuddolíur og
græðiolíur ásamt hinni ómissandi
„unaðsolíu"- fyrir elskendur.
Kristín segir söluna aðallega vera
til útlendinga á sumrin og þeir kunni
vel að meta að vörurnar séu alíslen-
skar: „Það stendur ekki „meid inn
Tævan“ á vöranum hér og það finnst
útlendingum kostur." -fv
Mitsushiba Verdict golfkylfur
á frábæru veröi
c
Mikið úrvai af
öðrum golfvörum
Járn kr. 2.200,-
Tré kr. 3.300,-
Graphite
Járn kr. 3.700,-
Tré kr. 5.200,-
Hringið og biðjið
um verðlista
UTILIF
GLÆSIBÆ . S: 581 2922
Dagblöð og íslenskar jurtir
- í Grænu smiðjunni í Hveragerði