Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 U V
26
w^Gróðrarstöðin Kjarr
Ölfusi, sími 482 1718
Langi þig i iaglegt tré
með laufí eða barri,
reyndu hvort ei réttaet sé
að renna við hjá Kjarri.
Tré - Runnar - Fjölær blóm
-
V'
Umboðsaðili fyrir Ingvar Helgason,
Bílheima, Ræsir og Brimborg.
Reynið viðskiptin
Betri
B/LASALAN
,JT 482 3100
Hrísmýri 2a, 800 Seifossi - Fax 482 3102
Starfsmannafélög og einsl;
Bjóðum upp á vandaða he
sumarbústaðalönd í skógi1
km. frá Reykjavík. Stutt í í
indum, t.d. hilaveita,
j, heitur pottur o.fl.
gingarmeistari
NÝ SENDING
GLÆSILEGT ÚRVAL
Nýjar gerðir
af gosbrunnum,
úti og inni, styttum,
dælum og Ijósum,
garðdvergum,
fuglum o.fl.
til garðskreytinga.
Vörufell hf.
v/Suöurlandsveg, Hellu
Sími 487-5470
iiíelÍ£>ál'£> O r' Uifcgföl.-j
«»»*»
Suðurland
List og lyst í Hveragerði
í júní síðastliönum var Listaskál-
inn opnaður í Hveragerði eftir að-
eins 11 mánaða byggingartíma; 1000
m2 menningarmiðstöð í bænum þar
sem áður var Tívolí. Síðan þá hefur
verið haldinn þar fjöldi sýninga og
var fjöldi gesta fram að áramótum
yfir tíu þúsund, að sögn Einars Há-
konarsonar, forstöðumanns Lista-
skálans.
„Listaskálinn í Hveragerði er ein-
stakur í sinni röð af þeirri ástæðu
að það er mjög sjaldgæft að menn-
ingarmiðstöð af þessari stærð sé í
eigu og rekinn af einkaaðilum. Hús-
ið opnaði með sýningu minni en ég
hef starfað hér sem málari í 30 ár.
Sú sýning stóð nokkuð lengi. Síðan
hafa sýnt hér hinir ýmsu málarar,
þekktir og óþekktir, hver öðrum
betri.“
Sumardagskrá Listaskálans hefst
6. júní með félagssýningu íslenskra
vatnslitamálara, Aquarell ísland
þar sem sýna meðal annars Eiríkur
Smith, Pétur Friðrik, Hafsteinn
Austmann, Gunnlaugur Stefán
Gíslason o.fl.
„Svo rekur bara hver sýningin
aðra fram á haust,“ segir Einar.
„Þar á meðal íslensk grafik, Septem-
berhópurinn, eða það sem eftir lifir
af honum; og svo verður sýning á
ljósmyndum Mats Wibe Lund. Og
við erum ekki bara með andans góð-
gæti hér. Við fullnægjum einnig
jarðbundnari fýsnum gesta okkar á
150 manna veitingastað þar sem
fæst allt frá smáréttum upp í dýrar
og finar steikur." -fv
„Blítt og létt“ - rjómaveöur á Þingvöilum.
Himbriminn á Þingvallavatni
- nýtt sjónarhorn á þjóðgarðinn
„Við byrjuðum á þessu í júní
1996 og höfum siglt nánast sleitu-
laust síðan, þ.e. á sumrin og langt
fram á haust. Við getum tekið 20
manns í bátinn, sem heitir Him-
briminn, og siglum venjulega u.þ.b.
eins og hálfs tíma hringferð á vatn-
inu með leiðsögn heimafólks. Ef
við hins vegar erum með hópa þá
fylgjum við þeirra óskum um hvert
skal haldið, ef einhverjar eru.
Þannig að ferðimar eru mjög mis-
munandi enda vatnið gríðarstórt,"
segir Kolbeinn Sveinbjörnsson.
Hann rekur Þingvallavatnssigling-
ar ehf., sem gerir út bátinn
Himbrimann frá bænum Skála-
brekku við vesturströnd Þingvalla-
vatns.
Kolbeinn segir ferðirnar hafa
verið verið vel lukkaðar og fólk al-
mennt haft gaman af að kynnast
þjóðgarðinum frá öðru sjónarhomi
en það á að venjast. Hann segir þó
að aðstandendum ferðanna finnist
vanta á aðstöðu fyrir hópana við
vatnið: „Viö stefnum á að bæta við
aðstöðu á stað sem heitir Arnarfell,
nokkurs konar eyðibýli, þar sem
hægt væri að grilla og gera eitt-
hvað fleira skemmtilegt. Það sem
er ólíkt með þessu og öðrum hefð-
bundnari ferðum á Þingvelli er að
fólk er að kynnast staönum frá
öðra sjónarhorni og þar af leiðandi
sjá á honum nýja fleti. Maður sér
til dæmis landsigið mjög greinilega
og eins að Hengilssvæðinu. Þetta er
allt öðruvísi og kannski helst hægt
að líkja þessu við loftmyndir, þ.e.
með það í huga aö þetta er annað
sjónarhorn en fólk á að venjast.
Auðvitað er það á endanum alltaf
smekksatriði hvað fólki finnst en
það er enginn svikinn af því að
prófa þetta, því get ég lofað."
í sumar verða fastar ferðir um
helgar á ÞingvaUavatni með
Himbrimanum, frá kl. 11.00 á
tveggja tíma fresti en annars eftir
pöntun.
-fv
Sigling á Pingvallavatni er kjörin leið til aö sjá þjóögarðinn í nýju Ijósi.