Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Side 9
MIÐVTKUDAGUR 10. JUNI 1998
Suðurland
Tæfur og taðskegglingar
í Sunnuhúsinu á Hvolsvelli hefur
verið opnuð stór og viðamikil sýning
tileinkuð Njáls sögu og víkingaöld-
inni. Sýningin er samstarfsverkefni
sex sveitarfélaga í Austur-Rangár-
vallasýslu og samanstendur af kort-
- Njála í máli og myndum
um, ýmsum leikmunum, s.s. vopnum
og klæðnaði einkennandi fyrir söguna
og þjóðveldisöldina; og síðast en ekki
síst á sjálfum texta sögunnar og túlk-
unum á honum. Texta sögunnar er
skipt í flmm hluta eða bækur og er
einn gangur tileinkaður hverjum.
Auk þess er fjallað um ýmis blæbrigði
sögunnar, t.d. hina sérstæðu og ríku-
legu kímni og málfar og stíl. Praktísk-
ir þættir bókagerðar á þjóðveldisöld
eru ekki vanræktir. Umfjöllun um
Gullnar ferðir
- um Island á hestbaki
„I sumar bjóðum við upp á allar
okkar hefðbundnu ferðir, allt frá
einnar klukkustundar skreppitúrum
upp í níu daga reisur seinna í sum-
ar,“ segir Hróðmar Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Eldhesta í Hveragerði.
„Styttri ferðirnar, frá klukkustimd
upp í tveggja daga langar, eru famar
allan ársins hring en lengri ferðim-
ar hefjast seinnipart júní. Við erum
með ferðir nánast um land allt, af öll-
um stærðum og gerðum. Allt í allt
einar tíu ólikar vikulangar ferðir
víðs vegar um landið.
Hróðmar segir vinsælustu ferð
sem Eldhestar bjóða upp á vera hina
svokölluðu „Gullnu ferð“,frá Hvera-
gerði yfir í Landssveit með viðkomu
við Gullfoss og Geysi. Ferðir yfir há-
lendið, í Þórsmörk og um Snæfells-
nesið em einnig vinsælar.
Fleiri Islendingar
Allt í allt ferðast nokkur þúsund
manns með Eldhestum á hverju
sumri, séu allar ferðir teknar með í
reikninginn, þar af þrjú til fjögur
hundruð í lengri ferðunum. Yfir-
gnæfandi meirihluti ferðafólksins
eru útlendingar, aðallega Norður-
landahúar og Þjóðverjar og er hlut-
fall íslendinga í lengri ferðunum að-
eins þrjú til fimm prósent þó að á
haustin og vorin sæki þeir töluvert í
styttri ferðirnar. Að sögn Hróðmars
er ástæðan fyrir þessu sú að Islend-
ingar era svo sjálfstæðir í eðli sínu
að þeir vilja helst skipuleggja allt
sjáifir. Veðrið fælir fólk lika frá,
enda íslendingar gjörkunnugir duttl-
ungum þess og dyntum. Hróðmar
hefur þó fundið fyrir vaxandi aðsókn
íslendinga í hestaferðirnar og telur
hann að þeir séu smám saman að
átta sig á að skipulagðar ferðir hesta-
leiganna séu hvort tveggja í senn,
þægilegur og hentugur kostur, og
kjörin leið til að ferðast um og skoða
landið.
Þegar DV leit við hjá Eldhestum
snemma morguns seint í mai var
hópur frá vinsælu sænsku tímariti
að gera sig kláran til þess að stíga á
bak. Hróðmar sagði útlendingana
vera misíljóta að ná valdi á
kúnstinni að sitja hest en alltaf bless-
aðist það þó að lokum. Talsvert er
um að stórir hópar starfsmanna er-
lendra fyrirtækja komi til Islands í
nokkurs konar óvissuferðir og eru
hestaferðir nokkuð fastur punktur i
þeim ferðum enda íslenski hesturinn
líklega best þekktasta afurð íslands
erlendis - fyrir utan Björk að sjálf-
sögðu. -fv
Hróömar Bjarnason segir íslendinga sækja sífeilt meir í hestaferöir um
óbyggöir landsins. Bak viö hann hlýöa hjálmum prýddir Svíar af athygli á
leiösögumann Eldhesta sem leggur þeim lífsreglurnar.
Atgeir Gunnars var skelfilegt vopn - hér sést hann endurgeröur fyrir nútíma-
manninn, ásamt Eyjaþóru Einarsdóttur, stoltum umsjónarmanni sýningar-
innar.
bókagerð, blek, íjaðurstafi og kálf-
skinn; sem og tilkoma latneska stat-
rófsins og mikilvægi þess fá sitt pláss
á veggjum salarins. Umhverfi sýning-
arinnar er nokkuð sérstakt þar sem
gesturinn er leiddur í gegnum eins
konar völundarhús, afmarkaða ganga
og ranghala með sýningargripum á
veggjunum umhverfis. Undir öllu
saman ómar ítölsk munkatónlist sem
virkar hálfsérkennilega í fyrstu en
ljær sýningunni óneitanlega vissa
stemningu.
Augsýnilegt er að mikil vinna og
pælingar hafa verið lögð í uppsetn-
ingu og skipulagningu sýningarinnar
og á Sælubúið ehf., sem annast fram-
kvæmd sýningarinnar, hrós skilið.
Á Njáluslóðum
Sveitarfélögin sem að sýningunni
standa hafa auk þess tekið sig til og
merkt helstu sögustaði Njálu með veg-
visum og skiltum til þess að auðvelda
áhugasömum að kynna sér vettvang
sögunnar. Boðið er upp á sérstakar
eins eða tveggja daga ferðir á Njálu-
slóðir þar sem sögusviðið verður af-
hjúpað fyrir gestum. Meðal annars
eru skoðaðir Þingskálar þar sem forð-
um var þinghald og enn sér móta fyr-
ir rústum tuga skála. Aðra staði þarf
varla að kynna, Berþórshvol, Hlíðar-
enda, Ossabæ og Mörk þekkja flestir.
Þessar ferðir á Njáluslóðir verða fam-
ar á fimmtudögum og mánudögum frá
20. júní til 20. ágúst.
Rúmgott húsnæði
Á sýningunni í Sunnuhúsi á Hvol-
svelli eru eins og áður sagði margt
málaðra mynda, búinga og korta. Að
sýningunni standa ýmsir valinkunnir
menn: Hönnuður sýningarinnar er
Bjöm G. Bjömsson, textaráðgjafi er
Njálusérfræðingurinn Jón Böðvars-
son og hin fjölmörgu málverk sem
sýninguna prýða eru eftir Viktor Cil-
ia. Einnig era á sýningunni gamlar
útgáfur Njálu, teikningar úr fornum
handritum og sitthvað fleira. Aðstaða
til að taka við hópum er mjög góð
enda húsnæðið vel yfir 400 fermetrar.
Útbúin hefur verið mjög vönduð sýn-
ingarskrá á ensku til þess að auðvelda
þeim fjölmörgu gestum sem eflaust
munu heimsækja sýninguna í sumar
að skilja hinn blóðuga og heillandi
heim islensku fombókmenntanna.
-fv
Sítengt aldrif
Hátt og lágt drif
20 cm veghæð
ABS bremsur og
tveir loftpúðar
Farðu ótroðuar slóðir
Subaru
verð frá kr. 2.135.000,-
virkt þegar þú þarft það, ekki þegar bílnum hentar
eins og öllum jeppum sœmir
flýgur yfir ár og lœki
öryggisins vegna