Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Síða 10
28 Suðurland
*^r-------
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 JjV
Gunnar Örn myndlistarmaður:
Á andlegu
ferðalagi
Gunnar Öm fluttist í sveitina fyrir
tólf árum og býr nú, að sögn, í mótíf-
inu. Hann opnaði í byrjun mai Gallerí
Kamb á bæ sínum og segist ætla að
sýna þar það sem hann vill sjálfur sjá.
Að vera í takt við tímann hefur
löngum þótt nauðsynlegt fyrir lista-
menn á hvaða sviði sem er, ekki hvað
síst í myndlistinni þar sem vindar
breytinga blása hvasst og reglulega.
Vei þeim sem ekki láta berast með -
þeir eru skildir eftir úti í kuldanum
og koma að luktum dyrum í hlýjum
sölum þeirra hlýðnu. Vissulega er hér
fast kveðið að orði en það er þó stað-
reynd að til eru listamenn sem ekki
leggja höfuðáherslu á að gera eins og
hinir og liða oft fyrir það - fara sínar
eigin leiðir, svo notuð sé vel þekkt
klisja. Gunnar Örn listmálari er lista-
maður af þeim meiðinum sem fmnst
mikilvægast að vera í takt við sjálfan
sig. Gunnar treystir best sjálfum sér
og sinni dómgreind til að kunna skil á
því hvað sé - og hvað sé ekki - list.
Hjá honum snýst myndlistin ekki um
það hvað sé rétt og hvað sé rangt,
hvað sé móðins og hvað ekki - heldur
um það sem honum fmnst - hvernig
honum líður - og hvernig hann tjáir
sig. Það er hans list. Það er list.
Gvrnnar Örn fluttist af mölinni að
Kambi í Flóa fyrir tólf árum. Þar hef-
ur hann síðan málað, sinnt bústörf-
um: hænum, hestum og öndum; rækt-
að garðinn sinn (þ.e. plantað trjám en
lesendum er frjálst að lesa úr orðun-
um dýpri merkingu) og nú síðast opn-
að eitt stykki gallerí. Gallerí Kambur
er til húsa í gömlu húsi á landareign
Gunnars. Það var opnað 2. maí síðast-
liðinn með sýningu Þórðar G. Valdi-
marssonar, eða Kíkó Korriró eins og
hann hefur oft kallað sig. Sýningin
bar titilinn Myndir úr þjóðarsálinni
og lauk 2. júní..
Kíkó Korriró
„Þú mátt ekki kalla hann naívista,"
segir Gunnar þegar hann sýnir blaða-
manni hinar mögnuðu myndir Kíkós
og skýrir við og við út myndmálið
sem er svo skemmtilega blátt áfram
að við fyrstu sýn dylst það jafnvel í
einfaldleika sinum og kemur áhorf-
andanum í skilning um að stundum
leiti hann langt yfir skammt í túlkun-
um sínum. „Hann er einfari. Það er
rétta orðið. Þórður er fæddur 1922 og
hefur málað frá barnsaldri en mynd-
irnar eru flestar nokkuð nýlegar.
Hann hefur sýnt nokkrum sinnum
áður og einn gagnrýnandi tók meira
Sýnishorn af þvt sem Gunnar er aö fást við þessa stundina, myndir sem
hann segir málaöar næstum ómeövitaö, flæði, knúiö af Hendrix í botni.
„Sveitalífið veitir manni svigrúm til þess aö skapa sér sitt eigið mannlíf og rækta
og hvolpurinn Snati sem lætur ekki sitt eftir liggja í listsköpun. Gallerí Kambur
Gunnari eftir dóttur hans, Snæbjörgu.
að segja svo djúpt í árinni að kalla
sýningu hans fyrir um fimmtán árum
„tímamót í íslenskri myndlistarsögu".
Þannig að Kíkó Korriró á sína aðdá-
endur.“
Meðal mynda Þórðar á sýningunni
er myndaröð sem nefnd er Ásatrúar-
list þar sem myndefnið er tákn úr ása-
trú, sem er Þórði hugleikin, mynduð
af samofnum búkum manna og dýra.
Reðurinn er þar algeng sjón enda mik-
ilvægt frjósemistákn í hinni fornu
trú. Reyndar er nekt áberandi í mynd-
um Þórðar þó að því fari fjarri að þær
séu á nokkurn hátt klúrar. Þvert á
móti gerir nektin mikið til þess að
stuðla að og ýta undir einfaldleikann
sem er svo áberandi og fallegur i verk-
um hans. Þannig væri kvengerð á lit-
ið heillandi ef hún væri í nærbuxum
eða einhverjum öðrum spjörum og
það sama má segja um fjöllin á sum-
um myndunum - liggjandi karla sem
rísa upp við dogg - sem og aðrar nátt-
úrulíkingar Þórðar. Jafnvel spé-
hræddasta fólk getur horft kinnroða-
laust á myndir Þórðar einmitt af þvi
að þær eru svo blátt áfram og eðlileg-
ar. Þær geta ekki og mega ekki vera
neitt öðruvisi.
Alþjóðlegt gallerí
Meðal titla á sýningunni eru m.a.
Leyndardómsfullt landslag, Kvenleg-
ur foss, Hinn rottulegi sonur kaupfé-
lagsstjórans o.fl. I sýningarskrá segir
Þórður um myndir sínar: „Þær eru
tilraun til könnunar á undirvitund
minni og viðleitni til að ná til stærri
heildar af því tagi, sem sé eins konar
reynslu- eða minningabanki kyn-
stofns vors og allífsins, sem sá guð
sem er veröldin sjálf.“
Gallerí Kambur er, þrátt fyrir ung-
an aldur, að sögn Gunnars Arnar „al-
þjóðlegt gailerí", þar sem stefnan er
að sýna verk eftir listamenn af mörg-
um þjóðernum og sá fyrsti raunar eig-
inlega kominn með annan fótinn inn
fyrir dyrnar.
„Til að byrja með eru fyrirhugaðar
tvær sýningar að jafnaði á ári, á vor-
in og haustin. Nú í september mun
Ólafur Elíasson myndlistarmaður
sýna og síðan verða settar upp högg-
myndir í garðinum fyrir framan gall-
eríið. Hann er hugsaður sem högg-
myndagarður, ölium opinn. Ég get
blessunarlega leyft mér það að hafa
mína hentisemi um það hveijir sýna
hérna og fer fyrst og fremst eftir því
sem ég vil sjálfur sjá. Ég kalla þetta
reyndar alþjóðlegt gallerí því þó að
hér verði ekki útlendingar í ár þá sýn-
ir hér erlendur listamaður á næsta
ári. Það voru meira að segja erlendir
kollegar mínir sem kveiktu þessa hug-
mynd hjá mér því að þeir töluðu
margir um hversu frábært það gæti
verið að sýna hérna. Ég tók þá á orð-
HIO OPINBERA! nusti ISÍI nl 55E 5000
IAI1AI M f IfÍ cir ic
IV Wlí NÝR HEIMUR Á NETINU