Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Qupperneq 12
30
-i
jðurland
MIÐVTKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 JLlV
Grænn ís á sumrin
- öflug ferðaskrifstofa á Selfossi
Grænn ís selur allt frá lopapeysum til laxveiðiferða.
Selfoss er höfuðstaður Suður-
lands og því við hæfi að þar sé
vagga ferðaþjónustu á svæðinu. Á
Selfossi er rekin ferðaskrifstofa
með því sérstaka nafni, Grænn ís,
eða Green Ice travel upp á ensku.
Hún hefur, auk eigin þjónustu,
umboð fyrir ýmsa þjónustu aðila í
nágrenni Selfoss og sér um að
kynna starfsemi minni fyrirtækja
úti i hinum stóra heimi.
„Starfsemi Græns fss felst aðal-
lega í því sem kallað er íslensk
sumarhús, kynnt á Netinu sem
icelandic cottages. Þetta fyrirbæri
er orðið talsvert þekkt víða í heim-
inum, við erum með tengiliði um
alla Evrópu og ferðaskrifstofur
sem hóka hjá okkur,“ segir María
Karen Ólafsdóttir sem rekur skrif-
stofur fyrirtækisins á Selfossi.
„Fyrirkomulagið er þannig að við
leigjum bústaði sem eru í einka-
eign, þ.e. eigum ekki bústaðina
sjálf heldur leigjum þá af fólki á
meðan það er ekki að nota þá.
Þetta er mun ódýrari kostur en t.d.
hótelgisting fyrir fjölskyldur, og
þá sérstaklega barnafjölskyldur
sem koma til íslands."
„Hingað kemur, á okkar vegum,
aðallega fólk frá Norðurlöndunum
og Evrópu. Við fáum talsvert af
Hollendingum og Frökkum, auk
þess sem Þjóðverjarnir eru eins og
fyrri daginn mjög sólgnir í að
koma hingað. Við erum einnig
með ferðaskrifstofutengilið í Am-
eríku auk þess sem það færist sí-
fellt í vöxt að fólk panti beint hjá
okkur í gegnum Netið.“
Síðustu áramót var skipt um
eigendur á Grænum ís og því má
segja að hér sé spánýtt fyrirtæki á
ferðinni þar sem hinir nýju rekstr-
araðilar hafa endurnýjað starfsem-
ina talsvert. í sumar kemur mikill
fjöldi ferðamanna á vegum fyrir-
tækisins til landsins og segir Mar-
ía Karen að það sé farið að sneyð-
ast um pláss í hinum tíu bústöðum
sem það hefur á að skipa. „Það er
orðið erfitt að komast að hjá okk-
ur jafnvel þótt við fylgjum þeirri
reglu að leigja húsin aðeins í eina
viku, frá fostudegi til föstudags.
Fólk hefur ýmsan hátt á því
hvemig það eyðir tíma sínum hér-
lendis. Sumir láta nægja að leigja
hús hér sunnanlands en aðrir ferð-
ast á milli landshluta og leigja hús
í hverjum þeirra. Ég held að það
komi mjög fáir til íslands bara fyr-
ir eina viku.“
Grænn ís er með umboðssölu
fyrir minni fyrirtæki á Suðurlandi
og einnig skipuleggur fyrirtækið
svokallaðar óvissuferðir, þar sem
farið er með hópa á milli þessara
minni aðila án þess að hóparnir
fái að vita um ferðatilhögun. Með-
al annars fær fólk að prófa kajak-
siglingar, jeppasafarí og vélsleða-
akstur svo eitthvað sé nefnt og
hafa ferðir sem þessar notið tölu-
verðra vinsælda, ekki síst meðal
íslendinga, að sögn Maríu Karen-
ar: „Núna er mikil vertíö hjá okk-
ur í óvissuferðunum. Maður stend-
ur hérna sveittur við að skipu-
leggja hitt og þetta skemmtilegt
fyrir fólk að gera hér í nágrenn-
inu. Það er mikið um að starfs-
mannahópar, Lionsklúbbar og
kvenfélög fari í þessar óvissuferð-
ir, enda mjög gaman fyrir sam-
henta hópa að ana út í óvissuna og
sjá hvemig þeim reiðir afí“
„Grænn ís er einnig nýbúinn að
koma sér upp minjagripaverslun
hér í húsnæði fyrirtækisins. Við
bjóðum upp á þessar hefðbundnu
íslensku vömr: lopapeysur, póst-
kort, stuttermaboli o.s.frv. í stuttu
máli mætti segja að hjá okkur
fengist eiginlega allt það besta sem
Suðurland hefur upp á að bjóða í
ferðaþjónustu."
-fv
Þjálfun, heilsa, vellíðan
- ekkert stress í Hveragerði
Heilsuhælið í Hverageröi er vin í andlegri og líkamlegri eyöimörk nútímaþjóöfélagsins. Árni
Gunnarsson í herbergi Jónasar Kristjánssonar, læknis og stofnanda Heilsuhælisins.
„Heilsustofnunin er búin að
starfa hér í Hveragerði í rúma þrjá
áratugi. Hér em um 160 rúm og í
fyrra fóm hér í gegn u.þ.b. 2500
sjúklingar," segir Árni Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Heilsu-
stofnunar Náttúrulækningafélags
íslands í Hveragerði. „Þetta er fólk
sem kemur hingað til meðferðar
og endurhæfmgar vegna margvis-
legra kvilla og sjúkdóma: bæklun-
ar- og krabbameinsaðgerða,
hjartakvilla, alvarlegra gigtarsjúk-
dóma, verkja i stoðkerfi, hrygg,
hálsi og baki; o.s.frv. Hingað kem-
ur líka fólk sem þarf á mikilli
hvíld, ró og næði að halda vegna
streitu og álags; fólk sem vill
hætta að reykja og fólk sem vill
grenna sig og þjáist jafnvel af
offitu. Einnig höfum
við nokkuð sérhæft
okkur í að hjálpa kon-
um með brjós-
takrabbamein og
mígrenisjúklingum."
Aðspurður í hverju
sérstaða Heilsustofn-
unarinnar fælist og
hvaða aðferðum hún
beitti sagði Árni að
sérstaðan lægi fyrst
og fremst í því að að-
eins væri borið fram
vegetarískt fæði;
grænmeti, ávextir,
kommatiu-, mjólkur-
afurðir o.þ.h., þó að
stöku sinnum, einu
sinni til tvisvar í
viku, væri boðið upp
á fisk. Kjöt, fita, salt,
sykur og önnur óholl-
usta nútimasamfé-
lagsins væri bann-
vara. Annað sérkenni
stofnunarinnar væru
leirböðin sem hún
hefði beitt lengi með
góðum árangri.
Þess má einnig geta
að Jónas Kristjáns-
son, stofnandi Heilsu-
stofnunarinnar, sem
lést árið 1960 lét eftir
sig ýmsa merkilega
muni sem varðveittir
eru í herbergi hans í
húsi stofnunarinnar.
Þar á meðal eru gömul lækningaá-
höld hans, sum hver næstum ófá-
anleg í dag, eggjasafn og fjöldi
mynda. Einnig er þar bókasafn
Jónasar en hann skrifaðist meðal
annars á við Kelloggs-bræðurna í
Bandaríkjunum, guðfeður korn-
flexsins og gúrúa í heilsufræðum.
Meðal bóka Jónasar eru bækur
áritaöar af þeim bræðrum sem
höföu Jónas í hávegum vegna
framsækinna og skynsamra að-
ferða og skoðana hans. „Hann var
maður langt á undan sinni samtíð
og sannkallaður snillingur,“ sagði
Ámi um Jónas og lét þess getið að
einhvem tímann langaði hann að
opna safn með munum þeim sem
Jónas skildi eftir sig.
Engar skottulækningar
„Við reynum aö sameina kosti
hefðbundinnar og óhefðbundinnar
læknisfræði og sneiða hjá göllun-
um. Þannig erum við með alhefð-
bundna sjúkraþjálfun, og -nudd;
læknismeðferð og hjúkrun o.s.frv.
Þetta eru langt í frá skottulækn-
ingar eins og maður hefur heyrt
haldið fram, þetta eru einfaldlega
skynsemislækningar þar sem við
leitumst við að sameina þekkingu
aldanna og nútímalæknisfræði.
Hingað kemur fólk á öllum aldri,
úr öllum stéttum víðs vegar að af
landinu - samkvæmt læknisráði
og er hér að jafnaði í u.þ.b. mánuð.
Á meðan lifir það samkvæmt við-
urkenndum sannindum um rétt
mataræði, holla hreyfingu og
næga hvíld - sannindum sem oft
gleymast í lífsgæðakapphlaupinu."
-fv
>
FLUTNINGAMIÐSTÖÐ
SUÐURLANDSEHF
Austurvegi 69, sími 482 3747 - 482 2733
Sumarbústaðaeigendur og ferðafólk,
við tengjum ykkur við heimabyggðina!
vörumóttaka Landfjutningar
f Reykjavík / sámskíp
U
s Flutningar frá Reykjavík alla virka daga
kl. 11:00, 14:00 og 17:00.
Frá Selfossi í sveitir Árnessýslu kl. 13:00.
sími 569 8400
m
í
BMBannaiHHUiaHHB