Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 JjV
32 fSuðurland
Náttúran er öflugur samheiji
- KÁ býður ferðamönnum upp á fjölbreytta þjónustu
„Feröaþjónusta KÁ er meö aðal-
veginum gegnum Suöurland, frá
Selfossi aö Kirkjubæjarklaustri,“
segir Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri ferðaþjónustusviðs
Kaupfélags Árnesinga. „Á Selfossi
erum viö með Hótel Selfoss, ílagg-
skip ferðaþjónustu KÁ að kalla;
Gesthús, sem er sumarhúsagist-
ing, og Fossnesti, bensínstöð og
söluskála. Á Hvolsvelli rekum við
bensinstöð. Þá er röðin komin að
Vík sem er einn aðalstaðurinn,
fjölfarinn staður þar sem margt er
í boði. Þar er m.a. á okkar vegum
Hótel Vík, 21 herbergis hótel, og
Víkurskáli sem er söluskáli og
bensinstöð og býður m.a. upp á
ansi skemmtileg sjávarréttahlað-
borð í hellum á ströndinni. Á
Kirkjubæjarklaustri erum við með
Skaftárskála, enn einn „skálann
með öllu“ - þar er bensínstöð,
söluskáli og lítið grill.“
Fjölskylduvænir staðir
Sigurður býst við miklum
straumi fólks um Suðurland í
sumar og segir það augljóst nú í
byrjun sumars að fólk hafi mikinn
áhuga á að koma t.d. á staði aust-
ast á Suðurlandi: „Kirkjubæjar-
klaustur er mjög fjölskylduvænn
staður. Þangað kom margt fólk í
fyrra og við eigum von á góðum
fjölda í ár. Þar er mjög góð að-
staða fyrir ferðamenn, tjaldstæði
og hótel, svo ekki sé minnst á
náttúrufegurðina sem óvíða er
meiri."
Fyrir nokkrum árum var í
gangi heljarmikið átak til þess að
fá fólk til að ferðast um ísland, „ís-
land - sækjum það heim“ og þess
háttar slagorð dundu á fólki.
Finnst Sigurði þannig átök skila
sér? „Já, við fundum það þá að
fólk tók við sér og ferðamanna-
straumurinn jókst. Svo tekur
þetta alltaf kippi eftir því hvort
eitthvað er á seyði þá og þá stund-
ina. Eftir síðasta Skeiðarárhlaup
var t.d. gífurlegur straumur fólks
sem kom að skoða ummerkin og
sumir búast við fólki hingað nú í
sumar að skoða hvernig um er að
litast þarna núna. Fólk hefur mik-
inn áhuga á þess. Þannig gengur
náttúran stundum ákveðið í lið
Jp * <^ 1 : siiio"
1 l J
Siguröi Jónssyni, framkvæmdastjóra feröaþjónustusviös KÁ, líst vei á sum-
ariö: „Ef fólk er ánægt þá kemur þaö aftur.“
með okkur í ferðaþjónustunni."
„Á hótel- og gistisviðinu erum
við sömuleiðis bjartsýn, erum
með fínar bókanir og leggjum sem
áður mikla áherslu á að vera í
góðu sambandi við íslenskar
ferðaskrifstofur og þjóna þeim
eins og við mögulega getum. Það
er allra hagur að erlendi ferða-
maðurinn á íslandi skilji sem
mest eftir sig hér.“
Sigurður segir fjölskyldufólk
vera áberandi hluta ferðamanna á
þessu svæði: „Hérna á Selfossi er
ferðamannatraffíkin talsvert mik-
il í þjónustu við sumarbústaðina
hér í Grímsnesinu, bæði verslun-
arþjónusta og líka afþreyingin.
Sundlaugin er nýuppgerð og sem
dæmi má nefna að eftir að hún
var opnuð í fyrra jókst salan mjög
á veitinga- og pitsustöðum í bæn-
um þannig að það gefur auga leið
að þetta helst allt í hendur. Góð
þjónusta á einu sviði þýðir aukin
viðskipti á öðru sviði, það er svo
einfalt. Og ef fólk er ánægt með
þjónustuna þá kemur það aftur ...
og aftur."
-fv
Ylrækt í Hveragerði:
Of mikil birta á sumrin
- segir Diðrik Sæmundsson garðyrkjubóndi
„Ég rek blandað bú, er með
svona sitt lítið af hverju," segir
Diðrik Sæmundsson, bóndi á Frið-
arstöðum í Hveragerði, en fjöl-
skylda hans hefur stundað ylrækt,
ræktað og selt grænmeti á Friðar-
stöðum síðan 1939. „Ég rækta aðal-
lega tómata en er líka með gúrkur,
papriku, gulrætur, kýr, kindur og
hesta. Gróðurhúsin eru sjö talsins,
þar af þrjú með tómötum og fram-
leiðslan er þetta 30 til 40 tonn af
grænmeti frá mars og fram í des-
ember. Annars fer það eftir sól-
inni.“
Diðrik selur framleiðslu sína til
dreifingaraðila í Reykjavík sem
síðan sér um að koma henni á
markaðinn. Ylræktin er fyrirferð-
armest i búskap Diöriks enda seg-
ir hann hitt „aðallega vera til
gamans". Það eru til mörg af-
brigði af tómöt um. Hvemig eru
tómatarnir hans Diðriks?
„Ég er með þessa venjulegu
Diörik Sæmundsson og tómatarnir. Getur
veriö aö sólin skíni of skært á íslandi á sumr-
in?
tómata. Neytendur vilja þá
helst. Afbrigðin eru fleiri
hundruð og þróunin stans-
laus þannig að þegar það
kemur fram ný sort sem er
betri en aðrar tekur það að-
eins nokkur ár fyrir nýja og
enn þá betri sort að koma
frarn."
Diðrik segi kostinn við
að vera garðyrkjubóndi á
íslandi miðað við önnur
lönd aðallega vera jarðhit-
ann en ókostimir séu lítill
markaður og óhagstæð
hnattstaða. Þannig séu
birtuskilyrðin léleg og mis-
jöfn, of lítil birta á vorin og
haustin en jafnvel of mikil
yfir hásumarið. En tæpast
em aðrir landsmenn sam-
mála garðyrkjubændum
um að það sé of mikil birta
á íslandi á sumrin?
-fv
Fiskbúö Suðurlands
Smásala og heildsala á fiski
Heildsala á öllum fiski til verslana og mötuneyta. Ferskur,
frosinn, saltaöur, reyktur eöa siginn. Flakaöur, pakkaöur og
snyrtur að ósk. , ,
Selfossbúar,
Sunnlendingar!
Daglega nýr fiskur.
Bjóöum Ölfusárlaxinn
vinsæla í sumar.
t>v
fíSKBÚÐ
SUÐURLANDS
EYRARVEGI59!
SEiFOSSI j
SÍMI
482 2509
SMÁSALA OG HEÍLDSALA Á FISKI
„Gangiö í bæinn," - Hafþór Bjarnason í ganginum sinum.
Gróskumikið gallerí:
Gallerí í gangi
„Þetta er gallerí i heima-
húsi, bókstaflega í ganginum
hjá okkur eins og nafnið gef-
ur til kynna. Munirnir eru
úr viði, allt saman gert hér á
staðnum,“ segir Brynja
Dadda Sverrisdóttir sem
ásamt eiginmanni sínum,
Hafþóri Bjarnasyni, rekur
Gallerí í gangi á Hvolsvelli.
„Það er yfirleitt alltaf opið ef
einhver er heima og við selj-
um bæði skraut- og nytja-
muni, allt frá fuglahúsum til
stórra hillna. Það nýjasta
hjá okkur eru ýmsir hlutir i
garða, t.d. stór gamaldags
vatnsdæla úr tré sem er t.d.
kjörin fyrir sumarhús og
skrúðgarða."
Gcillerí í gangi er ein fjöl-
margra lítilla listsmiðja á
Suöurlandi sem reknar eru í
heimahúsi. Þar gefst hand-
verksfólki sem ekki hefur
aðgang að stærri vettvangi
gott tækifæri til þess að
kynna sig og muni sína.
Þessi gallerí eru af öllum
stærðum og gerðum og list-
sköpunin misjöfn að eðli og
gæðum en alltaf má ganga
að vísu heimilislegu og þægilegu
andrúmslofti og metnaðarfuUu
Eitt fuglahúsa Hafþórs og Brynju stóö
ekki lengi autt. Þessir tveir ungar voru
viö þaö aö taka flugiö og kunnu illa
truflunum Hafþórs og Ijósmyndarans.
fólki sem stundar áhugamáliö af
stakri alúð. -fv