Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
Suðurland... ;
Lindin við Laugarvatn:
Fagurt umhverfi
- fjölbreyttur
matseðill
Veitingahúsið Lindin á Laugar-
vatni er rekið af feðgunum Jóni
Sveinssyni og Sveini Ragnari
Jónssyni og eiginkonu Sveins
Ragnars, Elínu Haraldsdóttur. DV
kom við hjá þeim feðgum á Laug-
arvatni og spjallaði við Jón: „Við
stofnuðum þetta fyrirtæki 4. apríl
1996 og hófum veitingarekstur hér
á Laugarvatni um leið. Hér starfa
níu manns yfir sumartímann þeg-
ar veitingahúsið er opiö og eru
það mikið til nemar svo að við
sköpum atvinnu fyrir ungt fólk á
Suðurlandi. Á boðstólum er fjöl-
breyttur matseðill með forréttum,
fiskréttum, steikum, ábætisrétt-
um, kökum og raunar öllu sem
hægt er að hugsa sér. Við erum
með vínveitingar, ég veit ekki
hvort ég á að þora að nefna Egils
Gull - þann besta á Suðurlandi.
Hér er opið frá hádegi til kl. 11.30
alla virka daga en um helgar lok-
um við kl. 15.
Aðalviðskiptavinir Lindarinnar
segir Jón einfaldlega að séu allir
sem koma á Laugarvatn: „Það er
ekkert hægt að gera upp á milli
fólks að því leyti enda vill það ekk-
ert láta draga sig þannig í hópa.
Hér á svæðinu er sjálfsagt átta til
tíu þúsund manna sumarbústaða-
byggð og við fáum talsvert af því
Samhent fjölskylda rekur veitingahúsiö Lindina viö Laugarvatn. „í góðu veöri er veröndin lífsnauösynleg - ekki síö-
ur mikilvæg en bragðgóður maturinn," segir Jón Sveinsson (lengst t.h.) einn eigenda Lindarinnar.
fólki hingað til okkar. Annars er
þetta mjög breytilegt."
„Við erum með mjög góðan sil-
ung úr Laugarvatni og Apavatni
sem við kaupum frá Útey, en það-
an fáum við allan okkar silung.
Sérréttir okkar eru aðallega sil-
ungsréttir og þ. á m. heitreyktur
silungur sem er borinn fram heill
með sporði, á beininu eins og sagt
er.“
„Lindin er veitingahús með
góða sál, í fögru umhverfi og með
ýmsum þægindum í næsta ná-
grenni, náttúrulegu gufubaði,
sundlaug, bátaleigu o.fl.; og hér er
gott að staldra við og fá sér í
svanginn." -fv
Hér þarf engra oröa við.
Inúítar á Stokkseyri
- eða því sem næst
Kajakasiglingar um vatnasvæði
Stokkseyrar eru einstakar og kjörnar
til þess að skoða náttúruna án þess að
valda raski.
Til þess að sigla kajak um kyrrlát
vötn þarf maður ekki nauðsynlega að
vera staddur á Grænlandi - það er
nóg að skreppa á Stokkseyri. Þar er
hægt að komast yfir sannkallaðan
baksviðspassa inn í heillandi heim
fugla og dýra sem varla er hægt að
njóta á vistvænni hátt. Gunnar Svan-
ur Eyjólfsson er einn aðstandenda
kajakferðanna: „Við bjóðum upp á
mislangar ferðir á kajökum um vatna-
svæðið í kringum Stokkseyri. Ég get
tekið allt upp í 25 manns í einu og á
öllum aldri því að kajakarnir eru
mjög stöðugir og öruggir og einnig
meðfærilegir - það er létt að róa
þeim.“
Þetta er íjórða árið sem Gunnar er
með þessar siglingar og verður opið
hjá honum á hverjum degi fram í sept-
ember. Hann segir viðtökurnar hafa
verið góðar, sérstaklega hjá íslending-
um: „Það hefur verið heilmikil eftir-
spurn eftir þessu upp á síðkastið. Það
sem heillar fólk helst við þetta, að ég
held, er kyrrðin. Það svifur mikil ró
yfir vötnum, ef svo má að orði kom-
ast. Þetta eru rólegheit og fyrir alla.
Svo er dýralifið mjög forvitnilegt, sel-
ir sem elta bátana og fuglalífið fjöl-
breytt og fagurt.“
Gunnar segir algengt og eðlilegt að
fólk sé smeykt í fyrstu en það finni þó
fljótt að sigling á kajak er barnaleikur
og einn viðskiptavina hans hafi jafn-
vel haft á orði um daginn að „jafnvel
vatnshrædd kona gæti farið í gegnum
þetta“.
í júli hyggst Gunnar einnig bjóða
upp á siglingar á mótorbáti á Hvítár-
vatni við Langjökul þar sem fólki
gefst kostur á að komast í návígi við „Vatnshræddar konur!“ - aldeilis ekki. Ef vel er aö gáö mó sjá á bát númer tvö, talið aö framan, þjóökunnan alþing-
einn stærsta jökul landsins. -fv ismann.