Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Page 16
. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
hiðuriand
Ævlntýri á Vfttnajöklt
Ævintýraferðir á snjóbflum og
vélsleðum á stærsta jökul í Evrópu.
* Svefnpokagisting og veitingar í
Jöklaseli með óviðjafnalegu útsýni.
/▲
JÖKLAFERÐIR HF.
Á vit ævintýranna
P.O.Box 66,780 Homafjörður, n 478 1000, Fax: 478 1901, Jöklasel ® 478 1001
Þetta er ekkí HM tilboð m
DAEWOO 2898
28“ sjónvarp. Black Matrix myndlampi.
Islenskt textavarp. S-VHS inntak.
2 SCART tengi. 2X40 Watta hátalarar.
þetta
eru
bara
verðin í
TRS
á Selfossi
DAEWOO K885
6 hausa tæki, Blue Diamond myndhausar
Long play. Show view. Nicam stereo.
RCA tengi að framan. NTSC afspilun ^
verð aðeins
79.900.-
Eyravegi 25 • 800 Selfoss • Sími 482 3184
Land lundans - lund landans
- Vestmannaeyingar í góðu skapi í sumar
stjórnar, á laugardeginum kemur
forseti Islands í opinbera heim-
sókn, á sunnudeginum er göngu-
messa - gengið frá Landakirkju
upp að rótum eldfjallsins og hald-
in messa þar en síðan grillveisla á
Skansinum - og svona mætti lengi
telja. Svo stiklað sé á stóru þá
verða hjá okkur kvöldsiglingar
með Herjólfi, þjóðhátíð - að sjálf-
sögðu - og fleiri, fleiri golfmót allt
sumarið. Hér er allt á fullu.“
-fv
Þar sem Ingólfur drap bróður-
bama sína einn af öðrum eins og
kópa í látri og lundinn kjagar um
vel nefjaður og fitviss með ein-
dæmum; þar gala gaukar, og þing-
menn í brekkum og leðja kaffærir
stundum þjóðhátíð - þar eru Vest-
mannaeyjar, eða Kaprí norðursins
eins og eyjaskeggjar kjósa að kalla
staðinn. Það voru eflaust duttlung-
ar örlaganna að Kaprí norðursins
og kúreki norðursins minntust
bæði við brennandi tungur Vestu,
gyðju elds, þó tuttugu og fimm ár
ár skildu. Bæði hafa risið úr ösk-
unni að nýju og... og... ehm, já, lát-
um hástemmdum lýsingum lokið
að sinni: Vestmannaeyjar eru stað-
ur sem er upp á sitt besta á sumr-
in. En, svo vitnað sé í Grýlurnar
sálugu: „Hvað er að ske?“ Auróra
Friðriksdóttir, ferðamálafulltrúi
Vestmannaeyja, varð fyrir svör-
um:
„10. til 14. júní koma hingað yflr
til okkar rúmlega 1000 stelpur til
að keppa á Pæjumótinu. Svo um
miðjan júní er Golfævintýri sem
er golfkennsla fyrir börn á öllum
aldri víðs vegar af landinu. 24.
júní er komið að strákunum en þá
hefst Shell-mótið og við fáum þús-
und stráka i heimsókn. Hér verður
dansleikur inni í dal um Jóns-
messuna og haldið upp á gosloka-
afmælið fostudaginn 3. júli og
stendur þá helgi. Setningin er 3.
júlí og það verður ýmislegt um að
vera: Myndlistarsýningar, götu-
leikhús, sem Andrés Sigurvinsson
Á þjóöhátíö skartar fólk sínu fegursta, sem sjá má á þessum toppstykkjum.
Daily sightseeing trips
in the vicinity of Reykjavík
'' •»
Ódýrar ferðir í nágrenni Reykjavíkur.
Gerið ykkar eigin ferðaáætlanir.
Við bjóðum margar ferðir með góðum
bílum. Ódýrasti möguleikinn til að
komast á þekkta og vinsæla
ferðamannastaði.
Nánari uppl. hjá B.S.Í. í síma
552-2300 og 562-3320 og hjá
miðstöðinni í Fossnesti
482-1599.
Listin heim
- eitt af elstu handverksgalleríum landsins í Vestmannaeyjum
Lundinn þykir einkennandi fyrir Vestamannaeyjar og hefur Gallerí Heimalist
stílaö nokkuð inn á það meö „lundalopapeysurnar" sínar. „Lopapeysurnar
eru vinsælar í kringum þjóöhátíö," segir Margo Renner.
„Að Gallerí Heimalist í Vestmanna-
eyjum stendur hópur handverksfólks.
Við búum til og seljum allt frá silfur-
skartgripum til vefnaðarvöru, gler-
vörur, keramik, prjónavörur og margt
fleira en einnig seljum við minjagripi
og póstkort o.þ.h. - svona hefðbundn-
ar ferðamannavörur," segir Margo
Renner, framkvæmdastjóri Gallerí
Heimalistar í Vestmannaeyjum. „Við
erum átta sjálfboðaliðar sem vinnum í
búðinni en svo koma fleiri við sögu
sem eru einungis í því að búa til muni
en geta einhverra hluta vegna ekki
unnið í búðinni sjálfri. Það eru til
dæmis heimavinnandi mæður með
börn, fólk af elliheimilinu jafnvel eða
einfaldlega fólk sem ekki treystir sér
til að hafa samskipti við útlendinga á
þessum vettvangi."
Gallerí Heimalist er eitt af elstu
handverksgalleríum á landinu, stofn-
að 1990. Aðeins Gallerí Lára á Seyðis-
firði er eldri. Fyrst í stað var aðeins
opið í Heimalist á sumrin og fyrir jól
en síðan galleríið fluttist í nýtt hús-
næði í miðbæ Vestmannaeyja fyrir
fimm árum hefur verið opið allt árið.
Margo segir heimamenn vera
dygga og góða viðskiptavini ekki síð-
ur en útlendingamir: „Við seljum
mikið af fermingar- og afmælisgjöfum
- og svo alltaf lopapeysur fyrir þjóðhá-
tið!“ segir Margo og hlær.
Vinsælustu vörurnar em mismun-
andi eftir kúnnanum og þá fyrst og
fremst þjóðerni: „Vestmannaeyingar
kaupa skartgripi, keramik eða gler-
vöru - gjafavöru sem sagt - en útlend-
ingar kaupa meira af minjagripum,
póstkortum o.s.frv. Þar eru litlu
leirlundarnir okkar sérstaklega vin-
sælir en við höfum einmitt lagt sér-
staka áherslu á lundann sem þema.
Við erum að búa til ýmislegt þar sem
lundinn kemur við sögu, t.d. lopapeys-
ur, svuntur og vettlinga með myndum
af lunda og þar fram eftir götunum.
Fólk kemur helst hingað til Eyja til
þess að skoða annars vegar ummerki
eftir eldgos eða þá fuglalífið. Við reyn-
um að gera svolítið út á það.“ -fv