Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Qupperneq 17
DV MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
i$Uðurland
HorgunKaffi
Tjaldmarkaður
beiktaeki
Götuleikhús
BUasýningar
Tónleikar
Tískusýningar
Hestateiga
Kjöríshjólið
GriU
Tilboð í verstun
Brúðhjón ársit
Vantar þig gler ?
4 EINANGRUNARGLER
4 SÓLVARNARGLER
4 ÖRYGGISGLER
4 HERT GLER
4 HLJÓÐEINANGRUNARGLER
4 ELDVARNARGLER
+ SKRAUTGLER
4 HLEÐSLUGLERSTEINR
4 SPEGLAR... og margt fleira.
Leitið tilboða
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasandur 2 • &S0 Hella
o 467 5660 • Fax 487 5907
Siglingar é hjólabátum
- í fjölbreyttu umhverfi
Byggt yfir skattinn
Flestir sem komið hafa til Víkur í
Mýrdal hafa séð hjólabátana þar sem
þeir standa við Víkurskálann. Margir
hafa einnig tekið sér ferð með þeim til
að skoða Reynisdranga eða Dyrhólaey
utan af sjó. í fyrstu voru þessir hjóla-
bátar keyptir tO Víkur til þess að róa
til fískjar á þeim en á seinni árum
hafa þeir verið nýttir nær eingöngu
til útsýnissiglinga með ferðafólk. Gísli
Daníel Reynisson er skipstjóri og út-
gerðarmaður hjólabátanna. „Það hef-
ur verið nokkuð jafn stígandi í þessu
frá upphafi. Fólk virðist kannast orð-
ið vel við hjólabátana og sumir er-
lendir ferðamenn koma hingað til
Vikur í þeim eina tilgangi að komast
í siglingu á þeim.“
Það er margt sem fyrir augu ber í
ferðum á hjólabátunum. Ef veður er
gott er fjallasýnin stórfengleg og það
sem næst er fólki vekur ekki minni
athygli. „Mesta athygli vekur fuglalíf-
ið og fjöUin. Sjófuglar eru flestum
framandi nema þeim sem eru frá sjáv-
arsíðunni. Þeir hafa þó ekki nærri all-
ir séð fugla eins og langvíu og álku
fyrr en þeir koma hér út að Reynis-
dröngum. Það kemur mörgum á óvart
og hrífur marga sem koma á sjóinn
fyrir utan Reynisfjall og Dyrhólaey
hversu mikilfenglegt þetta aUt saman
er. Jarðfræðin er mörgum mikið
áhugamál; ReynisfjaU, Reynisdrangar
og Dyrhólaey með öUum sínum skerj-
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
sveitarstjóri Rangárvallahrepps,
segir margt verða á seyöi á Hellu í
sumar.
Hjólabáturinn Fengsæll öslar upp úr briminu með hrifna farþega sem sumir
hverjir hafa kannski aldrei barið sjófugl augum áður.
um og dröngum eru leifar eldstöðva
sem mynduðust við gos undir jökli.
Þarna sér fólk mjög margar berg-
myndanir og jarðsaga þessara mynda
nær yfir milljónir ára þannig að það
eru margbreytilegir hlutir sem fólk
getur séð í útsýnissiglingum á hjóla-
bátunum," sagði Gisli Daníel.
Hann segir að stæstur hluti farþeg-
anna séu útlendingar en íslendingar
séu að sækja á; „Þeir eru orðnir um
þriðjungur þeirra farþega sem fara í
útsýnissiglingar með okkur. Hluti af
þeim aukna íjölda Islendinga sem
kemur hingað er í starfsmannaferð-
um. Þá er oft boðið upp á eitthvað
óvenjulegt, svo sem hákarl og brenni-
vín eða hlaðborð með sjávarréttum
sem við höfum verið með í samvinnu
við Vikurskála I HálsanefsheUi sem er
úti i Reynisfjöru og oft er varðeldur á
eftir,“ sagði Gísli Daníel Reynisson.
-NH.
- framkvæmdasumar á Hellu
„Það eru ýmsar framkvæmdir í
gangi hjá okkur á HeUu í surnar," seg-
ir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson
sveitarstjóri RangárvaUahrepps.
„íþróttahús bæjarins er í byggingu,
Skattstofa Suðurlands er að fá húsa-
skjól og ýmislegt verður gert í frá-
veitumálum. Þetta eru stærstu fram-
kvæmdirnar en ef við fórum aðeins út
í aðra sálma þá verður haldin hér
íþróttahátíð HSK síðustu helgina í
júní þar sem 6 til 800 keppendur
munu reyna með sér í hinum ýmsu
greinum. Og það er skammt stórra
högga á miUi: Fyrstu helgina í júlí
verðum við gestgjafar á nýjan leik, en
þá fer hér á Gaddstaðaflötum fram
heimsmeistaramót unglinga í hestai-
þróttum.
14. til 16. ágúst dregur svo aftur til
tíðinda þegar stórhátíðin Töðugjöld
verður haldin í fimmta skipti. Þetta er
þriggja daga fjölskylduskemmtun þar
sem hinar ýmsu uppákomur kæta lýð-
inn. HeUa verður heit í sumar!
í nágrenni HeUu hafa fundist
nokkrir heUar með torkennilegum
ristum á veggjunum sem grunur leik-
ur á að hafi verið bústaður Papa ein-
hvern timann í fyrndinni. HeUarnir
ku vera nokkuð djúpir og víðir og
inni í þeim sumum hverjum eru hol-
ur sem eru taldar hafa geymt sýru tU
matargerðar. Margt annarra sögu-
staða er í RangárvaUahreppi, t.d.
Oddi, bústaður Oddaverja og Sæ-
mundar fróða sem Megas orti um
ódauðlegan brag. Hvert mannsbam
þekkir sögurnar af viðskiptum hans
og skrattans. Þingskálar voru forn
þingstaður þar sem enn má sjá fjölda
tófta eftir búðir þingfara og eins og
annars staðar á Suðurlandi er Njáls
saga og sögustaðir hennar hvergi
langt undan. Sumir gamli sveitamenn
hafa á orði að sagan sé svo nálæg á
þessum slóðum að ef lagt sé við hlust-
ir megi enn heyra orð Gunnars „Fög-
ur er hliðin" bergmála í klettimum
ofan við Hlíðarenda. -fv
Bárubrun
- vatnasport á Svínavatni
Vatnaíþróttir, að sundi undan-
skUdu, og íslendingar hafa löngum
verið eins og vatn og olía. íslendingar
hafa m.ö.o. beint kröftum sínum ann-
að með tómstundir og keppni í huga.
Þó hafa komið fram stöku fullhugar
og framherjar á borð við Brák, fóstru
Egils, sem stundaði manna og kvenna
fyrst köfun hér við land og naut við
það dyggrar aðstoðar SkaUa-Gríms,
vinnuveitanda síns. íslendingar hafa
hin síðustu ár leitað meira út á löginn
við iðkun íþrótta, fyrst með tUkomu
seglbrettanna en nú stendur einnig til
boða á vötnum og fjörðum víðs vegar
um landið æsispennandi vatnasleða-
brun. Einn þessara staöa, þar sem
sportið hefur hvað lengst verið stund-
að, er Svínavatn, þar sem Magnús
Ingiberg Jónsson rekur vatnasleðal-
eigu:
„Við erum með eins- og tveggja
manna sleða, leigða út í 20 mínútur í
senn fyrir 2500 krónur. Þeir eru ansi
kraftmiklir, 650 kúbik, þannig að það
er vel hægt að komast áfram á þessu.
Ég er búinn að reka þetta síðan 1989.
„Ólýsanleg tilfinning," segir Magn-
ús I. Jónsson sem rekur vatnasleöa-
og -skíðaleigu viö Svínavatn. Þessi
brunari hefur kannski horft á of
margar Bond-myndir - en er þó
óneitanlega ansi svalur.
í augnablikinu er ég með 4 sleða en
það stendur tU að bæta við einum
þriggja manna því að það er aUtaf
talsverð aðsókn í þetta á sumrin og
leiðinlegt að þurfa að vísa fólki frá
vegna pláss- og sleðaleysis."
-fv