Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
' Suðurland
Fatlaðir vinna fyrir umhverfið
- í nýju fyrirtæki á Selfossi
„Við hendum heilum ósköpum af pappír á Is-
landi,“ segir Guðmundur Garðar Guömunds-
son, verkstjóri í fyrirtækinu Husl ehf. Guð-
mundur Karl Guðmundsson og Þorgeir Sig-
urðsson hreinsa og saga pappa áður en hann
er tættur.
„Starfsemi okkar
felst í því að endur-
vinna pappír,“ segir
Guðmundur Garðar
Guðmundsson, verk-
stjóri í fyrirtækinu
Husl ehf. á Selfossi, þar
sem að jafnaði vinna
fimm fatlaðir Sunnlend-
ingar ásamt tveimur
leiðbeinendum. „Fyrir-
tækið er stofnað að
frumkvæði Mjólkurbús
Flóamanna og við tök-
um við öllum pappír
þaðan og endurvinnum
hann í stað þess að
Mjólkurbúið fargi hon-
um og borgi fyrir það
stórfé. Það útvegaði vél-
ar og tæki til fram-
leiðslunnar, hönnuð og
smíðuð á Vík í Mýrdal, og við
tökum við pappírnum frá því í
staðinn. Vélarnar tæta pappírinn
niður í kurl og hingað til hefur
það mest verið nýtt sem undir-
burður fyrir hross í bása og stí-
ur.
Við erum einnig með í gangi
tilraunir til þess að vinna úr
þessu kurli ýmislegt fyrir skóg-
rækt og landgræðslu. Þá bleytum
við pappírskurlið upp í vatni,
búum til mauk og steypum úr því
platta og kökur sem í verða svo
fræ og áburður. Þessu er síðan
komið fyrir úti í náttúrunni og
verður smám saman að jarðvegi.
Svo erum við opnir fyrir öllum
möguleikum sem pappírinn gef-
ur. Það er hent heilum ósköpum
af pappír á íslandi, 50 tonnum
hjá Mjólkurbúinu árlega og, að
ég held, svipuðu frá Hagkaupi og
Bónusi á mánuði þannig að gífur-
leg verðmæti fara þarna til spill-
is. Við sláum því tvær flugur í
einu höggi, sköpum atvinnu fyrir
fatlaða og vinnum gott starf í
þágu umhverfisins."
Haraldur Rúnarsson að störfum
við pappírstætarann. Kurliö sem
út kemur er aðallega notað undir
hesta en einnig er í gangi ýmis
þróunarvinna til þess að finna
frekari not fyrir það.
Husl er nánast nýtt fyrirtæki,
hóf starfsemi um miðjan desem-
ber, og segir Guðmundur hlutina
smám saman vera að komast á
skrið: „Þetta tekur allt sinn tíma.
Við erum núna að leita hófanna
með styrki til þess að þróa vörur
og annað þvíumlíkt en erum nátt-
úrlega enn að slita harnsskón-
um.“
-fv
Skeggjastaðir íV-Landeyjum:
Borgarbörn í sveit
- fljót að læra bústörfin
„Nínukot er það sem ég vil kalla
sumarbúðir í sveit. Við reynum að
tengja saman sumarbúðalifið og sveit-
ina og fá það skemmtilegasta út úr
hvoru tveggja," segir Svanborg Eygló
Óskarsdóttir sem rekur Nínukot á
Skeggjastöðum nálægt Hvolsvelli.
„Krakkarnir fá að kynnast öllum þess-
um hefðbundnu bústörfum, að ná í
kýrnar og reka þær, að handmjólka,
gefa kálfunum og heimagöngunum,
prófa tækin í fjósinu o.s.frv. Það er til
dæmis algert bíó þegar þau fara fyrst
að sækja kýrnar, enda eðlilegt þar sem
þau hafa aldrei gert svona lagað áður.
Þau fara á móti kúnum, veifandi öllum
öngum og öskrandi og sækja svo eina
kú í einu þannig að kýrnar sem þau eru
búin að sækja fara náttúrlega jafnskjótt
aftur í hópinn þegar þau sækja þá
næstu. En þau læra þetta smátt og
smátt - að fara aftur fyrir kýrnar og öll
hin réttu handtökin. Þá er tilganginum
líka náð.“
„Þetta er meira leikur, engin skylda.
Það þurfa reyndar allir að prófa einu
sinni til en svo leyfum við þeim að ráða
sér mikið sjálf. Það er líka einu sinni
þannig að krakkarnir hafa nánast und-
antekningarlaust svo gaman að þessu
að þau vilja helst fátt annað gera en að
sinna bústörfunum. Þau gefa sér jafnvel
varla tíma til þess að leika sér.“
Ninukot hefur verið starfrækt tvö
síðustu sumur þannig að sumarið í ár
er það þriðja. Þangað koma bæði ís-
lensk og enskumælandi börn. Þau
ensku aðallega frá herstöðinni í Kefla-
vík. Ensku og íslensku krakkarnir eru
Tvenns konar æska. Þessi börn hafa
líklega aldrei séð hamborgara i þessu
formi áður.
á mismunandi tímum, hóparnir eru
ekki blandaðir, og helsti munurinn á
starfinu er sá að þau ensku dveljast
lengur og fara líka í ferðir út fyrir búð-
irnar, í byggðasafnið i Skógum, Þórs-
mörk o.s.frv. „Þar er líka um að ræða
nk. landkynningu," segir Svanborg, „en
einnig er aðeins farið að kynna mig er-
lendis. Þetta tekur allt saman sinn
tíma, að kynna sig og byggja sig upp.
Maður þarf bara að halda velli á með-
an.“
Svanborg býður einnig upp á fondur
úr hinum ýmsu hráefnum og hvert
barn plantar sínu tré sem það svo á og
getur komið að skoða síðar. Markmið
búðanna er að tengja saman nám og
leik og það er að minnsta kosti öruggt
að börnin koma frá Nínukoti fróðari en
áður um sveitina og skepnurnar sem
hana byggja.
-fv
Örn Ævarsson segir veiöi í Ölf-
usá vel þess virði að prófa -
stórlaxavon og möguleiki á
góðum feng fyrir allt niöur í
2000 kr. Hér er hann með fal-
lega laxa úr Ölfusá.
Ölfusá:
Veitt upp í leyfið
„Við erum með veiði í Ölfusá
fyrir landi Selfoss, eða Hellis og
Fossness. Það er fyrir neðan brú,
eða „á Paliinum", eins og sagt er
og menn verða nú varir við þeg-
ar þeir keyra gegnum Selfoss,"
segir Öm Grétarsson hjá Stanga-
veiðifélagi Selfoss. „Þetta er mjög
vinsæll staður og var sérstaklega
vinsæll hjá Reykvíkingum áður
fyrr. Svo erum við með veiði hjá
Laugarbökkum, en þar er þokka-
legasti skúr til þess að dvelja í, og
i Soginu við Alviðru. Þetta er allt
laxveiði og hún er mjög ódýr mið-
að við það sem gengur og gerist í
bransanum, eöa frá 2.200 kr. upp
í 10.900 kr. Dýrasti tíminn er í
Soginu í lok júh og út ágúst en
þeir dagar eru flestallir famir.
Við erum einnig með Snæfoks-
staði við Hvítá og Hlíðarvatn í
Selvogi.“
Örn segir, öfugt við það sem
margir halda, vel hægt og engum
vandkvæðum bundið að veiða á
flugu víðast hvar á þessu svæði
og nefnir sem dæmi svæði tvö og
þrjú í Ölfusá og Laugarbakka þar
sem Hvítá og Sogið hafa ekki enn
blandast og veitt er í vatnaskil-
um.
Öm segir svæði Stangaveiðifé-
lags Selfoss vera mjög góð að því
leyti að þar geta menn lent 1
dúndurveiði án þess að borga fyr-
ir okurverð: „Þetta er auðvitað
dagaskipt. Stundum era menn
heppnir, stundum ekki. Suma
daga veiðist ekkert en aðra daga
getur verið fullt að gerast og
menn geta fengið fjóra til fimm
laxa yfir daginn fyrir tvö þúsund
kall. Það er hér um bil að menn
geti veitt upp í veiðileyfið sem er
orðið frekar sjaldgæft í dag!“ -fv
éi$ apótek
Opið:
Virka daga kl. 9-18
Lágt verð, góð þjónusta.
Lyfjaútibú: Eyrarbakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn.