Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Síða 20
38 Suðuriand
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
Barátta fyrir bættum
samgöngum
- Ölfushreppur vill fá veg með suðurströndinni
Ölfushreppur nær frá Herdísarvík
í vestri að Ölfusá í austri og að Litlu
kafTistofunni í norðri. Stærsti og eini
þéttbýliskjarninn í hreppnum er Þor-
lákshöfn með 1222 íbúa, eða um 80%
af 1562 íbúum hreppsins. Guðmundur
Hermannsson er sveitarstjóri Ölfus-
hrepps. Hann var inntur eftir því
hvað væri á seyði í Þorlákshöfn: „í
Þorlákshöfn er eina höfnin við suður-
ströndina, eða á svæðinu frá Horna-
firði til Reykjavíkur, og því lætur
nærri að aðalatvinnustarfsemin í
bænum tengist höfninni. Hér eru rek-
in tvö stór fiskiðjufyrirtæki, Vinnslu-
stöðin og Árnes, auk þess sem héðan
er flutt úr mikið af vikri og jarðefn-
um. Sá útflutningur fer upp í allt að
200 þús. m3 þegar mest verður. Sökum
hafnleysis annars staðar við suður-
ströndina hefur Þorlákshöfn í aukn-
um mæli orðið viðkomustaður leigu-
skipa sem sigla milli hafna með hinar
ýmsu vörur, t.d. áburð o.þ.h.“
Þó að fískiðja og þjónusta, tengd
höfninni, séu fyrirferðarmesta aðalat-
vinnustarfsemin í Þorlákshöfn hefur
verslun og þjónusta farið vaxandi síð-
ustu ár. Og í Þorlákshöfn eru öll skil-
yrði fyrir blómlega byggð. Þar er stórt
og nýlegt íþróttahús, byggt 1990, og
sundlaug. Einnig vinnur bærinn nú
að því hörðum höndum að koma upp
golfvelli á 7000 hektara sandsvæði ná-
lægt bænum. Þar hefur uppgræðsla
verið stunduð í fjölda ára með góðum
árangri og nú er kominn níu hola golf-
Guðmundi Hermannssyni, sveitarstjóra
Ölfushrepps, finnst einkennilegt að íbú-
ar Suðurlands og Reykjaness skuli
þurfa aö leggja lykkju á leiö sína til þess
að komast á milli þessara svæða.
vöfíur þar sem áður var örfoka land.
Bæjaryfirvöld hafa ekki látið staðar
numið heldur er stefnan sett á fullt
hús, eða 18 holur áður en yfir lýkur:
„Völlurinn heitir Þorláksvöllur og
verður 18 holur þegar framkvæmdum
er lokið. Þetta er svokallaður sand-
holuvöllur, gerður á sandi, en það
þykir „créme de la crérne" í golfinu.
Til dæmis eru vellimir í Skotlandi,
þeir bestu a.m.k., sandholuvellir,"
segir Guðmundur.
Ströndin verður útivist-
arsvæði
„Einnig er i undirbúningi að koma
upp útivistarsvæði, tengdu golfvell-
inum og flörunni þarna í nágrenninu
sem er 10 kílómetra samfelldur ægi-
sandur. Hún er breið og vel fallin til
hvers kyns íþróttaiðkana, siglinga og
seglbretta á sjónum en gönguferða og
hlaupa í fjörunni sjálfri. Mér hefur
verið sagt að langhlaupurum og
keppnisfólki þyki fjaran kjörin til æf-
inga vegna þess hve mjúk hún er und-
ir fótinn, sérstaklega þegar fellur út.
Á hverju ári er hlaupið svokallað
fjöruhlaup, 10 km, og endað við
íþróttahúsið."
Vilja ekki fara til
Reykjavíkur
Þorlákshöfn og Ölfushreppur hafa
ásamt Grindavíkurkaupstað barist
fyrir því lengi að fá svokallaðan. Suð-
urstrandarveg eftir suðurströndinni á
milli staðanna. Guðmundur útskýrir:
„Þetta væri til geysilegrar hagræðing-
ar fyrir íbúa Suðurlands annars vegar
og íbúa Reykjaness hins vegar. Vegru-
inn myndi tengja saman þessa tvo
landshluta og fólk þyrfti ekki að
leggja iykkju á leið sína til Reykjavík-
vu til þess að komast þarna á milli.
Þetta myndi stytta leiðina um 30 til 40
kílómetra og verða til mikillar hag-
ræðingar. Byggðastofnun er að vinna
að skýrslu um þetta mál sem verður
birt von bráðar og við búumst fastlega
við að eftir það komist loks skriður á
málin.“ -fv
„Draumurinn að rætast" - eitt húsa Heimis í byggingu.
Þorlákshöfn:
Ekki bara sumarbústaðir
íslenski draumurinn er eitthvað
á þessa leið: Eðalvagn, glæsihýsi,
sandur af seðlum og sumarbústað-
ur. í Þorlákshöfn vinnur maður
við að uppfylla þvílíka drauma,
a.m.k. að hluta. „Ég er búinn að
vera að byggja þessa sumarbú-
staði í tíu - tólf ár,“ segir Heimir
Guðmundsson, húsasmíðameist-
ari í Þorlákshöfn. „Aðallega fyrir
starfsmannafélögin en eitthvað
hef ég byggt fyrir einkaaðila líka.
Þetta eru stór og mikil hús, byggð
á stálgrind. Ég byggi þau í Þor-
lákshöfn og flyt þau svo þangað
sem þau eiga að standa, mikið upp
í Biskupstungurnar. Bæði eru
starfsmannafélögin búin að fá sér
lóðir sjálf og einnig er ég með lóð-
ir sem ég úthluta fólki ef það vill.“
Hús Heimis eru traustlega
byggð og að sögn hans nánast eins
og um íbúðarhús sé að ræða: „
Flestir sumarbústaðir eru byggðir
á staurum en við byggjum þá á
steyptum grunni. Enda er orðið
„sumarbústaður" hálfúrelt ef mað-
ur hugsar út í það. Fólk dvelur
þarna lengur eða skemur alian
ársins hring, ekki síður á veturna.
Og bústaðirnir mínir þola það al-
... og hér er húsið fullklárað, kom-
iö í sitt rétta umhverfi og stoltur
smiöurinn, Heimir Guðmunds-
son, stendur á veröndinni.
veg. Ég á sjálfur bústað í Biskupst-
ungunum og það er hending ef
maður sleppir úr helgi. Það mætti
kalla þetta heilsárshús."
Húsin eru frá 54 m2 upp í 70 m2,
með verönd upp á 90 m2 og heitum
potti að sjálfsögðu - gert er ráð
fyrir öllum mögulegum þægind-
um.
Heimir hefur byggt nokkuð
marga bústaði í gegnum tíðina:
„Ég held að það séu komnir eitt-
hvað um fjórtán stórir og svo
nokkrir minni líka. En ég er aðal-
lega i því að byggja þessa stóru -
mér finnst það skemmtilegast."
-fv
SET vatnsrör úr PE og PP
efni eru framleidd í öllum
víddum frá 16 til 500 mm að
þvermáli. Rörin henta vel í
vatnsveitur, hitaveitur, snjó-
bræðslu, ræsi o.fl.
Röraverksmiðja SET á
Selfossi hefur yfir að ráða
fullkomnustu tækni sem
völ er á við framleiðslu á
plaströrum og leggur
áherslu á vöruvöndun og
góða þjónustu við íslenska
lagnamarkaðinn.
SET ehf. Eyravegur 41-45, 800 Selfoss