Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Blaðsíða 40
^rVinningstölur laugardaginn:
■ 9^2 '23 (35
03
> O
Q
qO
20
Q
s Lf3
<
oo o
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998
Arnór Guðjohn-
sen.
Arnór Guðjohnsen:
Gott fyrir ís-
lenska knatt-
spyrnu
„Þetta er auðvitað gott fyrir Þórð
i3qe; íslenska knattspyrnu í heildina.
porður er mjög góður leikmaður og
hefur vaxið mjög að
undanfórnu. Ég
man þegar þjálfari
Lokeren hringdi í
mig fyrir nokkrum
árum og spurði mig
um Þórð. Þá sagði
ég þjálfaranum að
kaupa þennan leik-
mann strax, sem
hann og gerði. Verð-
lagning á knatt-
spyrnumönnum hefur rokið upp að
undanfómu og í dag eru margir leik-
menn verðlagðir á ótrúlega háar upp-
hæðir,“ segir Arnór Guðjohnsen,
knattspyrnumaður, aðspurður um
'íilfs milljarðs króna verðlagningu á
Þórð Guðjónsson. -RR
Dauðaslys á
Hólmavík
18 ára piltur lést i umferðarslysi á
Hólmavík í gærmorgun.
Pilturinn ók bifreið ölvaður um bæ-
inn um klukkan 5 um morguninn.
Lögregla fékk tilkynningu um það og
einnig i hvaða átt hann hefði ekið.
, -^ögreglan kom skömmu síðar á slys-
staðinn. Þar hafði bifreiðinni verið
ekið á vigtarhús við höfnina í Hólma-
vík. Ökumaður reyndist þá látinn en
18 ára stúlka, sem var farþegi í bif-
reiðinni, slapp lítið meidd. Hún var í
bílbelti en ökumaður ekki. Ekki er
hægt að greina frá nafni hins látna að
sVo stöddu. -RR
Piltar í Hveragerði:
Börðu mann með
hafnaboltakylfu
38 ára maður varð fyrir hrotta-
legri árás í Hveragerði í fyrrakvöld.
Tveir piltar, 16 og 19 ára, réðust á
vfaianninn með hafnaboltakylfu á
heimili hans í bænum um hálfell-
efuleytið um kvöldið. Eiginkona
mannsins var einnig heima og varð
hún vitni að árásinni. Manninum
tókst að komast út úr húsinu og
flúði inn í sölutum en árásarmenn-
irnir eltu hann þangað. Piltamir
börðu manninn með kylfunni.
Lögregla kom að skömmu síðar
og voru árásarmennirnir handtekn-
ir á staðnum. Þeir voru enn í haldi
lögreglu í gærkvöld. Samkvæmt
heimildum DV virðist sem piltamir
hafi átt eitthvað óuppgert við mann-
inn. Annar piltanna hefur komið
við sögu lögreglu áður. Fórnarlamb-
ið hlaut talsverða áverka og var
gtút til læknis. Áverkarnir eru þó
ekki taldir alvarlegir. -RR
Yfir 500 manns mættu á fund þar sem til kynningar var amerískt fyrirtæki sem mun selja úða sem á að bæta flestra böl. í kynningarplöggum segir að
úðinn lækni höfuðverk, hálsbólgu, stress og fleira á örfáum mínútum. Flestir fundarmanna eru þegar aðilar að félaginu. Nánar á bls. 2. DV-mynd ÞÖK
Forsætisráðherra vill dreifða eignaraðild í sjávarútvegi:
Erfitt að skikka menn
- taka verður tillit til eignarréttar, segir Kristján Ragnarsson hjá LÍÚ
„Ég á erfitt með að ímynda mér að
hægt sé að skikka menn til þess að
fara á hlutabréfamarkað. Fjölskyldu-
fyrirtækin eru i mínum huga kjami
útgerðarinnar, enda hvað mestur fyr-
irmyndarrekstur á ferðinni. í minni
útgerðarfyrirtækjum hugsar fólk vel
um sitt og ætlar sér ekki greiðslu fyr-
ir hvert viðvik sem það innir af
hendi. Ég er á þeirri skoðun að for-
sætisráðherra sé heldur ekki að tala
um þessi fyrirtæki því hann nefnir
stór og meðalstór fyrirtæki," segir
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ,
um hugmyndir Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra um að rikisvaldið beiti
sér fyrir þvi að almenningur eignist
hlut í útgerðarfyrirtækjum.
Tillögur Davíðs gera ráð fyrir því
að sátt náist um kvótakerfið með því
að almenningi verði gert kleift að
eignast hlut í útgerðarfyrirtækjum.
„Eignaraðild útgerðarfyrirtækja hef-
ur tekið miklum breytingum síðustu
ár og koma allt að 70 þúsund manns
að sumum þeirra þar sem meðtaldir
eru lífeyriseigendur og hlutabréfa-
sjóðir. Þannig hefur þróunin verið og
ef þetta er sáttaleið í þeim deilum sem
hafa staðið um kvótakerfið þá finnst
Sighvatur
Björgvinsson.
mér allt skoðandi i
þeim efnum," segir
Kristján.
Forsætisráð-
herra leggur
áherslu á að sam-
staða verði að nást
um dreifða eignar-
aðild í sjávarút-
vegi. Hann segir þó
jafnframt koma til
greina að binda
kvótaúthlutun því
að útgerðarfyrir-
tæki fari á almenn-
an hlutabréfamark-
að.
Aðspurður um
þessa leið segir
Kristján Ragnars-
son: „Ég á erfitt
með að sjá þetta
fyrir mér sem ein-
hverja skyldu. Þeg-
ar forsætisráðherra talar um að skil-
yrða kvótaúthlutun í því sambandi þá
finnst mér eignarrétturinn fyrir borð
borinn. Þetta eru samt atriði sem vert
er að skoða og við viljum ekki hafna
neinu að svo stöddu. Ég get þó ekki
Kristján
arsson.
Ragn-
svarað fyrir einstaklinga sem eiga sín
fyrirtæki."
Óljósar hugmyndir
Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins, segir hugmyndir for-
sætisráðherra afar óljósar. „Það eru
afar fá útgerðarfyrirtæki á hlutabréfa-
markaði enda útgerðin mikið til rekin
af einstaklingum. Ég átta mig ekki á
hvað forsætisráðherra ætlar að gera
við einyrkjana og ég sé heldur ekki að
það sé hægt að skipa mönnum að selja
undir markaðsverði. Þá veltir maður
fyrir sér hvemig fólk verður skattlagt
því það er alveg ljóst að ef maður
kaupir hlutabréf undir markaðsverði
og selur með hagnaði þá þarf hann að
borga skatt af mismuninum. Forsætis-
ráðherra hefur ekki útskýrt hvernig
það mál verður leyst. Ætlar hann
kannski að hafa mismunandi skatt-
meðferð eftir því hvort menn kaupa
hlutabréf í sjávarútvegsfyrirtæki eða
einhverju öðru fyrirtæki? Enn sem
komið er þykja mér hugmyndir for-
sætisráðherra afskaplega óljósar en
það er sjáifsagt að skoða þær nánar,“
segir Sighvatur Björgvinsson. -aþ
Davíð Oddsson ávarpaði málþing SUS um helgina og kynnti meðal annars
hugmyndir sínar um hvernig dreifa megi eignaraðild í sjávarútvegi og þar
með ná sátt um sjávarútveginn. DV-mynd Hari
Veðrið á morgun:
Rigning um
mestallt
land
Blautt verður á landinu á
morgun. Spáð er sunnanátt með
kalda eða stinningskalda með
rigningu um mestallt land, þó
síst norðanlands. Hiti verður 8
til 15 stig. Hlýjast verður á Norð-
urlandi.
Veðriö í dag er á bls. 45.
^SUBUIAV*
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-220 ný véi
(slenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stæröir
6, 9, 12,18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeitts kr. 10.925
n
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport