Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998 40 íþróttir unglinga Ylfa Jónsdóttir í FH: „Æðislegt sumar £á Ylfa Jónsdóttir er 14 ára og í öjálsum hjá FH. Ár- angur hennar vakti mikla athygli í sumar. Hún setti 2 meyjamet auk þess sem hún var í boðhlaupssveit hjá FH sem setti 2 met. Ylfa segir að ferðin meö U-20 ára landsliðinu á unglingalandskeppni Norðurlanda sé eftirminnilegast. Af metunum stendur upp úr það sem hún setti í 400 metra grindahlaupinu i bikar- keppninni í haust Metið bætti hún um rúmar 2 sek- úndur en það var orðið 15 ára gamalt. Hún er nú end- umærð eftir gott frí og tilbúin aö takast á viö undir- búning fyrir næsta sumar. Hún segir góðan félags- skap og það aö sjá framfarimar heilla mest við að vera i frjálsum íþróttum en það var fyrir forvitni sak- ir að hún fór af stað. Þetta var æöislegt sumar og afar eftirminnilegt. (0 E 3 ifí ■3 £ I Ingi Sturla Þórisson í FH: Hvetjandi árangur Ingi Sturla Þórisson er 16 ára Hafnfirðingur og í sumar setti hann setti meðal annars glæsilegt ís- landsmet sveina í 300 metra grindahlaupi. Ingi segist vera í frjáisum mest út af félagsskapnum en bendir á vissan kost við það að æfa frjálsar sem felst í því að fá að æfa með stelpunum. Hann seg- ir metið vera hápunktinn í sumar en lika hafi verið mjög gaman að fá smjörþefmn af þeim stóm þegar hann var varamaður FH í bikarkeppninni og svo að vinna með FH meistaramót sveina, 16 ára og yngri. Ingi segir að sumarið hafi verið mjög gott hjá sér. Hann sé rosalega ánægður og árangurinn sem náðist sé hvetjandi þegar farið er aftur að byggja sig upp fyrir næsta sumar. Hugs- unin um bætingamar hvetji hann þannig áfram við erfiðar æfrngar. Eftirminnilegt frjálsíþróttasumar: Islands- met í ár Frjálsíþróttasumarið 1998 verður eflaust lengi í minnum haft. Auk frábærrar frammistöðu Jóns Am- ars Magnússonar, Völu Flosadóttur og Guðrúnar Amardóttur og fleiri meðal fullorðinna fóru unglingam- ir líka mikinn í að setja met og stóðu sig margir frábærlega. Alls vom sett hvorki fleiri né færri en 63 íslandsmet í yngri aldursflokkum í sumar og það er ljóst að frjálsar íþróttir em sú grein sem er á hvað mestri uppleið hér á landi. Það er því ekki óvitlaust að líta yfir sumar- ið og rifja upp þann frábæra ár- angur sem hið unga íslenska frjálsí- þróttafólk náði í sumar. 29 af 63 íslandsmetum voru met hjá FH-ingum FH átti langflest metin meðal ein- stakra félaga í sumar, eða 29. 18 þeirra komu hjá stúikum, þar af 13 í telpnaflokki. UMSS átti heiðurinn af 10 metum í karlaflokki, eða næst- flestum, einu á eftir Hafnfirðingum. ÍR átti næstflest met í heildina, eða 12. 8 af þeim komu hjá strákunum. 12 íslandsmet á einu sumri 14 ára stúlka úr Hafnarfirði, Sig- rún Fjeldsted Sveinsdóttir, ætti að eiga mjög góðar minningar frá sumrinu 1998. Hún setti alls 12 met í þremur kastgrein- um: kúluvarpi, spjótkasti og sleggjukasti. I sleggjukasti og spjót- kasti setti hún met bæði með þyngra og léttara áhaldi og á hún því fimm standandi íslandsmet eftir sumarið eða flest allra. Sveinn með íslandsmet I flestum greinum Sveinn Margeirsson frá Mæli- fellsá í Skagafirði var áberandi í metsöfnun í sumar og bætti íslands- met í flestum greinum, eða fjórum. Metin seti hann í 3000 m, 5000 m, 10000 m og 3000 m hindrunarhlaupi. Hann er líklegur til að ríkja í lang- hlaupum hér á landi á næstu árum. Bróðir hans, Bjöm Margeirsson, er einnig mjög öflugur og voru þeir fé- lagar í sveit UMSS sem setti met í 4 x800 metra boðhlaupi í sumar. Metagreinin í ár í einni greininni í sumar voru sett mörg met, í 300 metra grinda- hlaupi. 6 met vora sett í fimm af þeim níu aldurshópum sem keppt var í. Metin fimm voru sett í stúlknaflokki, sveinaflokki, meyja- flokki, piltaflokki og strákaflokki. Kastgreinar voru áberandi Flest metin voru sett í kastgrein- FH-ingar áttu langflest þeirra, eða 29 um, eða 27 af metunum 63. 12 voru sett í stökkum og 10 í spretthlaup- um. Þá voru sjö met sett í boðhlaup- um, 4 í langhlaupum og þrjú í þraut- um. Mikill uppgangur er í kast- greinum eins og sjá má hjá stórefni- legum kösturum eins og þeim Jóni Ásgrímssyni og Sigrúnu Fjeldsted hjá FH. Stuðningur mikilvægur Nú hefúr þetta unga og skemmti- lega frjálsíþróttafólk sannað ágæti Islandsmet félaga ÍR .........................12 UMSS .......................10 Ármann ......................4 UFA .........................3 Fiölnir .....................2 UMSB...................... .2 Breiðablik...................1 sitt og nú þarf það stuðning frá okk- ur til að halda áfram á beinni braut. Aðstæður hafa þó gjörbreyst hjá mörgum félögum og þarf ekki að líta á annað en árangur í framhaldi af hinu nýja og glæsilega svæði FH þar sem flest metin komu. Enn og aftur sannast það að mörgum góðum hlutum er hægt að ná með dugnaði og hjálp góðra vina. Þetta metasumar er því kall þessa unga og mjög svo frambærilega fólks á að það fái þann stuðning í næstu framtíð. -ÓÓJ Fyrirgefðu, Sigur- laug Rangt var fariö meö nafn Sigur- iaugar Soffíu Friðþjófsdóttur á ungiingasíðu á þriðjudag og er beðist vel- virðingar á því. Aldursflokka - íslandsmet 1998 Unglineaflokkur karla (12) Svelnn Margeirsson, UMSS .... 5 3000 m hlaup.............. 8:22,65 mln. 5000 m hlaup..............14:43,31 mín. 10000 m hlaup............31:21,48 mín. 3000 m hindrunarhl. . . . 9:05,85 mín. Einar Karl Hjartarson, ÍR.......2 Hástökk (2)................2,18 m Jón Ásgrímsson, FH ..............5 Spjótkast (5) ........... 72,47 m Sveit UMSS......................1 4x800 m boðhlaup............7:58,65 (Sveinn Solvason, Bjöm Jónsson, Sveim Margeirsson, Bjöm Margeirsson) Unglingqflokkur kvenna (4) Vala Flosadóttir, ÍR ............3 Stangarstökk (3)...........4,36 m Guðleif Harðardóttir, ÍR........1 Sleggjukast ..............41,46 m Drengir, 17 til 18 ára (9) Sigurður Karlsson, UMSS.........5 Spjótkast (2) ............61,83 m Stangarstökk...............4,01 m Tugþraut................. 6553 stig Tugþraut, drengjaáhöld . . . 6843 stig Einar Karl Hjartarson, ÍR.......2 Hástökk (2)................2,18 m Óðinn Björn Þorsteinsson, ÍR . . 2 Kringlukast, 1,75 kg..... 50,55 m Kringlukast, 2 kg........ 50,56 m Stúlkur, 17 til 18 ára (3) Silja Úlfarsdóttir, FH .........1 300 m grindahlaup ......44,61 sek. Sveit FH .......................2 4x200 m boðhlaup .... 1:47,99 mín 4x400 m boðhlaup .... 4:00,39 min (Silja Úyarsdóttir, Eva Rós Stefánsdóttir, Hilda G. Svavarsdóttir, Yifa Jónsdóttir) Sveinar, 15 til 16 ára (9) Vigfús Dan Sigurðsson, ÍR .... 2 Sleggjukast, 7,26 kg...... 36,63 m Sleggjukast, 4 kg......... 52,93 m ívar öm Indriðason, Ármanni . 2 400 m hlaup ............51,18 sek. 300 m grindahl. . . 40,02 sek. (slegið) Ingi Sturla Þórisson, FH........1 300 m grindahl.............. 39,98 sek. Jónas Hlynur Hallgrimsson, FH 1 Tugþraut ................ 5508 stig Sveit FH ........................3 4x100 m boðhlaup............ 46,43 sek. (Ingi Sturla Þórisson, Óttar Jónsson, Björgvin Vikingsson, Egill Atlason) 4 x 800 m boðhlaup .... 8:35,50 mín (Jón Kristinn Waagfjöró, Daói Rúnar Jónsson, Björgvin Wdngsson, Ásgeir Helgi Magnússon) 1000 m boðhlaup....... 2:07,50 min. (Ingi Sturla Þórisson, Daði Rúnar Jónsson, Björgvin VUtingsson, Egill Atlason) Meviar, 15 til 16 ára (2) Ylfa Jónsdótdr, FH...............2 300 m grindahlaup........ 45,50 sek. 400 m grindahlaup........64,13 sek. Piltar, 13 til 14 ára (5) Amór Sigmarsson, UFA ............3 80 m grindahlaup (2) .... 11,84 sek. Langstökk.....................6,11 m Ólafur Dan Hreinsson, Fjölni . . 2 300 m grindahlaup ..... 45,35 sek. Stangarstökk..................3,03 m Telvur, 13 til 14 ára (17) Sigrún Fjeldsted, FH...........12 Spjótkast, 600 g (4)....... 44,20 m Spjótkast, 400 g (3)......48,11 m Sleggjukast, 4 kg (3).... 27,44 m Sleggjukast, 3 kg ....... 33,56 m Kúluvarp, 3 kg ...........11,22 m Hallbera Eiríksdóttir, UMSB ... 2 Kringlukast, 600 g (2) 35,05m (slegið) Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni . . 1 Kringlukast, 600 g....... 35,69 m íris Svavarsdóttir, FH..........1 Hástökk ...................1,65 m Anna Heiða Gunnarsd., Árm. . . 1 Stangarstökk..................2,10 m Strákar, 12 ára og vneri (2) Óli Tómas Freysson, FH..........1 300 m grindahlaup........ 52,57 sek. Sveit Breiðabliks...............1 1000 m boðhlaup.......2:42,10 mín. (Magnús V. Gíslason, Sigúrjón Böðvarsson, Helgi M. Finnbogason, Stefán Guömundsson) Flest einstaklinesmet Sigrún Fjeldsted, FH...........12 í telpnaflokki Jón Ásgrímsson, FH ..............5 i unglingaflokki Sigurður Karlsson, UMSS.........5 í drengjaflokki Einar Karl Hjartarson, ÍR.......4 í unglinga- og drengjaflokki Sveinn Margeirsson, UMSS .... 4 í unglingaflokki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.