Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998 Fréttir Þrír starfsmenn Technopromexport vildu ekki fara heim og eru í felum: Hótað öllu illu - mál Rússanna kært til dómstóla, segir Guðmundur Gunnarsson „Þrír Rússanna vildu ekki fara heim, enda ekkert sem biður þeirra þar. Við erum með þá í felum, enda hefur þeim verið hótað öllu illu af Technopromexport. Þeir eru í góðu og öruggu húsaskjóli hér í Reykja- vík. Þeir eru hér á okkar vegrnn og við erum að vinna í því að fá land- vistarleyfi fyrir þá. Við munum hjálpa þeim aö fá vinnu hér ef þeir vilja,“ segir Guðmundur Gunnars- son, formaður Rafiðnaðarsam- bandsins, í samtali við DV í gær- kvöld um mál rússneskra starfs- manna Technopromexport við Búr- fellslínu. Fimm Rússanna voru kaUaðir fyrir fyrr í vikunni og þeim til- kynnt af Technopromexport að þeir yrðu sendir heim til Rúss- lands. Þeim voru afhentir farseðl- ar á laugardagskvöld. Þrír mann- anna tóku ákvörðun, eftir að hafa rætt við aðila innan Raflðnaðar- sambandsins, um að vera áfram á íslandi og sækja þau laun sem þeir eiga rétt á. Tveir Rússanna fóru hins vegar úr landi í gærmorgun þar sem vildu halda sátt við rúss- neska fyrirtækið og fá vinnu hjá því áfram. Niðurlæging Landsvirkjunar „Mér finnst niðurlæging Lands- virkjunar vera mikil. Henni var skipað af félagsmálaráðherra fyr- ir viku aö gera upp laun rúss- nesku starfsmannanna. Það eina sem hún gerir er að senda yfirlýs- ingu um að allt sé i besta lagi þrátt fyrir að við værum búnir að benda ítrekað á að það væri ekk- ert að marka það sem Technopromexport segði. Við höf- um itrekað farið fram á að sjá þessa útreikninga sem við eigum rétt á samkvæmt landslögum en án árangurs. Það er ekki síður vanvirðing við islensk stjómvöld að ráðherra skipar Techno- promexport á fostudag að starfs- menn þess fari ekki úr landi fyrr en gengið hafi verið frá launamál- um þeirra. Fyrirtækið ákveður samt að senda þessa menn heim. Það er alveg ljóst að við mun- um kæra þetta til dómstóla. Mað- ur skyldi ætla að Landsvirkjun standi við að sjá mn greiðslur en ef ekki þá mun hún svara fyrir það hjá dómstólum," segir Guð- mundur. -RR Alzheimer í álverum: Alið er ekki sökudólgur - segir trúnaöarlæknir í Straumsvík „Menn héldu fyrir tiu árum að eitthvert samband væri á milli inn- töku á áli í drykkjarvatni og alzheimer. En það hefur dregiö úr þeim mnræðum, menn horfa ekki mikið á álið sem orsök þessa sjúk- dóms,“ sagði Andrés Sigvaldason læknir, sérfræðingur í lungnasjúk- dómum. Hann segir að ál sé að fmna í vatni, grænmeti, tei og hvitu magamixtúruimi sem nútímamað- urinn notar í miklum mæli. Alúm- iníum er þriðja algengasta frumefn- ið i jarðskorpunni og er víða að finna og menn neyta þess með fæð- unni daglega. „Það er afar ólíklegt að þeir sem eru að vinna með þetta efni fái frek- ar alzheimer en aðrir menn. Ég hef ekki séð þessa frönsku rannsókn og get því ekki úttalað mig um hana sérstaklega. En almennt hefur þetta ekki verið talið vandamál hjá starfs- mönnum álvera,“ sagði Andrés. Læknirinn sagði að heilbrigðisá- stand starfsfólks ísals væri svipað og annars staðar í þjóðfélaginu. Einn sértækur sjúkdómur er þar þó tíðari, asmalík einkenni sem hafa komið upp bæði hér á landi og í er- lendum álverum. Reynt er með öllu móti að koma í veg fyrir að ryk og önnur efni komist í lungu fólks. Komi upp veikindi er reynt að verja fólk með grímum eða að færa það til í starfi. -JBP Talsvert tjón varö á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík þegar sjór rann inn í kjallara hússins í gærmorgun. Sérstakar dælur hafa verið f húsinu sem sjá um að dæla út vatni ef það rennur inn í kjallarann en einhverra hluta vegna varð rafmagnsbilun í húsinu og dælurnar fóru þvf ekki í gang. Slökkvilið vann að því í gær að dæla út vatni og hreinsa til. DV-mynd S Sumri er tekið að halla og eitt merki þess er næturfrost eins og verið hefur á Norðurlandi. Bíleigendur á Akureyri hafa t.d. þurft að skafa af rúðum bíla sinna áður en þeir hafa haldið til vinnu á morgnana eins og þessi bíleigandi sem virtist þó ekki taka það mjög nærri sér. DV-mynd gk. Ellefu kennarar í Hvolsskóla segja upp: Stefnir í kennaraskort - ef launakjörin verða ekki bætt Fangelsisdómur I fíkniefnmáli Hæstiréttur staöfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Theodóri Emil Pantazis. Hann var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir innflutning á um 200 grömmum af hassi til landsins. Ákærði áfrýjaöi málinu til Hæstaréttar. Hann fór fram á að refsing yrði milduð og bundin skil- orði en ákæruvaldiö fór fram á þyngri refsingu. Ákæröi rauf skil- orðsbundna reynslulausn sem hann fékk árið 1996. Reynslulausn sú tók til refsingar, sem ákærði tók út hér á landi samkvæmt dómi, sem kveöinn var upp í Hæstarétti í Svíþjóð. Ákærði hlaut þá fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt fikni- efnabrot. Ákæröi var einnig dæmdur til að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins fyrir Hæstarétti. -RR „Það er mikil óánægja meðal kennara með launakjörin og fyrir átta mánuðum fórum við fram á viðræður við skólayfirvöld um þau mál. Þeim viðræðum var hafn- að og okkur tjáð að þau væru ekki tilbúin að ræða við okkur. Okkur bárust hins vegar skilaboö um að skólayfirvöld væru reiðubúin að koma til móts við okkur með því að bæta vinnuaðstöðuna. Um það er auðvitað allt gott að segja en það dugar bara ekki til þegar kennarar lifa ekki lengur af laun- unum sínurn," segir Anna Fr. Halldórsdóttir en hún hefur ásamt tíu öðrum kennurum sagt upp störfum við Hvolsskóla. Alls starfa 18 kennarar við skólann sem er með tæplega tvö hundruð nemend- ur. Að sögn Önnu eru kennarar orðnir langþreyttir á ástandinu og ef ekkert verður að gert reikn- ar hún með að margir snúi til annarra starfa um áramótin þeg- ar uppsagnirnar taka gildi. „Mér hefur alltaf líkað kennarastarfið vel en eins og staðan er nú í kjaramálum er ég ekki lengur viss um ég geti haldið áfram,“ segir Anna. Formaður skólanefndar, Jón Gunnar Jónsson, segir uppsagn- imar hafa komið nokkuð á óvart þar sem kjarasamningar séu í fullu gildi. „Þessi mál eru í ákveðnum farvegi en við vitum ekki nákvæmlega hvað kennarar eru að fara fram á. Við ætlum að boða til viðræðna um þessi mál um næstu helgi og þá sjáum við betur hver staðan er,“ segir Jón Girnnar. Eggert Haukdal, oddviti Vestur- Landeyjahrepps, segir stöðuna vissulega alvarlega. „Það verður að taka á þessu máli og afstýra því að umræddir kennarar gangi út um áramótin. Það hjýtur að vera stóra málið í dag að finna viðunandi lausn fyrir báða aðila," segir Eggert. -aþ Stuttar fréttir r»v í 4. sæti í London Gunnar Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnúsdóttir náðu þeim ágæta ár- angri aö kom- ast í fjórða sæti í suður-amer- ískum dönsum á London Open á laugardaginn. Þau keppa í ald- urshópnum 12-15 ára. Þetta er sterk keppni þar sem 85 pör hófu leikinn. Þau komust einnig í 12 para undan- úrslit í standarddönsum. Skemmst er aö minnast að þau Gunnar Hrafn og Sigrún Ýr urðu í 5. sæti í samanlögðum ár- angri í alþjóðlegri keppni í Dan- mörku. Fann sprengju og týndi Þegar Páll Sigurðsson, bóndi í Sauðhaga á Völlum, var að smala fé í fyrri viku gekk hann fram á sprengju, að öllum lík- indum úr fallbyssu. Páll merkti staðinn og lét lögregluna á Egils- stöðum vita. Lögreglumaður fór með honum á svæðið en þá fór ekki betur en svo að sprengjan fannst ekki. PáU segir að að öll- um líkindum hafi hann ekki merkt staðinn nógu vel en segist þekkja svæðið og ætla að glöggva sig á staðháttum áður en hann fer aftur með lögregl- unni í sprengjuleitina. Austur- land greindi frá. Ný útvarpsstöð Ný útvarpsstöð hefur hafið starfsemi. Nefnist hún Nær og sendir á FM-tíðninni 104,5. Það er fyrirtækið Almiðlun, útgef- andi Fjarðarpóstsins, sem rekur stööina og er henni ætlað að verða eins konar grenndarút- varp höfuðborgarsvæðisins. Mim verða sent út meðal annars frá fundum borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórn Kópavogs. Til að byrja með verð- ur samt aðalefni stöðvarinnar tónlist ásamt umfjöllun um menningar- og félagslíf. Ómar forstjóri Utanríkisráðherra hefur sett Ómar Kristjánsson, fyrrverandi framkvæmda- stjóra og aðal- eiganda Þýsk- íslenska hf. og Metró hf., í stöðu forstjóra Flugstöðvar Leifs Eiríksson- ar. Ómar hefur frá því í byrjun síðasta árs verið framkvæmdastjóri markaðs- og kynningarsviðs Flugmálastjórn- ar á Keflavíkurvelli. Er um að ræða hluta af starfi sem fráfar- andi flugvallarstjóri, Pétur Guö- mundsson, gegndi. Bæklingur um skólakerfiö Menntamálaráöuneytið hefur gefið út á íslensku, dönsku og ensku myndarlegan bækling þar sem er að finna helstu stað- reyndir um íslenska skólakerfið. Hámarkshraði aukinn Sýslumaðurinn í Rangárvalla- sýslu hefur óskað eftir því við hreppsyfirvöld á Hellu að bætt verði við merkjum um hraðatak- markanir bæði austan og vestan viö Hellu þar sem hámarks- hraða verði breytt í 70 km/klst. þar sem áður var 50 km/klst. Almenningur eignist hlut Davíð Oddsson forsætisráð- herra vill sátt um sjávarútveg- inn og segir að ríkisvaldið geti beitt sér með formlegum og óformlegum hætti fyrir þvi að almenningur eignist hlut í sjávarútvegs- fýrirtækjum. Hann telur koma til greina að ríkisvaldið bjóði sérstakan afslátt vegna hluta- fiárkaupa. Morgunblaðið greindi frá. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.