Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1998, Page 44
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 TIV
Frumsýning i Regnboganum 16. október.
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Ibridge
Minningarmót um Einar Þorfinnsson:
Ásmundur og Jakob
sigruðu naumiega
Hið árlega minningarmót um
Einar Þorfmnsson var spilað á Sel-
fossi um síðustu helgi. Góð verð-
laun voru í boði og hörð keppni um
verðlaunasætin. Fulltrúar
heimamanna, Kristján M. Gunnars-
son og Helgi G. Helgason, tóku for-
ystu í siðustu umferðunum en Ás-
mundur Pálsson og Jakob Kristins-
son fylgdu fast á eftir. Þegar upp var
staðið höfðu Ásmundur og Jakob
skorað 4 stigum meira og þar með
sigrað.
Umsjón
Stefán
x-1
sen
Röð og stig efstu para var eftirfar-
andi:
1. Ásmundur Pálsson og Jakob
Kristinsson 103
2. Kristján M. Gunnarsson og
Helgi G. Helgason 99
3. Aðalsteinn Jörgensen og Sig-
urður Sverrisson 90
4. Jón Þorvarðarson og Sverrir
Kristinsson 78
5. Kristján Blöndal og Rúnar
Magnússon 60
6. Guðmundur Páll Amarson og
Stefán Guðjohnsen 55
7. Svala Pálsdóttir og Stefanía
Skarphéðinsdóttir 55
Eins og er virðist Ásmundur vera
í áskrift með fyrsta sætið, því hann
vann einnig í fyrra, þá með Sigurði
Sverrissyni.
Strax í fyrsta spili lögðu Ásmund-
ur og Jakob grunninn að sigrinum,
en í því fengu þeir algjöran „guil-
topp“.
N/0
* G72
* 9763
* ÁD862
* D8
* KG9843
* K42
9 103
Með Jakob og Ásmund í a-v
gengu sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
pass 1 * 2» 2 *
3 •* 4 * Ailir pass
Suður gat orðið söguhetja spilsins
ef hann hefði trompað út, en hver
trompar út frá drottningunni og það
í tvímenningi! Norður leiddi hins
vegar asnann inn í herbúðimar
með þriggja hjarta sögn sinni, þrír
tíglar hefðu heppnast betur.
Suður átti sér einskis ills von og
lagði af stað með hjartafjarka. Jak-
ob fékk því fyrsta slaginn á
hjartasjö. Hann opnaði strax fyrir
samgönguleið með því að spila
tígulgosa. Norður drap slaginn,
trompaði út, en það var allt of seint.
Jakob drap á ás, trompaði hjarta,
trompaði tígul, trompaði hjarta og
trompaði tígul. Tók síðan spaða-
kóng og svínaði laufi. Norður fékk á
kónginn, en það var síðasti slagur
varnarinnar. Fimm unnir og algjör
toppur.
Ásmundur Pálsson er með fyrsta
sætið í áskrift.
í helgarblaði Dags
Hverjir eru þessir Konnarar?
Kristján Jó og öll fjölskyldan í helgarblaði Dags.
Askríftarsfminn er 800-7080