Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Síða 5
VJS / QISflH ViJAI
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
5
nottin
HtOIN ,
vb sas
(Mcr fínnst þcssi þék frsþssr.
Jakob Bjarnar Grétarsson / King kong, Bylgjunni
Ámi Þórarinsson: Nóttin hefur þúsund augu
Óvenju skrautlegt morð er tilkynnt á Flugvallarhótelinu og blaðamaðurinn Einar
rifinn timbraður upp úr rúminu til að flytja af því fréttirnar. Um sinn er hann alltaf
fyrstur með fréttirnar en skyndilega renna á hann tvær grímur - kannski er hann
að garfa í málum sem hann hefði betur látið ógert að skipta sér af?
„ . . . nær miklum hraða, hefur húmor og heldur spennunni allt til enda . . . kunnáttu-
samlega matreidd spennusaga með pælingum, skrifuð af lipurð og kaldhæðnu fjöri...
gengur afbragðsvel upp . . . sterkt útspil, svo ekki sé meira sagt.“
Hermann Stefánsson / Morgunblaðiö
„Fyrsti íslenski krimminn sem gengur fullkomlega upp. Mér finnst þessi bók frábær.“
Jakob Bjarnar Grétarsson / King kong, Bylgjunni
Ljóð sem lyfta sálinni
Hallgrímur Helgason: Ljóðmæli
I þessari fyrstu ljóðabók Hallgríms Helgasonar em ljóð frá tuttugu ára skeiði, frá 1978 til 1998.
Hér ægir öllu saman í kraftmikilli uppreisn gegn hreinleikahugmynd nútímaljóðsins. Hann
yrkir hljómfagrar sonettur, spaugilegar ferskeytlur, miklar drápur um þjóðfélagsleg efni, ballöður,
ástarljóð, gamanbragi, harmljóð. Mælskan, sprengikrafturinn, hugkvæmnin, dirfskan og ótrúlegt
valdið á orðlistinni er hér allt í ríkum mæli og óhætt að segja að nýr tónn sé sleginn í íslenskri
ljóðlist — svona hefúr enginn ort áður.
FORLAGIÐ
www.mm.is • sfmi 515 2500
Mál l^í og menning
www.mm.is • Laugavegi 18 s. 515 2500 • Síöumúla 7-9 s. 510 2500
HHpHH Sigurður Palsson: Pansarhjol
Ekt fremsta Ijóðskáld okkar kveður sér nú
raSfe V eftirminnilega hljóðs með fyrstu skáldsögu
sinni. Ungur myndlistarmaður verður fyrir
m mikilli sorg þegar sú manneskja sem stendur
Z honum næst deyr skyndilega. Hann heldur
til Parísar þar sem ótal sérkennilegar persónur
verða á vegi hans. Líkt og í Ijóðum Sigurðar
I er tónninn frjáls og leikandi en undir má
| heyra trega og alvöru. Parísarhjól er töfrandi j
og ljóðræn hringekja. I
„...fúll af seiðmagni, næmu innsæi og skáldlegri myndvísi.“|
Árni óskarsson / Ríkisútvarpið I
„... skemmtileg ... mjög gefandi... meistaralega vel
skrifuð - og henni ber tvímælalaust að skipa á bekk
með ýmsu því besta sem íslenskar fagurbókmenntir
hafaaðbjóða.”
Þorvarðardóttir / DV