Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
Fréttir_________________________________________________________________________________________pv
Borgarstjóri segir eftirspurn eftir leikskólaplássi hafa vaxið langt umfram áætlun:
Biðlistar lengjast
- endurmeta þarf stööuna og leita nýrri leiða fyrir yngri börnin
R-listinn sagði í auglýsingum fyrír
kosningamar í vor aó böndum hefói
verió komió á fjármál borgarinnar,
borgarfulltrúar R-listans vœru stoltir
af því. Skýtur þá ekki skökku við,
hálfu ári síðar, aö hœkka útsvarió úr
11,24% í 11,99% og drena sjóói veitu-
fyrirtœkjanna?
„Það er rétt að við komum bönd-
um á fjármál borgarinnar. Árið 1994
tók reksturinn til sín 97% af skatt-
tekjunum. Nær allar framkvæmdir
1993 og 1994 voru fjármagnaðar með
lántökum. Síðan var tekið á rekstrin-
um þannig að kostnaðurinn við
rekstur borgarinnar var kominn nið-
ur i 83% 1996, fór reyndar upp í 85%
1997, þegar grunnskólinn var færður
til sveitarfélaganna, en er nú að fara
niður í 82% af skatttekjum. Því er
mun meiri afgangur af skatttekjun-
um nú en áður var. En afgangurinn
dugir ekki til þess að standa undir
þeim miklu framkvæmdum sem
blasa við eins og einsetningu skól-
anna, sem á að vera lokið árið 2002,
og uppbyggingu þriggja skóla í Graf-
arvogi. Ég get ekki séð að við getum
komist af með minna en einn millj-
arð í skólabyggingar á ári. Hitt
stóra verkefnið er gatnagerðin og
holræsin. Niðurfærsluna á eigin fé
veitufyritækjanna notuðum við til
að greiða niður skuldir borgar-
sjóðs.“
En þaó eru ekki nýjar
framkvœmdir?
„Nei, en þetta tvennt, gatnakerfið
og grunnskólamir, kosta okkur tæpa
2 milljarða í framkvæmdir á ári, fyrir
utan allar aðrar framkvæmdir sem
ekki er hægt að stöðva. Við þurfum
einfaldlega aukið fé til að geta staðið
undir þessu."
Var þá verið að Ijúga aö kjósend-
um um fjárhagsstöóuna í vor? Hefur
R-listinn brugöist í jjármálastjórn
borgarinnar og er ástandið einfald-
lega slœmt?
„Það er rangt og ósmekklegt að tala
um lygi í þessu sambandi. Við sögð-
um að komið hefði verið böndum á
fjármálin og skuldasöfhun borgar-
sjóðs stöðvuð. Það var gert. Það breyt-
ir hins vegar ekki því að ef við ætlum
að halda áfram að sinna þessum nauð-
synlegu verkefnum verðum við ann-
aðhvort að safna skuldum eða hækka
útsvarið. Þriðja leiðin er að skera
verulega niður í framkvæmdum og
þjónustu. Það bauð enginn upp á slíkt
fyrir kosningar, hvorki við né sjálf-
stæðismenn."
Var Helgi Hjörvar borgarfulltrúi
þá að lofa upp í ermina á sér
þegar hann lofaóifyrir kosningar
aó lœkka álögur
á Reykvíkinga?
„Helgi sagði að gjöldin yrðu lækk-
uð. Þá var hann að vísa til orkugjalda
og holræsagjaldsins. Ég stend mjög
fast á því að ekki séu forsendur til að
fella niður holræsagjaldið eins og
sjálfstæðismenn buðu. Hins vegar eru
forsendur fyrir lækkun þess þegar sér
fyrir endann á holræsaframkvæmd-
unum.“
Verður holrœsagjaldið þá enn einn
eilífóarskatturinn?
„Þetta er ekki skattur. Holræsa-
gjaldið er skilyrt eins og þjónustu-
gjöld þannig að það á að fara til tiltek-
inna framkvæmda og má ekki nota í
neitt annað. Þegar framkvæmdunum
er lokið þá lækkar þetta gjald. Það
verður ekki fellt niður því fram-
kvæmdunum fylgir mikill rekstrar-
kostnaður."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. DV-mynd GVA
Þú hefur lofaó því aó tilflutningur
áféúr veitufyrirtœkjum í borgarsjóó
leiöi ekki til gjaldskrárhœkkunar.
Mun þaó loforö halda?
„Það loforð mun halda. Við gerðum
þetta ekki nema athuga fyrst hvort
fyrirtækin gætu staðið undir þessu.
Fyrirtækin geta staðið undir afborg-
unum af þessu skuldabréfi án þess að
hækka gjaldskrár að því gefhu að arð-
greiðslur í borgarsjóð lækki á móti.
Það verður að gerast í framhaldinu."
Hefur ekki hvarflaö að borgar-
stjóra aö einkavœóa veitufyrirtœki
borgarinnar í staö þess
aö skuldsetja þau?
„Nei. Hins vegar tel ég að borgin
eigi að draga sig út úr rekstri Lands-
virkjunar. Ég vil gjaman selja eignar-
hlut okkar í Landsvirkjun og losa fé
sem mætti nýta til annarra fiárfest-
inga.“
Fyrst eiginfjárstaöa veitufyrirtœkj-
anna var svona sterk, lá ekki beint
við aó lœkka gjaldskrána?
„Maður gæti skiliö þessa rök-
semdafærslu ef gjaldskrár fyrirtækj-
anna væru hærri en annarra orkufyr-
irtækja. En þannig er því ekki farið.“
Ekki í landsmálin
Skv. skoóanakönnun DV ert þú sá
einstaklingur sem flestir vilja
fá í framboö til Alþingis úr þeim hópi
sem ekki er þar nú og ert í
ööru sœti sem leiötogaefni samfylking-
ar vinstrimanna? Ætlar þú í kosn-
ingaslaginn í vor?
„Nei. Ég er margbúin að segja að ég
sit hér áfram.“
Fullyrt er að þú takir þátt í sátta-
starfi fyrir samfylkingu vinstri-
manna?
„Það geri ég ekki með neinum
formlegum hætti en ég hef rætt við
marga sem að því máli koma. Ég hef
verið önnum kafm og ekki getað gert
annað en fylgjast með.“
VHRHEVBSIR
Haukur L. Hauksson
Þú lofaöir byggingu tónlistarhúss í
Reykjavík. Hvenœr verður byggt og
hvaðan koma peningarnir?
„Ég sagði að ég teldi að bygging
ráðstefnu- og tónlistarhúss væri brýn-
asta fiárfestingarverkefnið í borginni.
Ég hef jafhframt sagt að þetta ætti að
vera samstarfsverkefni borgar, ríkis
og einkaaðila. Það þarf að skoða fiár-
mögnun þessa mannvirkis með sér-
stökum hætti þar sem um mjög stóra
framkvæmd er að ræða. Það hefur
heilmikil vinna verið í gangi hjá borg-
inni og menntamálaráðuneyti varð-
andi stærð hússins, staðsetningu,
kostnað o.fl. þætti. Þess verður
skammt að bíða að við kynnum sam-
eiginlega niðurstöðu í málinu.“
Hvaö meö staósetninguna?
„Við erum að tala um svæði við
höfnina, frá Hafharstræti og að aust-
urhöfhinni."
Er ekki hneisa fyrir Reykjavík aó
vera menningarborg Evrópu áriö 2000
og án tónlistarhúss?
„Nei, alls ekki. Það er fráleitt að
halda að svona hús verði byggt eins
og hendi sé veifað.“
Veröur þá fariö meö tónlistarviö-
buröi menningarársins í tónlistarhús
Kópavogs?
„Það gleymist stundum í allri um-
ræðunni um tónlistarhúsið í Kópa-
vogi að það er tónlistarhús í Reykja-
vík, hús Karlakórs Reykjavíkur."
Leikskólabiðraðir
R-listinn sagöi aö öll börn innan
2ja ára aldurs fengju leikskólapláss.
Foreldrar segja biölistana hins vegar
lengri en nokkur sinni.
„Eftirspumin eftir leikskólapláss-
um hefur vaxið mjög, sérstaklega
heilsdagsplássum. Fólk vill ekki hálfs-
dagspláss. Þær áætlanir sem við gerð-
um um uppbyggingu í leikskólamál-
um á síðasta kjörtímabili byggðu á
könnim sem gerð var 1994. Eftirspum-
in er hins vegar mun meiri en þar
kom fram. Við verðum að endurmeta
stöðuna og gera áætlun um hvemig
við mætum þessari auknu eftir-
spum.“
Hverju getur þú þá lofaó barna-
fólki á kjörtímabilinu?
„Við munum stefha að því að
tryggja öllum bömum 2ja ára og eldri
leikskólapláss. Hins vegar verðum við
að leita nýrra leiða varðandi yngri
bömin og spuming hvort þróa megi
dagmæðrakerfið þannig að það verði
fyrst og fremst fyrir ársgömul böm.“
Þú veittir upp á þitt eindæmi tœki-
fœrisleyfi til vínveitinga á úrslitaleik
KR og ÍBV. Getur borgarstjóri veitt
svona leyfi aö vild?
„Mér fannst nú hlægilegt að það
skyldi gert mál úr leyfinu á KR-leikn-
um. Lögreglustjóri veitti slík leyfi at-
hugasemdalaust þar til áfengislöggjöf-
inni var breytt. Þá fór leyfisveitinga-
valdið yfir til borgarinnar. Borgarráð
ákvað að skrifstofustjóri borgarstjóm-
ar ætti að sjá um þau leyfi. Ef hann er
hæfur til þess hlýtur borgarstjóri að
vera það líka.“
Minnhlutinn í borgarstjórn er mjög
virkur um þessar mundir. Þaö viróist
enginn svara honum af krafti nema
þú? Eru fótgönguliöar þínir aö bregó-
ast?
„Nei, þetta er mjög gott og vel vinn-
andi fólk. Það er aðalatriðið en ekki
hvemig menn standa sig í fundarsaln-
um á hálfsmánaðarfresti. Fótgöngu-
liðar í D-listanum em ungir menn
sem ætla sér stóra hluti í pólitík og
þeir verða að hafa sig í frammi og
vaða í þann sem fer með völdin. Það
gerði ég hiklaust þegar Davíð Odds-
son var borgarstjóri."
Ekki ofhaldin í launum
Borgarstjóri þiggurfull laun fyrir
setu í hafnarstjóm Reykjavíkur en
hefur mœtt aöeins einu sinni á fund á
árinu. Er þaó ekki siölaust?
„Ef menn horfa fyrst og fremst á
fundarsetuna er vel í lagt að greiða
þau laun sem höfhin greiðir mér fyr-
ir það. En ef menn horfa á launakjör
borgarstjórans í heild sinni og síðan
þau verkefni sem hann fer með held
ég að allir sanngjamir menn verði að
viðurkenna að borgastjórinn er ekki
ofhaldinn i launum miðað við starfs-
systkin sín í öðrum sveitarfélögum.
Þó að ég fái greidd nefndarlaun frá
höfninni þá sinni ég henni auðvitað
með öðrum hætti. Það fara ekki öll
hafnarmál í gegnum hafharstjóm."
Hafa völdin spillt þér þannig aö þú
hafir misst sjónar af þinni eigin gras-
rót?
„Ég held að völdin hafi ekki spillt
mér. En hættan er sú að maöur gangi
svolítið í björg. Starfið er einfaldlega
svo viðamikið og tímafrekt að manni
gefst ekki alltaf tími til að rækta hina
pólitísku grasrót eða grasrótina i
einkalifinu eins og maður gjaman
vildi. Það er auðvelt að týna sér í
þessu starfi."
Ertu hrokagikkur?
„Það er annarra að dæma um það
en ég held að ég sé það ekki. En ég
veit að ég get verið mjög föst á mínu.
Þetta væri sjálfsagt kallað að ég væri
föst fyrir og ákveðin ef ég væri karl-
maður." -hlh