Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
Útlönd
Leynigögn um
Frank Sinatra
gerö opinber
Bandaríska alríkislögreglan
mun í dag gera opinberar 1275
síður um söngvarann Frank
Sinatra. Er gert ráð fyrir að þá
verði svarað í eitt skipti fyrir öll
spurningum um meint tengsl
söngvarans við mafluna.
Orómur var á kreiki um að
Sinatra væri í sambandi við
maflósana Lucky Luciano og Sam
Giancana. Sjálfur vísaði söngvar-
inn ásökununum á bug.
Meðal skjalanna eru mörg hót-
unarbréf sem Sinatra bárust á
ferli hans.
Izvestía um síöustu afrek Jeltsíns Rússlandsforseta:
Býr sig undir
lokauppgjörið
Rússneskir fjölmiðlar velta því
nú enn einu sinni fyrir sér hvort
Borís Jeltsín forseti eigi aftur-
kvæmt í stjómmálalífi Rússlands.
Jeltsín reis upp af sjúkrabeði
sínum í gær og lagði upp í þriggja
klukkustunda langa ökuferð til
Kremlarhallar bara til þess eins að
reka starfsmannastjóra sinn, hinn
dula og trúfasta Valentín
Júmasjev.
Rússnesk dagblöð hafa kallað
Júmasjev „son Jeltsíns" að undan-
fömu, ekki sist vegna náins vin-
skapar hans við Tatíönu
Díjatsjenkó, dóttur forsetans.
Jeltsín hélt síðan rakleiðis aftur
til sjúkrahússins utan við Moskvu
þar sem hann hefur verið að ná sér
eftir lungnabólgu.
„Forsetinn er orðinn heill
Jeltsín Rússlandsforseti hresstist
nóg í gær til að reka aöstoðarmann.
heilsu," sagði blaðið Izvestía í fyrir-
sögn á forsíðu.
Blaðið segir að ákvörðun Jeltsíns
um að skipa Nícolaí Bordjúzha, rit-
ara öryggisráðsins, í stað Júmasjevs
sé til merkis um að forsetinn sé að
búa sig undir lokauppgjör við komm-
únista og, ef nauðsyn krefur, við ráð-
herra í stjórn Jevgenís Prímakovs
forsætisráðherra. Ekki eru þó öll
dagblöð í Rússlandi á því að skyn-
samleg áætlun hafi legið að baki
þessum síðustu verkum forsetans.
Dmitri Jakúsjkín, talsmaður
Kremlar, sagði í gær að Jeltsín
hefði verið óánægður með hvemig
ríkisstjórninni miðaði I baráttunni
gegn öfgasinnum, aðskilnaðarsinn-
um og spillingu, einkum þó síðustu
tvær vikumar á meðan hann hefur
legið á sjúkrahúsi.
Leynilegar radar-
stöövar í Færeyjum
Danir leyfðu Bandaríkjamönn-
um að setja upp fjarskiptastöðvar í
Færeyjum í kalda stríðinu. Allt var
gert til að leyna málinu bæði fyrir
færeysku þjóðinni og danska þing-
inu, að því er fram kemur i skýrslu
sem þrir sagnfræðingar kynna bráð-
um. Með því að setja upp
stöðvarnar var brotið gegn yfirlýs-
ingu dönsku stjórnarinnar um að
ekki yrði erlendur her á danskri
grund á friðartímum.
Samkvæmt skjölum sem danska
blaðið Jyllands-Posten hefur fengið
afhent í bandaríska skjalasafninu
var um að ræða tvær fjarskipta-
stöðvar. Önnur átti að vara við flug-
skeytaárásum Sovétríkjanna. Hin
átti að vísa bandarískum kjarn-
orkukafbátum rétta leið.
„Verði staðfest að Færeyjar hafi
verið skotmark vegna þessara
stöðva eða að Danmörk hafi sparað
sér útgjöld vegna varnarmála með
því að veita Bandaríkjamönnum að-
gang að Færeyjum munum við
krefjast skaðabóta," segir Finnbogi
Isakson, formaður Þjóðveldisflokks-
ins í Færeyjum. Hogni Hoydal,
varalögmaður Færeyja, segir fátt
koma Færeyingum á óvart eftir
bankamálið svokallaða.
Pelsar
í úrvali
frá 7.990.-
Ný sending
- kápur, jakkar, úlpur
20% afsláttur
Glæsilegt úrval í kjólum
og drögtum
Þessi fáklædda kona var í hópi dýravina sem efndu til mótmæla gegn loð-
feldum viö hiö fræga óperuhús La Scala í Mílanó á Ítalíu í gær. Þá var fyrsta
frumsýning vetrarins og allt fína fólkið, þar á meðal pelsklæddar konur,
mætt til aö sýna sig og sjá aöra.
Peysur - tvær fyrir eina
Blússur - tvær fyrir eina
Itakt
Póstsendum
Laugavegi 60. s. 552 0253
Dýravinir mótmæltu við La Scala:
Flettu sig klæöum í
nístandi kuldanum
Berbrjósta dýravinir ruddust inn
í La Scala óperuhúsið í Mílanó á
SICRÆNA JOLA
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn
eðaltré, í hæsta gæðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
?*- 7 0 ára ábyrgð »■ Eldtraust
10 stærðir, 90 - 370 cm ** Þarfekki að vökva
**■ Stálfótur fylgir íslenskar leiðbeiningar
r* Ekkert barr að ryksuga Traustur söluaðili
>*• Truflar ekki stofublómin **• Skynsamleg fjárfesting
BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
CW
Ítalíu við upphaf sýningcirársms í
gær til að mótmæla því að fínu
frúmar kæmu þangað í loðfeldum.
Til átaka kom við lögreglu. Þá tókst
mótmælendum að kasta eggjum í
fína fólkið.
Forsprakki dýravinanna var Mar-
ina Ripa Di Meana, sem er þekkt úr
samkvæmislífmu á Ítalíu. Hún var
aðeins klædd í stuttan svartan
jakka sem hún fletti frá sér þrátt
fyrir nístingskuldann úti. Þá mátti
sjá skrifað yfir bert brjóst hennar:
„Enga loðfeldi".
Önnur kona, með sömu áletrun
yfir brjóstiö, var aðeins í svörtum
buxum og brúnum frakka.
Utandyra höfðu þrír mótmælend-
ur, með andlitið útatað í gerviblóði,
lagst í líkkistur sem á stóð að betra
væri að vera í kistu en loðfeldi.
Stuttar fréttir i>v
Eftirlit að hefjast
Richard Butler, yfirmaður
vopnaeftirlits Sameinuðu þjóð-
anna, segir nákvæmt eftirlit vera
að hefjast í írak.
Serbar hóta
Serbar hafa hótað nýrri sókn
gegn albönskum skæruliðum í
Kosovo.
Á þingmannaballi
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
og Hillary eiginkona hans stigu í
gærkvöld dans
á árlegum
stórdansleik
fyrir þingmenn
í Hvíta húsinu.
Ekki þótti úti-
lokað fyrir
dansleikinn að
einhver orða-
skipti myndu
eiga sér stað um viðburði vikunn-
ar. í dag og á morgun flytja lög-
menn vörn fyrir hann vegna
Lewinskymálsins fyrir dóms-
málanefnd fulltrúadeildar þings-
ins.
Tyrkjum ekki boðið
Utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsins sögðu í gær að
Tyrkjum yrði ekki boðið til við-
ræðna á fóstudag um stækkun
sambandsins. Slíkt væri erfitt þar
sem enn hefði ekki verið mynduð
stjórn í Tyrklandi.
Jagúar reif í sig barn
Jagúar í dýragarði nálægt An-
gers í Frakklandi tókst um helg-
ina að grafa sig undir girðingu og
reif í sig 4 ára bam. Faðir barns-
ins gat verndað tvö önnur börn
sín fyrir dýrinu en særöist sjálfur
hættulega.
Mannréttindayfirlýsing
Baráttumenn fyrir mannrétt-
indum fagna nú að 50 ár eru liðin
frá mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna.
Dómari tengist Amnesty
Einn af bresku lávörðunum
sem úrskurðuðu að Augusto Pin-
ochet, fyrrver-
andi einræðis-
herra Chile,
nyti ekki frið-
helgi, er for-
maður góðgerð-
arsamtaka sem
tengjast mann-
réttindasam-
tökunum Amnesty International.
Þetta kom fram í breska blaðinu
Guardian í dag. Lögmenn Pin-
ochets hafa reynt að fá úrskurð-
inn ógiltan á þeim forsendum að
eiginkona dómarans starfaði fyrir
Amnesty.
Banana flúði til S-Afríku
Canaan Banana, fyrrverandi
forseti Zimbabwe, hefur flúið til
S-Afríku. Hann á yfir höfði sér 22
ára fangelsi fyrir að hafa þvingað
samstarfsmenn, lífveröi og garð-
yrkjumann til samræðis við sig.
Samkynhneigð er bönnuð í
Zimbabwe.
í geimgöngu
Tveir bandarískir geimfarar
fóru út úr geimskutlunni Endea-
vour í gær til að hefja samsetn-
ingu alþjóðlegrar geimstöðvar.
Hamingjuóskir
Leiðtogar í hinum ýmsu löndum
Ameríku óskuðu í gær Hugo
Chavez, nýkjörn-
um forseta
Venesúela, til
hamingju með
sigurinn. Sumir
stjómmála-
skýrendur óttast
að Chavez, sem
gerði misheppn-
aða valdaránstilraun 1992, hafni
nýfrjálshyggju og aðhyllist einræði.
Gorbatsjov fer ekki fram
Mikhail Gorbatsjov, fyrrver-
andi forseti Sovétríkjanna, sagði í
gær að hann ætlaði ekki að fara
aftur í framboð i forsetakosning-
um í Rússlandi.