Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Qupperneq 18
18
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1999
Hringiðan
Utlendingar hafa
síðustu ár orðið æ
rneira áberandi hér
á landi um jól og
áramót og má
þakka það skot-
gleði landans um
áramótin. Þessir
tveir Asíubúar
voru að viröa fyrir
sér mannlífið á ný-
ársdag í miðborg-
inni.
Stjörnuljós eru ómissandi þáttur hjá yngri kynslóð-
inni um áramót og nutu þessir tveir piltar þess til
hins ýtrasta en þeir vitjuðu Hagkaupsbrennunnar á
gamlárskvöld.
J Verðlaun fyrir þá sem hafa farið holu f höggi á árinu
Ú voru afhent á Píanóbarnum nú fyrir stuttu og er það í
V þrítugasta skipti sem það er gert. Alls fóru 83 holu í
' höggi á þessu ári. Hér eru þau yngstu, Kristín Rós
Kristjánsdóttir og Davfð Svansson, sem eru 13 ára,
ásamt þeim elsta, Magnúsi Guðmundssyni, 82ja ára.
Eva Dögg, Kristín Halla, Kallý, Thelma og Birna voru á fremsta bekk á
áramótatónleikunum sem haldnir voru f Háskólabfói á miðvikudaginn.
Allur ágóðinn af skemmtuninni rann svo óskiptur til Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
Kynnir nH|
kvöldsins
var ekki sá^^^B
reyndasti í bransan-^^*^^BF5^T*"-'.i^^^^^
um en það var kaupmaðurinn
Jóhannes I Bónusi. Jóhannes afhendir hér fulltrúum
Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, þeim Þor-
steini Ólafssyni framkvæmdastjóra og Benedikt Axels-
syni formanni, ávfsun upp á tæpa eina og hálfa millj-
ón. Hann bætti svo um betur með ávísun frá Bónusi
upp á þrjú hundruð þúsund. Þannig að ágóðinn hljóð-
aði upp á tæpar 1,8 milljónir.
Helgi Björnsson kom fram
og söng jólalagið sitt „Ef ég
nenni” fyrir áhorfendur ára-
mótatónleikanna í Háskóla-
bíói þar sem tæpar tvær
milljónir söfnuöust fyrir
krabbameinssjúk börn og
aðstandendur þeirra.
Fjöldi tónlistarfólks og skemmti-
krafta gaf vinnu sína f þágu
krabbameinssjúkra barna. Tvf-
höfði, Sigurjón Kjartansson og
Jón Gnarr, skemmtu áhorfendum á
styrktartónleikunum með söng og
leik á miðvikudaginn.
DV-myndir Hari
Það lék enginn vafi á því
að hljómsveitin Páll Ósk-
ar og Casino er með
þeim vinsælli í dag, mið-
að við fögnuðinn sem
braust út þegar Palii og
félagar stigu á stokk á
tónleikunum til styrktar
krabbameinssjúkum
börnum daginn fyrir
gamlársdag.
Mikið fjölmenni fylgdist með áramóta-
brennu Hagkaups og Bónuss á
gamlárskvöld og er ekki annað að sjá en
feðgum þessum Ifki það ágætlega.