Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1999, Page 5
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
5
SPURNINGAKEPPNI FRAMHALDSSKOLA
Á lenbm
1X2
nr. 20 MK(Kópav.) - VA(Neskaupsst-) 1,30 7,60 2,90
nr. 26 FVA(Akranes) - BHS(Borgarh.Rvk) 1,20 7,80 3,50
Tippaðu í tíma
á næsta sölustað eða
á Internetinu IX2.IS
-veit betur!
Fréttir
„Auðvitað bitnar allt slæmt sem
gert er hérna í skólanum á öllum
hópnum, en svoleiðis er það bara,“
segir Páll Ágúst Ólafsson, formaður
nemendaráðs
Hagaskóla.
„Það má heldur
ekki vera að
magna þetta
allt saman upp
eins og gert hef-
ur verið. Ég sá
t.d. fréttir hjá
ríkissjónvarp-
inu um daginn
þar sem frétta-
maður sagðist
vera staddur í
Hagaskóla,
klukkan væri
rétt rúmlega
átta og enn
hefði ekkert
verið sprengt!
Hann lýsti
Páll Agúst Olafsson, formaður nem-
endaráðs Hagaskóla, fyrir framan
skólann í gær.
þessu sem sagt eins og skólinn okk-
ar væri einhver vígvöllur," segir
Páll. Það er hins vegar gott mál að
frá þessu sé sagt í fjölmiðlum til að
láta aðra foreldra fylgjast með þess-
um atburðum og til þess að fylgjast
með sínum börniun en þetta má
ekki koma slæmu orði á þennan
skóla sem gerir svo margt gott.“
Páll telur ákvörðun skólastjóra
skólans um að vísa nemendum úr
skólanum, sem höfðu skotelda und-
ir höndum,
rétta að mörgu
leyti. „Það er
engin lausn að
reka nemanda
úr skóla en þeg-
ar skólastjóri
og aðstoðar-
skólastjóri eru
búnir að ganga
í bekki og vara
nemendur við
þá er þetta full-
komlega eðli-
legt. Það var
búið að segja að
þetta væri
bannað og það
er nóg,“ segir
Páll. Hann segir
að nú sé kom-
inn tími til að nemendur skólans
skemmti sér og það geri þeir á ann-
an hátt. „Það er fótboltamót fram
undan og núna ætlum við nemend-
ur og skólastjómendur að koma
starfsemi skólans og félagslífinu í
réttan farveg eftir þessa atburði,"
sagði Páll að lokum. -hb
Um það leyti sem DV heimsótti Hagaskóla í gær var verið að Ijúka við að setja nýjar rúður þar sem gamlar brotnuðu
eftir sprengingar síðustu viku. Allt er dottið í dúnalogn og skólastarfið getur haldið áfram. DV-myndir Hilmar Þór
Umbætur á
mörgum sviðum
- segir Einar Magnússon skólastjóri
„Það hafa orðið miklar um-
bætur á mörgum sviðum í
grunnskólum í dag. Hér í
Hagaskóla hefúr t.d. yfirbragð
á skólaskemmtunum, þá sér-
staklega dansleikjum, breyst
til batnaðar og áfengi heyrir
sögunni til,“ segir Einar
Magnússon, skólastjóri Haga-
skóla. „Samskipti nemenda og
kennara eru einnig orðin mun
frjálslegri en þau voru áður.
Samskiptin eru opnari og
unga fólkið er fúsara til að tjá
sig en áður.“ Hann segir þó að
þrátt fyrir þessar umbætur sé
of litiU agi í grunnskólum í
dag. „Það er of lítill agi í skól-
unum. Ég verð var við að Ijót-
ur munnsöfnuður færist í vöx,
bæði milli nemenda og svo við
fullorðið fólk, og vaxandi
óhlýðni. Það eru lög í landinu
þar sem nemendum er gert að
hlýða og þeir eiga að fara eftir
þeim en gera það ekki alltaf.
En auðvitað á þetta ekki við
alla nemendur grunnskól-
ans,“ segir Einar. Áðspurður
um þau mál sem hafa verið til
opinberrar rnnQöllunar um
sprengingar í Hagaskóla segir
Einar Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, telur að auka
eigi sjálfstæði grunnskóla.
Einar að fræðslustjóri hafi
ekki ógilt ákvörðun hans
vegna brottvikningar nem-
enda sem höfðu skotelda í
fórum sínum í skólanum
heldur var honum bent á að
hann hefði ekki gefið for-
eldrum andmælarétt eins og
ætti að gera. „Það er í gildi
neyðarréttur ef öryggis-
hagsmunum er stefnt í voða
og ég hefði getað hengt mig
í því ákvæði en ég vildi ekki
vera að skapa eitthvert óör-
yggi í þessu máli,“ segir
Einar. Aðspurður um hvort
auka ætti sjálfstæði skóla
þannig að ákvarðanir sem
þessar væru alfarið skólans
sagði hann: „Já, ég held að
það sé til bóta að færa
ákvörðunarvaldið inn í
skólana og núna hafa verið
samdar hér skólareglur sem
margir koma að, þ. á m. for-
eldrar og fleiri, og þær voru
kynntar á fundi í gær með
foreldrum þannig ég held að
allt sé þetta að koma núna,“
sagði Einar.
-hb
Má ekki bitna á öllum
„Ég held að það hafi verið
rétt að reka þá sem voru með
skotelda með sér í skólanum
úr skólanum í einn dag en
ekki svona lengi eins og gert
var,“ segir Helgi Jóhanns-
son, nemandi í 8. bekk Haga-
skóla. Hann segir nauðsyn-
legt að agi sé ríkjandi í skól-
anum en hann má ekki vera
of mikill. Aðspurður um
refsingar gegn nemendum
sem gerast brotlegir í skólan-
um sagði Helgi: „Það er ekki
sanngjamt að það sem fáir
gera bitni á öllum nemend-
„Sprenglngun-
um er lokið,"
segir Helgi
Jóhannsson.
um skólans en það er ekki
hægt að gera neitt í því.“
Hann sagöi aðspurður um
þátt fjölmiðla í málinu að
umfjöllun þeirra væri ekki
of mikO enda væri nauðsyn-
legt að fjölmiðlar segöu frá
atburðum sem þessum. „En
það er líka nauðsynlegt að
segja frá því sem vel er gert.
En ég held að þetta hætti
núna eftir þetta allt saman
og því verði ekkert meira til
aö fjalla um hvaö þennan
skóla snertir," sagði Helgi.
-hb
Of mikið um
neikvæðu hlutina
Dagbjört Helgadóttir er í
10. bekk Hagaskóla og finnst
umræðan um málefni skólans
vera orðin heldur þreytt.
„Sum umfiöllun fiölmiðla er
óþörf varðandi þetta mál. Það
var allt í lagi að segja frá
þessu í upphafi en þegar það
koma fyrirsagnir hér og þar
um að „enn sé sprengt í Haga-
skóla“ þá er komið nóg. Það
er líka sprengt í öðrum
grunnskólum en það virðist
vera mestur áhuginn að segja
frá þessum,“ segir Dagbjört.
Hún segir nauðsynlegt að fólk
átti sig á því að ungt fólk er
að gera marga mjög skemmti-
lega hluti og of mikið sé gert úr þeim
neikvæðu: „Við stóðum okkur mjög
„Það á að leysa
mál með því að
auka samstarf
milli foreldra og
skóla,“ segir
Dagbjört
Helgadóttir.
vel í hæfileikakeppni grunn-
skóla, Skrekki, en það er eins
og það hafi ekki verið umfiöll-
unarefni dag eftir dag. Dag-
björt telur skólastjóra Haga-
skóla hafa brugðist rétt við
þegar hann ákvað að vísa
nemendum úr skólanum sem
höfðu flugelda undir höndum:
„Skólastjóri skólans ræður
hvað hann gerir og hans
ákvarðanir á að virða og sér-
staklega á ekki að stuðla að
því að hann dragi þær til
baka. En svo á auðvitað líka
að leysa málin með því að
auka samstarf milli skólans
og foreldra til þess að koma í
veg fyrir að hlutir endurtaki sig,“
sagði Dagbjört. -hb
DV heimsótti nemendur og skólastjóra Hagaskóla:
Skólinn enginn vígvöllur
- segir Páll Ágúst Ólafsson, formaður nemendaráðs