Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1999, Síða 19
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1999
19
DV
Fréttir
Ár framkvæmda í Stykkishólmi
DV, Vestnrlandi:
Stykkishólmsbær stóð í mörg-
um framkvæmdum í fyrra sem
allar eiga það sameiginlegt að
miða að því að gera bæinn betri
fyrir þá sem í honum búa. Stærstu
og fjárfrekustu framkvæmdirnar
voru við höfnina, hitaveituna,
sundlaugina og ráðhús bæjarins.
í fyrra var unnið að frekari upp-
byggingu hafnaraðstöðu með end-
urbyggingu steinbryggjunnar.
Fyrst var ráðist í það verk að setja
út landfyllingu milli steinbryggj-
unnar og hafskipabryggjunnar.
Landfylling breytir allri aðstöðu
til löndunar og þar með hafa kör
og annað sem fylgir smábátum
fengið athafnapláss á hafnarsvæð-
inu. Steinbryggjan sjálf var síðan
breikkuð þannig að nú er hún 15
metrar á breidd og eykur það
notagildi hennar í löndun og öðru.
Bryggjan var einnig hækkuð og
sett í jafna hæð þannig að sjór fell-
ur ekki upp á hana.
Á árinu urðu mikil tímamót þeg-
ar framkvæmdir hófust við hita-
veitu fyrir Stykkishólm með lagn-
ingu aðveituæðar frá Hofsstaðaholu
að varmaskiptahúsi sem er milli
íþróttamiðstöðvar og iþróttavallar.
Áætlanir gera ráð fyrir að lagning
dreifikerfis og tengingar við íbúðar-
hús ljúki á þessu ári.
Á nýliðnu ári var uppbyggingu
sundlaugar haldið áfram og lokið
við stóra áfanga, s.s. uppsetningu
á laugarkerinu, auk þess sem bún-
ings- og innisundlaugarhús var
steypt. Simdlaugin verður tilbúin
til notkunar í byrjim júní.
Langþráðu takmarki var náð í
haust þegar ráðhúsið var tekið í
notkun. Fyrir utan að vera mikil
bæjarprýði og setja sérstakan svip
á gamla miðbæinn í Stykkishólmi
er húsið farið að þjóna bæjarbú-
um á margan hátt. Þar ber fyrst
að nefna að skrifstofur Stykkis-
hólmsbæjar og fundaaðstaða bæj-
arstjómar og nefnda em nú
komnar í rúmgott húsnæði. Að
minnsta kosti tvær aðrar stofnan-
ir munu hafa aðsetur í húsinu,
Náttúrustofa Vesturlands og
Minjavörður Vesturlands og Vest-
fjaröa. -DVÓ
Ferlíki rekur á Skriðinsenni
SIRIUS
DV; Hólmavík:
Aukaljós
Óvenjuleg sjón blasti nýlega við
Steinunni K. Hákonardóttur á Skrið-
insenni þegar hún gekk til útiverka.
Mikinn svartan hlut mátti sjá
skammt austur með landinu.
Nokkrum dögum síðar var farið á
bát, ferlíkið kannað og dregið að
landi.
Heimafólk á Skriðinsenni hafði
talið að þetta væri rotþró einhvers
bóndans en dæmi era um að þær
strjúki frá eigendum sínum fyrir nið-
ursetningu og velkist nokkuð um
Húnaflóa áður en þær taka land að
nýju.
Hér reyndist þó vera kominn hlut-
ur nokkuð langt að og hafði enginn
séð neitt honum likt áður. Um er að
ræða sívalt hylki úr gúmmíi með
kúfta enda en þar er afar vandaður
jámvarinn búnaður. Kemur sver öx-
ull út úr báðum endum og gengur
trúlega í gegnum hylkið. Jámum-
gjörð er rammlega fest og ver
öxulendana. Lykkja mikil er á end-
unum, tveir sverir lásar tengja hylki
þetta við keðju báðum megin og var
löng dræsa af sterkum vír við aðra
keðjuna. Var það hann sem hélt
ferlikinu fóstu á grynningunum.
Á öðrum endanum var ventill eins
og á hjólbörðum og hetta yfir svo
Gæðavottuð ISO 9002 og <tE”-merkt
Ferlíkið sem rak á fjörur Skriðinsennis. F.v.: Hákon Ormsson bóndi, Skrið-
insenni, Baldvin Kristjánsson og Jón Hákonarson, bóndi í Hvítarhlíð.
DV-mynd Guðfinnur
loftfyllt. Það reyndist þó býsna þungt
þegar það var dregið á land en risti
þó ekki nema 3Ú40 sm í sjó.
Sem dæmi um traustlegan búnað-
inn var annar lás við keðjuna sem
hékk slakur og taka hefúr átt við ef
hinn brotnaði. Engu að síður tapaðist
hlutur þessi eiganda sínum og rak til
íslandsstranda.
Hylkið er 3,8 m á lengd og um tveir
metrar í þvermál. Hákon bóndi á
Skriðinsenni telur að það muni taka
um 10.000 lítra af vökva.
nokkuð augljóslega er hylki þetta Af þeim sem fróðastir era um slíkt
Ný loðnunót
fýrir Faxa RE
DV, Fáskrúðsfírði:
Starfsmenn Netagerðarinnar Ing-
ólfs á Fáskrúðsfirði hafa undanfarið
unniö að uppsetningu á nýrri vetr-
amót fyrir Faxa RE.
Jónas Friðriksson framkvæmda-
stjóri Netagerðarinnar á Fáskrúðs-
firði segir þetta fyrstu heilu nótina
sem sett er upp á Fáskrúðsfirði af
starsmönnum Ingólfs.
Að sögn Jónasar hafa farið úm
1700 vinnustundir í þetta verkefni.
Verkefni framundan era viðgerðir á
eldri nót Faxa og fleiri skipa. Hjá
Starfsmenn Ingólfs á Fáskrúðsfirði.
Jónas er annar frá hægri.
DV mynd Æ.K.
Netagerðinni
starfsmenn.
Ingólfi
vinna 4-6
-Æ.K.
Atak í feröaþjónustu
DV, Vestnrlandi:
Fyrirhugað er að setja á stofn
Upplýsinga- og kynningarmiðstöð
Vesturlands (UKV) á fyrsta fjórð-
ungi ársins og yrði hún hlutafélag
eða sjálfseignarstofiiun. UKV verð-
ur móðurstöð upplýsingaöflunar og
-miðlunar, sem og samstarfsvett-
vangur sameiginlegra markaðsmála
ferðaþjónustunnar. Á aðalfundi
Samtaka sveitarfélaga á Vestur-
landi í október 1998 var samþykkt
að leggja fram 70% stofn- og rekstr-
arkostnaðar fyrir árið 1999, með því
skilyrði að hagsmunaðilar leggi
fram 30% kostnaðarins. Hlutverk
UKV verður meðal annars fólgið í
því að veita innlendum og erlendum
ferðamönnum upplýsingar um
framboð á ferðaþjónustu á Vestur-
landi, sem og á landsvísu, auk þess
að beina ferðamannastraumi inn á
þennan landshluta. Einnig á að
bæta og efla samvinnu ferðaþjón-
ustuaðila á Vesturlandi, sem og
markaðsstarf þeirra. UKV mun taka
upp samvinnu við allar upplýsing-
armiðlanir hvar sem er á landinu
bæði til að láta þeim í té allar fáan-
legar upplýsingar um landshlutann
sem og að fá upplýsingar frá þeim.
Með tilliti til aukinnar samkeppni
milli landshluta í ferðaþjónustu er
hlutverk UKV að bæta samkeppnis-
stöðu ferðaþjónustuaðila á Vestur-
landi og auka markaðshlutdeild
landshluta. Mikill straumur ferða-
manna hefur farið í gegnum Borgar-
nes eða i Borgarfjörðinn, því virðist
kjörið að setja höfúðstöðvar Upplýs-
inga- og kynningarmiðstöðvar Vest-
urlands, sem væntanlega tekur til
starfa i byrjun maí, niður við fjöl-
farinn aðalveg í eða við Borgarnes.
-DVÓ
er talið að hér sé um svokallað fríholt
að ræða en nokkur slík samfest era
notuð þegar skip leggjast hvort að
annars hlið á rúmsjó. Áletranin er
erlend, líklega rússnesk. -Guðfinnur
Off road
NS 860
Settið kr. 12.350
Fiskiauga
NS 98
Settiðkr. 11.980
Austurvegi 69 - 800 Selfossi
Sími 482 2000 - Fax 482 2996
Farðarar
Nýtt - Nýtt
Atvinnutækifæri
sem tengist menntun þinni sem farðari
Hjálp óskasl
Okkur langar að bjóða þér atvinnutækifæri sem við vitum að getur
orðið þér til góðs. Þú hefur menntunina og við veitum þér þjálfunina
til að komast af stað. Öll þjálfun er í höndum fagmanna og fer
fram að mestu leyti í Förðunarskóla fslands.
Hvaðer í boði?
Mjög líflegt starf
Samskipti við fólk
Miklir tekjumöguleikar allt árið
Þú stjórnar þínum vinnutíma
Þú hefur bein áhrif á tekjur þínar
Þér býðst
Vöru- og söluþjálfun 28. jan.
Þjálfun í London 7. febr.
Anna & Pétur Steinn
588 7575-588 7599
893 1713
Allar nánari upplýsingar veita
íris & Guðmundur
898 9995-564 5717
898 3776
Þetta er tækifæri sem vert er aðskoða vel