Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1999, Blaðsíða 22
30 MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1999 Björgum fílunum Fílar og mannfólk eiga í nokkrum vandræöum með að lifa saman í nokkrum lands- hlutum í Kamer- ún. Þar er í gangi verkefni sem mið- ar að því að leysa vandann. Heima- síðu þess er að finna á slóðinni http://nczooeletrack.org/ Ofursvalt Wargasm Leikurinn Wargasm kom á markaðinn fyrir skömmu með mikilli auglýsingaherferð. Hægt er að nálgast upplýsing- ar og sækja prufuútgáfu af leiknum á heimasíðunni http://www. wargasm.net/ sem er ein alsvalasta heima- síða sem finnst um þessar mundir. Tónlist á Netinu Mikið hefur verið talað um MP3 geymsluformið á tónlist að undanfömu. Á heimasíð- irnni http://www.mp3.com/ er hægt að finna allar upplýs- ingar um fyrirbærið auk þess sem hægt er að sækja ýmis MP3 forrit og tónlist á MP3 formi. Konungur dýranna Teikni- T* myndin Lion 04 King frá Disney var geysi- lega vinsæl á sínum tíma og enn er hægt að flnna fjölda heimasíðna sem tileinkaðar eru myndinni. Slóð einnar þeirra er http://www.geocities.eom/E nchantedFor- est/5179/index.html Ragnar víkingur í leikjamolum hér annars staðar á síðunni er sagt frá vikingaleiknum Rune sem byrjað er að hanna. Hægt er að skoða fyrstu drög að leikn- um á heimasíðmmi http:// www.humanhead.co m/ Þúsund manna heimur Hvemig væri umhorfs ef við hugsum okkur heiminn sem 1000 manna þorp? Heil heima- síða er tileinkuð slíkum pæl- ingum og slóð hennar er http://www.worldvilla- ge.org/ Byssugleði Þeir sem eru spenntir fyrir vopnum og vopnaburði ættu að kynna sér heimasíðu Kalas- hnikov-riffilsins, en hún er á slóðinni http://kalas- hnikov.guns.ru/ Microsoft í vanda: Linux-notendur heimta endurgreiðslu - hið opna stýrikerfi orðið talsverð ógnun við Windows Þó Bill Gates kætist yfir gríðar- lega góðri afkomu Microsoft á síð- asta ári er honum sennilega ekki alveg rótt þvi nokkur óveðursský eru við sjóndeildarhringinn. Flest- ir hafa heyrt um réttarhöldin sem nú standa yfir þar sem Microsoft er sakað um einokunartilburði. Færri hafa hins vegar heyrt um að önnur málaferli á hendur Microsoft geti verið yfirvofandi. Það er hópur notenda Linux- stýrikerfisins sem hyggst fara í hart við Microsoft. Þeir vilja meina að þar sem þeir noti ekki Windows stýrikerfið sé í hæsta máta óeðlilegt að þeir þurfi að borga fyrir það. Á síðustu árum hafa flestar nýjar tölvur verið seld- ar með Windows stýrikerfinu upp- settu og því borga allir sem kaupa sér nýja tölvu jafnframt fyrir Windows. í smáa letrinu í notendasamn- ingi Windows stendur að þeir sem ekki vilja nota Windows geti sótt um endurgreiðslu. Þeir sem hins vegar hafa látið á þessa klausu reyna hafa lent i ómældum erfið- leikum. Einn þeirra, Geoffrey Bennett frá Ástralíu, þurfti t.d. að standa í þriggja mánaða stöðugu stappi við framleiðanda tölvunnar hans til að fá endurgreiðslu á síð- asta ári. Hið opinbera merki Linux stýrikerfisins er feit og pattaraleg mörgæs sem situr makindalega á afturendanum með bros á vör. En það er hins vegar ekki hægt að fullyrða að þessar ágætu mörgæsir, sem hér spranga í þýskum dýra- garði, hafi nokkurn tímann heyrt á Linux minnst. Látið til skarar skríða Hópur sem kallar sig Windows Refund Center er nú að safna sam- an Linux-notendum og fólki sem notar önnur stýrikerfi en Windows. Ætlunin er að allir sem einn sæki um endurgreiðslu þann 15. febrúar. Með því er atburður- inn gerður sem sýnilegastur í fjöl- miðlum þannig að Microsoft neyð- ist til að standa við það sem samn- ingar þeirra hljóða upp á. Ef stór- fyrirtækið verður hins vegar með eitthvert múður er allt eins líklegt að það verði lögsótt af öllum þeim sem sækja um endurgreiðslu. Búast má við að þetta mál muni vekja talsverða athygli á næstu vikum því það var þegar farið að vekja fjölmiölaumfjöllun tveimur dögum eftir að opinber heimasíða Windows Reftmd Center var opnuð í síðustu viku. Slóð heimasíðunnar er http://www.then- oodle.com/refund/ en þar kemur m.a. fram hvemig á að setja nýja tölvu í gang án þess að Windows ræsist upp. Vandinn er nefnilega sá að ef Windows hefur einu sinni verið ræst upp og fallist á þá skil- mála sem þar er að finna er ekki hægt að sækja um endurgreiðslu. Hvað er Linux? Á síðustu misserum hefur tal um Linux stýrikerfið farið hærra og hærra og er nú svo komið að um átta milljónir manna um heim allan nota Linux frekar en Windows. En hvaða fyrirbæri er þetta? Linux er afbrigði af Unix-stýri- kerfinu, þróað af Finna nokkrum að nafni Linus Torvalds. Aðalein- kenni Linux er verðið - stýrikerfið kostar ekki neitt. Annað einkenni sem leitt hefur til mikilla vinsælda Linux er að það er „opið frumfor- rit“, þ.e. hver sem er getur sótt frumforritið að Linux á Netinu. Síðan getur viðkomandi prófað sig áfram með að búa til endurbætur á frumforritinu eftir eigin höfði. Eft- ir það ákveður nefnd nokkur hvort endurbætumar séu nægilega góðar @Home kaupir Excite: Tölvurisunum fjölgar Enn einn samnrni stórfyrirtækja í tölvubransanum var tilkynntur í síðustu viku. Þá tilkynnti fyrirtæk- ið @Home Corp. að það myndi kaupa hina vinsælu netmiðstöð Excite Inc, á 6,7 milljarða Bandaríkjadala (um 470 milljarðar íslenskra króna). Saman hyggjast fyrirtækin setja á fót „hið nýja fjölmiðlanet 21. aldarinnar". Fyrirtækin em framarlega hvort á sinu sviði netþjónustunnar og með sameiningunni er ætlunin að samnýta það besta sem þau hafa upp á að bjóða. @Home er mjög vaxandi fyrirtæki sem veitir viðskiptavinum sínum hraðvirka netþjónustu en Excite er næstvinsælasta netmiðstöð heimsins. Excite hefur lagt mikið upp úr því að skrá vandlega upplýsingar um notendur sína til þess að geta boðið auglýsendum mjög vel skilgreinda markhópa. Vandi @Home hefur verið sá að langflestir netnotendur í Bandaríkjunum em tengdir Netinu með venjulegu mótaldi sem ræður ekki við það efni sem @Home býður en til þess þarf helst kapaltengingu við Netið. Með kaupunum á Excite getur @Home hins vegar náð til viðskiptavina, óháð nettengingu þeirra. Hið ítarlega skráningarkerfi Excite getur skráð hvers kyns nettengingu sem viðskiptavinurinn er með og þannig mun @Home geta sent hverjum viðskiptavini efni sem hæfir hans mótaldi. Sammni þessara tveggja fyrirtækja er enn eitt dæmið um hve ört viðskiptalandslagið breytist í tölvuheiminum um þessar mundir. Þróunin hefur jafnt og þétt miðað að því að fækka fyrirtækjum í bransanum og stækka þau sem fyrir em. Fyrirtæki eins og Yahoo!, Excite, Netscape og fleiri, sem voru fyrir nokkmm ámm örsmá, eru nú farin að renna saman við risana á markaðnum sem keppast við að ná til sín sem flestum notendum á hinum ört stækkandi netmarkaði. til að þær skuli fella inn í frumfor- ritið. Þannig hefur Linux í raun verið þróað af hundruðum þús- unda notenda í gegnum árin sem hafa gefið vinnu sína við þróun stýrikerfisins. Sú vinna heldur stöðugt áfram og nýir sjálfboðaliðar bætast í hóp- inn á hverjum degi. Það er því ljóst að Linux mun styrkja stöðu sína jafnt og þétt á næstu misserum í baráttunni við gróðafyrirtækin. Barátta Windows Refund Center gæti átt stóran þátt í að rödd Lin- ux heyrist sem víðast og jafnvel fengið fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það borgar fyrir Windows stýrikerfið án þess að þurfa eða vilja nokkum tímann nota það. -KJA m PY JNNnfcj m>$MLm A n Lokar Rover vegna 2000-vandans? Bílaframleiöandinn Rover Group, breskt dótturfýrirtæki BMW-bílaris- ans, ákveöur í júní hvort þaö muni loka verksmiöjum sínum tímabund- iö til aö forðast áföll vegna 2000- vandans. „Viö gætum hætt fram- leiöslu í eina til tvær vikur eöa gæt- um ákveöiö aö framleiöa aöeins ákveönar bílategund- ir um nokk- urra vikna j skeiö. Svo er alltaf möguleiki á aö viö gæt- um haldiö framleiösl- unni áfram án vand- r æ ö a , “ sagöi um- sjónarmað- ur 2000- m á I a h j á Rover viö fréttamenn. Aöalvandi Rover er geysilega flókiö framleiöslu- ferli fyrirtækisins auk mikils fjölda minni fyrirtækja sem sjá Rover fýrir hráefni en erfitt er fýrir fyrirtækiö aö átta sig á því hver þeirra séu illa und- irbúin fyrir 2000-vandann. Intel býr til öryggisvélbúnað Intel undirbýr nú úamleiöslu á vél- búnaöi fyrir heimilistölvur sem gæti aukiö öryggi upplýsinga sem sendar eru á Netinu. Veröi slíkur vélbúnaö- ur aö veruleika gæti þaö gefiö viö- skiptum á Netinu aukinn kraft á kom- andi árum. Hingaö til hefur tækni sem notuö er til aö tryggja öryggi slíkra upplýsinga nær eingöngu ver- iö framleidd sem hugbúnaður. Intel gæti hins vegar lent í vandræöum meö bandarískar reglur sem banna útflutning á vörum sem gera netsam- skipti of örugg, því þaö gerir njósn- urum þeirra erfiöara fýrir að fylgjast meö hryöjuverkamönnum. Kínverji dæmdur I síöustu viku var Lin Hai, eigandi tölvufyrirtækis í Kína, dæmdur í tveggja ára fangelsi fýrir aö senda andófsnettímariti í Bandaríkjunum netföng um 30.000 Kínverja. Aö mati klnverska dómstóls- ins er net- tímaritiö, VIP Refer- ence, óvin- veitt erlend stofnun og aö láta því I té netföng Kínve rj a svo þaö geti sent þeim áróð- urer glæp- ur. Dómur- inn er at- hyglisveröur aö því leyti aö meö hon- um sýna kínversk stjórnvöld í verki aö þau ætla aö fyigjast vandlega meö athæfi þegna sinna á Netinu. Sotheby's á Netið Netverjar geta keypt geisladiska, bækur, flugmiöa og garöverkfæri á Netinu. Hví ekki aö skella sér á 600 milljón króna Rembrandt-málverk I leiöinni? Hiö víöfræga uppboðsfyrir- tæki Sotheby's undirbýr nú heima- síöu þar sem hægt verður aö taka þátt í uppþoöum á ýmsum merkum gripum. Fyrirtækiö hyggst leggja sem svarar rúmum milljarði tslenskra króna í aö setja upp heimasíðuna og markaössetja hana á næstu mán- uöum. Stefnt er að því aö fýrsta upp- boöiö verði í júlí. EX5I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.