Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Síða 13
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
13
Fréttir
Tannlæknakostnaður:
Fáir hafa
hækkað taxta
- en einstaka hefur hækkað umtalsvert
Vart hefur orðið við tannlækna-
reikninga sem komið hafa til endur-
greiðslu hjá Tryggingastofhun sem
hækkað hafa, eftir að samningslaust
varð við Tryggingastofnun. Þetta
staðfesta Reynir Jónsson yfirtrygg-
ingatannlæknir og Lára Hansdóttir
afgreiðslustjóri að Tryggvagötu 28.
„Nokkrir tannlæknar eru búnir
að hækka sig og við greiðum út eft-
ir gjaldskrá ráðuneytisins. Þegar
um er að ræða hækkun þá lendir
hún á fólkinu," sagði Lára í gær.
Hún sagði að yfirleitt væri ekki
mikið um stórar hækkanir, þetta
7-8% væri algengt, en hækkunin
væri misjöfn. Reynir Jónsson tók
undir þetta, sagði að fáir tannlækn-
ar hefðu hækkað sig mikið. Þó væru
dæmi um umtalsverðar hækkanir.
Tannlæknaþjónusta er endurgreidd
af almannafé til ellilífeyrisþega,
grunnskólanema og öryrkja, mis-
hátt hlutfall, eða frá 50% til 75%,
jafnvel að öllu leyti til eldri borgara
á sjúkrastofnunum.
Lára segir að tafir hafði ekki orð-
ið miklar á afgreiðslu nema fyrstu
einn til tvo dagana. „En það verða
talsverðar útskýringar hjá okkur,
fólk vill greinilega ekki tala við
tannlæknana um þessi mál, frekar
við okkur. Eitthvað er fólk þó að
spá i þetta,“ sagði Lára.
„Það á að hittast á mánudaginn
og ræða málin, þá kemur í ljós
hvort deilan leysist, alla vega munu
menn halda áfram að ræða saman,“
sagði Reynir Jónsson i gær. -JBP
Ráðherraskór frá Loake
Handunnir G.Y. welted gæðaskór.
o
Nú á 8.800
Áður 13.800
Stæðir: 41-46
Litir: svart, brúnt.j
TatmiHi
Kringlunni - sími 553 2888
Snjóþungt er víða á höfuðborgarsvæðinu en þó hefur þiðnað nokkuð. Þórður Guðlaugsson notaði snjóbiásara til að
ryðja snjónum frá bílskúrsdyrunum hjá sér í gærmorgun með hámarksárangri. DV-mynd Pjetur
Grundarfjörður:
Yngsta sveitar-
félagið
DV, Vesturlandi:
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands var íbúafjöldi í
Eyrarsveit allri (dreifbýli og þétt-
býli) 943 1. desember og hefur
íbúum því fjölgaö á árinu um 2%.
Frá árinu 1988 hefúr Grundfirð-
ingum fjölgað um 17,7% en það
ár var íbúafjöldinn 801.
Sveitarfélagið hefur þá sérstöðu
að 32,4 % íbúanna eru á aldrinum
0-15 ára og er það hæsta hlutfall í
46 stærstu sveitarfélögum lands-
ins, þ.e. sveitarfélögum með yfir
600 íbúa skv. upplýsingum úr Ár-
bók sveitarfélaga 1998.
Meðaltal þessa aldurshóps í
sömu sveitarfélögum er 27,2% af
heildarfjölda íbúa. Það má því
segja að í þessum hópi sé Grund-
arfjörður yngsta sveitarfélagið,
þ.e með mestan barnafjölda.
-DVÓ
Snæfellsnes:
30 milljónir til
hafnanna
DV, Vesturlandi:
Tilllaga til þingsályktunar um hafna-
áætlun fyrir árin 1999-2002 var fyrir
skömmu lögð fram á Alþingi. Þar er
gert ráð fyrir rúmlega þrjátíu milljóna
króna framlagi til hafnanna á Snæfells-
nesi í ár. Langstærstur hluti fjárins, eða
21 milljón, mun fara til lengingar á
stóru bryggjunni í Grundarfirði. Til
Stykkishólmshafnar fara samkvæmt
áætluninni 6,2 milljónir, til hafskipa-
bryggju og frágangs á steinbryggju.
Rúmar þrjár milljónir fara síðan til
uppgjörs fyrri framkvæmda. -DVÓ
hel<l,,r
( Leðurökklaskór ,
Verðfrá 2.900
(Leðurstígvél Á
Verð frá 3.900
líiímilii
Kringlunni - sími 553 2888
Rúskinns-mokkasíur
frá Aerosoles.
V____Verð frá 1.950 y
Hornsófi
J Mjög slitsterkt nælonáklæði
/ Einnig fáanlegur í leöri
Húsgagnaverslunin
Stóllinn
Smiðjuvegi 6D • Kópavogi • Sími: 554 4544