Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Page 19
19
f
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
i>v Fréttir
Enn eru jólapakkar Friðar 2000 fastir i London. Ástþór Magnússon, formað-
ur samtakanna, barðist fyrir þvf um jólin að koma pökkum sínum til íraks.
Hér má sjá Ástþór ásamt jólasveini að ieggja fram kæru á utanríkisráðherra
fyrir að hafa stoppað pakkana af.
Jólagjafir íslendinga til stríðshrjáðra:
Norðurpólspakkarnir
komnir til Bosníu
- en pakkar Ástþórs enn fastir
Jólapakkamir sem safnað var
saman í jólasveinabænum Norður-
pólnum á Akureyri eru komnir til
bæjarins Sanski Most í Bóshíu, að
sögn Jónasar Þórissonar hjá Hjálp-
arstofnun kirkjunnar sem tók að
sér að koma pökkunum á áfanga-
stað.
Flugfélagið Cargolux tók að sér
að fljúga með pakkana frá íslandi til
Lúxemborgar og gerði það endur-
gjaldslaust. Flogið var með pakkana
utan um síðustu helgi og þeir fóru
þaðan áleiðis til Bosníu á mánudag.
Pakkarnir og húfur, sem einnig
voru fluttar með, vógu samtals um
2,5 tonn. Að sögn Jónasar Þórisson-
ar lá ekki á að koma pökkunum til
Bosníu fyrr en nú því þar hafi skól-
ar og leikskólar verið lokaðir að
undanfómu en fari í gang nú um
mánaðamótin.
Jólapakkar Friðar 2000, sem áttu
að fara til íraks, em aftur á móti
enn í geymslu á Lundúnaflugvelli,
mánuði eftir að þeir fóm úr landi.
Ástþór Magnússon sagði í gær að
hann vissi ekki hver kostnaðurinn
yrði af geymslu jólagjafanna sem
áttu að fara til bama í írak en
strönduðu í London.
„Ég get ekkert sagt um það sem
ég ekki veit. En þetta fór til London
án þess að ég vissi af þvi. Ég hef
gengið frá pökkunum í ömggri
geymslu en það er ekki búið að
semja um geymslukostnaðinn,"
sagði Ástþór.
Framtíð jólapakkanna er á huldu.
Ástþór segir að unnið sé að lausn
málsins, það taki sinn tíma, en
hann vonast til að börn í nauð njóti
gjafanna í næsta mánuði. Þrennt
kemur til greina: Að senda pakkana
til íraks eins og til stóð, senda þá til
stríðshrjáðra landa fyrmm
Júgóslavíu eða jafhvel til Indlands.
-JBP/-gk
Ný smáplata og
myndband frá Björk
DV, Akranesi:
Björk Guðmundsdóttir mun á
næstu mánuðum gefa út smáplötu
undir heitinu All Is Full of Love.
Ekki er búið að ákveða útgáfúdag
smáskífunnar samkvæmt fréttum
frá heimasíðu Bjarkar á veraldar-
vefnum. Hafiiar em tökur á mynd-
bandinu All Is Full of Love í London
og er leikstjórinn enginn annar en
Chris Cunningham sem stjómaði
þremur myndböndum sem vöktu
óskipta athygli. Það vora Aphex
Twin, Squarepusher og Letfield. Því
má búast við að nýja myndbandið
muni vekja mikla athygli. -DVÓ
Dalvíkurbyggð:
Meöferöarheimili
fýrir unglinga?
DV.Dalvik:
Nú eru til umfjöllunar hjá forsvars-
mönnum Dalvíkurbyggðar hugmynd-
ir um að koma á fót meðferðarheimili
fyrir unglinga í Dalvíkurbyggð. Á
þriðjudaginn áttu Halldór Guðmunds-
son félagsmálastjóri og Rögnvaldur
Skíði Friðbjömsson bæjarstjóri fund
með Páli Péturssyni félagsmálaráð-
herra þar sem þessi mál voru til um-
ræðu. Engar beinar niðurstöður feng-
ust á fundinum en fjallað verður um
málið í ráðuneytinu.
Að sögn Halldórs Guðmundssonar
era þessar hugmyndir til komnar
vegna umræðna á síðasta ári um
skort á meðferðarúrræðum fyrir ung-
linga og langa biðlista eftir meðferð
sem væri alls ekki forsvaranlegt.
Svæðið hér hentar mjög vel fyrir slíka
starfsemi, hér er húsnæði og starfs-
fólk fyrir hendi og allar aðstæður hin-
ar bestu. Slíkt heimili gæti skapað
12-14 ný störf í byggðarlaginu.
Málinu hefur einnig verið hreyft
við forsvarsmenn bamaverndarstofú
en þar era allar fjárveitingar ársins
1999 bundnar. Málinu hefur nú verið
komið á rekspöl og hugsanlegt að
eitthvert fiármagn fáist árið 2000.
Halldór segir að þessar hugmynd-
ir hafi fengið jákvæð viðbrögð og
áfram verði unnið að framgangi
þeirra.
hiá