Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Blaðsíða 26
42
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
Afmæli
Sigríður G. Schiöth
Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth,
tónlistarkennari, organisti og söng-
stjóri, Þórunnarstræti 130, Akureyri,
er áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist á Lómatjöm í
Grýtubakkahreppi í Suður-Þingeyj-
arsýslu en þar ólst hún upp og á
Akureyri þar sem hún nam píanó-
leik. Sigríður Vcir í námi á Laugar-
vatni í tvo vetur, var á Húsmæðra-
skóla á ísafirði og hefur sótt fjölda
námskeiða í Reykjavík og ýmis tón-
listamámskeið í Skálholti.
Sigríður var einsöngvari í Sam-
kór Róberts Abrahams Ottóssonar
og í Kantötukómum á Akureyri.
Hún var söngkennari í Bamaskóla
Grenivíkur 1935, í Hólshúsum
1948-76 og á Húsavík 1976-83. Þá
var hún fjóra vetur við kennslu í
Reykjavík og Hafnarfirði og hefur
kennt við Bamaskólann á Hrafha-
gili.
Sigríður var organisti Gmndar-
kirkju 1949-76, Saurbæjar- og
Möðruvallakirkna 1950-76, á Húsa-
vík 1976-83 og aftur í Grandar-
kirkju frá 1983-94. Hún æfði og
stjómaði hundr-að manna kór Hún-
vetninga 1974 og Þingeyingakór í
tvo vetur. Hún stofnaði Kór eldri
borgara á Akureyri 1986 og hefur
stjómað honum síðan. Þá stoftiaði
hún kvennakór á Akureyri sem
nefndur hefur verið Ömmukórinn
og hefur stjómað honum.
Árið 1996 kom út bókin Lífsgleði
en þar er að fmna endurminningar
Sigríðar.
Sigríður hefur skrifað greinar og
frásagnir í blöð og tímarit og lesið
fjölda sagna og kvæða í útvarp. Hún
var formaður Héraðssambands ey-
firskra kvenna 1972-76 og var for-
maður Kirkjukórasambands Eyja-
fjarðar 1989-90.
Sigríður var sæmd Fálkaorðunni
1991 fyrir störf sín að söngmálum.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar var Helgi
Hinrik Schiöth, f. 21.11. 1911, d. 18.4.
1998, lögregluþjónn, bóndi í Hólshús-
um og starfsmaður KÞ á Húsavík.
Foreldrar hans voru Axel Schiöth,
bakarameistari á Akureyri, og k.h.,
Margrét Schiöth, f. Friis, en hún
hafði umsjón með Lystigarðinum á
Akureyri.
Böm Sigríðar og Helga era Reynir
Helgi Schiöth, f. 1941, bóndi í Hóls-
húsum, kvæntur Þuríði Jónu, f.
Thorlacius, og eiga þau tvo syni;
Margrét Anna, f. 1945, skrifstofumað-
ur á Húsavík, gift Áma Sigurðssyni
bifvélavirkja, og eiga þau þijú böm;
Valgerður Guðrún Schiöth, f. 1949,
húsfreyja á Rifkelsstöðum, gift Gunn-
ari Jónassyni, bónda þar, og eiga þau
fjögur böm.
Sigríður átti tíu systkini sem era
nú öll látin. Þau vora Lára, f. 31.10.
1896, húsmóðir í Reykjavík, var gift
Runólfi Kjartanssyni kaupmanni;
Sigrún, f. 7.12. 1897, hús-
freyja á Skarði, var gift
Jóni Jóhannssyni, bónda
þar; Sæmundur Reykja-
lín, f. 27.11. 1899, bóndi á
Fagrabæ, var kvæntur
Guðrúnu Jónsdóttur hús-
freyju; Jóhanna, f. 25.2.
1902, kennari í Reykja-
vík; Guðbjörg, f. 6.10.
1903, húsmóðir, var gift
Bjama Pálssyni frá Hrís-
ey; Sigurbjörg, f. 22.8.
1905, húsmóðir i Reykja-
vík, var gift Agli Áskels-
syni, starfsmanni Skatt-
stofunnar í Reykjavík; Guðrún, f.
27.12.1907, húsmóðir í Reykjavík, var
gift Jens F. Magnússyni íþróttakenn-
ara; Ingólfur, f. 12.2.1910, matreiðslu-
maður, var kvæntur Sigrúnu Helga-
dóttur húsmóður; Sverrir, f. 10.8.
1912, bóndi á Lómatjöm, var kvætur
Jórlaugu Guðnadóttur húsfreyju;
Valtýr, f. 28.2. 1920, sýslumaður, og
borgardómari í Reykjavik, var
kvæntur Bimu Bjömsdóttur hús-
móður.
Foreldrar Sigríðar voru Guðmund-
ur Sæmundsson, f. 9.6. 1861, d. 31.10.
1949, bóndi á Lómatjöm í Höfða-
hverfi í Suður-Þingeyjarsýslu, og
k.h., Valgerður Jóhannesdóttir, f.
15.10. 1875, d. 7.12. 1965, húsfreyja.
Ætt
Guðmundur var sonur Sæmundar,
b. í Gröf í Kaupangssveit, Jónasson-
ar, og Ingileifar Jónsdótt-
ur, b. í Uppsölum í Svarfað-
ardal, Jónssonar. Móðir
Jóns var Þórunn Björns-
dóttir, b. á Moldhaugum,
Bjömssonar, og Halldóru
Jónsdóttur, pr. á Völlum,
Halldórssonar, afa Páls
Melsteðs amtmanns, ætt-
föður Melsteðsættarinnar.
Móðir Ingileifar var Helga
Pálsdóttir, b. í Hofsárkoti,
Jónssonar, og Guðrúnar
Jónsdóttur, b. á Uppsölmn,
Arasonar, pr. á Tjöm, Þor-
leifssonar, prófasts á Múla,
Skaftasonar.
Valgerður var dóttir Jóhannesar,
b. á Kussungsstöðum, Jónssonar
Reykjalíns, pr. á Þönglabakka, Jóns-
sonar Reykjalíns, pr. á Rip, Jónsson-
ar, bróður Friðriks, langafa Ólafs, afa
Ólafs Ragnars Grímssonar forseta.
Móðir Jóns á Þönglabakka var Sig-
ríður Snorradóttir, pr. á Hofsstöðum,
Bjömssonar, bróður Jóns, langafa
Pálínu, móður Hermanns Jónassonar
forsætisráðherra, foður Steingrims,
fyrrv. forsætisráðherra. Móðir Val-
gerðar var Guðrún Hallgrímsdóttir,
b. á Hóli í Fjörðum, Ólafssonar, og
Ingveldar Ámadóttur, b. á Sveins-
strönd, Eyjólfssonar, bróður Krist-
jönu, móður Jóns Sigurðssonar, þing-
forseta á Gautlöndum, langafa Jóns
Sigurðssonar bankastjóra.
Sigríður er að heiman á afmælis-
daginn.
Sigríöur
Guðmundsdóttir
Schiöth.
Magnús Hvanndal
Magnús Hvanndal Hannesson,
Hringbraut 119, Reykjavík, varð sjö-
tugur í gær.
Starfsferill
Magnús er fæddur í Reykjavík en
ólst upp í Sandgerði. Hann stundaði
fiskvinnslu í Sandgerði á unglings-
árunum og hóf vörubílaakstur í
Sandgerði og Keflavík er hann var
átján ára. Magnús ók eigin bíl i
Sandgerði og Keflavík í sjö ár og var
síðan leigubílstjóri í Keflavik í sex
ár. Hann stundaði síðan ýmis störf,
m.a. byggingavinnu og veitinga-
rekstur.
Magnús var kokkur á ísborginni í
tvö ár og matsveinn á loðnuskipi en
hann hefur starfrækt efnalaug í
Reykjavík síðustu árin.
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar var Erla Eyj-
ólfsdóttir, f. 25.4. 1930, starfsmaður í
íþróttahúsinu í Sandgerði.
Þau skildu.
Böm Magnúsar og Erlu
eru Sigrún Hvanndal, f.
24.12. 1949, félagsráðgjafi í
Reykjavík, og á hún eina
dóttur, Ester Hvanndal, f.
30.3. 1951, kennara í Svi-
þjóð; Finnbjöm Hvanndal,
f. 15.2. 1956, stýrimaður og
á hann tvö börn; Sigur-
björg Hvanndal, f. 15.3.
1960, söngvari; Magnús
Hvanndal, f. 23.8. 1967, sjó-
maður í Reykjavík; Anna
Lilja Hvanndal, f. 2.4.1970, húsmóðir
í Mosfellsbæ og á hún eina dóttur.
Alsystkini Magnúsar era Ema, f.
30.8. 1933, starfsmaður hjá íslands-
pósti í Reykjavík; Amór, f. 21.1.1940,
múrarameistari í Garðabæ.
Systkini Magnúsar samfeðra era
Sigríður, f. 23.8. 1954, starfsmaður
Eimskips, Jóhann, f. 14.10. 1956, sjó-
maður í Sandgerði, fórst
með trillu; Matthías, f.
11.12. 1961, sjómaður í
Sandgerði.
Foreldrar Magnúsar
vora Hannes Amórsson,
símstjóri i Sandgerði, og
k.h., Finnbjörg Sigurðar-
dóttir.
Ætt
Hannes var sonur Am-
órs, bróður Elínar, móður
Hannibals Valdimarsson-
ar. Amór var sonur
Hannibals, b. á Neðri-Bakka í Langa-
dal, Jóhannessonar, b. á Kleifum í
Skötuflrði, Guðmundssonar sterka á
Kleifum, Sigurðssonar, forföður
Ólafs Þ. Þórðarsonar og Sverris Her-
mannssonar. Móðir Hannibals var
Þóra Rósinkarsdóttir, b. á Svart-
hamri, bróður Sigurðar, afa Jóns
Baldvinssonar, formanns Alþýðu-
flokksins. Rósirikar var sonur Haf-
liða, b. í Kálfavík, bróður Jóhannes-
ar á Kleifum. Móðir Elínar var Sig-
ríður Amórsdóttir, prófasts í Vatns-
firði, Jónssonar. Amór var bróðir
Auðuns, langafa Jóns, fóður Auðar
Auðuns, fyrrv. ráðherra. Móðir Sig-
ríðar var Guðrún Magnúsdóttir
„eymdarskrokks", Jónssonar. Móðir
Magnúsar var Guðrún Magnúsdóttir,
b. í Súðavík, bróður Ingibjargar,
ömmu Jóns forseta. Magnús var son-
ur Ólafs, ættfóður Eyrarættar, Jóns-
sonar.
Finnbjörg var dóttir Sigurðar,
skipstjóra á Akurhúsum í Garði,
Magnússonar, b. í Ráðagerði í Gerða-
hreppi, Magnússonar. Móðir Finn-
bjargar var Guðbjörg Illugadóttir, b. í
Stóra-Lambhaga, Bárðarsonar, b. á
Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal,
Þorleifssonar.
Magnús dvelur á Kanaríeyjum um
þessar mundir.
Magnús Hvanndal
Hannesson.
Helgi G. Þórðarson
Helgi G. Þórðarson
verkfræðingur, Vestur-
vangi 44, Hafnarfirði, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Helgi Guðjón fæddist á
Skarði í Ögurhreppi og
ólst upp i Ögurvík. Hann
varð stúdent frá MR 1950,
tók fyrrihlutapróf í verk-
fræði frá HÍ 1954 og próf í
vélaverkfræði frá DTH í
Kaupmannahöfn 1958.
Helgi var verkfræðing-
ur hjá SH 1958-60, framkvæmdastjóri
íshúsfélags ísfirðinga hf. 1960-63,
framkvæmdastjóri Meitilsins hf. og
Mjölnis hf. í Þorlákshöfn 1965-67,
verkfræðingur hjá útibúi Industri-
konsulent AS á íslandi 1967-71 og
hefur rekið eigin verkfræðistofu á
sviði rekstrarráðgjafar frá 1972. Auk
þess var hann stundakennari í verk-
fræðideild HÍ og Fiskvinnsluskólan-
um 1973-78 og hjá Stjómunarfélagi
íslands 1972-82.
Helgi sat í Stúdentaráði
HÍ 1951—52, var formaður
Félags stúdenta í Kaup-
mannahöfn 1956, í stjóm
Stúdentafélags Reykjavík-
ur 1958-59, formaður Djúp-
manna í Reykjavík um
skeið, sat í Verðlagsráði
sjávarútvegsins 1961-66,
var formaður Félags fisk-
vinnslustöðva á Vestfjörð-
um 1961-63, sat í stjóm
Samlags skreiðarframleið-
anda 1963-65, Viðlagasjóðs
1973-76, íslenska jám-
blendifélagsins hf. 1975-79 og frá
1984, Olíumalar hf. 1979-80, í 01-
íumalamefnd 1973-74, Stóriðjunefnd
1983-87, í stjóm Hlutafjársjóðs
1989-91, Freyju á Flateyri, Meitilsins
í Þorlákshöfn og Samskipa 1991-94.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 3.1 1959 Thorgerd
E. Mortensen, f. 1.4. 1929, hjúkrunar-
fræðingi. Foreldrar Thorgerdar eru
Daniel Mohr Mortensen, kóngsbóndi
í Fróðba í Suðurey í Færeyjum, og
k.h., Amalie Margrethe, f. Joensen.
Böm Helga og Thorgerdar era dr.
Þórður, f. 16.6. 1958, verkfræðingur
og forstöðumaður Eðlisfræði- og
tæknideildar Landspítalans, búsettur
í Hafnarfirði, kvæntur Halldóru
Kristjánsdóttur bankastarfsmanni og
á hann einn son; Daníel, f. 16.6. 1960,
húsasmiður í Hafriarfirði, kvæntur
Vigdísi Jónsdóttnr hagfræðingi og
eiga þau þijú böm; Hallur, f. 22.11.
1964, kvikmyndagerðarmaður og
leikhússtjóri Loftkastalans, búsettur
í Hafnarfirði, kvæntur Kolbrúnu Ýri
Gísladóttur nema; Kristín Svanhild-
ur, f. 15.5.1968, kennari og kórstjóri í
Hafnarfirði, og á hún eina dóttur.
Systur Helga: Guðrún, látin, hús-
móðir; Cecilia, látin, skrifstofumað-
ur; Þórunn, skrifstofumaður og leið-
sögumaður.
Fósturbróðir Helga er Sigurður Þ.
Guðmundsson stýrimaður.
Foreldrar Helga voru Þórður
Ólafsson, f. 5.10. 1902, útvegsbóndi í
Odda í Ögurvík, síðar iðnverkamað-
ur í Reykjavík, og k.h., Kristín Svan-
hildur Helgadóttir, f. 9.1. 1904, hús-
móðir.
Ætt
Meðal systkina Þórðar em Sól-
veig, móðir Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, Guðrún, móðir Jóns Helgason-
ar, fyrrv. formanns Einingar á Akur-
eyri, og Friðfmnur, forstjóri Háskóla-
bíós. Þórður var sonur Ólafs, b. í
Strandseljum í Ögurhreppi, Þórðar-
sonar, og Guðríðar Hafliðadóttur
vegghleðslumanns, Jóhannessonar.
Kristín var dóttir Helga, b. á
Skarði í Ögurhreppi, bróður Guð-
finns, fóður Einars í Bolungarvík.
Helgi var sonur Einars, b. á Hvíta-
nesi, Hálfdanarsonar, prófasts á Eyri
við Skutulsfjörð, Einarssonar,
langafa Helga, fóður Ragnhildar,
fyrrv. ráðherra.
Móðir Kristínar var Karítas Daða-
dóttir, b. á Skarði, Eggertssonar, og
Ásgerðar, systur Jóns, afa Auðar og
Jóns Auðuns.
Helgi og Thorgerd eru að heiman.
Helgi G. Þórðarson.
Til hamingju
með afmælið
3. febrúar
80 ára____________
Guðbjörg Árnadóttir,
Hringbraut 50, Reykjavik.
75 ára
Alda J. Siguijónsdóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Guðbjörg S. Eysteinsdóttir,
Broddadalsá II, Broddaneshr.
Reynir Jónsson,
Smáragrand 7, Hvammstanga.
Sigurrós G. Þórðardóttir,
Hafnarbraut 31, Hólmavík.
60 ára
Erla
Magnúsdóttir,
Grenigrand 20,
Akranesi.
Gréta
Haraldsdóttir,
Mariubakka 30, Reykjavík.
50 ára
Ingrún
Ingólfsdóttir
hjúkranar-
fræðingur.
Skúlaskeiði 6,
Hafnarfirði.
Guðrún Ágústa
Sigurbentsdóttir,
Brúarási 2, Reykjavík.
Hrafhhildur Guðnadóttir,
Holtsbúð 31, Garðabæ.
Katrín Jónsdóttir,
Mánahlíð 12, Akureyri.
María Sigurðardóttir,
Bfrkigrand 7, Kópavogi.
Martea Guðlaug
Guðmundsdóttir,
Ulugagötu 59,
Vestmannaeyjum.
Rut Vestmann Bjarnadóttir,
Vatnsholti 18, Keflavík.
Sólveig Hafdís
Haraldsdóttir,
Heiðargarði 8, Keflavík.
Trausti Tryggvason,
Silfurgötu 41, Stykkishólmi.
40 ára
Amar Karlsson,
Sunnubraut 28, Garði.
Ágústa Guðrún
Geirharðsdóttir,
Fjallalind 123, Kópavogi.
Elsa Rafnsdóttir,
Brekkubyggð 19, Garðabæ.
Hafdis Einarsdóttir,
Mosgerði 22, Reykjavík.
Jóhann ísberg,
Funalind 13, Kópavogi.
Katrín Tryggvadóttir,
Háaleitisbraut 48, Reykjavík.
Sigurbjörg Halldórsdóttir,
Álfhólsvegi 117, Kópavogi.
Sigurjóna Sigvaldadóttir,
Sólbakka, Djúpárhreppi.
Sigurlaug Konráðsdóttir,
Ólafsbraut 36, Ólafsvík.
Sigurþór Guðmundsson,
Frostafold 32, Reykjavík.
www.visir.is
FYRSTUR ME9 FRETTIRNAR