Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
41 -
Ég hef heyrt að einhverjir séu í uppreisnarhug.
i. Faröu og athugaöú þaö. *
Gobbedi
£g mundi segja aö þaö sé ekkert sem
þúþarft aö hafa áhyggjur af.
Fréttir
Hótel Örk.
Fosshótel Örk verður aftur Lykilhótel Örk
Samningaviðræður
fóru út um þúfur
DV, Hveragerði:
Undanfama mánuði hafa staðið
yfir samningaviðræður á milli for-
svarsmanna hótelkeðjanna „Foss-
hótel“ og „Lykilhótel" um yfirtöku
reksturs hins fyrmefhda á Lykilhót-
elum, sem eru í eigu Jóns Ragnars-
sonar. Um síðustu áramót var gerð-
ur hráðabirgðasamningur um yfir-
töku Fosshótela á Hótel Örk og var
ætlunin að ljúka undirritun samn-
inga innan eins mánaðar. Jónas
Hvannberg, nýráðinn hótelstjóri
Fosshótel-keðjunnar á Hótel Örk,
sagði að þetta hefði verið flókin
samningagerð. Um hefði verið að
ræða tvíhliða samning; þátttöku
Jóns Ragnarssonar, eiganda Lykil-
hótela, í Fosshótel-keðjunni og um
leið leiga Fosshótela á Lykilhótelun-
um. Nú mun ljóst, að fullnaðar-
samningur verður ekki undirritað-
ur, þar sem samningar tókust ekki.
Jónas sagði að ef af samningum
hefði orðið, hefði eignaraðild Jóns í
Fosshótelum hf. orðið 35%. Með
samningum eða sameiningu hótel-
keðjanna hefði hótelkeðjan orðið
mjög sterk og rekið 17 hótel víða um
land. Jónas sagðist ekki vita með
vissu um framtíð sína sem hótel-
stjóri á Hótel Örk, en hann fengi
væntanlega fullnaðarsvör varðandi
þau mál í þessari viku. Jónas var
síðast hótelstjóri á Hótel Sögu, en
kvaðst vera mjög ánægður með sitt
nýja starf. Hann hefði því áhuga á
að halda áfram sínum störfum hér,
starfsfólk hótelsins væri mjög gott
og öll aðstaða til fyrirmyndar.
-eh
i »
| Nýr umboðsmaður|
Hellissandur og Rif
Sigurlaug Guðmundsdóttir
Munaðarhóli 8
Sími 436 - 6752
|Nýr umboðsmaðurj
Skagaströnd
Kristín Leifsdóttir,
Skagavegi 16,
sími 452 - 2703.
Nýr umboðsmaður
Nesjar
Arnbjörg M. Sveinsdóttir,
Hæðargarði 4,
sími 478 - 2113.