Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Gleymdist að vinna heimavinnu vegna fyrirhugaðra hvalveiða:
Hvalveiðar ekki
hafnar í sumar
- en Alþingi verður að taka afstöðu er mat Árna R. Árnasonar alþingismanns
„Ég hef ekki trú á því að sam-
þykkt verði að hefja veiðar í sum-
ar,“ segir Ámi R. Árnason, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokks og for-
maður vinnuhóps sjávarútvegsráð-
herra sem samþykkti í febrúar
1997 að stigin yrðu skref í þá átt að
hefja veiðar. Ríkisstjórnin sam-
þykkti í mars sama ár tillögumar
en í þeim fólst að þegar yrði unnið
að því að auka skilning annarra
þjóða á því að íslendingar hefðu
fullan rétt
á því að veiða hval. Þau tvö ár
síðan þetta var samþykkt hefur
ekkert gerst í þessum efnum að
öðm leyti en því að ráðherrar rík-
isstjómarinnar hafa haldið málinu
á lofti á tíðum ferðum um heims-
byggðina. Annað hafi ekki verið
gert til að kynna málstað íslend-
inga.
Ámi segir nauðsynlegt að Al-
þingi taki afstöðu til hvalamálsins.
Sú afstaða megi þó ekki fela í sér
að samþykkt verði að hefja veið-
arnar en síðan yrðu menn að
hætta vegna þrýstings.
„Alþingi verður
að samþykkja
málið og lýsa því
að ísland eigi fuH-
an og óskorðaðan
rétt til hvalveiða.
Það skiptir miklu
máli að hafa um
samþykktina
breiða samstöðu
Árni R. Árna- og það má ekki
son telur ólík- koma til þess að
legt að hval- tillagan verði
veiðar hefjist í felld. Þá má það
sumar. ekki gerast að
samþykkt verði
að hefja veiðar á tilteknum tíma en
síðan verði að hætta við vegna
þrýstings," segir Ámi.
Hann segir áríðandi að kynna
málstaðinn. Þá verði Alþingi að
taka afstöðu til aðildar að Alþjóða
hvalveiðiráðinu sem sé eini vett-
vangurinn þar sem alþjóðleg skoð-
anaskipti eigi sér stað.
„Þá þarf að átta sig á því hver
kostnaðurinn verður ef veiðar
verða hafnar að nýju,“ segir Ámi.
Sjávarútvegsnefnd fundar stíft
um hvalveiðarnar þessa dagana.
Texti þeirrar ályktunar sem gerir
ráð fyrir að veiðar hefjist að nýju
er ofurviðkvæmur enda mjög
skiptar skoðanir um það hvenær
skuli hefja veiðar. Búist er við að
nefndin nái lendingu í næstu viku
og leggi fram tillöguna.
-rt
Samfylking er orðin að 17 manna þingflokki á Alþingi. Rannveig Guðmunds-
dóttir var í gær kjörin formaður þingflokksins, Ragnar Arnalds varaformað-
ur og Guðný Guðbjörnsdóttir ritari. Hún iýsti atburðinum sem einhverjum
stærstu tíðindum aldarinnar á stjórnmálasviðinu hér á landi. Andstæðingar
létu sér hins vegar fátt um finnast þegar þeir voru beðnir um álit. Á mynd-
inni eru þingmennirnir í garði Alþingishússins í gær. DV-mynd E.ÓI.
Nýjungar í útgáfu DV:
Sjónvarpshandbókin
verður fylgirit DV
- aukin þjónusta með leiðarvísum yfir sjónvarp, skemmtana- og menningarlífið
Frá og með næsta fimmtudegi, 25.
febrúar, mun Sjónvarpshandbók-
inni verða dreift til aUra áskrifenda
DV. Handbókin verður borin út sér-
staklega tU áskrifenda DV á höfuð-
borgarsvæðinu en mun fylgja DV tU
áskrifenda á landsbyggðinni. DV
hefur birt vikudagskrá sjónvarps-
stöðvanna í Fókusi á föstudögum en
með tilkomu DV-Sjónvarpshandbók-
arinncir feUur dagskráin niður í
Fókusi. í hennar stað mun nýr efn-
isþáttur, Lifið eftir vinnu, hefja
göngu sína í Fókusi næstkomandi
föstudag. Lífið eftir vinnu verður ít-
arlegur leiðarvísir um aUa þá afþr-
eyingu, list- og menningarviöburði
sem fólki stendur tU boða. Slíkan
vegvísi hefur vantað því sárar sem
framboðið af aUs kyns uppákomum,
skemmtunum og menningarvið-
burðum hefur vaxið. Með þessum
nýjungum í útgáfu DV er stefnt að
betri þjónustu við lesendur; að-
gengUegri sjónvarpsdagskrá og
góðu heUdaryfirliti yfir skemmtana-
og menningarlífið.
Sjónvarpshandbókin hefur á und-
anförnum árum sannað sig sem
handhægur og öruggur leiðarvísir
um dagskrár sjónvarpsstöðvanna.
Með samstarfi við útgefendur henn-
ar tryggir DV lesendum sínum að-
gengilegt yfirlit yfir dagskrár allra
sjónvarpsstöðva sem á að annað
borð berast tU íslands. Lesendur DV
á höfuðborgarsvæðinu eru kunnug-
ir handbókinni en nú gefst lesend-
um blaðsins á landsbyggðinni kost-
ur á að nýta sér hana einnig. DV-
Sjónvarpshandbókin mun þar verða
borin út til áskrifenda og eins mun
hún fylgja blaðinu sé það keypt í
lausasölu. DV-Sjónvarpshandbókin
kemur út á fimmtudögum aðra
hveija viku - í fyrsta sinn næstkom-
andi fimmtudag, 25. febrúar.
Frá því að Fókus hóf göngu sína
um mitt síðasta ár hafa vinsældir
föstudagsblaðs DV aukist umtals-
vert - einkum meðal yngra fólks.
Með tilkomu efnishlutans Lífið eftir
vinnu í Fókusi verður föstudagsút-
gáfan eUd enn frekar. I blaðhlutan-
um verður nákvæmt yfirlit yfir alla
viðburði í skemmtana- og menning-
arlífinu og umfjöUun um þá helstu:
frumsýningar í bióum og leikhús-
um, popptónleika jafnt sem klass-
íska, opnanir myndlistarsýninga,
dansleiki og kráartónlist, kappleiki
og aðra viðburði í íþróttalífinu,
fundi og mannfagnaði, leiksýningar,
tónleika og aðra atburði ætiaða
bömum og svona mætti lengi telja.
Þessu yfirliti verður skipað niður
eftir dögum og tímasetningum, svo
að lesendur DV ættu að geta á auga-
bragði séð hvaö stendur til boða af
skemmtun og fróöleik. Auk tíma-
bundinna viðburða verður í Lífinu
eftir vinnu yfirlit yfir veitingahús,
kvikmyndir í bíóhúsunum, sýning-
ar í gaUeríum og söfnum og í raun
flest það sem fólk þarf að vita ef það
ætlar sér að lyfta sér upp. Lífið eft-
ir vinnu birtist fyrst í Fókusi næst-
komandi föstudag, 26. febrúar.
Nýjungar í útgáfii DV
I næstu viku fá lesendur tvö ný blöð í hendurnar;
DV-Sjónvarpshandbókina og Lífið eftir vinnu.
Frá og með næsta fimmtudegi munu
lesendur DV fá dagskrár sjónvarpsstöðvanna
í DV-Sjónvarpshandbókinni.
Stærra fimmtudagsblað
Viðameiri föstudagsútgáfa
Auk Fókuss munu lesendur DV frá og með næsta
föstudegi fá ítarlegt yfirlit yfir skemmtana- og lista-
og menningarlífið í blaðhlutanum Lífið eftir vinnu.
Skotlandsferja
Byrjað er að kanna hvort raun-
hæft er að efna tU ferjusiglinga
milli Þorláks-
hafnar og Aber-
deen í
Skotlandi. Þetta
kom fram þegar
Alfreð Þor-
steinsson, borg-
arfulltrúi
Reykjavíkurlist-
ans, kynnti yiljayfirlýsingu borg-
arinnar og Ölfushrepps um sam-
starf á borgarstjórnarfundi í gær.
Morgunblaðið sagði frá.
Skattsvikadómar
Hæstiréttur feUdi í gær þunga
dóma yflr mönnum fyrir virðis
aukaskattsvik í fyrirtækjum sem
þeir veittu forstöðu, Húsamálar-
anum og Bjargþóri ehf. Báðir
hlutu þeir að vísu skiloðsbundna
dóma en sektardómar undirréttar
voru þyngdir verulega í ljósi
hertra sektarákvæða.
Ekkert fé frá Framsókn
Hæstiréttur hafnaði í gær að
VífilfeU ehf. ætti endurkröfurétt
gegn Framsóknarflokknum. Vífil-
feU yfirtók á sínum tíma milljóna-
skuldir gjaldþrota útgáfufélags
NT og hugðist nýta sér tapið tU
skattfrádráttai-. Það fékkst ekki
og krafðist Vílfell endurgreiðslu
frá Framsóknarflokknum.
Landsbyggðarlækningar
Sigurður Guðmundsson land-
læknir vUl að á næsta hausti
verði tekin upp kennsla í lands-
byggðarlækningum við Háskól-
ann á Akureyri.
Norðmönnum svíður
Frumkvæði íslands í vetnis-
málum ætti að ýta alvarlega við
Noregi og verkefni Norsk Hydro
með DaimlerChrysler og SheU um
að vetni komi í stað mengandi
orkugjafa í bUum og bátum vekur
eftirtekt i Noregi, segja talsmenn
umhverfissamtakanna BeUona og
bæta við að ísland megi ekki ná
forystu í þessu efni. Morgunblað-
ið sagði frá.
Kristján vill sameina
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt til-
lögu Kristjáns
Þórs Júlíusson-
ar, bæjarstjóra
á Akureyri, að
sveitarfélögin á
Eyjafjarðar-
svæðinu sam-
einist og að
viðræður um málið hefjist hið
fyrsta.
Sýkna
Hæstiréttur hefur sýknað liðlega
tvítugan mann af ákæru um að hafa
haft samfarir við 13 ára stúlku.
Hæstiréttur taldi að honum hafi
ekki verið eða mátt vera kunnugt
að stúlkan væri yngri en 14 ára.
Miskabótakröfu var vísaö frá. í
málinu kom fram að stúlkan haföi
mök við þrjá menn sömu nótt.
Umhverfisverkefni
Reykjavík, menningarborg
Evrópu árið 2000, gengst fyrir
miklu endurvinnslu- og upp-
græðsluverkefni, SkU 21. Því er
ætiað að gefa tóninn um meðferð
úrgangs á nýrri öld. Verkfræði-
stofan Línuhönnun hf. og sam-
tökin Gróður fyrir fólk í Land-
námi Ingólfs annast verkefnið í
samráði við borgaryfirvöld.
Tafir hjá íbúöalánasjóði
Stjórn Félags fasteignasala hefur
skorað á Pál Pét-
ursson’' félags-
málaráðherra að
gripa tafarlaust
til aðgerða
vegna langvar-
andi tafa á af-
greiðslu lánaum-
sókna hjá íbúða-
lánasjóði. Vegna
þeirra sé ófremdarástand á fast-
eignamarkaði. Morgunblaðið sagði
frá.
-SÁ