Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 Neytendur Konudagsblómin: Árni Bjömsson þjóðháttafræðing- ur segir í bók sinni Sögu daganna að sá siður að eiginmenn gefi kon- um sínum blóm á konudaginn hafi ekki hafist fyrr en á sjötta áratug þessarar aldar. Þessi siður hefur fest sig rækilega í sessi og nú er svo komið að enginn þykir maður með mönnum nema hann gefi elskunni sinni blóm. Giidir þá einu hvort um eiginkonu, unnustu, kærustu eða jafnvel bara vinkonu er að ræða. Neytendasíðan fór á stúfanan og ræddi við starfsfólk nokkurra blómabúða um hvers konar vendir væru helst keyptir á konudaginn og í hvaða verðflokki þeir væru helst. Tilbúnir vendir Blómabúðaeigendur virtust flest- ir vera sammála um það að karl- mönnum þætti gott að geta gripið með sér tilbúna vendi til að færa elskunni sinni á konudaginn því margir þeirra treystu sér einfald- lega ekki til að velja sjálfir vendi. Flestir vildu þeir þá litríka og líf- lega vendi með rósum og nellikum. Slíkir vendir eru á mjög mismun- andi verði eða allt frá tæplega 500 krónum þar sem túlípanar eru oft Nellikur eru oft uppistaðan f stórum vöndum sem keyptir eru á konudag- inn. uppistaðan upp í vendi sem kosta jafnvel 5000 krónur þar sem blandað er saman nellikum, rósum, túlípön- um o.fl. Blómabúðaeigendurnir virt- ust þó sammála um að algengast væri að karlmenn keyptu vönd á um 2500-3000 krónur og þá væri Rósir eru alltaf vinsælar á konudaginn en litir þeirra hafa mismun- andi merkingu. al blómabúðaeigenda hvort rauðar rósir væru á undanhaldi sem tákn ástarinnar. En hvað skyldu litimir nú tákna? Að sögn Eydísar Ólafs- dóttur hjá Stefánsblómi eru rauðar rósir tákn um ást eða ósk og með þeim er viðkomandi að segja: „ég elska þig“. Bleikar rósir tákna m.a. móðurást eða ást til vinar, þokka og elskulegheit og hvítar rósir tákna ást og virðingu. Það getur hins veg- ar orkað tvimælis að velja gular rós- ir því guli liturinn getur bæði tákn- að gleði og vinátttu sem og afbrýði- semi og svik. Þá er bara komið að ykkur, karl- menn góðir, að láta blómin tala! -GLM en margar konur keyptu t.d. eina til tvær rósir. Tákn litanna Karlmenn gefa elskunni sinni helst litríka og tilbúna vendi á konudaginn en konur velja vendina sjálfar á bóndadaginn. uppstaðan oft rósir og nellikur. Einn blómabúðareigandi nefndi það sérstaklega að áberandi væri hversu miklu örlátari karlmenn væru í blómakaupum sínum á konudaginn heldur en konur á bóndadaginn. Karl- mennirnir keyptu stóra litríka vendi Að sögn blómabúðareig- anda er talsverð kynslóða- skipting í vali karlmanna á blómvöndum. Þeir yngri eru t.d. yfirleitt óhræddari við að velja blóm í vendina sjáifir og þeir eru oft mjög vandlátir og ákveðnir í þvi hvað þeir vilja. Þeir yngri eru líka oft djarfari í litavali og vilja t.d. appel- sínugul og skærgul framandi blóm á meðan þeir eldri velja t.d. oftar bleikar eða rauðar rósir. Skiptar skoðanir voru á því með- Algengur vöndur kost- ar 2500-3000 krónur Konudagsblómin nýtt: Skrautkarfa með þurrkuðum blómum Afskorin blóm lifa ekki lengi en ef þau eru þurrkuð má nota þau í fallega þurrblómaskreytingu eða blómakörfu eins og sýnd er hér á myndinni. Efni Tágakarfa bómull vírnet ilmjurtablanda þurrkuð blóm, t.d. rósir og ridd- arasporar bindivír ilmblöndudropar appelsína negulnaglar. Aðferð: 1) Leggið þunnt lag af bómull í botninn á körfunni. Klippið vímetið til þannig að það passi ofan i körf- una og leggið það ofan á bómullina. Þannig helst ihnefnahlandan þmr og verður ekki mygluð þar sem loft 2) Hellið nokkrum ilmblöndu- blómailminn. Fyllið körfuna síðan leikur um hana neðan frá. dropum í bómullina til að örva með blöndu af ilmjurtum (pot po- urri) t.d. úr rósablöðum, lavender, þurrkuðum sítrónuberki og sverð- liljurót sem hægt er að fá tilbúna á mörgum stöðum. 3) Til að útbúa sveiginn í kring eru þrír riddarasporastilkar (eða önnur svipuð blóm) teknir og bundnir saman með blómavír. Rað- ið stilkunum þannig að blómin dreiflst jafnt og þétt eftir sveignum og vefjið vír utan um stilkana en gætið þess að merja blómin ekki. 4) Haldið áfram að gera sveiginn þar til hann er orðinn nógu stór til að ná utan um körfuna. 5) Þar sem sveigurinn er mótan- legm- er best að láta hann laga sig að körfunni og festa hann með vír. í miðjuna er síðan sett appelsína með negulnöglum og í kringum hana eru síðan settir þurrkaðir rósaknappar. (Heimild: Stofublóm og innigróð- ur). -GLM Blómaráð Ending afskor- inna blóma Skerið stilka afskorinna blóma ávallt á ská með flugbeittum hnífi eða skærum . Skerið upp í endana á þykkum stilkum áður en þeir eru settir í vasa. Þannig á blómið auðveldara með að sjúga í sig rakann. Skerið stilkana í vatni. Þannig er komið í veg fyrir að loftbólur myndist sem hafa slæm áhrif á vatnsrennslið inn í stilkinn. Fjarlægið blöð sem fara undir vatnsborðið. Rotnandi leifar blað- anna hafa eitrandi áhrif á vatnið. Aspiríntöflur, smápeningar og ísmolar eru sagðir lengja líf nýaf- skorinna blóma. Hvað sem því líður er besta leiðin til varð- veislu sú að blanda saman 2 msk. af hvítu ed- iki og 2 msk. af strásykri í einn lítra af vatni. Ed- ikið hamlar vexti gerlagróðurs og sykurinn er góð næring fyrir blómin. Setjið blómin í kælinn á kvöld- in. Það eitt og sér getur tvöfaldað líf afskorinna blóma. Blóm lifa lengur ef þau eru ekki mjög mörg saman í vasa. Visnuð blóm Til að lífga visnuð blóm við er ráð að skera í stilkinn og setja hann í heitt vatn. Látið blómið síðan bíða á dimmum stað þar til vatnið hefur kólnað. Færið blóm- ið þá yfir í kalt vatn. Fleira um blóm Ef þú hefur einhvern tímann lyktað af morgunfrú sem hefur staðið í vasa í nokkra daga verð- ur þú líklega ánægður að heyra þessi bitastæðu tíðindi. Setjið 1 tsk. af sykri í vatnið til að losna við óþefinn af henni. Nellik- ur standa lengur ef örlítið af bórsýru er sett í vatn- ið. Alið blá- gresi á kaffikorgi. Setjið bréfþurrkur eða tusku í botninn á vasanum ef blómin eru leggja- stutt. Ef þú átt getnaðarvamarpillur á lausu skaltu leysa þær upp í vatni og vökva fjólumar með því. Ef þú ætlar að lengja stilka á stuttu blómi er gott að stinga þeim í drykkjarrör áöur en blóm- ið er sett í vasa. Setjið krónupening í vasann með túlípönunum. Þá standa þeir beinir og opna sig ekki of mikið. Vatn verður ekki skýjað í glær- um vasa ef þú setur eina msk. af þvottalegi í hvem lítra af vatni. Haldið stilklöngum blómum beinum í munnvíðum vasa með því að líma glært límband þvers og kruss yfir opið. -GLM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.