Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 32
jöker
-5
fl.
j j j
- -
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
Fjölmenni til veiða:
Ferja og frysti-
hús að láni
- segir fræðslustjóri
„Ég fæ mikil viðbrögð við hug-
„^myndinni og vænti þess að hundruð
manna taki þátt,“ segir Pétur Bjama-
son, fræðslustjóri og fyrrum varaþing-
maður á Vestfjörðum, sem ásamt stór-
um hópi einstaklinga hefur skorað á
alla Vestfirðinga sem vettlingi geta
valdið að fara á sjó einn dag í fyrstu
viku maímánaðar og veiða fisk og
verka. Þetta verði gert á grundvelli 6.
greinar laga um stjóm fiskveiða þar
sem kveðið er á um að hver einstak-
lingur megi veiða eins og hann og fjöl-
skyldan geti borðað. Pétur segist
vænta þess að róið verði frá öllum
þéttbýlisstöðum og í kringum þetta
myndist eins konar sjómannadags-
stemning.
„Ég reikna með því að við fáum
lánuð frystihús til að verka aflann. Þá
'!,i%iunum við reyna að hjálpa fólki við
að útvega sér fley. Þar kemur til
greina að ferjan Fagranes yrði fengin
ef þátttaka yrði slík,“ segir Pétur sem
segist ekkert hafa á móti því að aðrir
landsmenn geri hið sama og Vestfirð-
ingar. -rt
_ Helgarblað DV:
„ Á Broadway
Evrópu
í Helgarblaði DV er viðtal við Garð-
ar Thór Cortes sem er nú að æfa eitt
af aðalhlutverkunum í söngleik
Andrews Lloyd-Webber, Phantom of
the Opera, á West End i London.
Rætt er við Pétur Pétursson þul um
kjarabaráttu sjómanna fyrr á öldinni
þegar hnúar og hnefar ruddu brautina
fyrir bættum kjörum. Patreksfjörður
hefur verið mjög í deiglunni undan-
farið og í blaðinu verður litið á mann-
lífið bak við fréttirnar. Einnig er rætt
við Ben Kingsley sem valdi Ingvar
Sigurðsson í hóp efnilegustu leikara
Evrópu og birtar eru myndir frá
^orrablóti í Norfolk og fimmtugsaf-
mæli heilbrigðisráðherra. -sm/-þhs
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra varð fimmtug í gær. Af því tilefni fékk hún afmælistertu með mynd af nýjum barnaspítala Hringsins sem verið er
að byggja. Það voru Siv Friðleifsdóttir og Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir barnaspítalans, sem færðu ráðherranum tertuna.
DV-mynd Pjetur
Óveðrið skall á
nyrðra í morgun
Vestfirðir:
Hús enn rýmd
DV, Akureyri:
Ofsaveðrið, sem spáð var á Norð-
ur- og Austurlandi í gærkvöldi og
nótt, gerði ekki vart við sig þá en
snemma í morgun var farið að
hvessa verulega á stöku stöðum og
menn bjuggu sig undir hið versta,
enda veðurfræðingar vissir í sinni
sök þótt óveðrinu hefði seinkað.
Víða voru menn viðbúnir því að
snjór sem féll á Norðurlandi í gær
færi að fjúka og skapa ófærð.
Vegagerðarmenn á Norður- og
Austurlandi, sem DV ræddi viö,
sögðu í morgun að víðast færi enn
fært. Þó var ófært til Siglufjarðar og
um Fljót og á Siglufjarðarleiðinni
féll snjóflóð i nótt. Vegagerðarmenn
á Akureyri sögðu veginn um Víkur-
skarð ófæran en þar vorulO vindstig
og ekki stóð til að reyna að opna
veginn þar fyrr en veðrið hefði
gengið niður. Þá var ófært milli Dal-
víktm og Ólafsfjarðar en þar féll lít-
ið snjóflóð á veginn í gærkvöldi.
Vegagerðarmenn á Húsavík sögðu
vel fært þar sunnan við en höfðu
ekki farið um Tjömes og Keldu-
hverfi þar sem komin var ofankoma
og mikið hvassviðri. T.d. voru um
12 vindstig á mæli í Auðbjargar-
staðabrekku í Kelduhverfi. Vega-
gerðarmenn á Egilsstöðum sögðu
enn gott veður þar og niðri á fjörð-
um en þeir bjuggu sig undir hið
versta.
Vegna óveðursins sem var að
skella á og mjög slæmrar veðurspár
á Norður- og Austurlandi var skóla-
haldi víða aflýst á svæðinu frá
Hrútafirði í vestri austur á Þórs-
höfn á Langanesi.
-gk
Einhver bið verður á að veðrið,
sem spáð var á Vestfjörðum, gangi
yfir. Þvi hafði verið spáð að hvass-
viðrið næði hámarki sínu á hádegi í
dag. Á ísafirði var ágætisveður í
morgun og færð með besta móti. Að
sögn lögreglunnar á ísafirði var
búið að oþna alla vegi sem lokaðir
vom. Bæði vegurinn undir Óshlíð
og Súðavíkurhlíð em nú opnir allri
umferð. Enn er þó talin snjóflóða-
hætta á nokkrum stöðum á Vest-
fjörðum.
“Það er enn í gildi rýming á
nokkrum svæðum," sagði Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaður á
ísafirði, í samtali við DV í morgun.
„Það er gamla byggðin á Súðavík, á
svæði C undir Seljalandshlíð og svo
svæði M í hnífsdal," sagði Ólafur. I
gömlu byggðinni í Súðavík eru tvö
íbúðahús, undir Seljalandshlíð búa
sjö íbúar og hesthús era á svæðinu
í Hnífsdal en Ólafur segir að umferð
þar um sé bönnuð nema i samráði
við lögreglu. Þá hafa nokkur hús
verið rýmd vegna snjóflóðahættu í
Bolungarvík. Að sögn lögreglu hafa
átta hús verið rýmd; sex við Dísar-
land og tvö við Traðarland. -hb
Veðrið á morgun:
Áfram
hvasst um
allt land
Á morgun verður allhvöss eða
hvöss norðan- og norðvestanátt á
landinu. Snjókoma og skafrenn-
ingur verður um landið norðan-
vert en él víða í öðmm landshlut-
um, nema á Suðausturlandi þar
sem verður úrkomulaust. Frost
verður á bilinu 3 til 10 stig, víðast
hvar.
Veðrið í dag er á bls. 29.
* * * *
-13
* * *
* * *
/7
L >
Ingvar
Helgason hf.
SævnrhiijDa 2
Simi 525 8000
wivw. ih. is