Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1999, Qupperneq 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999
íþróttir unglinga
i>v
HK-strákar sem stóðu sig mjög vel og enduðu í öðru sæti. Efri röð frá vinstri: Brynjar Víðisson
aðstoðarþjálfari, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Sigurður Víðisson, Guðmundur Atli Steinþórsson,
Þórhaliur Siggeirsson, Rúrik Gíslason, Ásbjörn Sveinbjörnsson þjálfari. Neðri röð frá vinstri:
Eiríkur Jónsson, Árni Þór Finnsson, Ingi Þór Þorsteinsson, Bjarki Már Sigvaldsson fyrirliði og Elvar
Már Alfreðsson.
slandsmeistarar Bl í 5. ftokki karta í knattspymu innanhúss. Efsta röð frá vinstri: Samúel aðstoðar-
þjálfari, Ólafur, afi hópsins, Vilhjálmur fararstjóri og Matthías þjálfari. Miðröð frá vinstrí: Óskar Halldórs-
son, Sigurgeir Sveinn Gíslason, Birkir H. Sveinsson fyrírliði, Matthías S. Vilhjálmsson. Neðsta röð frá
vinstri: Magnús H. Guðmundson, Kári Skarphéðinsson, Jón Ö. Guðlaugsson, Sigurður F. Grétarsson.
5. flokkur karla í innanhússknattspyrnu:
Umsjón
Óskar 0. Jónsson
Ánægðir ísfiröingar með bikarinn. Matthías Vilhjálmsson er til hægri á myndinni og
sá til vinstri er Birkir H. Sveinsson fyrirliði. Þeir eru lykilmenn í hinu skemmtilega liðl ísfirðinga
sem vann sinn fyrsta stóra titil. Allir strákarnir f liðinu eru saman í skóla og hafa því allar frímínútur
og marga af leikfimitímunum til að þjálfa samvinnuna. Birkir er einnig á fullu í golfi og á skíðum en
Matthías einbeitir sér að fótboltanum. Þeir æfa nú 4 sinnum í viku og undirbúa sig af kappi fyrir
sumarið sem hefst með Essómótinu í júní.
ÍR-ingurinn Vigfús Dan Sigurðsson setti sitt 83. og 84. íslandmet í kúiuvarpi á
Unglingameistaramóti íslands í frjálsum íþróttum 15 til 22 ára. Vigfús, sem er á 16. ári, á nú
met í 19 af 20 greinum en unglingsíðan fjallar nánar um þetta mót næstkomandi mánudag. Það
var FH sem vann stigakeppnina eftir harða baráttu við ÍR og HSK DV-mynd Óskar
Sá fýrsti stóri
- hjá BÍ eftir 4-1 sigur á HK í úrslitaleik
BÍ vann sinn fyrsta stóra titil í 5. flokki karla í inn-
anhússknattspyrnu á dögunum. BÍ lék afar vel gegn
HK í úrslitaleiknum og vann 4-1 en þessi lið höfðu Fylkisstrákar lentu í þriðja sæti. Efri röð frá vinstri: Aðalsteinn
áður mæst í undanriðlinum og þá skildu þau jöfn, þjálfari, Guðni Alexandersson, Sverrir Sigmundsson, Jón Grétar
2-2 í hörkuleik þar sem HK jafnaði í lokin. Höskuldsson, Hjörtur Steinarsson, Eyjólfur Víðisson. Neðri röð frá
BÍ lagði Fylki, 4-3, í stórskemmtilegum undan- vinstri: Birgir Jóhannsson, Andrés Jóhannsson, Ólafur Pétursson,
úrslitaleik á meðan HK vann nágranna sína í Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Agnar Bragi Magnússon var veikur.
Breiðabliki örugglega, 4-1. Gaman var að sjá til
Kópavogsstrákanna, úr liðum HK og Breiðabliks, sem
þrátt fyrir harða baráttu innan vallar voru orðnir bestu
vinir á ný strax eftir leik. Margir af þeim eru saman
í skóla enda eru þetta nágrannalið og fór vel á með
þeim.
Góð byrjun ísfirðinga
Úrslitaleikm’inn milli BÍ og HK var eign ís-
firðinga. Þeir byrjuðu vel og það skiptir miklu
í leik sem þessum. Matthías Vilhjálmsson kom
BÍ í 2-0 með tveimur mörkum, Birkir H.
Sveinsson skoraði þriðja markið og Sigurgeir
Sveinn Gíslason innsiglaði loks sigurinn með
glæsimarki. Ámi Finnsson náði síðan að
minnka muninn í blálok leiksins.
Fylkir vann Breiðablik, 3—1, í leiknum um
þriðja sætið í mótinu.
Röð liða á mótinu varð annars þessi: 1. BÍ 2.
HK 3. Fylkir 4. Breiðablik 5. FH 6. Grindavík 7.
Þór, A.
Neisti.
-ÓÓJ
Það skiptir öllu máli að taka vei eftir því sem þjálfarinn
segir. HK-strákar hlusta á góð ráð í einu leikhléinu.